Morgunblaðið - 03.05.1997, Page 6
6 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
íslensku Everest-fararnir sameinaðir á ný á morgun eftir aðskilnað síðustu vikna
Spáð óhag-
stæðu veðri
næstu daga
ÍSLENSKU Qallamennimir á
Everest verða á morgun samein-
aðir á ný eftir aðskilnað síðustu
vikna þar sem þeir gátu ekki
fylgst að í aðlögun sinni vegna
veikinda. Fyrsti hópurinn í leið-
angri þeirra leggur í lokaáfang-
ann á sunnudag ef veður leyfir
og annar hópurinn tveimur dög-
um síðar og eru íslendingamir í
honum.
Það er ljóst að íslendingarnir
verða allir í einum hóp og sagði
Björn Ólafsson í gær að fyrri
hópurinn færi af stað á tindinn
á sunnudag ef veður yrði hag-
stætt og íslendingamir tveimur
dögum síðar. Bjöm sagði spána
hins vegar ekki alltof góða næstu
þijá dagana og því gæti þessum
ráðagerðum seinkað um nokkra
daga. Dagurinn hefur annars
farið í umræður um stórsigur
Verkamannaflokksins í Bretlandi
og era sumir íhaldsmennirnir hér
heldur rislágir, sögðu fjallagarp-
amir í gær.
Hallgrímur og Hörður
Magnússynir fengu að kynnast
því í fyrradag í návígi hversu
nálægt ystu mörkum 5.200 m
hæð er, bæði fyrir vélar og menn
og sendu leiðangursmenn eftir-
farandi frásögn um það:
Þeir bræður fóra með pakka
sem þeir ætluðu að koma á þyrlu
sem von var á frá Katmandú.
Meðan þeir biðu kom þyrla frá
nepalska flughernum með banda-
ríska blaðamenn sem ætluðu að
taka hér viðtöl við bandaríska
fjallgöngumenn.
Flugmaðurinn misreiknaði að-
flugið og rak stélið niður rétt
áður en hann komst inn á lend-
BÚÐIR þrjú eru í um 5.300 metra hæð þar sem verulega reynir á þol manna og véla
eins og frásögn dagsins ber með sér.
ingarstaðinn. Munaði aðeins
sentimetram að hann ræki aftur-
spaðana í metraháan stein og þá
hefði ekki þurft að að spyija að
leikslokum. En honum tókst að
lenda vélinni og blaðamennimir
stigu út. Annar þeirra, stúlka,
hneig þegar niður meðvitundar-
laus af súrefnisskorti pg lá í
hrúgu undir spöðunum. Á meðan
komið var í hana súrefni úr kút
og henni komið á fætur, var elds-
neyti hellt á vélina úr brúsa og
úðinn stóð í allar áttir því hér
era vélarnar látnar ganga á með-
an þyrlumar staldra við.
Björgunarsveitarmenn ofan af
íslandi, vanir fumlausum og fag-
mannlegum vinnubrögðum flug-
manna Landhelgisgæslunnar,
stóðu gapandi í hæfílegri fjarlægð
og horfðu á aðfarir Nepalbúanna.
Það var líka sláandi að sjá hvem-
ig óaðlagað fólk bregst við hér í
þessari hæð. Blaðamennimir vora
svo sóttir klukkustund síðar af
sömu þyrlu og vora búnir að fá
nóg.
Everestsíða Morgunblaðsins:
http://www.mbl.is/everest/
Anna Mjöll syngur
með Julio Iglesias
Talsmenn sveitarfélaga á Reykjanesi um
kostnað vegna tvöf öldunar Reykjanesbrautar
Vegtollur kemur
ekki til greina
ANNA Mjöll Ólafsdóttir var valin
úr hópi rúmlega hundrað kvenna
til að syngja dúett með hinum
þekkta söngvara Julio Iglesias á
fimm tónleikum sem haldnir
verða á virtu hóteli í Las Vegas
í Bandaríhjunum í næstu viku.
