Morgunblaðið - 23.04.1997, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 23.04.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRlL 1997 17 LÍFEYRIR LANDSMANIMA 4% af föstum launum í 32 ár1) 4% af heildarlaunum 4% af heildarlaunum Iðgjald launagreiðanda 6% af föstum launum1) 11,5% af heildarlaunum 6% af heildarlaunum Ábyrgð á skuldbindingum $ Hvílir hjá launagreiðanda Hvílir hjá launagreiðanda Hvílir hjá sjóðnum LÍFEYRISSJÓÐUR STARFSMANNA RÍKISINS og samanburður við almennu lífeyrissjóðina B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna rikisins (gamla kerfið) Ellilífeyrir A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (nýja kerfið) Almennir lífeyrissjóðir 1-4 Iðgjald iaunþega jEllilífeyrisaldur 65-70 ára2) Ellilífeyrír Sjóðsfélagi vinnur sér inn árlega 2% lífeyrisrétt af föstum launum. Lífeyrir tekur mið af launum eftirmanns. Örorkulífeyrir E I Miðast við áunninn ** I ellilífeyrisrétt. Makalífeyrir I Maki á rétt til lífeyris tif I æviloka sem nemur helmingi af áunnum lífeyris- rétti og 20% af viðmiðunar- launum. Barnalífeyrir Börn látins sjóðsfélaga fá sem nemur helmingi barnalífeyris almanna- trygginga þar til þau ná 18 ára aldri. 65 ára3) Sjóðsfélagi vinnur sér inn árlega 1,9% lífeyrisrétt af heildarlaunum ef hann byrjar töku lífeyris 65 ára. Miðast við áunninn elli- lífeyrisrétt og til viðbótar réttindi sem viðkomandi hefði haft við 65 ára aldur. Maki fær 50% af örorku- lífeyrisrétti sjóðsfélagans í þrjú ár og 50% makalífeyris í tvö. Óskertur makalífeyrir er greiddur þangað til yngsta barn hefur náð 22 ára aldri. Börn eða kjörbörn látins sjóðsfélaga fá lífeyri sem nemur 10.000 kr. á mánuði miðað við 174,2 stiga vísitölu neysluverðs þar til þau ná 22 ára aldri. 67 eða 70 ára4) Sjóðsfélagi vinnur sér inn árlega 1,8% lífeyrisrétt af heildarlaunum ef hann byrjar töku lífeyris 70 ára. Miðast við áunninn elli- lífeyrisrétt og til viðbótar réttindi sem viðkomandi hefði haft við 67 ára aldur. Maki fær 50% af örorku- lífeyrisrétti sjóðsfélagans í þrjú ár og 50% makalífeyris í tvö. Óskertur makalífeyrir er greiddur þangað til yngsta barn hefur náð 18 ára aldri. Börn eða kjörbörn, yngri en 18 ára, fá helming af þeim barnalífeyri sem almanna- tryggingar greiða eða fasta upphæð sem breytist í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs. 1) Nýju lögin gerir ráð fyrir að ríkið greiði 10% iðgjald í LSR |aegar starfsmenn öðlast iðgjaldafrelsi í sjóðinn eftir 32 ár. 2) Nái lifaldur sjóðsfélaga og starfsaldur samtals 95 árum má hann hefja töku lífeyris fyrr. Hann verður þó að vera orðinn 60 ára. 3) Sjóðsfélagar geta hafið töku lífeyris við 60 ára aldur en þá skerðist lífeyrisréttur. Fresti sjóðsfélagi töku lifeyris til 70 ára aldurs aukast réttindin. 4) Hjá mörgum sjóðum geta sjóðsfélagar hafið töku lifeyris við 65 ára aldur, en þá skerðist lífeyririnn. Jón Jónsson hefur störf 25 ára og byrjar þá að greiða í lífeyrissjóð. í upphafi eru mánaðalaun hans 116.667 kr. á mánuði, 83.333 kr í dagvinnu og 33.333 kr. í yfirvinnu. Fyrstu 12 starfsárin hækka laun hans um 2% af af byrjunarlaunum eftir það. Að auki hækka laun hans árlega um 0,8% umfram verðlag í almennum kjarasamningum. Eftir 43 ára starf eru launin komin upp í 249.636 kr. á mánuði og þá fer hann á ellilaun, 68 ára gamall. B-deild Lífeyrisjóðs starfsmanna ríkisins A-deild Lífeyrisjóðs starfsmanna rikisins Almennir lífeyrissjóðir Ellilífeyrir Kr. 139.083 ámánuði1) Kr. 189.353 á mánuði Kr. 125.160 ámánuði Starfsfélagi Jóns, Ari Arason, sem hóf störf með honum á sömu launum verður fyrir slysi 35 ára svo hann verður 100% öryrki. Slysið leiðir Ara til dauða 40 ára. Hann lætur eftir sig konu og tvö börn. Örorkulífeyrir Kr. 23.024 á mánuði Kr. 77.681 á mánuði Kr. 73.592 á mánuði Makalífeyrir Barnalífeyrir Kr. 34.798 á mánuði Kr. 5.397 á mánuði Kr. 38.840 á mánuði Kr. 7.500 á mánuði2) Kr. 36.796 á mánuði Kr. 5.397 á mánuði 1) Ellilaun í B-deild hækka samhliða almennum launahækkunum, sem er 0,8% á ári í þessu tiltekna dæmi. Fái eftirmaður Jóns launahækkun hækka ellilaun hans um sömu upphæð. 2) Barn 100% öryrkja fær u.