Morgunblaðið - 03.05.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997 15
Samræð-
ur um
málefni
karla
REYNIR - ráðgjafastofa á
Akureyri efnir til samræðu-
stunda með körlum um efni
sem þeim eru sérlega hugleik-
in fögur kvöld í maí og er
yfirskrift þeirra „Karlar um
karla“. Erindin verða flutt í
Deiglunni.
Karlmennska og kynlíf er
heiti á erindi sem Arnar Sverr-
isson sálfræðingur flytur
næstkomandi þriðjudags-
kvöld, 6. maí kl. 21.
Ásþór Ragnarsson flytur
erindi sem hann nefnir „Með
lífið í lúkunum. Staða karla í
nútíma samfélagi" mánudags-
kvöldið 12. maí. Már V. Magn-
ússon sálfræðingur flytur er-
indi um feður þriðjudags-
kvöldið 20. maí og Kristján
M. Magnússon sálfræðingur
flytur síðasta erindið í þessari
röð en það nefnist „Karlinn í
vinnunni“.
Um næstu helgi, 10. og 11.
maí verður boðið upp á karla-
námskeiðið „Skynjaðu styrk
þinn“ á Akureyri, en það er
fyrir karla sem hafa áhuga á
að ræða eigin stöðu í tilver-
unni og taka dýpri þátt í um-
ræðunni um stöðu karla. Þetta
er þriðja árið í röð sem nám-
skeiðið er haldið, skráning og
nánari upplýsingar fást hjá
Reyni-ráðgjafastofu.
Vortónleikar
og lögreglu-
messa
V ORTÓNLEIKAR lögreglu-
kórsins verða á laugardag, 3.
maí í Akureyrarkirkju og hefj-
ast þeir kl. 14. Með kórnum
kemur fram gestakór sem er
Karlakór Dalvíkur. Aðgangs-
eyrir er 500 krónur.
Lögreglukórinn og lög-
reglumenn standa einnig fyrir
messu í Akureyrarkirkju á
sunnudag, 4. maí og hefst hún
kl. 14. Stjórnandi lögreglu-
kórsins er Guðlaugur Viktors-
son, en undirleik annast Pavel
Smid. Kórinn annast söng í
messunni og leiðir safnaðar-
söng. Fluttir verða dúettar og
sunginn einsöngur. Löreglu-
menn á Akureyri annast lestur.
Mælt með
Ingólfi
BÆJARRÁÐ leggur til að Ing-
ólfur Ármannsson skóla- og
menningarfulltrúi Akureyrar-
bæjar verði ráðinn í stöðu
framkvæmdastjóra félags- og
frístundasviðs Akureyrarbæj-
ar.
Alls sóttu 6 um starfið. Einn
umsækjenda fór þess á leit að
afgreiðslu umsókna yrði frest-
að af sérstökum ástæðum en
bæjarráð gat ekki orðið við
þeirri ósk og mælti með að
Ingófli yrði veitt staðan.
Vortónleikar
píanódeildar
VORTÓNLEIKAR píanódeild-
ar Tónlistarskólans á Akur-
eyri verða haldnir í dag, laug-
ardaginn 3. maí kl. 14 á sal
skólans. Fram koma bæði
yngri og eldri nemendur og
leika fjölbreytta efnisskrá.
Allir eru velkomnir.
Úrskurður skipulags ríkisins vegna Borgar- o g Dalsbrautar
Fallist á lagningnna
með nokkrum skilyrðum
SKIPULAG ríkisins hefur lokið
frummati á umhverfisáhrifum fyrir-
hugaðrar lagningur Borgarbrautar
og Dalsbrautar á Akureyri, en
tæknideild bæjarins vann mat á
umhverfisáhrifum framkvæmdar-
innar.
Fallist er á lagningu Borgar-
brautar og Dalsbrautar með nokkr-
um skilyrðum, m.a. að reistur verði
hljóðtálmi norðan Borgarbrautar,
frá Hlíðarbraut að Glerárgili um
leið og vegurinn verður lagður.
Komi í ljós að hávaðamengun frá
umferð um þessar götur fari yfir
leyfileg viðmiðunarmörk á íbúðar-
svæðum þarf að grípa til viðeigandi
mótvægisaðgerða. Þá er það skil-
yrði sett að haft verði samráð við
Minjasafnið á Akureyri vegna forn-
leifaskráningar sem fyrirhuguð er
nú í sumar og einnig að haft verði
samráð við Náttúruvernd ríkisins
um val á efnistökustað, jarðefnis-
nám og frágang námusvæða og
vegfláa.
