Morgunblaðið - 23.04.1997, Síða 35

Morgunblaðið - 23.04.1997, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1997 35 Morgunblaðið/Júlíus sykjavíkurflugvelli í gær. Hún er mikið skemmd eins og sjá má og óvíst að borgi sig að gera við hana. Morgunblaðið/Kristinn HAFSTEINN Geirsson sjónarvottur telur að dautt hafi verið á báðum hreyflum vélarinnar rétt áður en hún brotlenti. Morgunblaðið/Ásdís DANSKUR flugmaður Piper-flugvélarinnar á slys- staðnum skömmu eftir brotlendinguna á Suðurgötu í gær. 1 hefði verið væntanleg til Reykjavíkurflugvallar )úið að girða ngarsvæðið inn til lendingar og hefði ekki fengið tilkynningu um flugslysið fyrr en klukkan 12.45 og þá hefði jafnframt verið bókað eftir flugturninum að vélin hefði lent á braut númer 1 klukkan 12.44. „Þarna hefði getað orðið stórslys ef strætisvagn, önnur bifreið eða Morgunblaðið/Árni Sæberg ri, rann út af flugvallarsvæðinu að flugtak. gangandi vegfarendur hefðu átt leið hjá. Hvar stæðu menn þá? Við hefð- um getað verið búnir að koma okkur fyrir, loka Suðurgötunni og umferð um göngubrautina áður en vélin lenti. Þannig á að gera hlutina en því mið- ur var það ekki gert,“ sagði Haukur. Hilmar Þorbjörnsson, aðstoðaryf- Morgunblaðið/Golli ÞETTA skilti var sett upp eftir flugóhappið 1986. irlögregluþjónn umferðardeildar lög- reglunnar, sagði hörmulegt ef lög- reglan hefði ekki verið látin vita eft- ir að búið var að heimila lendingu á flugvél með bilaðan hreyfil og jafn- framt teldi hann það dásamlega vel sloppið að ekki hefði hlotist stórslys af þarna. U mferðar öryggismál ekki rædd nýverið Árið 1986 varð það óhapp á sömu flugbraut að ein Fokker-véla Flug- leiða, Árfari, hætti við flugtak vegna bilunar. Vélin rann brautina á enda, yfir 100 metra malarkafla innan flug- vallar, gegnum flugvaliargirðingu og staðnæmdist á Suðurgötunni án þess að slys hlytust af. Þá kom fram hjá Öskari heitnum Ólasyni yfirlögregluþjóni í blaðavið- tali að umræða varðandi umferðar- öryggi við völlinn hefði staðið í mörg ár án þess að nokkuð hefði verið að gert. Fram hefðu m.a. komið hug- myndir um að grafa veginn niður og um að setja upp umferðarljós sem stöðvi umferð meðan vélar fara á loft og lenda. Eftir óhappið 1986 voru sett tvö skilti við Suðurgötu til að vara við lágflugi en Hilmar Þor- björnsson sagði aðspurður í gær að í raun hefði ekkert gerst í umferðar- öryggismálum flugvallarins síðan og hann kannaðist ekki við að málið hefði verið til umræðu nýlega. Bergsveinn Alfonsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, sagði að Neyðarlínan hefði fyrst fengið tilkynningu um óhappið eftir lendingu klukkan 12.45 með hring- ingu úr flugtumi. Þá hefði verið sent lið frá slökkvistöðinni í Reykjavík en slökkvilið flugmálastjórnar á flugvell- inum í Reykjavík var hins vegar í viðbragðsstöðu inni á flugvellinum og beið vélarinnar. Víkja á bæjarfulltrúum í Hveragerði úr Sjálfstæðisfélaginu Ingólfi Endanleg- staðfesting á klofningi * Agreiningur bæjarfulltrúa sjálfstæðismanna í Hveragerði og forystumanna sjálfstæðisfé- lagsins á staðnum tók á sig nýja mynd í fyrrakvöld þegar bæjarfulltrúunum var vikið úr félaginu með atkvæðagreiðslu á almennum félagsfundi. TILLAGA um að víkja bæjarfulltrúum Sjálf- stæðisflokksins í Hvera- gerði, fjórum talsins, úr Sjálfstæðisfélaginu Ingólfi í Hvera- gerði var samþykkt með meirihluta atkvæða á félagsfundi í félaginu í fyrrakvöld. Að sögn Björns S. Páls- sonar, formanns Ingólfs, verður málið tekið fyrir á stjórnarfundi í félaginu mjög fljótlega og sagðist hann ætla að leggja þar til að tillag- an um brottvikningu bæjarfulltrú- anna verði samþykkt. „Að því loknu, verði það sam- þykkt, verður sent bréf til þessara aðila og þeim tilkynnt að það sé búið að vísa þeim úr félaginu," sagði Björn í samtali við Morgunblaðið. Boðað var til fundarins hjá Sjálf- stæðisfélaginu Ingólfi með Friðrik Sophussyni fjármálaráðherra. Hann gat ekki mætt á fundinn og hélt Steingrímur Ari Arason, aðstoðar- maður fjármálaráðherra, í hans stað framsögu á