Morgunblaðið - 09.11.1997, Side 4
4 SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 2/11-8/11
^ÍÉisnmi
► YFIR þúsund umsóknir
hafa borist um 120-130
störf í nýju álveri Norðuráls
sem taka á til starfa 4. júni
á næsta ári. Öllum umsækj-
endum hefur verið sendur
spurningaiisti um viðhorf til
ýmissa þátta starfsins til að
fá fram hvers væntanlegt
starfsfólk óskar. Verða
þessar óskir hafðar til hlið-
sjónar við mótun starfs-
mannastefnu Norðuráls.
► MIKLIR fjárskaðar urðu
í Skaftártungu í V-Skafta-
fellssýslu í óveðri sl. sunnu-
dag. Talið er að um 250
kindur hafi drepist. Mjög
vont veður gerði á sunnu-
daginn, hvasst og snjókomu
í litlu frosti. Féð hrakti und-
an veðrinu og fennti í kaf.
► ÁTTATÍU og níu ein-
staklingar hafa leitað til
SÁÁ í meðferð við spilafíkn
fyrstu tíu mánuði ársins,
þar af þrettán konur. Flest-
ir sem leita sér meðferðar
við spilafíkn eru á aldrinum
25-35 ára.
► VERSLUNUM í miðborg
Reykjavíkur hefur fækkað
um 18 milli áranna 1996 og
1997. í fyrra voru 372 versl-
anir í miðborginni en nú eru
þær 354.1.200 fyrirtæki og
stofnanir eru í miðborginni
með 8 þús. starfsmenn.
Fasteignamat eigna er um
29 miljjarðar þar af er mat
fasteigna í Kvosinni rúmir
10 milljarðar.
► TALIÐ er mögulegt að
samsetning á islenskri kúa-
mjólk geti verið skýring á
þvi að nýgengi insúlínháðr-
ar sykursýki í börnum og
unglingum sé mun lægra
hérlendis en á hinum Norð-
urlöndunum.
Landssíminn
verði seldur
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra
segir ekki vafa á að Landssíminn hf.,
hlutafélagið sem mun annast símrekst-
ur Pósts og síma frá áramótum, fari á
hiutabréfamarkað. Hann segist sjá fyr-
ir sér að eigendur Landssímans verði
að meginstofni íslenskur almenningur.
Rúmur þriðjungur af símanotkun heim-
ila í landinu miðað við skrefatalningu
er vegna staðarsímtala, en 28,1% vegna
símtala til útlanda.
Stjómarmenn Pósts og síma hf.
ræddu það sín á milli að segja af sér
vegna gagnrýni sem kom fram eftir
breytingar á gjaldskrám fyrirtækisins.
Samgönguráðherra og forsætisráð-
herra lögðust gegn því og ákváðu
stjórnarmennirnir að sitja áfram í
stjóminni.
ESB-aðild ekki
hindruð
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir að það væri rangt að byggja
upp hindranir í vegi þess að Island
geti sótt um aðild að Evrópusamband-
inu í framtíðinni, sjái þjóðin ástæðu til
þess. Hann segir aðild íslands að
Schengen-vegabréfasamstarfínu,
styrkingu EES-samstarfsins, aukið
pólitískt samstarf við ESB og breyting-
ar innan NATO munu auðvelda það
að taka slíka ákvörðun, komi til slíks.
Ekkert jólahangikjöt
til ESB?
ÞEIR sem hyggjast senda hangikjöt,
skyr, slátur eða svið til ESB-landanna
fyrir jólin ættu að hugsa sig tvisvar
um því óvíst er hvort sendingin kemst
til skila. Óheimilt er að senda til ESB-
landa svið, innmat, eða aðrar sláturaf-
urðir og allar unnar kjötvörur svo og
mjólkurafurðir, þar með talið skyr.
Engin íslensk kjötvinnsla uppfyllir heil-
brigðisstaðla ESB.
Stál í stál milli
íraka og SÞ
ÍRAKAR ítrekuðu á föstudag hótanir
sínar um að bandarískar njósnaflugvél-
ar kynnu að verða skotnar niður, fæm
þær inn í íraska flughelgi. írösk stjóm-
völd aftaka með öllu að bandarískir
starfsmenn vopnaeftirlits Sameinuðu
þjóðanna fái að heíja störf að nýju í
Irak eftir rúmlega vikubann. Sendi-
mönnum SÞ, sem héldu til Baghdad í
vikunni, tókst ekki að fá íraka til að
láta af andstöðu sinni við þátttöku
Bandaríkjamanna í vopnaeftirlitinu..
