Morgunblaðið - 23.04.1997, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ
-3' 64 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1997________________________
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
MYNPBOMD
Lin sálarátök
í morðhug
(The Limbic Region)
Sakamálamynd
★
Framlciðandi: MGM Leikstjóri:
Michael Pattinson. Handritshöfund-
ur: Todd Johnson og Patrick Rana-
han. Kvikmyndataka: Tobias Schli-
essler. Tónlist: Gary Chang. Aðal-
hlutverk: Edward James Olmos og
George Dzundza. 92 mín. Bandarík-
in. MGM/UA Home Video/Warner-
myndir 1997. Myndin er bönnuð
börnum yngri en 16 ára.
LUCCA rannsóknarlögreglu-
maður er alveg að deyja. í tuttugu
ár hefur hann verið að leita að
sama raðmorðingjanum. Það hefur
kostað hann bæði heilsuna og fjöl-
skylduna. Hann hefur alltaf grun-
að sama manninn, og fer nú í öku-
ferð með honum, og gerir þar með
iokatilraun til að komast að því
hvort hann hefur
rétt fyrir sér eða
ekki. Þessi saka-
málamynd er
ólík mörgum
öðrum að því
leyti að hér eru
sakamaður og
lögreglumaður
sem þekkst hafa
lengi að rifja upp
gömul morð saman. Það er ágæt
hugmynd, og hefði getað virkað
vel. Handritið hefði þurft sterk
sálarleg átakaatriði milli þessara
tveggja einstaklinga. Þráhyggjan
sem Lucca er haldinn hefði mátt
vera sterkar túlkuð, og einhvetjar
ástæður fyrir henni hefðu verið
gagnlegar til að skilja hvers vegna
hann eyðilagði líf sitt vegna þessa
sakamáls. Myndin er því heldur
grunn, og er auk þess að öllu leyti
í slappari kantinum.
Hildur Loftsdóttir
MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU
Stóra blöffið
(The Great WhiteHype)-k k
Hin fullkomna dóttir
(The Perfect daughter)~k 'h
Englabarn
(Angel Baby)-k k 'h
Fatafellan
(Striptease) ★ ★
Háskólakennari á ystu nöf
(Twilight Man)k ★ ★
Jack Reed IV: Löggumorð
(Jack Reed IV: One ofOur Own) ★ ★
Dauðsmannseyjan
(Dead Man ’s Island)k
Fallegar stúlkur
(Beautiful Girls) kkk'h
Galdrafár
(Rough Magic) k k
Ást og slagsmál
í Minnesota
(Feeling Minnesota) k k
FLóttinn frá L.A.
(John Carpenters: „Escape From
L.A.“)k k'h
Skylmingalöggan
(Gladiator Cop) k
Staðgengillinn
(The Substitute)k 'h
Lækjargata
(River Street)k k 'h
Svarti sauðurinn
(Black Sheep)k k
Snert af hinu illa
(Touch by Evil)k 'h
Undur og stórmerki
(Phenomenon)k k 'h
Einstirni
(Lone Star)k kkk
Skemmdarverk
(Sabotage)k 'h
Einleikur
(Solo)k'h
-3*
Alvöru BMX tryllitæki
frá Trek og Gary Fisher:
BMX-freestyle, BMX-thrasher, BMX-racer! Níösterk
og tæknilega mjög fullkomin. Stell og gaffall meö
ævilangri ábyrgð!
Opið laugardaga
kl. 10-16
ai i wwy i mv.
Skeifunni 11, sími 588 9890
Hver er sinnar gæfu smiður
Aðferð Antoniu
(Antonia’s Line)
m y n d
★ ★ ★ 'h
Framleiðandi: A First Look Pictur-
es. Leikstjóri og handritshöfundur:
Marleen Gorris. Kvikmyndataka:
Willy Stasser. Tónlist: Ilona Sekacz.
Aðalhlutverk: Willeke Van Amm-
elrooy, Els Dottermans, Jan Decleir
og Marina De Graaf. 98 mín. Hol-
land. Antonia’s Line Int./Skífan
1997. Myndin er bönnuð börnum
yngri en 16 ára.
ANTONLA er mikill kvenskör-
ungur sem staðið hefur á mannleg-
um rétti sínum og sinna alla ævi.
Nú er hún há-
öldruð og veit að
komið er nóg, í
dag muni hún
deyja. Hún rifjar
því upp líf sitt,
afkomenda, vina
og þorpsbúa.
Aðferð Antoniu
er yndisleg
mynd, og sann-
kallaður óður til lífsins. í gegnum
frábæra og viðburðaríka lífssögu
Antoniu, færir leikstjórinn Marleen
Gorris okkur fallega lífsspeki, þar
sem segir að hver sé sinnar gæfu
smiður. Maður eigi ekki að eyða
orku í að velta sér upp úr tilgangi
lífsins heldur njóta þess meðan það
varir. Eins skuli maður ekki láta
fáránlegar og íhaldssamar samfé-
lagsreglur eða trúarlegar reglur
stjórna sér, heldur fylgja hjarta
sína í einu og öllu. Hér er ekki á
ferðinni væmin siðferðispredikun,
heldur bráðskemmtileg kvikmynd,
með miklum húmor, sem nær til
allra. Persónurnar eru einstaklega
skemmtilegar, og frábært leikara-
val undirstrikar það. Willeke Van
Ammelrooy, sem leikur Antoniu,
er fullkomin í sitt hlutverk, og erf-
itt væri að ímynda sér kvikmyndina
án hennar. Myndin fékk Oskars-
verðlaun sem besta erlenda kvik-
myndin 1996, og er hún sannarlega
vel að því komin.