fundinum um skatta- og lífeyrismál. í upphafi fundarins var gerð dagskrárbreyting þess efn- is að kosið var í uppstillingamefnd vegna sveitarstjórnarkosninga í maí 1998, en tillagan um að víkja bæjar- fulltrúunum úr félaginu var borin upp undir liðnum önnur mál og var hún samþykkt með 25 atkvæðum en 9 greiddu atkvæði á móti og 8 sátu hjá. Þeir sem samþykkt var að víkja úr félaginu eru Gísli Páll Pálsson, forseti bæjarstjórnar, Alda Andrésdóttir, Hafsteinn Bjamason og Aldís Hafsteinsdóttir. Deilur sjálfstæðismanna í Hvera- gerði má rekja til klofnings sem varð í bæjarstjórnarflokknum. Sjálf- stæðismenn náðu hreinum meiri- hluta í bæjarstjórninni í síðustu sveitarstjórnarkosningum, en þrír af ijórum bæjarfulltrúum flokksins gengu 25. ágúst síðastliðinn til meirihluta- samstarfs við H-listann. Knútur Bruun, oddviti sjálfstæðismanna og for- seti bæjarstjórnar, var þar með einn kominn í minnihluta í bæjarstjórn- inni og sagði hann af sér, en vara- maður hans gekk til liðs við meiri- hlutann. Áskorun um að bæjarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins slitu tafarlaust samstarfí við H-listann var samþykkt á aðalfundi Ingólfs í lok október, og stjóm félagsins hef- ur síðan ítrekað mælst til þess við bæjarfulltrúana fjóra að slíta sam- starfínu, en þeir hafa ekki orðið við þeim tilmælum. Stöðugt sýnt félaginu lítilsvirðingm Björn S. Pálsson sagði að ástæða þess að víkja ætti bæjarfulltrúunum fjórum úr Ingólfi væri sú að þeir hefðu ekki viljað slíta samstarfínu við H-listann, auk þess sem þeir hefðu stöðugt sýnt félaginu lítils- virðingu. „Það varð klofningur 25. ágúst og það er bara verið að staðfesta hann endanlega núna. Það var ein- faldlega ekki hægt að geyma þetta lengur, en á fundinum kusum við í uppstillingarnefnd og síðan mun stjórnin skipa til viðbótar í þá nefnd. Hún þarf að taka til starfa og koma á fund í haust með tillögu um próf- kjör eða uppstillingu. Ef við ætlum að láta taka mark á okkur og fá fólk til að taka þátt í þessu verður þetta að vera orðið hreint borð. Það tekur enginn mark á því ef við för- um hér í framboðsmál og höfum þetta yfir okkur að fólk geti slitið sig frá þessu,“ sagði Björn. Hefur engin áhrif á samstöðu bæjarfulltrúanna Gísli Páll Pálsson sagði í samtali við Morgunblaðið að samþykkt til- lögunnar á fundinum í fyrrakvöld breytti í raun og veru engu, en hann teldi eðlilegt að ræða þetta mál við forsytumenn Sjálfstæðis- flokksins. Hann sagði að málið kæmi auðvitað til með að hafa áhrif á næstu sveitarstjórnarkosningar og sjálfur hefði hann helst viljað að sjálfstæðismenn í Hveragerði hefðu getað náð sáttum. „Vonandi bera menn gæfu til þess að sættast og ná þessum ágreiningi niður, en það gerist auð- vitað ekki með svona vinnubrögð- um. Sérstaklega finnst mér það óheiðarlegt, ef nota má það orð, að nefna þetta ekki í fundarboði, en stjórnin vissi auðvitað að þetta stæði til. Þetta var löngu fyrirfram undir- búið og er alveg sama þótt þeir þræti fyrir það, en þeir voru líka búnir að smala sínum stuðnings- mönnum á fundinn," sagði Gísli Páll. í fréttatilkynningu sem bæjarfulltrúarnir fjórir sendu frá sér í gær segir m.a. að brottvikningin sé einsdæmi í sögu Sjálf- stæðisflokksins og beitt hafi verið vinnubrögðum sem ekki sæmi þeim mönnum sem kenna sig við sjálf- stæðisstefnuna. „Ágreining um menn ber að leysa með öðrum og opnari hætti. Sér- hagsmunaklíka örfárra einstaklinga sem beitir vinnubrögðum af þessum toga dæmir sig sjálf og er örugg- lega ekki að skapi kjósenda Sjálf- stæðisflokksins í Hveragerði og annarra Hvergerðinga. Svona til- reiddar samþykktir hafa engin áhrif á samstöðu bæjarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins og þá breiðu samstöðu um framfaramál sem náðst hefur í Hveragerði, bæjarfélaginu til heilla. Niðurrifsöflum haldast ekki uppi slík vinnubrögð sem hér voru við- höfð og mun það koma í ljós að ári,“ segir í fréttatilkynningunni. Málið hefur áhrif á næstu kosningar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.