Morgunblaðið - 18.12.1997, Page 67

Morgunblaðið - 18.12.1997, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997 67 ' BRÉF TIL BLAÐSINS Gleðileg vímu lausjól Frá Árna Helgasyni: ÞAÐ styttist til jóla, mestu hátíðar ársins. Langt er síðan kapphlaupið í jólaundirbúningnum hófst. Aug- ljóst virðist að þetta verða sömu verslunaijólin og undanfarin ár - ef ekki enn magnaðri. Nú er hugs- unin um „í það minnsta kerti og spil“ ekki lengur í öndvegi. í amstri daganna gleymist oft besta gjöfin, hann sem í Betlehem fæddist og við minnumst um jólin. En eitt gleymist oft og tíðum ekki, áfengið og þjónustan við Bakkus, jafnvel þó allt annað verði þá að sitja á hakanum. Það er ömurlegt í því góðæri sem nú er talið vera hve margir eru úti í kuldanum - og það langoftast af völdum drykkjuskapar. Æ yngra fólk neytir áfengis, meira að segja skólarnir eiga í vök að verjast, að ekki sé talað um íþróttahreyfing- una sem nú hefur strikað yfir orð- in: Áfengi og íþróttir eiga ekki samleið. Hvað skyldu upphafs- menn hreyfingarinnar hafa sagt ef þeir hefðu mátt líta þing íþrótta- og ólympíusambandsins og verða vitni að átökunum þar? Ritstjóri DV segir í forystugrein 4. þ.m.: „Það var hins vegar köld gusa, sem samfélagið fékk frá árs- þingi jþrótta- og Ólympíusam- bands íslands, þegar tveir áfengis- salar stóðu fyrir því, að þingið felldi tillögu stjórnarinnar um áfengis- neyslu og áfengisauglýsingar. Það var hrikalegur álitshnekkir sam- bandsins. Þingið felldi bann við áfengisneyslu iðkenda, þjálfara og leiðtoga í keppnisferðum. Það felldi bann við neyslu tóbaks, áfengis og annarra fíkniefna á skemmtun- um. Það felldi bann við auglýsing- um á tóbaki og áfengi á íþrótta- mannvirkjum og búningum." Það er hart að eftir því sem velmegun eykst skuli eiturnautn- um vaxa ásmegin og þjóðin verða að taka afleiðingum og greiða milljónir á milljónir ofan til að reyna að bjarga því sem bjargað verður. Ég_ hef áður minnst á hvernig SAÁ hefur verið að kenna fólki að „umgangast“ áfengi, allt í lagi sé að neyta þess í hófi og reglubundið. En tilgangurinn helg- ar auðvitað meðalið - en hann er sá að hafa nóg að gera í meðferð- inni og fá vel borgað fyrir það. Góðtemplarareglan hefur alltaf boðað bindindi, það úrræði sem enginn þarf að sjá eftir að taka. En auðvitað kemur það illa við þá sem nota sér aumingjaskap ann- arra til að auðga sjálfa sig. Von- andi sjá stjórnendur landsins gegn- um blekkingarvefinn, taka af skar- ið og veita þeim brautargengi sem vinna af hugsjón en ekki fjár- græðgi. Senn eru komin jól. Verða þau okkur sannur gleðigjafi og án vímuefna? Ef við viljum það hvert og eitt getur slíkt gerst. Guð gefi að svo megi verða og við megum öðlast vímulaus og gleðileg jól. ÁRNIHELGASON, Stykkishólmi. ELÞJSI AHHHBnHÁ SKÍÐAPAKKAR l PAKKAAFSLATTUR HREYSTI VERSLANIR Skeifunni 19 - Laugavegi 51 - Fosshálsi 1 S.568-1717 • 551 -7717 • 577-5858 Xíerö meö pakkaafslætti Barnapakki Unglingapakki Fullorðinspakki Gönguskíðapakki frá kr. 12.990 stgr. frá kr. 16.567 stgr. frá kr. 20.689 stgr. kr. 14.952 Tökum notaðan skíðabúnað upp i nyjan Pokasett m/skíðapökkum tilboð kr. 'IL S Q ® & CO ÚTIVISTARBÚÐIN við Umferðarmiðstöðina, símar 5519800 og 5513072.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.