þ.b. 7.500 kr. I lífeyri, en 10.000 kr. við andlát föður fram til 22 ára aldurs. fyrir að eldri starfsmenn geti látið reikna út lífeyrisréttindi sem þeir hafa unnið sér inn á liðnum árum og látið leggja inn á séreignarreikn- ing þann hluta sem svarar til 7% af launum. Þannig myndu rúmlega 60% af lífeyrisréttindum viðkom- andi launamanns á liðnum árum vera áfram í sameignarsjóðnum, en tæplega 40% myndu leggjast inn á séreignarreikning. Reglugerð Eftir- launasjóðs Búnaðarbanka gerir ekki ráð fyrir því að hægt sé að skipta iðgjöldum sem þegar hafa verið greidd milli sameignarsjóðs og séreignarsjóðs. Hins vegar gerir reglugerðin ráð fyrir því að allir sem eru með styttri starfsaldur en sex ár fari inn í nýja kerfið. Búnaðar- bankinn hefur stofnað séreignar- sjóð, sem m.a. er ætlað að varð- veita viðbótariðgjald starfsmanna sinna, en auk þess er honum ætlað að keppa um viðbótariðgjöld við aðra séreignarsjóði. Reglugerðirnar, sem enn hafa ekki formlega verið staðfestar, gera ráð fyrir að lífeyrissjóðimir beri sjálfir ábyrgð á réttindum sínum. Þessari ábyrgð var ekki létt af vinnuveitendum sem greiða í LSR. Þetta atriði hefur valdið nokkrum ágreiningi meðal bankamanna og skýrir að hluta til hvers vegna af- greiðsla málsins hefur dregist af þeirra hálfu. Andstaða hefur verið við að létta ábyrgðinni af bönkunum meðal starfsmanna Seðlabankans, en þeir hafa einnig lagt áherslu á að auka lýðræðið í sjóðnum þannig að meirihluti stjórnar verið kosinn af sjóðsfélögum á sjóðsfélagafundi. Nokkrar breytingar eru gerðar á lífeyrisréttindum bankamanna og eru þær hliðstæðar breytingum sem gerðar hafa verið á LSR. Tekið verður upp stigakerfi og makalíf- eyrir er skertur, en örorkulífeyrir er aukinn á móti. I tengslum við nýgerða kjara- samninga bankanna og banka- manna var samþykkt bókun um að gerðar yrðu breytingar á lífeyris- kerfi starfsmanna sparisjóðanna. Lífeyrismál starfsmanna sparisjóð- anna eru með ýmsum hætti. Sumir greiða í LSR, aðrir í Lífeyrissjóð verslunarmanna og enn aðrir í líf- eyrissjóði sveitarfélaganna. Samrœming réttinda Þær breytingar sem gerðar voru á lífeyrissjóðakerfi opinberra starfs- manna á síðasta ári leiddu í ljós hversu mikill munur er á verðmæti réttinda opinberra starfsmanna og annarra launamanna. Trygginga- stærðfræðingum var falið að reikna út hversu hátt iðgjald opinberra starfsmanna þyrfti að vera til að það borgaði réttindi þeirra. Niður- staðan varð sú að iðgjaldið þyrfti að vera 15,5%. Bankamenn höfðu áður komist að þeirri niðurstöðu að þeirra iðgjald þyrfti að vera 17%. Flestallir launamenn á almennum markaði greiða hins vegar 10% ið- gjald. Þessir útreikningar urðu til þess að forysta ASÍ setti fram kröfu í aðdraganda kjarasamninga um að stjórnvöld jöfnuðu lífeyrisréttindi landsmanna. Stjórnvöld höfnuðu þeirri kröfu með þeim rökum að ekki væri verið að auka lífeyrisrétt- indi opinberra starfsmanna heldur aðeins að reikna út kostnað við þau. Steingrímur Ari Arason, aðstoð- armaður fjármálaráðherra og for- maður nefndar sem samdi frum- varpið um LSR, sagðist gera ráð fyrir að frekari breytingar yrðu gerðar á lífeyrissjóðakerfi opinberra starfsmanna í framtíðinni. Það mætti t.d. vel hugsa sér að meðal opinberra starfsmanna vaknaði áhugi á að lækka lífeyrisiðgjald rík- isins gegn því að laun hækkuðu á móti. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, sagðist ekki trúa því að opinberir starfsmenn myndu um alla framtíð sætta sig við að nota svo stóran hluta launa sinna í að tryggja sig eftir að starfs- ævi lyki. Hann benti á að héldu þeir áfram að vinna fram að sjötugu gætu þeir tryggt sér hærri lífeyri en þeir hefðu í heildarlaun. Menn hlytu að átta sig á að það væri hagstæðara að taka stærri hluta launanna út strax í formi hærri launataxta. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sagðist ekki telja að lífeyris- iðgjald opinberra starfsmanna væri of hátt eða fæli í sér of rnikla trygg- ingu. Það væri heldur ekki ágrein- ingur um það að það þyrfti að auka sparnað í þjóðfélaginu. Ágreiningur væri hins vegar um hver ætti að varðveita þennan sparnað. Þórarinn væri talsmaður þess að fjárvörslu- sjóðir sæju um stærri hluta af sparnaðinum, en sjálfur væri hann talsmaður þess að samtryggingar- sjóðirnir sæju um að ávaxta nauð- synlegan sparnað landsmanna. A morgun, fimmtudag, verður fjallað um rekstur almennu lífeyrissjóðanna, skipan í stjórnir, eignir sjóðanna og sókn þeirra inn á hlutabréfamarkað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.