Verkfalli flutninga-
bílsljóra aflýst
VERKFALLI franskra flutningabíi-
stjóra var aflýst á föstudag eftir að
samkomulag náðist um launahækkanir
til þeirra. Viðbrögð bílstjóranna vom
þó blendin og í gær höfðu tveir vegat-
álmar enn ekki verið fjarlægðir. Mikið
umferðaröngþveiti varð þá fimm daga
sem verkfallið stóð, auk þess sem farið
var að bera á matvöra- og bensín-
skorti um miðja viku.
►OFSAVEÐUR gekk yfir
suðurhluta Portúgals og
Suður- og Mið-Spán í vik-
unni. Að minnsta kosti 32
létu lífið og tugir manna
slösuðust i hvassviðri, úr-
hellisrigningu og flóðum í
kjölfar hennar. Voru þess
dæmi að fólk hefði
drukknað inni i húsum sin-
um.
►FRAMKVÆMDIR hóf-
ust í gær við stíflugerð i
Yangtze-fljóti í Kína en
hún mun færa byggð á kaf
á 600 km kafla. Neyðast
1,2 milljónir manna til að
flyljast búferlum vegna
stíflugerðarinnar.
►BORÍS Jeltsín Rúss-
landsforseti vék á mið-
vikudag Boris Berezovskf
kaupsýslumanni úr rúss-
neska öryggisráðinu að
áeggjan umbótasinna i
ríkisstjórninni sem höfðu
deilt harkalega við hann
um sölu ríkiseigna.
►UM 2.200 manna er
saknað og að minnsta
kosti 300 manns létu lífið
er fellibylurinn Linda
gekk yfir Víetnam um síð-
ustu helgi. Fórust tæplega
2.000 smábátar undan
ströndum landsins.
*
Urskurður á Netinu
BÚIST er við að dómari í máli á hend-
ur bresku bamfóstunni Louise Wood-
ward noti alnetið til að birta úrskurð
sinn vegna kröfu veijenda um að mál-
ið verði ómerkt. Þá er búist við því að
dómarinn muni birta úrskurðinn á
morgun, mánudag.
►VERÐI farið að tillög-
um ráðgjafarnefndar Al-
þjóðahafrannsóknar-
ráðsins, um 40% niður-
skurð á kvóta í Barents-
hafi, kann það að kosta
norskan og rússneskan
sjávarútveg allt að 33
milljarða ísl. kr.
FRÉTTIR
*
I
Formaður Alþýðuflokksins biður flokksstjórn
um umboð til sameiningarviðræðna
U ndirbúmngur fram-
boðs byrji fljótlega
SIGHVATUR Björgvinsson, for-
maður Alþýðuflokksins, fór fram á
það við flokksstjórnina á fundi
hennar, sem hófst kl. 13 í gær, að
hún veitti honum umboð til að
„vinna að sameiginlegu framboði á
grundvelli jafnaðarstefnu, félags-
hyggju og kvenfrelsis við alþingis-
kosningamar vorið 1999.“
Sighvatur sagði í ræðu sinni á
fundinum að hann hefði átt viðræð-
ur við formann Alþýðubandalagsins
og ýmsa aðra úr þeim flokki, svo
og konur úr Kvennalista, sem sýnt
hefðu áhuga á sameiginlegu fram-
boði. „Mín sannfæring að loknum
þeim viðræðum er sú, að af hálfu
formanns Alþýðubandalagsins og
fjölmargra annarra Alþýðubanda-
lagsmanna úr röðum unga fólksins,
í sveitarstjórnum og úr röðum
verkalýðshreyfmgar sé mikill og
einlægur vilji fyrir því að stefna að
sameiginlegu framboði á grundvelli
jafnaðarstefnu, félagshyggju og
kvenfrelsis," sagði Sighvatur. „Ég
trúi því, að sú afstaða verði afger-
andi niðurstaða landsfundar Al-
þýðubandalagsins, sem nú fer fram
hér í Reykjavík og að undirbúning-
ur að slíku framboði geti hafizt af
þrótti eftir fáa daga.“
Sighvatur lagði fram á flokks-
stjórnarfundinum tillögu til álykt-
unar, þar sem segir að stjórnin feli
formanninum að hefja nú þegar
undirbúning að sameiginlegu fram-
boði með viðræðum við aðra flokka,
hópa og samtök, sem vilji leggja
hönd að því verki, og með öflugu
kynningar- og áróðursstarfi meðal
almennings.
Veiðileyfagjald og atkvæða-
greiðsla um aðildarumsókn
Sighvatur lagði jafnframt fyrir
fundinn „verkáætlun" til undirbún-
ings sameiginlegu framboði. Sig-
hvatur sagðist ekki leggja áætlun-
ina fram til samþykktar eða synjun-
ar, þar sem hann vildi hvorki binda
sjálfan sig né flokkinn við „tiltekn-
ar, ófrávíkjanlegar útfærslur í ein-
stökum atriðum."
