Morgunblaðið - 23.04.1997, Page 30

Morgunblaðið - 23.04.1997, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Ljósmynd: Kristján Pétur Guðnason LÖGBERGSHRAUNIÐ. Þegar mynd þessi var tekin, var enn siyór í gjánni, 14. apríl sl. Mennimir standa á snös gamla Lögbergs, og vel má sjá fráklofninginn, en hraunið liggur undir snjónum á milli. Endurreisum Lögberg ÖMURLEG má sú vitneskja vera íslend- ingum, nú þegar á að kveðja upp þjóðlið og kalla til gesti að Lög- bergi helga, þar sem „við trúnni var tekið af lýði“, að lögberg á Þingvöllum sé ekki lengur til. Mikið er nú og rétti- lega fárazt yfir skemmdarfýsn ungl- inga, en unglinga- vandamálið er ekki nýrra en svo, að á al- þingi árið 1724 eða um það bil tók sig til hópur ungra meðreiðar- sveina þingmanna og veltu stórum steinum ofan af lögbergi og gerðu úr stillur yfir um ána, svo þing- menn kæmust til kirkju. Ekki væri þetta spellvirki ungl- inganna svo fréttnæmt nema af því, að fyrir þeim fór sá maður, þá 18 ára, sem varð síðar einn mesti fomfræðingur landsins, og hitt ekki síður, að hann skráði þennan verknað síðar kyrfilega í tveimur handritum sínum. Sá var Jón Ólafsson frá Grunnavík, sveinn Páls lögmanns Vídalín og síðar skrifari Árna Magnússonar. íslendingar ættu að geta lagað til eitt jarð- skjálftahrun, segir Björn Th. Björnsson, og eignast í staðinn að nýju Lögberg helga á Þingvöllum. Jóni Ólafssyni verður það á, líkt og fleirum á þeim tíma, að rugla sem snöggvast saman lögréttu og lögbergi, þótt hann leiðrétti það síðar. Hann segir: „Lögrétta (rétt- ara: lögberg) meina ég til forna verið hafa á eystra gjábarminum skammt fyrir utan Snorrabúð, fáa faðma norðar. Því anno 1724 circit- er, þá vér komum með Páli lög- manni Vídalín til lagaconferenzen (lögþingsins) viku fyrir alþíng eður þann 8. Juli sem þá tíðkaðist, fann ég þar ferkantaða hraunsteina á berginu, mátulega til að sitja á, og voru flestir grasi vaxnir. Þá tókum við upp, veltum niður af Hallinum og gjörðum stillur af við eyrar end- ann sunnanverðan, fyrir neðan lög- réttuna (þ.e. Lögréttubúðina undir Hallinum, svo gánga mátti þurum fótum fyrst yfir á fógeta hólmann, og síðan settum við eins stigsteina þaðan yfir kvíslina, svo gánga mátti heim að Þingvöllum þurum fótum og þurfti ei hest. Þar hygg eg heitið hafí Lögberg til forna, svo sem nefnir í Jóns- bók og sögunum." Síðar bætir Jón Ól- afsson því við sem at- hyglisverðast er: „Þessir ferskeyttu hraunsteinar stóðu svo sem í hálfhríng á gjá- barminum, eins og hrunið hefði af vestari hluta hríngsins inn í gjána. Þeir voru allir ferkantaðir hraun- steinar, eins og til- höggnir, og mátulegir að sitja á, sem aðrir stólar." (eftir uppskrift Jóns Sig- urðssonar í JS 497 4to eftir frum- riti Jóns í Add. 6 4to, nú AM 979 a-c, 4to.) Þessi frásögn Jón Ólafssonar er einkar trúverðug vegna þess, að hvergi nema á þessum eina stað hefur orðið verulegt hrun eða frá- klofningur úr lægri gjárbarminum. Samkvæmt þessu hefur verið all- stór en afhallur stallur efst á Hall- inum, hlaðinn upp framan og fyllt- ur til þess að jafna hann, og set- steinarnir staðið á honum í hring. Síðan hefur hálf áhleðslan sem eft- ir var skriðið fram og flatzt úr. Það eru leifar hennar sem nú er kallað Lögberg. Báðir þeir Pálmi Pálsson yfirkennari og Sigurður Vigfússon fornmenjavörður tóku eftir því, að áhleðsla þessi hefði skriðið veru- lega fram í sinni tíð. En hvað um setsteinana á Lög- bergi sjálfu? Annaðhvort eru þeir í hruninu eða komnir niður í sand- og leirbotn Öxarár. Dr. Björn M. Ólsen síðar háskólarektor segist hafa séð einn þessara steina í ánni sumarið 1880 og fundið enn annan til þegar hann fór þangað rann- sóknarför haustið 1903 með dr. Jóni Stefánssyni og enska rithöf- undinum Hall