Morgunblaðið - 20.11.1997, Síða 12

Morgunblaðið - 20.11.1997, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Um eitt hundrað manns á borgarafundi í Fossvogsskóla vegna seinkunar á viðbyggingu Telja brýnt að fá viðbót næsta haust Morgunblaðið/Kristinn NÁLEGA 100 manns voru á borgarafundi um byggingamál Fossvogsskóla og töldu fundarboðend- ur brýnt að taka sem fyrst í notkun viðbótarbyggingu svo leggja mætti af þreyttar bráðabirgðastofur. KRINGUM 100 manns sátu borg- arafund í Fossvogsskóla í Reykjavík í fyrrakvöld þar sem knúið var á borgaryfirvöld að seinka ekki fram- kvæmdum við viðbótarbyggingu skólans. Óskar Einarsson skóla- stjóri segir að lengi hafi staðið til að bæta 7-9 kennslustofum við skólann í stað bráðabirgðastofa sem teknar voru í gagnið fyrir 20 árum og eru orðnar mjög lúnar. Til fundarins boðuðu foreldrafé- lag, foreldraráð og bygginganefnd Fossvogsskóla og sátu hann einnig borgarfulltrúarnir Sigrún Magnús- dóttir og Árni Sigfússon og arki- tektarnir Rúnar Gunnarsson og Sighvatur Arnarsson frá bygginga- deild borgarinnar. „Við höfum lengi talið brýnt að ljúka byggingu þriðja áfanga skól- ans, sem er 900 fermetrar, en þar eiga að vera að minnsta kosti sjö nýjar kennslustofur ásamt raun- greina- og sérgreinastofum. Með því myndum við losna við bráða- birgðahúsnæði sem verið hefur í notkun í yfir 20 ár,“ segir Óskar Einarsson. Alls yrðu þá 14-16 kennslustofur við skólann en nem- endur hans eru 305. Óskar segir að í fimm ára drögum um framkvæmd- ir hafi verið gert ráð fyrir að viðbót- in kæmist í gagnið á næsta ári en í nýrri drögum frá því í sumar hafi framkvæmdum verið seinkað til ársins 2000. Helst næsta naust „Við sættum okkur illa við þá seinkun og var með fundinum verið að knýja á um að farið yrði strax í framkvæmdirnar til að hægt verði að taka viðbótina í notkun næsta haust eins og ráðgert var. Það gæti orðið þvi Sigrún Magnúsdóttir kynnti ný drög þar sem gert er ráð fyrir að þær 130 milljónir sem þarf til framkvæmdanna verði lagðar fram á næstu tveimur árum og að viðbótin komist í gagnið 1999. Við gætum í sjálfu sér fallist á það ef hægt verður að taka einhveijar stofur í gagnið næsta haust,“ segir Óskar ennfremur. í fundarboði eru talin upp rök fyrir nauðsyn þess að viðbyggingin verði tekin sem fyrst í notkun, m.a. að selin eða bráðabirgðastofurnar haldi vart vatni né vindi, ýmsa að- stöðu vanti fyrir heilsdagsskólann, heimilisfræði sé nú kennd í glugga- lausri stofu, 27 börn séu höfð í 13-17 manna stofum, hverfíð sé að yngjast upp og vænta megi fjölg- unar nemenda og að sjö kennarar hafí sagt upp störfum sem sé m.a. vegna húsnæðisvanda og aðstöðu- leysis skólans. Björgunarvesti innkölluð Hugsan- legur galli í uppblást- ursbúnaði INNKALLA þarf björgunar- vesti, sem bandaríska fyrir- tækið Halkey-Roberts fram- leiðir, vegna hugsanlegs galla í uppblástursbúnaði. Vesti með uppblástursbúnaði sem er dagstimplaður í ágúst 1997 eða fyrr eru innkölluð. Ragnar B. Ragnarsson, framkvæmdastjóri Gúmmí- bátaþjónustu Norðurlands, sem hefur umboð fyrir búnað frá Halkey-Roberts, segir að ekkert hafí verið selt hérlendis af þessum búnaði til íslend- inga. Framleiðandanum hafí hins vegar þótt rétt að tilkynna þetta einnig hér