Morgunblaðið - 09.11.1997, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997 31
FRETTIR
Hámarkshitastig á neysluvatni ekki í byggingareglugerð
Ákveðinn
aðlögun-
artími
gefinn
ÞÓRÐUR Ólafur Búason, yfirverk-
fræðingur hjá byggingafulltrúanum
í Reykjavík, segir að fyrirmæli um
að neysluvatn megi ekki vera heitara
en 65 gráður hafi ekki verið sett inn
í drög að byggingareglugerð sem
taka á gildi 1. janúar 1998. Ljóst sé
hins vegar að fyrr eða síðar verði
það hluti af byggingarreglugerð hér-
lendis eins og á evrópska efnahags-
svæðinu. Hrefna Kristmannsdóttir,
deildarstjóri hjá Orkustofnun, segir
að mun einfaldari og betri lausn sé
að leiða heitt neysluvatn um kælispír-
al í stað þess að blanda saman heitu
og köldu vatni sem valdi útfellingum.
„Við reiknum með að gefinn verði
ákveðinn aðlögunartimi að þessum
breytingum. Aðgerðir sem þessar
kosta talsverðar fjárupphæðir sem
leggjast af fullum þunga á viðkom-
andi fasteignaeigendur. Þetta mun
því ekki gerast í einu vetfangi," seg-
ir Þórður Ólafur.
í samræmdum reglum á Evrópska
efnahagssvæðinu, sem íslendingar
eru aðilar að, er gert ráð fyrir að
neysluvatn sé ekki heitara en 65 gráð-
ur og einnig eru þar reglur um visst
efnainnihald vatnsins sem íslendingar
þurfa einnig að uppfylla. Þórður Ólaf-
ur segir að það myndi leiða til hækk-
unar byggingakostnaðar að fram-
fylgja EES-reglum um hitastig
neysluvatns í öllum húsbyggingum
ogjafnframttil hækkunar á vísitölum.
„Það þarf að vera tiyggt að þegar
slík ákvæði eru sett inn í reglugerð
að pólitískur vilji sé fyrir því að fram-
fylgja reglugerðinni," segir Þórður
Olafur.
Taki fyrst gildi í opinberum
stofnunum og hóteium
Hann telur að það verði ekki mik-
ill ásteytingarsteinn gagnvart EES-
samningnum að ákvæði um há-
markshitastig neysluvatns verði ekki
sett inn í reglugerð núna.
„Skynsamlegast teldi ég að þessi
krafa yrði fyrst látin gilda í opinber-
um stofnunum og viðskiptastofnun-
um eins og hótelum þar sem gestir
dvelja sem ekki eru vanir svo heitu
vatni sem hér er. Sú krafa hlýtur
að koma mjög fljótt. Auðvitað hlýtur
einnig að koma að því fyrr eða síðar
að þetta gildi einnig á hveiju heimili."
Þórður Ólafur telur hugsanlegt að
Félag pípulagningameistara, sem hélt
því fram í Morgunblaðinu nýlega að
ákvæði um hámarkshitastig á neyslu-
vatni væri i byggingareglugerð sem
tæki gildi um áramótin, hafi þar í
raun átt við drög um sérstakar sam-
tSi f f\(íu'f(4 f\j(\í\((r
Morgunblaðið/ Kristinn
FORHITARAR eru í sumum húsum á
Seltjarnarnesi. Þar þarf að hita upp
kalt vatn til notkunar í húsum því selta
er í hitaveituvatni á Seltjarnarnesi. Á
myndinni vinnur Henrý Kristjánsson
að uppsetningu á forhitara.
þykktir fyrir lagnir í Reykjavik sem
sé til umijöllunar um svipað leyti.
Hvert sveitarfélag á kost á að setja
sérstakar reglur vegna séraðstæðna
í sveitarfélaginu en í drögum að bygg-
ingareglugerð sem er til umsagnar
núna er hámarkshiti á neysluvatni
ekki bundinn fastmælum.
Hrefna Kristmannsdótt-
ir, deildarstjóri í jarðefna-
fræðideild hjá Orkustofnun,
segir að mörg vandamál
fylgi því að setja upp
neysluvatnsblandara til að
lækka hitann á neysluvatni.
Fyrir um tíu árum var sett
upp 25 metra leiðsla með
neysluvatnsblandara við
inntakið í tilraunaskyni.
Hrefna segir að verulegar
útfellingar hafi orðið í
leiðslunni.
„Það gengur ekki að
blanda saman heita og
kalda vatninu í Reykjavík.
Það var reynt í stórum stíl
af Hitaveitunni fyrir nokkr-
um árum og fylltust þá
lagnir af magnesíumsílikat
útfellingum. Galvaniseruðu
rörin gera þetta hálfu verra
því með blöndun féll einnig
út sinksílikat auk þess sem
rörin tærast," sagði Hrefna.