Hildur Loftsdóttir.
50. kvikmyndahátíðin í Cannes
Myndir eftir Depp og Oldman
á meðal þátttökumynda
É Kvikmyndahatíbin í Cannes 1997
Kvikmyndirnar sem keppa um Gullna pálmann á
Kvikmyndahátíðinni í Cannes 7.-18. maí 1997
Opnunarmynd hátíðarinnar:
Le Ciinquieme Element (The Fifht Element) - Luc Besson (Frakkland)
The lce Storm - Ang Lee (Taiwan)
II principe di Hombourg di Einrich Von Kleist - Marco Bellocchio (Ítalía)
(The Prince of Hamburg by Heinrich Von Kleist)
Call It Love - Nick Kassavetes (Bandaríkin)
The Brave - Johnny Depp (Bandarikin)
Funny Games - Michael Haneke (Austurríki)
L.A. confidential - Curtis Hanson (Bandaríkin)
La femme defendue (The Banned Woman) - Philippe Harel (Frakkland)
Unagi (The Eel) - Shohei Imamura (Japan)
Assassins - Matthieu Kassovitz (Frakkland)
The Well - Samantha Lang (Ástralía)
Nil By Mouth - Gary Oldman (Bretland)
Kiny et Adams (Kiny and Adams) - Idrissa Ouedraogo (Burkina Faso)
Western - Manuel Poirier (Frakkland)
La Tregua (The Truth) - Francesco Rosi (Ítalía)
Happy Together - Wong Kar-Wai (Hong Kong)
The End Of Violence - Wim Wenders (Þýskaland)
Welcome To Sarajevo - Michael Winterbottom (Bretland)
Keep Cool - Zhang Yimou (Kína)
Lokamynd hátíðarinnar:
Aboslute Power - Clint Eastwood (Bandaríkin)
TILKYNNT var á blaða-
mannafundi í vikunni hvaða
myndir það verða sem keppa
um gullpálmann á 50. kvik-
myndahátíðinni í Cannes sem
fer fram 7. -18. maí næstkom-
andi. Á meðal tilnefndra
mynda eru til dæmis tvær
myndir leikstjóra sem silja í
leikstjórastól í fysta skipti auk
mynda eftir gamalreynda
leikstjóra. Mynd undir leik-
stjórn Ieikarans Johnnys
Depp, „The Brave“, ogmynd
undir leikstjórn Garys Old-
man, „Nil By Mouth“, eru á
meðal keppnismynda auk
myndanna „The End of Vio-
lence“ eftir Wim Wenders og
„Call it Love“ eftir John
Cassavetes, auk annarra.
Oliver Stone of grófur?
Inntökunefndin, undir
forystu Gilles Jacob, fór í
gegnum 860 myndir við val
sitt og valdar voru 19 myndir
til þátttöku. Það kemur síðan
í hlut dómnefndar keppninnar
undir forsæti frönsku
leikkonunnar Isabellu Adjani
að velja þá bestu úr.
„Átta af þeim myndum sem
eru í keppninni eru
spennumyndir. f dag vill fólk
fá að sjá ofbeldi, blóð og
innyfli," sagði Jacob á
blaðamannafundinum. Hann
segir hátíðina þó ekki mega
verða þekkta fyrir að sýna
ofbeldismyndir og aðspurður
um hvort nýjasta mynd
Olivers Stone „U - Turn“ hefði
ekki komist í keppnina vegna
þess að hún hefði þótt of
ofbeldisfull og gróf sagðist
hann ekki vita um það og
sagði ástæðuna fyrir því að
hún og mynd James Mangold,
„Copland", hefðu ekki verið
valdar til þátttöku einfaldlega
vera þá að þær hefðu ekki
verið fullkláraðar.
Lostafulls leiks beðið í ofvæni
Bandarískar myndir eru í
meirihluta í keppninni, alls
sex myndir, þar á meðal mynd
Clints Eastwood, „Absolute
Powers“, sem verður ekki
með í keppninni, og mynd
Curtis Hanson „L.A.
Confidential“ sem byggð er á
skáldsögu James Ellroy.
Opnunarmynd
hátíðarinnar verður
framtíðarmynd franska
leikstjórans Lucs Besson „Le
Cinquiéme Element" en ekki
er enn ljóst hvort hún verður
með í keppninni um
Gullpálmann. Hátíðin er þekkt
fyrir að vekja umtal með því
að bjóða upp á umdeildar
myndir og í ár er líklegt að
mynd Abels Ferrara, „Black
Out“ veki viðbrögð og eru
menn einkar spenntir að sjá
lostafullan samleik
fyrirsætunnar Claudiu
Schiffer og leikkonunnar
Beatrice Dalle í myndinni.
í tilefni af 50 ára afmæli
hátíðarinnar munu nær allir
35 leiksljórarnir sem unnið
hafa Gullna pálmann mæta á
sérstaka athöfn þar sem
leikstjoranum Ingmar
Bergman verður afhentur
einskonar heiðurspálmi eða
pálmi pálmanna. Þeirra á
meðal verða Michaelangelo
Antonioni, Robert Altman,
Francesco Rosi, Francis Ford
Coppola, Costa-Gavras,
Quentin Tarantino og fleiri.
Til hátíðarinnar mætir
einnig fjöldi heimsþekktra
leikara, þar á meðal Robert
de Niro, Bruce Willis, Hugh
Grant, John Travolta og
poppsöngvarinn Michael
Jackson.