Morgunblaðið - 18.12.1997, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
bunny
MíCHAEL
JORDAN
KÓtip','Ký#
~rrÁffí^
Eignastu
SPACE JAM
myndbandið með
Michael Jordan
MEÐ ÍSLENSKU TALI
Stars Of Space Jam
Hetjurnar úr Space Jam í sínum eigin
ævintýrum. Með íslensku tali!
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
MÆÐGURNAR íris Sæmundsdóttir og Helga Tómasdóttir við
handverk sitt.
Jólamarkaður hand-
verksfólks í Eyjum
Vestmannaeyjum - Jólamarkaður
handverksfólks í Vestmannaeyjum
hefur verið starfræktur í Alþýðuhús-
inu í Eyjum undanfarnar helgar. Þær
Eva Káradóttir og Guðrún Kristín
Sigurgeirsdóttir höfðu frumkvæði að
því að markaðnum var komið á fót.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Guðrún Kristín að tilgangurinn með
markaðnum hafi verið tvíþættur.
Annars vegar hefðu þær viljað koma
handverksfólki á framfæri, en þær
hafi haft vitneskju um að margt
fólk í Eyjum væri að vinna að ýmis-
konar handverki án þess að hafa
komið því í sölu. Hins vegar hefðu
þær viljað efla jólastemmninguna í
bænum og hvetja fólk til að versla
í heimabyggðinni.
Á handverksmarkaðnum eru tólf
sölupláss þar sem fólk sýnir og selur
mismunandi handverk sitt. Auk þess
hafa verið ýmsar uppákomur í Al-
þýðuhúsinu í tengslum við markað-
inn. Kaffihús, í umsjá íþróttahreyf-
ingarinnar, er rekið á staðnum og
þar er einnig barnahorn fullt af leik-
föngum og í bamahorninu eru sögu-
stundir og einnig er spilað og sungið
með bömunum þar. I Alþýðuhúsinu
hafa síðan verið ýmsar uppákomur,
svo sem tískusýningar, harmonikku-
leikur, kórsöngur og ýmislegt fleira.
Viðtökur framar öllum vonum
Guðrún Kristín sagði að viðtökur
við handverksmarkaðnum hefðu ver-
ið framar öllum vonum. Fjölmargt
fólk hefði lagt leið sína í Alþýðuhús-
ið, þrátt fyrir að unnið hefði verið í
frystihúsunum á fullu þær helgar
sem markaðurinn hefur verið starf-
ræktur. Hún sagði að hugsun þeirra
sem stóðu að því að koma markaðn-
um á fót hefði verið að skapa
skemmtilega og þægilega jóla-
stemmningu í húsinu og sagði Guð-
rún að það hefði svo sannarlega tek-
ist og einnig hefði sala hjá hand-
verksfólkinu verið mjög góð.
Breskir sjón-
varpsmenn á
Snæfellsnesi
Gera mynd
um furður
Snæfell-
sjökuls
Hellissandi - Hér hefur verið á
ferðinni 6 manna hópur kvikmynda-
gerðarmanna undir forustu kvik-
myndagerðarmannsins Andys
Robbins frá Kudos Productions Ltd.
í London sem unnið hefur að gerð
kvikmyndar um furður undir Snæ-
fellsjökli. Fengu þeir meðal annars
Kirkjukór Ingjaldshólskirkju til að
syngja fyrir sig nokkur alkunn ís-
lensk álfalög, mynduðu geimveru-
móttöku við rætur Snæfellsjökuls,
síðan hafa þeir myndað nokkra
merkilega álfasteina sem mikill
átrúnaður er bundinn við. Fengu
þeir nokkra Sandara til að segja frá
þeim átrúnaði sem tengdur er þess-
um álfasteinum og atvikum sem
tengjast þeim.
Þá fengu þeir Finnboga G. Lárus-
son sagnaþul frá Laugarbrekku til
að segja sér merkilega sögu af
hrossi sem hann týndi og leitað var
ákaft en fannst síðan að Iokum með
óskiljanlegum hætti og varð Finn-
boga síðan mikill happagripur.