Caine. Styrkir það að sjálfsögðu frásögn Jóns Grunn- víkings. En hvað skal þá til varnar verða vorum sóma? Því er aðeins á einn veg að svara: fylla upp í fráklofn- inginn og endurgera þann berg- stall sem fyrrum var helgasta vé íslands, þaðan sem lög voru upp sögð og þar sem við trúnni var tekið af lýði. Erlendis hafa fátækar þjóðir endurreist heilar borgir úr styrj- aldarrústum, aldagamlar bygging- ar svo þær fyrrum voru. Hví skyldi okkur Islendingum verða skota- skuld úr því að laga til eitt jarð- skjálftahrun og eignast í staðinn að nýju Lögberg helga á Þingvöll- um við Öxará? Höfundur er listfræðingur. Björn Th. Björnsson Góð bók er ávallt ný! LIST HINS ritaða orðs hefur löngum verið skipað í öndvegi á listasviði hér á landi, enda bók- menning þjóðarinnar nánast órofin allt frá tólftu öld. Þótt listsköpun verði sífellt margþættari, myndlist, tónlist, kvikmyndagerð og fleiri greinar hasli sér víðari völl í þjóðlífinu skipa bókmenntir enn sérstakan sess meðal íslendinga. Landsmenn minnast þess stoltir á hátíðastund- um að þeir séu bókaþjóð eða jafn- vel bókaþjóðin - með ákveðnum greini. Lítið málsvæði Mörgum útlending- um þykir raunar furðu sæta að hér skuli yfir- leitt vera gefnar út bækur á tungumáli landsmanna, svo smár er markaðurinn og málsvæðið - aðeins brot eða brotabrot af helstu samfélögum Vesturlanda. Aftur á móti eru dæmi um að seld upplög innlendra bókmenntaverka hér á landi séu svipuð að eintakafjölda og gerist á öðrum Norðurlöndum sem eru 15-20 sinn- um mannfleiri en Island. í stað þess að sætta okkur við að hér stæðu einungis til boða bækur á erlendum málum höfum við gefið út íslenskar bækur og þýtt helstu stórvirki heimsbók- menntanna, og sitthvað léttvægara reyndar líka, á okkar ylhýra mál. Við útgáfustarfsemina fást hópar fólks á öllum ferli bókarinnar allt frá því að hún verður til í huga höfundar þar til hún er komin í hendur lesandans sem mun njóta hennar. Bækur hafa átt sinn snara þátt í að efla þjóðvitund íslendinga, þær hafa verið • uppspretta menningar og þekkingar og hafa að auki haft gífurlega þýðingu varðandi þróun íslenskrar tungu. Sá þáttur skiptir ekki síst máli þegar metið er gildi bóka og bókmennta í þjóðfélaginu. Það er óumdeild staðreynd að í litlu málsamfélagi eins og því íslenska gegna bækur enn veigameira hlutverki en meðal milljóna- þjóða við að varðveita, kenna og endurnýja tungumál þjóðarinnar. Dagur bóka og stórskálda Af öllum þessum sökum ætti það að vera íslendingum ánægjuefni að ákveðið skuli hafa verið að einn dagur í almanak- inu skuli helgaður bókinni. Frá og með síðasta ári var 23. apríl alþjóðlegur dag- ur bókarinnar að frumkvæði Menn- ingarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Þessi dagur er í senn dagur bóka og stórskálda. Tveir skáldjöfrar fortíðar Miguel de Cer- vantes og William Shakespere lét- ust báðir 23. apríl árið 1616 en á sama apríldegi árið 1902 fæddist Nóbelskáldið okkar, Halldór Lax- ness, sem er 95 ára í dag. Markmið bókadagsins er um- fram allt að hvetja fólk, og þá ekki síst yngri kynslóðina, til þess Gott væri, segir Ölafur Ragnarsson, að sem flestir temdu sér þá ljúfu reglu að ljúka hverjum degi með því að líta í bók. að lesa meira og kynna sér verk þeirra fjölmörgu höfunda sem auðgað hafa líf mannkyns um ald- ir. Börn og bækur Þýðingarmikið er að þær kyn- slóðir sem nú eru á mótunar- skeiði, börn okkar og barnabörn, átti sig á gildi hins ritaða orðs og læri að njóta góðra bóka. Þar fara lesendur komandi daga og það gefur auga leið að framtíð bóka mun grundvallast á áhuga þeirra á bóklestri. Miklu skiptir í þessu efni að bækur séu til á heimilum og börn alist upp í sem nánustum tengslum við þær. í nýafstaðinni barnabókaviku Félags íslenskra bókaútgefenda