ef vera kynni að einhver hefði undir höndum búnað með þessari dagsetn- ingu. Sjótöflur gallaðar Innkölluð eru vesti með upp- blástursbúnaði eða sjótöflum sem dagstimplaðar eru í ágúst 1997 eða fyrr. ítrekaðar mæl- ingar hafa leitt í ljós að sumar af þeim sjótöfium sem fram- leiddar voru árið 1996 gætu verið gallaðar en töflurnar eiga að leysast upp í vökva og setja þannig af stað búnað sem blæs vestið út um leið og það kemur í sjó. Hægt er að kanna dagstimpilinn með því að skrúfa lokið af þrýstibúnað- inum og lesa stimpil af sjótöfl- unni. Standi 08/97 eða eldri dagsetning eru menn beðnir að hafa samband við Gúmmí- bátaþjónustu Norðurlands. Ragnar B. Ragnarsson segir að þessi innköllun sé umfangs- mikil því seldar hafi verið tug- þúsundir af slíkum vestum, framleiðandinn hafí um 70% heimsmarkaðarins í þessum búnaði. Pólfararnir hafa lagt rúmlega 100 km að baki I stöðugnm mótvindi og 16 stiga frosti ÍSLENSKU suðurskautsfararnir Ólafur Örn Haraldsson, Ingþór Bjamason og Haraldur Örn Ólafs- son hafa nú lagt rúmlega 100 kíló- metra að baki á göngu sinni í átt að suðurpólnum frá því þeir gengu af stað þann 12. þessa mánaðar. Á þriðjudag gengu þeir rúmlega 22 kílómetra en dagana tvo á und- an höfðu þeir lagt 17 km að baki hvorn dag. í gærmorgun vöknuðu þeir í 16 gráðu frosti og höfðu vind í fangið á göngunni, eins og jafnan er á suðurpólnum, segir Grétar Bjarnason, hjá Flugbjörgunarsveit- inni í Reykjavík. Hann fylgist með boðum frá staðsetningartæki pól- faranna. Leiðin, sem þeir ætla að leggja að baki á 60 dögum, er um það bil 1200 kílómetrar og hafa þeir því ráðgert að ganga að jafnaði um það bil 20 km á degi hveijum. Tómas Bjamason, tengiliður félaganna hér á landi, segir að þeir hafí þó miðað við að fara rólega yfír í byijun. „Þar kemur margt til, einkum hefur það að gera með ástæður sem snúa að þeim sjálfum, þ.e. að venjast verunni þarna, ná ákveðnum takti og verkaskiptingu milli manna, venjast sleðunum, og ná upp þreki,“ segir Tómas. „Auk þess kunna aðstæður að spila stórt hlutverk, mótvindur er allan tímann en mismikill. Brattinn getur verið meiri á vissum stöðum en annars staðar og mikill nú í upphafi. Svo er sleðinn þyngstur fyrst en léttist eftir því sem gengur á matinn," segir Tómas. Alveg á eigin vegum Hver þremenninganna dregur sleða sem í upphafi var 120 kg þungur. Þar af eru 60 kg af matvæl- um. Hver þremenninganna notar 1 kg af vistum á dag. Ingþór, Ólafur Örn og Haraldur Órn eru algjörlega á eigin vegum á göngunni, án leið- sögumanns eða nokkurs slíks. Þeir eru án talstöðvarsambands við umheiminn en sjálfstæður neyðar- sendir er á hveijum sleða. Auk þess fylgist Grétar hjá Flug- björgunarsveitinni með Argos- senditækinu sem pólfararnir nota til að senda boð um hvemig ferð þeirra miðar. í gegnum gervi- hnattastöð í Toulouse í Frakklandi berast boðin Flugbjörgunarsveit- inni. Argos-tækið getur sent frá sér 16 tegundir af merkjum en tekur ekki á móti neinum sendingum. Eitt merkið táknar að þeir séu á göngu, annað að þeir séu í tjald- stað, hið þriðja biður um að björg- unarlið verði sent til að sækja þá og svo framvegis. Eitt merkið þýðir gleðileg jól en ef allt gengur að óskum koma þremenningarnir á pólinn um áramót eða upp úr nýári. Grétar Bjarnason segir að undan- fama daga hafi frost á Suður- skautslandinu verið 15-20 stig, sem þykir ekki mikið þar. Vindurinn í fangið er oft 8-10 vindstig og jafn- vel meiri. Þess má geta að 80 hnúta vindur tafði um 4 daga að þeir kæmust síðasta spölinn frá Chile til tjaldbúðanna í Patriot Hills. 