Vegaframkvæmdir sem um er
að ræða eru í tveimur hlutum, Borg-
arbraut sem verður 1.450 metrar
að lengd og liggur frá gatnamótum
Glerárgötu og Tryggvabrautar upp
með Glerá að Hlíðarbraut, en smíð-
aðar verða tvær samsíða brýr þar
sem Borgarbraut liggur yfir Glerá.
Dalsbraut verður 780 metrar að
lengd og liggur frá Borgarbraut að
núverandi gatnamótum Dalsbraut-
ar að Akurgerði.
Töluverð áhrif
á landslag
Vegirnir munu liggja yfir svæði
sem þegar er raskað af mannavöld-
um og eru ekki taldir hafa veruleg
áhrif á gróður og dýralíf á svæð-
inu. Töluverð áhrif verða hins vegar
á landslag vegna sprenginga og
fyllinga við vegstæðin. Einnig mun
lagning brúar yfir Glerá hafa mót-
andi áhrif á ásýnd Glerárgils sem
er á Náttúruminjaská, en reynt
verður að takmarka sjónræn áhrif
mannvirkja og rask í gilinu með
því að velja brúarstæðið þar sem
gilið er þröngt. Engar menningar-
minjar eru þekktar á framkvæmda-
svæðinu en fornleifaskráning er
fyrirhuguð í sumar.
Hávaði frá Borgarbraut mun lítil-
lega fara yfir viðmiðunarmörk
mengunarvarnareglugerðar við
íbúðarhús sunnan Bakkahlíðar eftir
gildistíma Aðalskipulags Akureyrar
1990-2010 og kom fram athuga-
semd við það á kynningartímanum.
Kæra má úrskurð skipulagsstjóra
ríkisins til umhverfisráðherra innan
fjögurra vikna því hann er kynntur
viðkomandi.
Brúðkaups-
sýning
BRÚÐKAUPSSÝNING verð-
ur í Blómavali á Akureyri um
næstu helgi, 3. og 4. maí, en
að henni stendur Blómaval
ásamt fimmtán öðrum fyrir-
tækjum sem öll eiga það sam-
eiginlegt að tengjast brúð-
kaupi og undirbúningi þess á
einhvern hátt. Sýningin stend-
ur frá kl. 10 til 21 báða dag-
ana.
Blómaskreytingafólk
Blómavals sýnir brúðarvendi
og blómaskreytingar, sýndir
verða skreyttir brúðarbílar og
tertur, brúðkaupsferðir og hót-
el verða kynnt, einnig fatnað-
ur, förðun, hárgreiðsla og
skart sem hæfir brúðhjónum
og gestum þeirra, en sú kynn-
ing fer fram frá kl. 14 til 16
báða dagana.
Sýningargestum býðst kaffi
og brúðartertusneið á kynn-
ingarverði Café Turnsins, veit-
ingastaðar Blómavals. Tilvon-
andi brúðhjón lenda í lukku-
potti brúðhjóna sem dregið
verður úr 1. september næst-
komandi.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Almennur
bænadagur á morgun, sunnudag,
messað kl. 14, altarisganga. Kven-
félag Akureyrarkirkju verður með
veitingar í safnaðarheimilinu eftir
messu. Fundur æskulýðsfélagsins í
kapellu kl. 17 samadag. Biblíulestur
í safnaðarheimili kl. 20.30 á mánu-
dagskvöld. Mömmumorgunn í safn-
aðarheimili kl. 10 til 12 á miðviku-
dag, guðsþjónusta á uppstigningar-
dag, 8. maí, dag aldraðra. Kvenfélag
kirkjunnar verður með kaffiveitingar
í safnaðarheimili eftir messu.
GLERÁRKIRKJA: Vortónleikar
Kórs Glerárkirkju kl. 15 á morgun.
Fundur æskulýðsfélagsins kl. 20 um
kvöldið.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Brauðsbrotning, safnaðarsamkoma,
ræðumaður John Beynon frá Bret-
landi kl. 11. Almenn samkoma kl.
20, ræðumaður John Beynon. (Ath
breyttan tíma.) Andlegar þjálfunar-
búðir miðvikudag kl. 20.30, ungl-
ingasamkoma á föstudag kl. 20.30.
Mikill söngur, allir velkomnir. Bæna-
stundir frá kl. 6-7 mánudags-, mið-
vikudags- og föstudagsmorgna.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli fellur niður á morgun
vegna ferðar Krakkaklúbbsins á
Hólavatn. Almenn samkoma kl. 20
á sunnudag, Miriam Óskarsdóttir
syngur og talar frá orði Guðs. Heim-
ilasambandið kl. 16 á mánudag,
krakkaklúbbur kl. 17 á miðvikudag.
Allir velkomnir.
KFUM og K, Sunnuhlíð; Bæna-
stund kl. 20 á sunnudag, 4. maí,
verið velkomin.
