Morgunblaðið - 23.04.1997, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1997 45
Árna Magnússyni frá Hellum hér í
Grindavík, en hann var á þessum
árum, þ.e. 1940-1942, vélstjóri á
vélbátnum Bjarna Ólafssyni KE.
Gengu þau í hjónaband 18. desem-
ber 1943.
Erna dóttir Guðrúnar lést langt
um aldur fram.. Hún var eina barn
móður sinnar, en Árna og Guðrúnu
varð ekki barna auðið. Árni reyndist
Emu ætíð sem besti faðir og var lát
Ernu þeim mikið áfall.
Árni réðist sem vélstjóri til Hrað-
frystihúss Grindavíkur og byggðu
þau húsið Tungu, sem þá var nokk-
uð út úr aðalbyggðinni. Þar bjuggu
þau allan sinn búskap, eftir að þau
fluttu til Grindavíkur. Voru þau
samhent og verklagin bæði tvö.
Guðrún saumaði mikið fyrir almenn-
ing hér í Grindavík.
Stjúpfaðir Árna var Guðmundur
uppeldisbróðir móður minnar, en
föður sinn missti Árni barn að aldri.
Hann fórst í fiskiróðri, þar fóru fleiri
skyldmenni hans.
Við Árni áttum langt og gott
samstarf í Slysavarnadeildinni Þor-
birni frá 1942 og Björgunarsveitinni
Þorbirni sem stofnuð var 1947. Stóð
það samstarf allt þar til Árni lést.
Tók Guðrún virkan þátt í starfi með
Áma, t.d. þegar Árni var gjaldkeri
félagsins. Árið 1977 er Slysavarna-
deild kvenna í Grindavík, Þórkatla,
stofnuð. Var Guðrún formaður
hennar til margra ára og starfaði
þar vel. Býst ég við, að aðrir fjalli
um þann þátt í lífi Guðrúnar.
Árið 1946 byggði ég Gnúp, sem
er næsta hús við Tungu og vorum
við Hulda kona mín því nágrannar
þeirra í áratugi, eða um hálfa öld.
Voru því náin kynni og samskipti
við þau hjón.
Er Árni lést 18. janúar 1987, var
það þungt áfall fyrir Guðrúnu, svo
samhent sem þau voru í allri snyrti-
mennsku utan húss sem innan, en
hann hætti að starfa út á við nokkr-
um árum áður. Urðu samskipti við
Guðrúnu enn meiri eftir fráfall
Áma. Var daglegt samband en
heilsu hennar hnignaði mjög tvö til
þijú seinustu árin og má segja að
ömmusystur okkar að hún var ein-
staklega hlý og góð manneskja.
Sigga bjó ásamt tveimur systmm
sínum og bróður á Grettisgötunni
og það var ávallt tilhlökkunarefni
hjá okkur systkinunum þegar við
vorum lítil að sækja þau heim. Og
alltaf hlutum við blíðar móttökur.
Það var þó hápunktur heimsóknar-
innar þegar ýmiss konar bakkelsi
var borið á borð. Við minnumst
þess ekki að einhvern tíma hafi
ekki verið til neinar kökur á heimil-
inu handa okkur. Mjólk var alltaf
til handa okkur líka og þær systurn-
ar lögðu á það ríka áherslu að við
kláruðum úr glösunum okkar. Og
svo vissum við að þegar við fæmm
heim myndi Sigga kalla okkur inn
í forstofuherbergið til sín og gauk-
aði að okkur sælgætismola. Og
öðrum svona í nestið. Við vomm
alsæl með þetta. Já, Sigga á Grettó
var í okkar hugum holdtekja hins
góða. Það að hún skuli aldrei hafa
gifst og eignast börn er að mörgu
leyti synd, því að hún hafði svo
óskaplega mikið að gefa. En við
og önnur nákomin börn fengum
bara því meiri ástúð fyrir vikið. Hún
gætti okkar eins og sjáaldurs augna
sinna þegar mamma þurfti á þess
háttar aðstoð að halda. Síðar meir
vorum við farin að gera okkur grein
fyrir að Sigga á Grettó var orðin
mjög veik. Þegar við hins vegar
minntumst á eitthvað slíkt taldi hún
það af og frá og sagðist bara hafa
það ljómandi gott. Aldrei nokkurn
tíma heyrðum við hana barma sér
yfir heilsuleysi sínu. Það var ekki
hennar stíll. Þegar mikið heilsuleysi
hefur þjakað manneskju í áraraðir
er kannski best að hún fái að ljúka
sinni jarðvist. Og Sigga á Grettó
verður hvíldinni áreiðanlega fegin.
