Morgunblaðið - 20.11.1997, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Sameining sveitarfélaga í Vestur-Húnavatnssýslu
Fjölmennur kynningarfundur
Hvammstanga - Vestur-Hún-
vetningar fjölmenntu á kynning-
arfund um sameiningu sveitarfé-
laganna í héraðinu en fundurinn
var í Félagsheimilinu á Hvamms-
tanga á mánudagskvöldið 17. nóv-
ember. Á þriðja hundrað manns
kom á fundinn og hlýddu á rök
með og á móti sameiningu.
Haldnir hafa verið kynningar-
fundir í öllum sveitarfélögum og
var þessi fundur hinn síðasti sem
slíkur.
Framsögumenn voru Jón Magn-
ússon, forstöðumaður Byggða-
stofnunar á Sauðárkróki og Har-
aldur Líndal, sérlega ráðinn
starfsmaður sameiningarnefndar-
innar. Einnig sat undirbúnings-
nefndin fyrir svörum. Fram kom
hjá Jóni að Vestur-Húnavatns-
sýsla væri skilgreind í úttekt
Byggðastofnunar sem svæði í
áhættu vegna fólksfækkunar. Svo
er reyndar um ijölmörg svæði á
landsbyggðinni.
Margir fundargesta tóku til
máls og reifuðu hina ýmsu mála-
flokka. Af máli fundarmanna
virðist mega ráða að verulegur
vilji væri fyrir sameiningu. Þótt
leitað væri eftir ókostum á sam-
einingunni kom ekkert sérstakt
atriði fram. Ljóst er að erfið mál
bíða úrlausnar í héraðinu hvort
sem gengið er til sameiningar eða
ekki. Má nefna atvinnumál og
skólamál.
Nokkrir fundarmenn gáfu sér
þá niðurstöðu að sameining yrði
samþykkt og vörpuðu fram heiti
á hið nýja sveitarfélag, Húna-
byggð og Húnaþing. Formaður
undirbúningsnefndarinnar, Þor-
valdur Böðvarsson, lýsti í fundar-
lok þeirri skoðun sinni að ef hérað-
ið yrði sameinað í eitt sveitarfélag
gæti það orðið að forystuafli í
byggðum við Húnaflóa. Kosið
verður á laugardaginn 29. nóvem-
ber og stendur utankjörfundar-
kosning yfir.
Dagur
íslenskrar
tungu
Húsavík - Safnahúsið á Húsa-
vík minntist dags íslenskrar
tungu með því að fá dr. Hös-
kuld Þráinsson, prófessor við
Háskóla íslands, til að flytja
fyrirlestur er hann nefndi:
Hvað geta Færeyingar kennt
okkur um íslensku?
Rakti Höskuldur þróun mál-
ræktar hjá Færeyingum með
samanburði við það sem gerst
hefur á íslandi.
rAðstefnuröð
SAMGÖNeURÁÐUNEYTlSINS OG R.H.A.
22. nóvember nk.
í Alþýðuhúsinu á Akureyri, 4. hæð.
Fundarstjóri: Arna Ýrr Sigurðardóttir, RHA.
Önnur ráðstefnan í ráðstefnuröð
Samgönguráðuneytisins og
Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri.
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.
Skráning fer fram í síma 463 0900, fax 463 0999,
netfang maria@unakis.
Samgönguráðuneytið Háskólans á Akureyri
úfpuni
^njóbi^ajrríI
n=í!t.SB. irm )/eiwab/iéir
Afsláttur m-3D%
m
og Sport
Músik og Sport ehf. - Reykjavíkurvegi 60 - Símar 555-2887 og 555-4487
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
AFMÆLISHÁTÍÐIN hófst með því að gestir gengu inn í vélasal í Andakílsárvirkjun, en í honum
var óvenju hljótt, því slökkt var á öllum vélum.
50 ára
afmæli
Andakílsár-
virkjunar
AFMÆLISHÁTÍÐIN Andakíls-
árvirkjunar nýlega hófst með því
að gestir gengu inn í vélasal en
í honum var óvenju hljótt, þvi
slökkt var á öllum vélum, veit-
ingamenn í óða önn að leggja á
borð og hlaða þau veisluföngum.