var meðal annars bent á að rann- sóknir hafa sýnt að því fyrr sem foreldrar fara að lesa fyrir börn sín þeim mun meiri líkur eru á að börnin kunni að meta bækur þegar þau komast á manndómsár. Og jafnframt hefur komið fram að bömum sem eru lestrarhestar vegnar betur í lífinu en hinum sem farið hafa að mestu á mis við bækur. Ólafur Ragnarsson Ennhækkar R-listinn gjöldin FYRIR síðustu borgarstjórnarkosn- ingar 1994 lýsti R-list- inn yfir, að komist hann til valda myndu skattar ekki hækka. Strax í fyrstu fjár- hagsáætlun 1995 var nýr skattur Iagður á borgarbúa, holræsa- gjald, sem þýddi 26% hækkun fasteigna- gjalda eða um 14-30 þúsund króna skatta- auka á hvert heimili í borginni, eftir stærð þess. Til viðbótar holræ- sagjaldinu hefur R- listinn hækkað dagvistargjöld - strætisvagnagjöld, bílastæða- gjöld, heita vatnið, rafmagnið - vatnsgjaldið, gjöld fyrir sundstaði og þjónustu við aldraðra. Þá hefur R-listinn séð svo um að sum- arvinna skólafólks hefur dregist verulega saman undanfarin 2 sumur, sem hefur þýtt stórlækkun á tekjum reykvískrá unglinga og þar af leiðandi tekjulækkun heimilanna. Enn ætlar R-listinn að halda áfram á sömu braut Um síðustu áramót hækkaði R-listinn gjaldskrá sundstaða um 11%. 1. maí nk. verður gjaldskrá sundstaða enn hækkuð. Nú á að leggja á svokallað sumargjald, sem gilda á frá 1. maí til 1. sept- ember ár hvert. Þar mun gjald- skrá einstaklinga, bæði fullorð- inna og barna, hækka verulega, eða um 20% fyrir fullorðna, úr 165 kr. í 200 kr. og um 60% fyrir börn, úr 65 kr. í 100 kr. Gjaldskrá sund- staða hefur því hækk- að frá áramótum fyrir einstaklinga um 35% fyrir fullorðna og 65% fyrir börn. Hvers eiga blessuð börnin að gjalda? Verðhækkan- ir R-listans eru með fádæmum og spyija má hvers vegna neyt- endasamtökin og aðr- ir aðilar sem að gæta verðlagsbreytinga láti sem þetta komi þeim ekkert við. Rétt er að geta þess að lang mest er keypt sam- kvæmt gjaldskrá einstaklinga í sund, eða 37% af heildinni. Á sl. ári var heildaraðsókn að sundstöð- um borgarinnar tæplega 1,5 millj. manns og allar líkur á að enn fleiri sæki sundstaðina á þessu ári. Þessar hækkanir koma mjög illa við marga Reykvíkinga og þá sér- staklega barnafjölskyldur. Með þessari hækkun er gjaldskrá sund- staða í Reykjavík orðin lang hæst allra sundstaða á höfuðborgar- svæðinu, en lægst er einstaklings- gjaldið 110 kr. fyrir fullorðna í Mosfellsbæ og 30 kr. fyrir börn á Seltjarnarnesi. Hver er tilgangurinn með svona gífurlegri hækkun? Er ekki komið nóg? 1. apríl sl. var viðtal við borgar- stjórann í Reykjavík í Dagsljósi, viðtalið tók Hrafn Jökulsson. Hrafn spurði borgarstjóra m.a. um holræsagjaldið og þær miklu hækkanir sem orðið hafa á gjald- R-Iistinn hefur ekki að- eins lagt á holræsagjald, segir Hilmar Guð- laugsson, heldur hækk- að dagvistargjöld, strætisvagnagjöld, vatns- og rafmagns- verð, gjöld fyrir sund- staði og þjónustu við aldraða. skrám. Borgarstjóri svaraði þessari spurningu að mínu mati út í hött, sagði aðeins að þetta væru ekki skattar, heldur gjöld fyrir ákveðna þjónustu. Þótt Hrafn endurtæki spuminguna um holræsagjaldið, svaraði borgarstjóri alveg á sama veg og bætti við að öll gjaldtaka bitnaði á fólki, það sé alveg ljóst. Þvílíkt svar. Borgarstjóri vildi ekki ræða þá staðreynd að holræsagjaldið er ekki lagt á fólk eftir tekjum heldur eftir stærð húsnæðis. Gjaldið bitn- ar því harðast á fólki með lágar tekjur. Það má vera ljóst að bama- fjölskyldur og lágtekjufólk fara því verst út úr skatthækkunum og verðhækkunum R-listans. Ég býst ekki við að borgarbúar láti þessi svör borgarstjóra nægja og óski svara um kosningaloforðin frá 1994. Höfundur er borgarfulltrúi. Hilmar Guðlaugsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.