Anna Mjöll er nú stödd á Miami
þar sem hún er að æfa fyrir tón-
leikana og sagði hún að tilboðið
um að syngja með söngvaranum
hefði komið sér allsendis á óvart.
„Það var hringt í mig fyrir nokkr-
um vikum og ég spurð hvort ég
hefði áhuga á að syngja í Las
Vegas. Ég spurði fyrir hvem það
væri. Og þá var mér sagt að það
væri fyrir Julio Iglesias," sagði
hún.
Anna Mjöll sagði að Julio og
starfsmenn hans hefðu verið að
leita að ljóshærðri stúlku til að
syngja með honum á tónleikunum
og að vinur henn-
ar hefði komið
henni á framfæri
við umboðsmann
Julios. Eftir að
hún hefði sent
þeim myndband
af sjálfri sér,
hljóðsnældur og
geisladiska, fékk
hún boð um að koma til Miami
þar sem fram færi eins konar
prufa. „Þegar ég kom hingað til
Miami vom þar fyrir nokkrar
stelpur sem komu einnig til
greina, en alls hafði verið valið
úr um hundrað stúlkum. Fyrr í
vikunni hlustaði Julio á okkur
allar og sungum við með honum
dúettana tvo. Hann endaði með
því að biðja mig um að vera eftir
en sendi allar hinar heim,“ sagði
hún.
TALSMENN sveitarfélaga á Reykja-
nesi segja að ekki komi til greina
að innheimta vegtoll, verði af tvö-
földun Reykjanesbrautarinnar. Þeir
segja ekki hægt að ætlast til að
Suðurnesjamenn, einir landsmanna,
borgi sérstaklega fyrir endurbætur
á vegakerfínu.
Kristján Pálsson alþingismaður
sagði í viðtali við Morgunblaðið á
fímmtudag að ef ekki næðist sam-
komulag um að leggja fjármuni í
breikkun Reykjanesbrautar, sem ella
færa í lagfæringu á Reykjavíkur-
flugvelli, þá gæti farið svo að menn
neyddust til að skoða betur hug-
myndir um að innheimta lágan veg-
toll, t.d. liðlega 100 krónur, til þess
að ná inn fyrir framkvæmdakostn-
aði.
Drífa Sigfúsdóttir, starfandi bæj-
arstjóri í Reykjanesbæ, kvaðst ekki
sjá nokkra ástæðu fyrir því að íbúar
á Reykjanesi yrðu þeir einu á land-
inu sem þyrftu að greiða vegtoll og
það í annað skipti, en þar vísaði
Drífa til þess að á 7. áratugnum var
innheimtur vegtollur á Reykjanes-
braut. „Breikkun Reykjanesbrautar-
innar er brýn framkvæmd og sveit-
arstjórnarmenn á Reykjanesi hafa
verið sammála um þá nauðsyn.
Umferð um brautina er mjög mikil
og hana er auðvitað ekki eingöngu
hægt að rekja til íbúa hér, heldur
einnig flugvallarins."
Drífa sagði að götulýsing við
Reykjanesbrautina hefði verið mjög
til bóta, en skynsamlegt væri að
tvöfalda brautina. „Ef stjórnvöld
taka almennt upp þá stefnu, að inn-
heimta toll á vegum landsins, til
dæmis þegar gerð eru göt í fjöll og
lagðar brýr, geta íbúar Reykjaness
ekki kvartað, en það er fáránlegt
að ætla okkur að sitja við annað
borð en aðrir landsmenn."
Drífa sagði að sér þætti arðsemis-
mat vegna vegagerðar ekki rétt.