Við vonum og trúum því að Sigga
hafi haft það gott í handan heimin-
um og þökkum henni fyrir allt það
sem húin hefur gefið okkur. Öllum
aðstandendum hennar vottum við
samúð okkar.
Ásta Bryndís og Konráð.
hún væri rúmföst síðustu 12-14
mánuðina sem hún lifði. Um síðustu
jól gat hún ekki komið til okkar og
verið með okkur, en það hafði hún
gjört frá því Árni féll frá.
Guð blessi minningu hennar. Að-
standendum vottum við samúð okk-
ar.
Tómas Þorvaldsson og
Hulda Björnsdóttir, Gnúpi.
Þegar ég minnist Guðrúnar J.
Jónsdóttur eða Guðrúnar í Tungu,
eins og hún var alltaf kölluð hér í
Grindavík, reikar hugurinn aftur til
bams- og unglingsára minna. Guð-
rún og Arni Magnússon eiginmaður
Guðrúnar voru nágrannar fjölskyldu
minnar.
Ég vissi það strax sem barn, að
Guðrún varð ekkja þegar fyrri eig-
inmaður hennar, Guðmundur Guð-
mundsson, fórst með færeyskri
skútu, sem hann var skipveiji á.
Mér er það einnig í barnsminni þeg-
ar dóttir þeirra Erna og uppeld-
isdóttir Árna var kvödd hinstu
kveðju frá heimili þeirra, Tungu, en
þá voru húskveðjur enn til siðs hér
í Grindavík.
Umhverfis Tungu var mjög fall-
egur garður og á sumrin skartaði
hann sínu fegursta, blómum, tijám
og mnnum og voru Guðrún og Árni
mjög natin og samhent við garð-
vinnuna. En ekki var alltaf alger
friður með garðinn fyrir okkur
krökkunum en við bárum mikla virð-
ingu fyrir Guðrúnu og Áma og þeg-
ar við fómm einhverja erinda heim
að Tungu gengum við alltaf eftir
gangstéttinni.
Þegar ég gerðist svo formaður
björgunarsveitar Slysavarnafélags-
ins hér í Grindavík kynntist_ég þeim
hjónum mikið betur, því Arni var
þá gjaldkeri Slysavarnadeildarinnar
Þorbjörns og hafði áður verið
„skytta" björgunarsveitarinnar um
lang skeið. Á þessum tíma var björg-
unarsveitin að byggja björgunar-
stöð, kaupa bíla, björgunarbát og
margskonar björgunartæki, þá var
staðið í margskonar fjáröflunum og
+ Guðrún Erla Ásgrímsdóttir
fæddist á Torfastöðum í
Biskupstungum 13. febrúar
1944. Hún lést 1 Reykjavík 18.
mars síðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Fossvogs-
kirkju 26. mars.
Elsku Gunna.
Kveðja frá okkur skólasystmm
þínum frá Húsmæðraskólanum á
Laugalandi í Eyjafirði 1963 til
1964.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og bezta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
+ Álfheiður Einarsdóttir
fæddist í Gljúfri í Ölfusi 1.
ágúst 1928. Hún lést á Hjúkrun-
arheimilinu Eir í Reykjavík 10.
apríl síðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Hallgríms-
kirkju 18. apríl.