Harmoníkuleikarar frá Tónlist-
arskóla Akraness léku fyrir gesti.
Gunnar Sigurðsson, stjórnar-
formaður Andakílsárvirkjunar,
flutti stutt ávarp en síðan tók
Magnús Oddsson, veitustjóri
Akranessveitu, til máls, og rakti
sögu Andakílsárvirkjunar sl. 50
ár ásamt undirbúningstímanum,
áður en virlgað var. Saga virkj-
unarinnar var skráð af Óskari
Eggertssyni, fyrrum stöðvar-
stjóra Andakílsárvirkjunar, og
ber nafnið ;,Ljósið kemur langt
og mjótt“. I máli Magnúsar kom
fram að fyrstu árin hefði
virkjunin verið rekin með halla,
en halli hefur ekki sést hjá fyrir-
SVAVA Kristjánsdóttir tók á móti tölvunum og borðunum fyrir
hönd Andakíls- og Kleppjárnsreykjaskóla.
tækinu síðan 1950 eða í 47 ár.
Magnús Guðmundsson, stjórn-
arformaður Andakílsárvirkjun-
ar í nokkra áratugi, flutti minn-
ingarbrot og sagði frá afskipt-
um sínum af Andakílsárvirkjun.
Nú eru fastráðnir starfsmenn
3 auk veitustjórans, en þeir eru
Sverrir Hallgrímsson yfirvél-
fræðingur, Guðbjörn Tryggva-
son rafvirki og Ingimar Stein-
þórsson húsasmiður. Stjórnar-
formenn hafa aðeins verið 3 í
þessi 50 ár. Fyrstur var Haraldur
Böðvarsson, síðan Magnús Guð-
mundsson og nú síðustu 2 árin
eða síðan Akraneskaupstaður
varð einkaeigandi hefur Gunnar
Sigurðsson verið stjórnarfor-
maður.
Síðasti liður dagskrárinnar
var afhending gjafa, í stað þess
að fá gjafir voru gjafir gefnar
af „afmælisbarninu". Gunnar
stjórnarformaður afhenti skóla-
stjórum Brekkubæjarskóla og
Grundaskóla á Akranesi sína
margmiðlunartölvuna hvorum,
ásamt tölvuborðum. Fyrir hönd
grunnskólanna, Andakílsskóla
og Kleppjárnsreykjaskóla tók
Svava Kristjánsdóttir skóla-
nefndarmaður á móti tölvunum
og borðunum.
Nýr verslunar- og þjónustukjarni
Selfossi - Nýr verslunar- og þjónustukjarni var formlega
tekinn í notkun á Selfossi nú nýverið. Húsnæðið er í miðbæ
Selfoss og stendur við hliðina á Bæjar- og héraðsbóka-
safni Árnessýslu.
Þrjú þjónustufyrirtæki hafa tekið til starfa í þessu nýja
húsnæði en þau eru Gleraugnaverslun Suðurlands, Filmverk
og Rakarastofa Bjöms Gíslasonar, þau tvö síðamefndu eru
rótgróin fyrirtæki á Selfossi, Filmverk í eigu Gunnars Sigur-
geirssonar og konu hans, Gerðar Óskarsdóttur, og Rakara-
stofa Bjöms Gíslasonar í eigu feðganna Bjöms Gíslasonar
og Kjartans Bjömssonar. Gleraugnaverslun Suðurlands er
ný verslun á Selfossi í eigu sjóntækjafræðinganna Sigþórs
Sigurðssonar, Guðrúnar Guðjónsdóttur og Benedikts Þórs-
Morgunblaðið/Sig. Fannar sonar.
GUNNAR Sigurgeirsson og Gerður Oskars- Fyrirhugað er að fleiri þjónustufyrirtæki taki til starfa í
dóttir ánægð í nýju húsnæði Filmverks. húsnæðinu en ennþá standa eftir laus pláss til útleigu.