Hún segir að einfaldast lausnin
til að lækka hitastig á neysluvatni
sé að leiða það um kælispíral eða
nota vatn sem kemur til baka úr
ofnum. „Það er ekki góð lausn að
blanda saman köldu og heitu vatni,“
segir Hrefna.
Fagnámskeið í hótel
og matvælagreinum.
Innbakstur og hraðréttir
MIH 101/INN 101.
Kennarar: Ingólfur Sigurðsson og
Kristján Rafn Heiðarsson.
Kennsludagar: 28., 29. og 30.nóv.
Þjónustusamskipti MÞS 102
Kennari: Sigurborg Kr. Hannesdóttir.
Kennsludagar: 15., 16., 22. og 23. nóv.
Innritun stendur yfir í Hótel- og matvælaskólanum.
Upplýsingar gefur kennslustjóri verknáms
milli kl. 8.00 og 16.00.
HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN
lll MENNTASKÓLINN í KÓPAVOGI
Mimiiin v/Digranesveg - 200 Kópavogur,
Sími 544 5530, Fax 544 3961, netfang mk@lismennt.is
Gæði í fjármálastjómun - námstefina
11. nóvember kl. 12.30 -17.00 á Hótel Loftleiðum
Haldin í samvinnu við fshindsbanka
Gæðastjómun: Em (jármál fýrirtækja yfir það hafin?
> Aukin gæði í fjánnálastjómun með aðferðum gaDðastjómunar
Gæði í starfsmannastjórnun - námstefna
12. nóventber kl. 12.30-17.00 á Hótel Loftleiðum
Haldin ísamvinnu við ASÍ, BHM, BSRB og SÍB
Nýjustu straumar og stefriur í stjómun starfsmannamála
• Frammistöðumat og áraiigursbundin laun
• Að breyta fýrirtækjabrag ineð átaki f starfsmannamálum
• Þátttaka starfsmanna í ákvarðanatöku og gæðamálum
• Tengsl vinnuumhverfis á líðan starfsfólks: Avinningur forvama
• S(menntunstarfcmanna:Látumverkintala
1 Hvemig lítur iýrimiyndaHýrirtæki starfsmannsins út?
Morgunverðarfundur-
kynning á gátlista og leiðbeiningar-
bæklingi fyrir íbúðakaupendur
13. nóvember kl. 8.30 -10.00 á Hótel Loftleiðum
ByggingíiriðnHðíirhópur GSFÍ og Húsnæðisstofnun ríkisins
Afhending íslensku gæðaverðlaunanna
13. nóvember ld. 17.15-19.00 - á Kjarvalsstöðum
Samstarf GSFÍ, Alþýðusambands fslands, forsætisráðuneýlfcins,
Framltðaisýnar, Háskóla íslands og Vinnuveitendasambanas fslands
Ndnari upplýsingar og skráning á skrifstofu GSFÍ
Sfmi: 511-5666,
Stmbréf: 511-5667
Netfang: gsfi@vsi.is
heimasíða: http://www.skima.is/gsfi
FJORAR
NÆTUR!
Innifalið: Flug, flugv.skattar og gisting
12ja m. herb.með morgunverði (4 ruetur.
Brottfarir: 16., 23. og 30. nóv. og 7. des.
Þœgileg hótelgisting í hjarta Glasgow
Takmarkað sœtaframboð
ALLT AÐ SELJAST LPP!
// Qistin-g
Verðdœmi 7. jan. pr. mann kr.:
Flugvallarskattar innifaldir. Verðið miðast við tvo
fullorðna og tvö börn 2-11 ára, gistingu á Aloe
á Ertsku ströndinni í 7 nœtur. Brottför: 7. jan.
Ef tveir saman í íbúð á Aloe 7nœtur, kr. 40.700.- pr. mann.
Nánari
upplýsingar
hjá
sölumönnum.
VISA
a
SKftl-ALMENNAR
FERÐIR
Faxafeni 5 108 Reykjavík. Sími: 568 2277 Fax: 568 2274
Umboðsmenn Plúsferóa:
Akranes:
Auglýsingablaðið Pésinn
Stillholti 18,
sími 431 4222/431 2261.
Sauðárkrókur:
Skagfirðingabraut 21,
sími 453 6262.
Akureyri: Ráðhústorg 3,
sími 462 5000.
Grinduvík: Flakkarinn
Víkurbraut 27, sími: 426 8060
Vestnutnnaeyjar:
Eyjabúð Strandvegi 60,
sími 481 1450
Selfoss-.Suðurgarður hf.
Austurvegi 22, sírni 482 1666.
Keflavík:Hafnargötu 15,
sími 421 1353.
OTTÓ AUGLÝSINCAR