Morgunblaðið - 03.05.1997, Page 4

Morgunblaðið - 03.05.1997, Page 4
4 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Opinber heimsókn forseta íslands til Suður-Þingeyjarsýslu hófst í gær og stendur til sunnudags Góðar viðtök- u r og vegleg- ar veitingar Heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar, for- * seta Islands, og frú Guðrúnar Katrínar Þor- bergsdóttur til Suður-Þingeyjarsýslu hófst í gær. Segja má að góðar móttökur og góður matur hafí einkennt fyrsta daginn af þrem- ur. Helgi Þorsteinsson og Asdís Asgeirs- dóttir slógust í fylgd með forsetahjónunum. UM MORGUNINN skoðuðu þau Guðrún Katrín og Ólafur Ragnar Safnahúsið á Húsavík þar sem fímm söfn eru undir sama þaki. Sigurjón Benedi'ctsson, varaforseti bæjarstjómar, bauð þau Guðrúnu og Ólaf velkomin með ávarpi en Guðni Halldórsson, forstöðumaður safnsins, leiddi þau um húsið og sagði frá gripum þess. Guðni sýndi forsetahjónunum meðal annars málverk eftir Arn- grím Gíslason, en það fann Krist- ján Eldjám forseti í Kanada á sín- um tíma og gaf safninu. Fleira tengdist forsetum á safninu, því þar er mynd af fyrsta fjölbýlishúsi á Húsavík. Framhlið þess var nefnd forsetahliðin, því hún var sú eina sem var máluð. Fimmtíu ára gamall ísskápur af tegundinni Frigidaire sem er á Byggðasafninu vakti athygli Ólafs Ragnars. Hann sagðist eiga sams konar ísskáp af sömu árgerð heima hjá sér, sem ennþá gengur. Hrátt hangikjöt með melónukúlum Klukkan tólf buðu Húsavíkur- kaupstaður og Tjömeshreppur til hádegisverðar á Hótel Húsavík. Börkur Emilsson yfírkokkur og aðstoðarmenn hans bám fram þingeyska sérrétti, til dæmis hrátt hangikjöt með piparrótarsósu og melónukúlum, nagga með ananas- sinnepssósu, ofnbakaða bleikju, hunangslax og skyrtertu. Eftir hádegismat gengu forseta- hjónin frá hótelinu að Borgarhóls- skóla þar sem nemendur fögnuðu þeim veifandi fánum. „Litlikór" yngri nemenda söng fýrir forset- ann og nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur, sem einnig er til húsa í grunnskólanum, léku á gítara og blokkflautur. Árni Sigurbjarnar- son, skólastjóri Tónlistarskólans, sagði meðal annars frá því að þrír árgangar nemenda væm í skyldu- námi í hljóðfæraleik, og væri það sennilega einsdæmi í grunnskólum landsins. ■ Halldór Valdimarsson, skóla- stjóri Borgarhólsskóla, leiddi for- setahjónin um kennslustofur, með- al annars þar sem nemendur voru að vinna að málfræðiverkefnum, og í tölvustofu. Umsjónarkennari bamanna hafði á orð að hún hefði aldrei séð bekkinn sinn jafnstilltan og við þetta tækifæri. Fagnað eins og íþróttahetjum Frá Borgarhólsskóla var haldið í íþróttahöllina þar sem KÞ-mótið í handknattleik var að hefjast. Ól- afi og Guðrúnu var fagnað eins og íþróttahetjum með lófataki og blístri þegar þau gengu inn í höll- ina. Forsetinn setti hátíðina með ræðu og fékk að launum blóm og veifu með merki Völsungs. Frá yngri Húsvíkingum var haldið til hinna eldri, á Hvammi, heimili aldraðra þar sem 99 manns búa. Rétt eins og í Borgarhóls- skóla var forsetahjónunum fagnað með söng og sá Kór aldraðra fyrir þeirri skemmtan. Forsetahjónin litu upp í matsal Hvamms þar sem heimilismenn voru að gæða sér á tertum og öðrum kræsingum en gáfu sér þó tíma til spjalls. Þar á meðal var Áskell Siguijónsson sem er elstur Þingeyinga. .. Morgunblaðið/Ásdís BORN í Borgarhólsskóla mynduðu heiðursvörð, syngjandi og veifandi íslenskum fánum þegar for- setahjónin gengu inn skólahúsið. ÁSKELL Sigurjónsson er elstur Þingeyinga, 99 ára, og ræddu þeir ÓMur góða stund saman. Ólafí fannst kenningar Áskels um Snorra Sturlu- son áhugaverðar og cjjarfar, því þær gengju gegn áliti sjálfs Sigurðar Nordal. Að lokinni viðdvölinni í Hvammi var haldið í heimsóknir til þriggja fyrirtækja í bænum. Fyrst varð fyrir rótgróið fyrirtæki sem þó hefur verið að brydda upp á nýjungum að undanförnu, en það er Kjötiðja KÞ. Sigmundur Hreiðarsson kjötiðnaðar- meistari kynnti þar ýmsar kræs- ingar sem fyrir- tækið framleið- ir. Forsetahjón- unum var boðið að bragða nauta- og lambahráskinku og smalaskinku. Þeim leist vel á og sagðist Ólaf- ur vilja bjóða ít- alíuforseta upp á þetta þegar hann kæmi í heimsókn í sum- ar. Næst var haldið í heim- sókn til nýrra fyrirtækis sem mikið