Morgunblaðið - 03.05.1997, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997 17
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sig. Fannar
RÁÐSTEFNUGESTIR hvaðanæva af Suðurlandi nutu veður-
blíðunnar í fallegu umhverfi Kirkjubæjarklausturs.
Sunnlenskar
kvenfélagskonur
gáfu á sjöttu milljón
Hvolsvelli - Konur í kvenfélögum
á Suðurlandi sem saman mynda
Samband sunnlenskra kvenna hafa
á síðasta starfsári gefið hátt á
sjöttu milljón til líknar- og menn-
ingarmála.
Mest var gefið til Sjúkrahúss
Suðurlands en á haustdögum var
þangað gefinn mónitor og í janúar
fullkomið fæðingarrúm. Báðir
þessir hlutir voru keyptir fyrir fé
úr Sjúkrahússsjóði sem meðal ann-
ars er fjármagnaður með jólakorta-
sölu. Þetta kom fram á 69. árs-
fundi Sambands sunnlenskra
kvenna sem haldinn var á Hvols-
velli nýlega í boði kvenfélagsins
Einingar á Hvolsvelli og Kvenfé-
lags Fljótshlíðar.
Á fundinum var einnig samþykkt
að senda áskorun til stjórnvalda
um að hraða fjárveitingu svo unnt
yrði að manna stöðu svæfingar-
læknis við Sjúkrahús Suðurlands.
Innan sambands sunnlenskra
kvenna starfa nú 28 kvenfélög með
1151 félagskonur og er Qölbreytt
starfsemi innan félaganna.
Gestir á fundinum voru forseti
og gjaldkeri Kvenfélagasambands
íslands, þær Drífa Hjartardóttir á
Keldum og Halla Aðalsteinsdóttir.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
ÞORVALDUR Pálsson og
Sarah Allard í söluturni sínum.
Nýr söluturn
opnaður
Flateyri - Nýverið opnuðu hjónin
Þorvaldur Pálsson og Sarah Allard
söluturn í nýuppgerðu húsnæði.
Húsið sem er næstelsta íbúðarhúsið
á Flateyri, var byggt 1884, kennt
við manninn sem byggði það, Kjart-
an Rósinkrantsson skipstjóra. Hús-
ið gegndi mörgum hlutverkum,
bæði sem verslun og síðar meir sem
bakarí en hafði staðið lengi ónotað
og var illa farið að innan þegar
Þorvaldur keypti það fyrir þremur
árum.
Það var svo í desemberbytjun á
síðasta ári sem hann hóf að inn-
rétta húsnæðið með söluturn í
huga. Þorvaldur, sem er smiður,
sá um alla smíðavinnu og innrétt-
ingasmíði. í Kjartanshúsi, eins og
söluturninn er kallaður, er einnig
myndbandaleiga sem þau hjónin
reka.
Það var fullt hús þegar þau hjón-
in luku upp dyrum nýja söluturns-
ins enda hefur slíkur staður ekki
verið á Flateyri síðan söluturninn
Krían brann á síðasta ári.
Ferðamálasamtök
verði öflugri
Selfossi - Ferðamálasamtök Suð-
urlands stóðu fyrir ferðamála-
ráðstefnu á Hótel Eddu, Kirkju-
bæjarklaustri, nýlega. Þátttak-
endur komu víða að af Suður-
landi. Á ráðstefnunni var m.a.
rætt um hlutverk samtakanna
og voru ráðstefnugestir sam-
mála um að gera samtökin að
öflugum hagsmunasamtökum
fyrir ferðaþjónustuaðila á Suð-
urlandi.
Að sögn Svans Gísla Þorkels-
sonar stjórnarmanns í nýrri
stjórn samtakanna tekur við
mikil vinna við að undirbúa
breytingar á starfsháttum sam-
takanna. „Meiningin er að færa
starfsemina úr grasrótinni og
gera Ferðamálasamtök Suður-
lands að hagsmunasamtökum,
við munum breyta lögum félags-
ins og auka upplýsingaflæði til
þeirra sem starfa í ferðaþjón-
ustu á Suðurlandi" sagði Svanur.
Aðstandendur ráðstefnunnar
voru ánægðir með þátttökuna
og er að þeirra sögn mikil
gróska í ferðamálum á Suður-
landi, margar hugmyndir eru á
sveimi sem bíða færis á að líta
dagsins ljós.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
FRÁ ársfundi Sambands sunnlenskra kvenna.
Á fundinn komu einnig þau Ragn- 70 ára og var kosin afmælisnefnd
heiður ísaksdóttir og Ásmundur til að vinna að undirbúningi tíma-
Sverrir Pálsson sem kynntu Far- mótanna. Formaður Sambands
skóla Suðurlands. sunnlenskra kvenna er Guðrún
Á næsta ári verður sambandið Jónsdóttir.
SUMARHATIO
ÉSlskylduhát^^pfT borgara verður haldin í
Laugardalshöll sunnudaginn 4. maí n.k. kl. 13.30
DA6SKRA
Ávamjjborgarstjóra Spaugstofan
Kórar Félags eldri borgara og Leikhópurinn
félagsmiðst. Reykjavíkurborgar „Snúður & Snælda"
Þórarinn Eldjánfj^^-^P^^^'Egill Olafsson #§
Nýi Tónlistarskóliqj||fHM^^pLaddlÍÉÉ/
atriði úr Meyjarskemmunni Raggi Bjarna
Árni Johnseru-^^^^^^i^^^^jómsveit Arngríms
tel-v. &3Í
\ saí
ðv»sV
e\t
Stjórnandi Páll Gíslason formaður FEB
Allir velkomnir
húsið opnar kl. 12.30 - miðaverð kr. 300,-
Félag eldri borgara í Reykjavík
Félags- og þjónustumiðstöðvar
í Reykjavík