„Alvarleg slys virðast ekki vega
þungt í slíku mati, sem er með ólík-
indum miðað við kostnað samfélags-
ins af þeim. Ég vil að þessu verði
breytt og ég er sannfærð um að
landsmenn yrðu sáttir við nýjar
áherslur að þessu leyti.“
Búnir að greiða tollinn
Sigurður Valur Ásbjarnarson,
bæjarstjóri í Sandgerði, sagði að
ekki væri hægt að segja annað en
þingmaðurinn væri vakandi í við-
leitni sinni til að bæta Reykjanes-
brautina. „Það verður þó að hafa í
huga að íbúar hér eru búnir að greiða
sinn toll vegna Reykjanesbrautar.
Við höfum verið afskiptir í vegamál-
um og mér þykir ástæða til að
staldra við áður en þessi leið verður
farin. Við ættum a.m.k. að láta fyrir-
komulag vegtolla sanna sig í Hval-
firðinum, áður en við veltum þvi
meira fyrir okkur.“
Sigurður Valur vísaði til þess að
ákveðið hefur verið að innheimta
gjald fyrir hvern bíl, sem ekur Hval-
fjarðargöngin. Þeir sem ekki vilja
greiða geta eftir sem áður ekið fyrir
fjörðinn. í ársbyijun 1992 lagði und-
irbúningshópur Verktakasambands
íslands, Atvinnuþróunarfélags Suð-
umesja og Landsbréfa hf. fram til-
lögu, sem gerði ráð fyrir að lögð
yrði ný Reykjanesbraut á vegum
sérstaks hlutafélags, sem ræki hana
með tekjum af veggjöldum, en gamla
Reykjanesbrautin yrði áfram skatt-
laus. Þeirri hugmynd var hafnað og
sagði samgönguráðherra, Halldór
Blöndal, að ekki væri um að ræða
neina stökkbreytingu í átt til sam- ,
göngubóta á leiðinni milli Hafnar-
fjarðar og Keflavíkur og þetta yrði i
eini vegurinn á íslandi þar sem inn- |
heimtur yrði vegtollur. Öðru máli
gegndi um Hvalfjarðargöng, sem
styttu hringveginn um 40 kílómetra.
Nær að leggja
Suðurstrandarveg
Jón Gunnar Stefánsson, bæjar-
stjóri í Grindavík, sagði að vegtollur
á Reykjanesbraut kæmi ekki til I
greina. „Fyrir stuttu var ákveðið að
lýsa upp þennan svarta veg í hraun- l
inu og sú framkvæmd var góður j
áfangi í öryggismálum. Slíkri lýs-
ingu þyrfti að koma upp víðar, en
tvöföldun brautarinnar er enn ekki
á dagskrá. Mér þætti nær að leggja
Suðurstrandarveg frá Grindavík til
Þorlákshafnar, því hann myndi létta
mjög umferðarþunga af Reykjanes-
brautinni. Vegtollur á íbúa þessa
svæðis umfram aðra landsmenn er
hins vegar alls ekki við hæfi.“
Jón Gunnar sagði að vegtollur á }
Reykjanesbraut á 7. áratugnum j
hefði verið óvinsæl ráðstöfun, en
skiljanleg í ljósi þess að Reykjanes-
brautin var fyrsti þjóðvegurinn sem
lagður var á varanlegt slitlag. „Þeg-
ar ráðist var i sams konar fram-
kvæmdir vítt og breitt um landið
stóðst vegtollurinn á Reykjanesbraut
ekki lengur. Erlendis er þessum
málum ávallt háttað á þann veg, að
menn geta valið um að aka sein-
farna vegi og greiða þá ekkert fyr- }
ir, eða borga fyrir að nota hraðbraut- k
ir. Það er aldrei eini kosturinn að
borga vegtoll."
fyóUatep/^
897 5523
UPPBOÐ
IDAG
897 5523
á antikmunum og öðrum verðmætum;
silfur - húsgögn - teppi - postulín o.fl.
Hlutirfrá 16., 17. og 18. öld.
Uppboðið byrjar kl. 13 á Grand Hótel, Sigtúni,
að hefur aldrei sést annað eins á íslandi!
fe
HOTEIy
REYKJAVIK