hefur ver- ið til umræðu upp á síðkastið, en það er Aldin hf. sem sagar og þurrkar am- erískt timbur og selur til Evrópu. Aldin hf. er eina fyrirtækið í heimi sem þurrkar timbur með hjálp jarðhita. Gunnlaugur Stefánsson framkvæmdastjóri tók á móti gestunum og sýndi tæki og fram- leiðslu fyrirtækisins. Rautt til heiðurs forsetanum Öllu hefðbundnari íslensk fram- leiðsla fer fram í Netagerð Fisk- iðjusamlags Húsavíkur. Kári Jón- asson netagerðarmeistari og sam- starfsmenn hans sýndu forseta- hjónunum starfsemina og hand- bragðið en tveir harmonikkuleikar- ar léku undir sjómannalög. Mislitir þræðir eru notaðir í netin til að auðvelda eftirlit með veiðum og var einn liturinn mest áberandi í vinnunni meðan á heimsókninni stóð. ívar Júlíusson netagerðar- maður sagði að sett hefði verið rautt í nál til heiðurs forsetanum. Síðast á dagskrá dagsins var stutt heimsókn í Húsavíkurkirkju. Þar sagði séra Sighvatur Karlsson sóknarprestur sögu kirkjunnar en hún verður 90 ára á þessu ári. Klakakvintettinn, sem skipaður er tónlistarmönnum frá Húsavík, Akureyri og Sauðárkróki, lék verk eftir Haydn. Um kvöldið var haldin almenn samkoma í tilefni af heimsókninni. Þar var leikin tónlist, sungið og lesin ljóð og forsetinn flutti Hú- svíkingum ávarp. Á morgun munu forsetahjónin halda í Reykja-, Aðaldæla- og Skútustaða- og Ljósavatnshrepp og heimsækja þar fyrirtæki og skóla. Síðdegis verður samkoma í íþróttahúsinu að Laugum en um kvöldið verður kvöldverður í boði Ljósavatns- og Hálshrepps. I e f k u r e i n n l o O | Það borgar sig að kunna skil á úrgangi. I Kynntu þér breytta gjaldskyldu | á endurvinnslustöðvum okkar. íVelkomin á endurvinnslustöOvarnar SGRfA SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐiSINS bs TÓNLIST Háskólabíó SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Flutt voru íslensk kvæðalög og verk eftir Sigvalda Kaldalóns, Þorkel Sig- urbjörnsson, Jón Leifs, Brahms, Monti, Dvorák og Enesco. Fram komu Steindór Andersen, Erla Brynjarsdóttir og kynnir var Jónas Ingimundarson. Stjómandi var Stef- an Sanderling. Föstudagurinn 2. maí, 1997. „Á ÞJÓÐLEGU nótunum" kynnti Jónas Ingimundarson væntanlega efnisskrá tónleikanna og hafði þá verið leikin hljómsveitarútsetning Páls P. Pálssonar á „Sprengisandi", lagi Sigvalda Kaldalóns. Heldur var leikur sveitarinnar óhaminn og á köflum groddalegur, þó vel megi „spretta úr spori“ við flutning þessa lags. Jónas fékk til liðs við sig kvæða- mann úr Kvæðamannafélaginu Ið- unni, Steindór Andersen, er kvað Á þjóðleg- um nótum nokkrar stemmur mjög skemmti- lega og í því sambandi var fiutt hljómsveitarverkið Ríma, eftir Þor- kel Sigurbjömsson en eitt af megin- stefjum verksins er mjög áþekkt stemmu, sem margir kunna og er í safni Bjama Þorsteinssonar við textann „Farðu“ að sofa fyrir mig“ en einnig við „Ljót mig naga leiðind- in“. Ríma Þorkels var mjög vel flutt. íslenska hluta tónleikanna lauk með Geysi eftir Jón Leifs, mögnuðu verki, sem var mjög vel flutt undir stjóm Sanderlings. Eftir hlé var tónlist sótt til Mið- Evrópu og fyrst leikinn Ungverskur dans eftir Brahms og var flutningur- inn á köflum í nokkm ójafnvægi, í hljómmestu köflunum, þar sem fá- menn fiðlusveitin hafði ekki í „fullu tré“ við blásarana. Sanderling hefði mátt gæta þar ögn að, sem varðar jafnvægi í hljóm. Hljómsveitin getur vel leikið veikt og sýndi sérstaka gætni í samleik sínum við níu ára stúlku, er lék einleik í Zardas eftir Monti. Erla Brynjarsdóttir lék þetta vinsæla verk af öryggi en hún hefur lært í Suzuki skólanum, undir leið- sögn Lilju Hjaltadóttur. Óhætt er að spá þessari ungu stúlku góðu, því bæði var leikur hennar hreinn og gæddur töluverðri reisn. í Slav- neskum dansi eftir Dvorák voru fíðl- umar of fámennar, þegar blásararn- ir fengu frítt spil í sterkustu köflun- um. Tónleikunum lauk með Rúm- enskri rapsódíu eftir Enesco, er hefst á frægri drykkjuvísu, „Am un leu“ en síðar í verkinu má einnig heyra stef úr öðrum frægum dansi, „hálsklútadansinum". Þessi rapsó- día er glæsilega rituð fyrir hljóm- sveit og var hún að mörgu leiti vel leikin undir líflegri stjóm Stefan Sanderlings. Jón Ásgeirsson I I I I I I I í < \

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.