Þessi íslenski þáttur verður einn
af sex sem hópurinn er að vinna
að víðsvegar um heiminn og hingað
komu þeir frá Ástralíu þar sem
þeir gengu um á stuttbuxum í 25
stiga hita. Kvikmyndagerðarmenn-
irnir létu vel af komu sinni og létu
í ljósi mikla ánægju yfir því efni
sem þeir höfðu náð að taka upp
hér og töldu það verða til sýningar
um allan heim ef vel tækist til með
úrvinnslu.
Ferðaþjónusta í
Austur-Skafta-
fellssýslu
Stefnumót-
un lokið
Hornafirði - Árið 1996 fór sýslu-
nefnd A-Skaftafellssýslu þess á leit
við samgöngu- og ferðamálanefnd
A-Skaft að gerð yrði stefnumótun
í ferðaþjónustu fyrir svæðið. Nú
tæpum 2 árum síðar er verkefninu
lokið og gefur það nokkuð góða sýn
fyrir ferðaþjónustuna að byggja á
hér í sýslunni.
Þær Bjarnheiður Hallsdóttir og
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir frá
fyrirtækinu „Á sextán skóm“ voru
ráðnar til verksins og skiluðu þær
góðri vinnu að framkvæmdaáætlun
til stefnumótunar í ferðaþjón-
ustunni frá 1998-2005. Brýnasta
verkefnið er að sett verði á fót
markaðsráð Austur-Skaftafells-
sýslu og þarf ráðið að hefja störf
strax í ársbyijun 1998.
Nú er ferðaþjónustan í sýslunni
þriðji stærsti atvinnuvegurinn hér
og er stefnt að því að gera hann
að öðrum stærsta. Mikil vinna er
framundan hjá markaðsráði sem er
m.a. að setja á fót upplýsingamið-
stöð sem rekin er allt árið og að
efla upplýsingamiðstöðina í Skafta-
felli. Einnig þarf að kanna þarfir
ferðamannsins, hvað hér vantar á
svæðið og að efla það sem fyrir er.
Einnig kom fram í skýrslunni að
mikil uppbygging hefði orðið á gisti-
rými og ættu ferðaþjónustuaðilar
nú að fara að huga meira að auknu
framboði á fjölbreyttri afþreyingu.
Mörg fleiri verkefni komu fram
sem þarf að vera lokið fyrir vorið
1998 og einnig langtímaverkefni
svo sem á sviði umhverfísmála.
■ Nýtthjá
Smith&Nopland
Við bjóðum nú frá danska fyrirtækinu Dantax 14“, 20“, 21“, 28“ og 34“
sjónvarpstæki, myndbandstæki, hljómtæki, ferðatæki með geislaspilara,
heimabíókerfi o. fl. Hér eru á ferðinni gæðatæki á góðu verði.
Verðdœmi: Glæsilegt 28“ Nicam Stereo sjónvarpstæki á stgr.
Lokalns, lokslns á ísiandl:
100 Hz þýsk sjónvarpstæki ftá Metz sem
skipa sér í flokk þeirra bestu í heiminum.
í 10 ár samfellt hefur Metz verið valið
besti framleiðandinn í könnun þýska
fagtímaritsins „markt intem" meðal
fagverslana á þessu sviði í Þýskalandi þar
sem allir þekktustu sjónvarpstækja-
framleiðendur heims keppa um nafnbótina.
Segir þetta ekki allt sem segja þarf?
Komdu tíl okkar og láttu sannfærast
Loks er í þríeykinu svissneska
fyrirtækið Roadstar en ftá því
höfum við á boðstólum margvísleg
útvarpstæki, útvarpsvekjara,
hljómtæki, ferðageislaspilara,
vasadiskó, 12 V sjónvarpstæki og
sjónvarpstæki með lidum skjá
(2,2“, 4“ og 5“).
Hér finna allir citthvað við sitt
hæfi.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 5113000
www.tv.is/sminor
ALLT A
KYAININGARVERDI
I DESEMBER