Til elsku ömmu okkar. Ástar-
þakkir fyrir allt sem þú hefur gefið
okkur með hlýju þinni og kærleika.
Við varðveitum minningu þína.
því mikið álag á Árna og Guðrúnu,
sem var hans stoð og stytta í gjald-
kerastarfinu og sá hún m.a. um að
skrifa minningarkort o.m.fl.
Guðrún var einnig félagi í ný-
stofnaðri kvennadeild Slysavarna-
félagsins, Þórkötlu og var formaður
deildarinnar í allnokkur ár. Þór-
kötlukonur hafa alla tíð verið aðal
stuðningsaðili björgunarsveitarinn-
ar og höfum við björgunarsveitar-
mennirnir oft verið boðaðir á fund
þeirra til að taka við fjárstuðningi
og hvatningarorðum. Ég var því tíð-
ur gestur á heimili þeirra hjóna og
aldrei gat ég fundið annað en þau
bæru fullt traust til okkar björgun-
arsveitarmannanna, þó ég viður-
kenni að ekki var alltaf alveg ljóst
hvernig standa átti við allar skuld-
bindingamar, sem gerðar voru.
Bæði voru þau sæmd þjónustu-
merki Slysavarnafélagsins úr gulli.
I mínum huga em Guðrún og Árni
dæmi um t'ólk, sem af hugsjón, at-
orku og fórnfýsi hafa byggt upp og
mótað starf Slysavarnafélags ís-
lands og okkur sem á eftir komum
hvatning til starfa á sömu braut.
Árni var vélstjóri í Hraðfrystihúsi
Grindavíkur og auk þess var hann
vitavörður í Hópsnesvita, sem er hér
rétt við bæinn og í ófærð á veturna
fór ég einstaka sinnum með Árna
út í vita og oft var Guðrún með í
þessum ferðum. Guðrún og Ámi
höfðu mjög gaman af að ferðast og
renna fyrir lax og silung og sögðu
mér margar ferða- og veiðisögur.
Eftir að Ámi lést fyrir tíu ámm
hitti ég Guðrúnu oft á heimili for-
eldra minna og tóku þau þijú upp
þann ágæta sið að borða saman á
aðfangadagskvöld.
Á þessari stundu vil ég þakka
Guðrúnu fyrir ánægjuleg kynni og
traustan vinskap. Fyrir hönd Slysa-
varnafélags íslands vil ég þakka
þeim Guðrúnu og Árna fyrir hið
mikla og óeigingjarna starf sem þau
hafa innt af hendi fyrir félagið. Fjöl-
skyldum þeirra færi ég hlýjar sam-
úðarkveðjur.
Gunnar Tómasson, forseti
Slysavarnafélags Islands.
Löng þá sjúkdómsleiðin verður,
lífið hvergi vægir þér,
þrautir magnast, þijóta kraftar,
þungt og sárt hvert sporið er,
honum treystu, hjálpin kemur,
hann af raunum sipr ber.
Drottinn elskar, - Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(S.Kr.Pét.)
í minningunni sjáum við þig við
píanóið eða með gítarinn syngjandi
glaða og káta. Þannig munum við
ætíð minnast þín.
„Og hvað er að hætta að draga
andann annað en að frelsa hann frá
friðlausum öldum lífsins, svo að
hann geti risið upp í mætti sínum
og ófjötraður leitað á fund guðs
síns. Og þegar jörðin krefst líkama
þíns, muntu dansa í fyrsta sinn.“
(Úr Spámanninum.)
Okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur til allra aðstandenda.
Skólasysturnar.
Tveir gulbrúnir fuglar
flugu yfir bláhvíta auðnina.
Tvö örlítil titrandi blóm
teygðu rauðpl höfuð sín
upp úr svartri moldinni.
Tvö fölleit, fátækleg böm
leiddust út hijóstruga ströndina
og hvísluðu í feiminni undrun
út í flöktandi Ijósið:
Vor, vor!