í verkáætluninni er að fínna til-
lögur um málefni hins sameiginlega
framboðs. Þar segir meðal annars
að brjótast verði út úr þeim víta-
hring að íslendingar vinni þriðjungi
lengri vinnudag en nágrannaþjóð-
imar. Þá segir í tillögunum að sá,
sem fái afnotarétt af sameiginleg-
um auðlindum, eigi að greiða fyrir
þann rétt, hvort sem er veiðileyfa-
gjald eða orkugjald. Gert er ráð
fyrir að umhverfisskattar verði
teknir upp í stað annarra skatta
og kveðið á um að fjárfestingar í
orkufrekum iðnaði beri að skoða í
ljósi breyttra áherzlna í umhverfis-
málum.
Lagt er til að kerfi námslauna
verði að hluta tekið upp í stað
námslána. Gert er ráð fyrir að
tekjuskattur millitekjufólks verði
Iækkaður með lægra tekjuskatts-
hlutfalli og sett verði lög, sem tak-
marka jaðaráhrif í skatta- og al-
mannatryggingakerfinu. Lagt er
til að tekjutenging barnabóta verði
afnumin.
Lagt er til að erlendum aðilum
verði heimilað að fjárfesta í fisk-
vinnslu. Um Evrópusambandið seg-
ir í áætlun Sighvats: „í kjölfar ítar-
legrar umræðu og faglegra úttekta
á að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu
um hvort ísland eigi að sækja um
aðild að Evrópusambandinu. Verði
niðurstaða slíkrar þjóðaratkvæða-
greiðslu jákvæð þá verði óskað eft-
ir samningaviðræðum um aðild og
náist samningar um aðild íslands
að Evrópusambandinu verða þeir
bomir undir þjóðaratkvæða-
greiðslu."
Málþing um einhverfu undir heitinu „Hór leynist fólk“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SEAN Barron ásamt móður sinni, Judy Barron, sem á stóran þátt i því að Sean vann bug á einhverfu.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
l
i
Hegðun mín stjómaði mér
„AÐ vera einhverfur er eins og
að hlaupa eftir endalausum gangi
og veggirnir eru að hrynja yfir
mann. Það er eins og að vera í
sjálfheldu og líðanin er hræðileg.
I raun var hegðun mín farin að
stjóma mér en ekki öfugt og ég
var alltaf mjög kvíðinn," segir
Sean Barron, ungur maður frá
Bandaríkjunum sem ásamt móður
sinni, Judy Barron, er sérstakur
gestur málþings Umsjónarfélags
einhverfra í dag í tilefni af 20 ára
afmæli félagsins.
„Ég sættí mig aldrei við fötlun
mína og barðist alla tíð gegn henni.
Baráttan hefur staðið yfír í mörg
ár og nú tel ég mig ekki lengur
vera einhverfan,“ segir Sean.
„Ég vildi ekki verða fullorðin
útgáfa af því sem ég hafði verið
sem barn. Allir aðrir virtust eðli-
legir í kringum mig og mér fannst
ég verða að leggja mitt af mörkum
til þessað verða eðlileg mann-
eskja. Ég reyndi að losa mig við
það sem hélt aftur af mér og
hindraði þroska minn. Það tók
mig langan tíma að ná mér, líklega
tók batinn ein 10-12 ár,“ segir
Sean.
Lýsir einhverfu í bók sinni
Hann segir að því miður sé það
ekki svo að allir geti unnið bug á
einhverfu. Ástandið sé mismun-
andi eftir einstakiingum og sumir
geti alls ekki séð um sig sjálfír.
Sean Barron skrifaði bók um
fötlun sína ásamt móður sinni sem
heitir „Hér leynist drengur" og
kom út á íslensku á þessu ári í
þýðingu Páls Ásgeirssonar geð-
læknis. Sean segir að bókin sé
skrifuð frá tveimur sjónarhornum,
þ.e.a.s. frá sjónarhóli móður
sinnar og sinum eigin.
„Ég reyndi í bókinni að fara
aftur á gamalkunnar slóðir í huga
mínum. Ég lýsi því sem var gerast
innra með mér, hvers vegna ég
gerði ýmsa hluti. Þótt fæstir hefðu
fengið nokkurn botn í það sem ég
gerði fannst mér það eðlilegt.
Þetta voru mín tjáskipti," segir
Sean.
Sean er sér meðvitandi um
hvernig fötlun hans var og getur
nú greint hana í smáatriðum.
Hann telur sig nú hafa fengið full-
an bata.
Málþingið hefst kl. 13 í dag í
Ráðhúsi Reykjavíkur.