SJÓNARHÆÐ: Almenn sam-
koma kl. 17 á morgun, sunnudaginn
4. maí. Unglingafundur kl. 20.30 á
föstudag, 9. maí.
SEKESUPÉfl
DISERO EN ŒRéMICA
--iU—
iaí ,1-iU
Æ ítt
Stórböfda 17 vlð Cullinbrú, sími 567 4*44
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
Bangsi fékk
að fara með
MIKIL þátttaka var í 1. maí
hlaupi Greifans en þar var keppt
í ýmsum flokkum, barna og full-
orðinna. Kolbrún fór með pabba
sínum í hlaupið, lögreglumannin-
um Jóni Valdimarssyni. Og auð-
vitað fékk bangsi að fljóta með.
LltLA HÚSIÐ
VERSLUN MED KRISTILEGAN VARNING
Bækur
Biblíur
Barnaefni
Kassettur
Geislaplötur
Opiðkl. 16-18
Simi 462 4301 • Slrandgiitu 13a • Akureyri
Proskahjálp á Norðurlandi-ey
Fundur verður mánudaginn 5. maí kl. 20.00 á Hótel KEA.
Á fundinn kemur Valgerður Magnúsdóttir, félagsmálastjóri,
og deildarstjórar Ráðgjafa- og atvinnumáladeildar.
Stjórnin.
Þingflokkur jafnaðarmanna
Samræða um
auðlindir Islands
ÞINGFLOKKURj Jafnaðarmanna
efnir til samræðu um auðlindir Is-
lands á veitingahúsinu Við Pollinn
á Akureyri, laugardaginn 3. maí.
Fjallað verður um nýtingu auðlind-
anna og hlutdeild almennings í
þeim, en yfirskrift samræðunnar
er Auðlindir íslands - sameign
allra eða séreign fárra. Stendur
hún yfir frá kl. 14 til 17 og taka
þátt m.a. þingmenn jafnaðar-
manna og gestir, Guðbrandur Sig-
urðsson framkvæmdastjóri Út-
gerðarfélags Akureyringa, Ómar
Ragnarsson, fréttamaður, Þorvald-
ur Gylfason, prófessor, Þorkell
Helgason, orkumálastjóri, Ingólfur
Bender, hagfræðingur Samtaka
iðnaðarins, og Þorsteinn Sigurðs-
son, lektor við Háskólann á Akur-
eyri.
Jón Baldvin Hannibalsson og
Svanfríður Jónasdóttir halda
morgunfund á Dalvík á laugardag,
3. maí og Ágúst Einarsson, Rann-
veig Guðmundsdóttir og Sighvatur
Björgvinsson verða á morgunfundi
í Ólafsfirði sama dag.
Opinn fundur
Almennur og opinn stjórnmála-
fundur verður haldinn í húsakynn-
um Jafnaðarmannafélags Eyja-
fjarðar að Skipagötu 12 kl. 15 á
sunnudag, 4. maí. Sighvatur
Björgvinsson formaður Alþýðu-
flokksins fjallar um komandi kosn-
ingar og samstarf jafnaðarmanna,
en áður en fundurinn verður hald-
inn verður tekin afstaða til bréfs
frá Alþýðubandalaginu á Akureyri
þar sem óskað er eftir viðræðum
um sameiginlegt framboð í næstu
bæjarstjórnarkosningum.
Bæjarmálafundur
Mánudaginn 5. maí kl. 20.30 í Kaupangi.
Rætt verður um stefnumörkun í tómstundamálum.
Allir velkomnir.
Bæjarmálaráð Sjálfstæðisflokksins.
Myndlistaskólinn á Akureyri
auglysir inntöku ny'rra nemenda fyrir skólaárið 1997 98
F0RNAMSDEILD.
Tilgangur fornámsdeildar er aö veita nemendum alhliða undirbúningsmenntun f myndlistum.
í deildinni fer fram listrænn og tæknilegur undirbúningur fyrir nám í sárnámsdeildum.
Námstími er eitt ár.
MÁLUNARDEILD.
Nám í málunardeild er þriggja ára sárhæft nám sem veitir
starfsmenntun í frjálsri myndlist. Námstími þrjú ár.
GRAFÍSK HÖNNUN.
í grafískri hönnun er lögð sérstök áhersla á nýja tækni án þess áð
missa sjónar á þeim grunni sem gdð hönnun grundvallast á, Námstfmi þjrjú ár.
Umsóknarfrestur um skólavist er til 22. maí.
Allar nánari upplysingar veittar í síma 462 4958
Heimasíða.: http://rvik.ismennt.is/-hvh
Netfang.: myndak@ismennt.is
Hyndlistaskólinn á Akureyri Kaupvangsstræti 16 Pósthólf 39 602 Akureyri