(Steinn Steinarr)
Barnabörnin í Stokkhólmi.
GUÐRÚN ERLA
ÁSGRÍMSDÓTTIR
ÁLFHEIÐUR
EINARSDÓTTIR
SIGURJON PALL
GUÐLA UGSSON *
+ Siguijón Páll
Guðlaugsson
frá Miðkoti fæddist
27. mars 1910.
Hann lést á Dalbæ
í Dalvík 31. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Anna María
Jónsdóttir hús-
freyja, f. 9. október
1889, d. 12. júní
1973, og Jónas
Guðlaugur Sigur-
jónsson sjómaður,
f. 29. nóvember
1884, d. 10. janúar
1924. Systkini Páls eru Arni
Jóhann múrari, f. 10. júní 1912,
d. 7. nóvember 1987, Jóhannes
Friðrik sjómaður, f. 20. nóvem-
ber 1914, d. 29. ágúst 1931,
Gunnar Kristinn verkstjóri, f.
19. maí 1917, Sigurpáll Anton
fiskmatsmaður, f. 15. apríl
1920, Dóróthea Sigrún húsmóð-
ir, f. 30. maí 1923, Svava, f. 29.
janúar 1931, d. 4. september
1932, Svava Ragnheiður, f. 20.
janúar 1933, d. 29. júlí 1951,
Arngrimur Ægir sjómaður, f.
11. april 1935.
Hinn 25. mars
1934 kvæntist Sigur-
jón Páll Ólöfu V.
Gunnlaugsdóttur
húsmóður, f. 2. ág-
úst 1912, d. 25. des-
ember 1979. Synir
þeirra eru: 1) Jón
Héðinn verkstjóri, f.
15. febrúar 1936,
kvæntur Sesselíu
Björk Guðmunds-
dóttur húsmóður, f.
18. september 1937.
Þeirra börn eru Sig-
urjón Páll, f. 2. júní
1958, Óli Vignir, f.
7. nóvember 1960, Guðmundur
Heiðar, f. 10. mars 1962, Anna
María, f. 17. október 1963, Árni
Örn, f. 20. ágúst 1966, og Jón
Bjarki, f. 24. desember 1972.
2) Hafsteinn Bragi bóndi, f. 8.
febrúar 1939, kvæntur Filippíu
Jónsdóttur húsmóður, f. 27. júlí
1940. Þeirra börn eru Jóhann-
es, f. 27. febrúar 1962, Arna
Gerður, f. 3. febrúar 1964, og
Sigríður Ólöf, f. 2. ágúst 1972.
Barnabarnabömin eru tíu.
Siguijón Páll var jarðsung- 4Pt
inn hinn 5. apríl síðastliðinn.
Páll frændi í Miðkoti var lagður
til hinstu hvíldar einn fegursta dag
vetrarins. Veröldin fannhvít, sól
skein í heiði og hellti geislum sínum
yfir Upsaströnd og ekki bærðist
hár á höfði. Þessa dýrð mátti túlka
sem velþóknun almættisins í garð
hins látna. Fjöldinn sem fylgdi
houm bar líka vitni þeirri virðingu
sem hann átti meðal samferða-
mannanna, margir komnir um
langan veg til þess að kveðja hann.
Palli var traustur og heiðarlegur
og skilaði sínu á lífsgöngunni svo
að ekki verður um villst. Þess
vegna öðlaðist hann virðingu allra
sem honum kynntust en ekki vegna
tignarmerkja, ríkidæmis eða emb-
ættisframa. Það leiðir hugann að
fánýti þeirrar sóknar eftir vindi
sem truflar svo margan manninn.
Því mættú þeir sem framar öllu
vilja öðlast tiltrú og virðingu sam-
borgaranna líta á lífshlaup Palla í
Miðkoti og draga af því dám.
