Morgunblaðið - 18.12.1997, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997 67 '
BRÉF TIL BLAÐSINS
Gleðileg vímu
lausjól
Frá Árna Helgasyni:
ÞAÐ styttist til jóla, mestu hátíðar
ársins. Langt er síðan kapphlaupið
í jólaundirbúningnum hófst. Aug-
ljóst virðist að þetta verða sömu
verslunaijólin og undanfarin ár -
ef ekki enn magnaðri. Nú er hugs-
unin um „í það minnsta kerti og
spil“ ekki lengur í öndvegi.
í amstri daganna gleymist oft
besta gjöfin, hann sem í Betlehem
fæddist og við minnumst um jólin.
En eitt gleymist oft og tíðum
ekki, áfengið og þjónustan við
Bakkus, jafnvel þó allt annað verði
þá að sitja á hakanum. Það er
ömurlegt í því góðæri sem nú er
talið vera hve margir eru úti í
kuldanum - og það langoftast af
völdum drykkjuskapar. Æ yngra
fólk neytir áfengis, meira að segja
skólarnir eiga í vök að verjast, að
ekki sé talað um íþróttahreyfing-
una sem nú hefur strikað yfir orð-
in: Áfengi og íþróttir eiga ekki
samleið. Hvað skyldu upphafs-
menn hreyfingarinnar hafa sagt
ef þeir hefðu mátt líta þing íþrótta-
og ólympíusambandsins og verða
vitni að átökunum þar?
Ritstjóri DV segir í forystugrein
4. þ.m.: „Það var hins vegar köld
gusa, sem samfélagið fékk frá árs-
þingi jþrótta- og Ólympíusam-
bands íslands, þegar tveir áfengis-
salar stóðu fyrir því, að þingið felldi
tillögu stjórnarinnar um áfengis-
neyslu og áfengisauglýsingar. Það
var hrikalegur álitshnekkir sam-
bandsins. Þingið felldi bann við
áfengisneyslu iðkenda, þjálfara og
leiðtoga í keppnisferðum. Það felldi
bann við neyslu tóbaks, áfengis
og annarra fíkniefna á skemmtun-
um. Það felldi bann við auglýsing-
um á tóbaki og áfengi á íþrótta-
mannvirkjum og búningum."
Það er hart að eftir því sem
velmegun eykst skuli eiturnautn-
um vaxa ásmegin og þjóðin verða
að taka afleiðingum og greiða
milljónir á milljónir ofan til að
reyna að bjarga því sem bjargað
verður. Ég_ hef áður minnst á
hvernig SAÁ hefur verið að kenna
fólki að „umgangast“ áfengi, allt
í lagi sé að neyta þess í hófi og
reglubundið. En tilgangurinn helg-
ar auðvitað meðalið - en hann er
sá að hafa nóg að gera í meðferð-
inni og fá vel borgað fyrir það.
Góðtemplarareglan hefur alltaf
boðað bindindi, það úrræði sem
enginn þarf að sjá eftir að taka.
En auðvitað kemur það illa við þá
sem nota sér aumingjaskap ann-
arra til að auðga sjálfa sig. Von-
andi sjá stjórnendur landsins gegn-
um blekkingarvefinn, taka af skar-
ið og veita þeim brautargengi sem
vinna af hugsjón en ekki fjár-
græðgi.
Senn eru komin jól. Verða þau
okkur sannur gleðigjafi og án
vímuefna? Ef við viljum það hvert
og eitt getur slíkt gerst. Guð gefi
að svo megi verða og við megum
öðlast vímulaus og gleðileg jól.
ÁRNIHELGASON,
Stykkishólmi.
ELÞJSI
AHHHBnHÁ
SKÍÐAPAKKAR
l
PAKKAAFSLATTUR
HREYSTI
VERSLANIR
Skeifunni 19 - Laugavegi 51 - Fosshálsi 1
S.568-1717 • 551 -7717 • 577-5858
Xíerö meö pakkaafslætti
Barnapakki
Unglingapakki
Fullorðinspakki
Gönguskíðapakki
frá kr. 12.990 stgr.
frá kr. 16.567 stgr.
frá kr. 20.689 stgr.
kr. 14.952
Tökum notaðan
skíðabúnað
upp i nyjan
Pokasett
m/skíðapökkum
tilboð kr.
'IL S Q ® & CO
ÚTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstöðina,
símar 5519800 og 5513072.