80 hnútar eru meira en 12 vindstig. Ólafur Örn sagði í samtali við Morgunblaðið frá Patriot Hills í sfð- ustu viku að þótt frostið væri svo mikið og vindurinn stöðugur væri loftið svo þurrt að kuldinn væri ekki jafnbítandi og þeir hefðu ótt- ast. Auðvitað þurfi þó að hafa á sér vara gagnvart kali. Draga sleða í fiskilími Eins og fyrr sagði nálguðust pólfararnir áfangastað sinn um 22 kílómetra á þriðjudag en fyrstu dagana gengu þeir 7-13 kilómetra. Þeir ganga um 8-10 klukkustundir dag hvern. Alls fara þeir í 2.850 metra hæð yfir sjávarmál á leið sinni og er hallinn nokkur fyrstu dagana. Sú leið sem farin er í átt að pólnum segir ekki alla söguna því auk hæðarmismunar er yfír spmngusvæði að fara og verða þeir oft að leggja lykkju á leið sína og hafa varann á. Stórir skaflar valda einnig tor- færum á leiðinni, að sögn Ólafs Amar Haraldssonar. Félagarnir ganga á skíðum en fara í erfiðustu brekkum af skíðunum og setja und- ir sig brodda. Færið er oft hið erfíð- asta og segir Ólafur Örn að Norð- maðurinn Amundsen, sem fór fyrst- ur á pólinn, hafi líkt færinu við það að draga sleða í fískilími. Hann segir að þeir gangi á skíðunum eins mikið og þeir geti. Það skipti máli til að veijast sprungunum sem hvar- vetna em í íshellunni. Bensínstöðvar Hagræð- ing á minni stöðvum PÁLMAR Viggósson, deildarstjóri hjá Olíufélaginu, segir að breytingar sem olíufélögin séu að gera á af- greiðslutíma feli í sér aukna þjón- ustu á stærri bensínstöðvum, en þjónusta á minni stöðvunum hafí heldur verið dregin saman. Tilgang- urinn sé að ná fram hagræðingu, en einnig sé þetta liður í að uppfylla ákvæði vinnutímatilskipunar Evr- ópusambandsins. Pálmar sagði að afgreiðslutími og þjónusta hefði verið aukin á stærri bensínstöðvunum á síðustu árum. Margar bensínstöðvar væm núna opnar til kl. 23:30. Hann sagði ekki rétt að tala um að olíufélögin væru að skerða afgreiðslutíma og þjónustu á bensínstöðvunum. Afgreiðslu- tíminn og þjónustan hefðu verið aukin mikið á stærri stöðvunum. Pálmar sagði að sjálfsagt hefðu sj á'.fsafgreiðslubensínstöðvamar tekið einhver viðskipti frá þessum hefðbundnu bensínstöðvum. Aukn- ing hefði orðið á bensínsölu hjá sum- um stöðvum þrátt fyrir harða sam- keppni við sjálfsafgreiðslustöðvar. Mikil söluaukning hefði t.d. orðið hjá bensínstöð Olíufélagsins við Stórahjalla þrátt fyrir að Orkan væri með stöð þar skammt frá. -----».♦ ♦---- Flutningabíll á hliðina FLUTNINGABÍLL með tengivagn hlaðinn sandi valt á gatnamótum Vesturlandsvegar og Suðurlands- vegar í gær. Bílstjórinn slasaðist nokkuð og var fluttur með sjúkra- bíl á slysadeild. Sandflutningabíllinn var að beygja af Suðurlandsvegi til hægri inn á Vesturlandsveg er hann valt. Lögreglan segir að þetta sé ekki fyrsti stóri flutningabíllinn sem velti á þessum gatnamótum, ljóst sé að þarna verði að fara rólega um enda gatnamótin erfið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.