Ejórtán ára gamall missir Palli
föður sinn og heimilið þar með
fyrirvinnuna. Ekki er að efa að
ábyrgðin hefur lagst þungt á hann
sem elsta barn. í munnlegri geymd
eru sögur um sjómennsku ungs
drengs og kýrverð greitt með vert-
íðarhýrunni. Þessar sögur lýsa
sterkri skyldutilfinningu og að
standa sína plikt sem í hugum
okkar yngri er aðalsmerki þessa
fólks sem á vissan hátt tók þátt í
uppeldi okkar og mótun.
I Miðkoti tók hver kynslóðin við
af annarri, menningararfinum var
tryggilega skilað áfram og sam-
hengi hlutanna rofnaði aldrei.
Heimsókn til ömmu og afa var um
leið heimsókn til Palla og Ólu og
síðar til Hafsteins og Filippíu. Og
oft var hlaupið upp í Miðkot og
dvalið þar heilu dagana. Alltaf var
okkur tekið sem aufúsugestum og
aldrei við okkur amast.
I barnsminninu voru Palli og
Óla hornsteinar stórfjölskyldunnar
sem studdu hina eldri og gáfu hin-
um yngri ráð. Þau nutu þess síðar
í ástúð og umhyggju afkomenda
sinna. Þetta fjölskyldumunstur
gerði Palla kleift að eyða ævikvöld-
inu heima hjá fjölskyldu sinni sem
annaðist hann með ást og alúð og
veitti houm svigrúm til þess að
vera sinn eigin herra til síðasta
dags. Á engan er hallað þó Örnu
Hafsteinsdóttur sé sérstaklega
getið í því sambandi.
Ævistarf Páls Guðlaugssonar
var sjómennska en hildina við
Ægisdætur háði hann í hartnær
hálfa öld. Lengst af var hann for-
maður eins og skipstjórar voru
kallaðir og var m.a. skipstjóri á
Hannesi Hafstein sem var nýsköp-
unarbátur er Palli átti í hlutafélagi
við fleiri. Palli var farsæll sjómaður
og sérstaklega vel liðinn skip-
stjómandi og héldu margir úr
skipshöfnum hans tryggð við hann
í áratugi. Við sem þekktum hann
erum ekki hissa. Þó Palli væri fast-
ur fyrir og ákveðinn var lundarfai^
hans milt og góðlegt yfirbragð á
þann veg að manni fannst hann
aldrei reiður og stuggaði hann við
okkur krökkunum hlýddum við
orðalaust, ekki fýrir hræðslu sakir
heldur af því að við bárum virðingu
fyrir honum.
Við bárum virðingu fyrir honum
vegna framkomu hans og ekki síð-
ur vegna þess að foreldrar okkar,
en hann var elsti bróðir pabba,
virtu Palla mikils og aldrei minn-
umst við þess að um hann félli
styggðaryrði á okkar heimili. „Páll
bróðir“ var hafinn yfir gagnrýni.
Palli kunni þá list að segja frá
og var frásagnargleðin í bijóst
borin. Hann talaði hægt og kvað
fast að á hljómfagurri svarfdælsku
og naut þess að láta hlustandann
fylgjast spenntan með atburðarás-
inni. Það var ekki laust við að
óþolinmæði gripi stundum um sig
eftir að heyra málalok. Palli lét
það ekki á sig fá en hélt sínum
takti frásögnina á enda.
Ættarhöfðingi er fallinn frá.
Með lífsgöngu sinni markaði hann
spor sem við getum stolt tekið
okkur til fyrirmyndar. Við kveðjum
Palla frænda með hlýju og vænt-
umþykju. Innilegar samúðarkveðj-
ur sendum við sonum hans Jóni
og Hafsteini og fjölskyldum þeirra.
Guð blessi minningu Páls Guð- '*
laugssonar frá Miðkoti.
Systkinin frá Lundi.
| Sérfræðingar
í blómaskrcytingum
við öll tækifæri
SkúlavörOus’tíg 12,
á horni Bergstaðastrætis.
sími 551 9090