Morgunblaðið - 05.02.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.02.1998, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Menntamála- ráðherra Skýr áhugi að efla rannsókn- arnám FRUMKVÆÐI að því að framlag til meistara-, doktors- og annars viðbótarnáms við Háskóla íslands á fjárlögum er sérstaklega skilgreint kom frá menntamálaráðuneytinu og sagði Björn Bjarnason menntamálaráðherra í gær að það væri skýr áhugi innan ráðuneytisins að efla rann- sóknarnám. „Ráðuneytið hafði frum- kvæði að því að skilgreina rannsóknarnám í fjárveitingu til Háskóla íslands," sagði Bjöm. „Hón er nú 44,8 millj- ónir og þessi liður kom inn í fjárveitingar til Háskólans fyrir tilstilli ráðuneytisins og rímar vel við Rannsóknar- námssjóð." Páll Skúlason, rektor Há- skóla íslands, sagði í viðtali við Morgunblaðið á miðviku- dag að á næstu fimm árum væri ætlunin að fjölga nemum í framhalds- eða rannsóknar- námi upp í 400, en nú stunda um 130 nemendur slíkt nám við HÍ. Páll sagði að gert væri ráð fyrir að það myndi kosta 200 milljónir króna. Fjárveit- ing til rannsóknamáms er nú 44,8 milljónir og er 35 milljóna króna viðbótarfjárveiting, sem samþykkt var við aðra um- ræðu fjárlaga, þar með talin. Björn sagði að skynsamlegt hefði verið talið að sérstök fjárveiting yrði til Háskólans vegna rannsóknarnáms þannig að hægt yrði að þróa það með sérstökum hætti. Björn sagði að ekki hefði komið til tals að fjármagna rannsóknarnám með skóla- gjöldum. Hægt væri að ræða slíkt, og væri eðlilegt að full- trúar Háskólans og ráðuneyt- isins gerðu það. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar Sex sóttu um stöðu for- stöðumanns SEX manns sóttu um starf forstöðumanns Stofnunar Vil- hjálms Stefánssonar á Akur- eyri. Þeir eru Ari Trausti Guð- mundsson jarðeðlisfræðingur, Gunnar Steinn Jónsson líf- fræðingur, Halldór Gíslason arkitekt, Ingþór Bjarnason sál- fræðingur, Níels _ Einarsson mannfræðingur og Ólafui- Egg- ertsson jarðfræðingur. Að sögn Þórðai’ H. Ólafsson- ar skrifstofustjóra í umhverfís- ráðuneytinu mun stjórn stofn- unarinnar, sem Ólafur Hall- dórsson veitir forstöðu, fara yfir umsóknirnar og leggja til- lögur fyrir umhverfisráðheiTa, sem skipar í starfið. Búast má við að þegar starf- semi stofnunarinnar kemst á skrið eftir nokkm- ár muni fimm til tíu manns vinna við hana, en í upphafi er gert ráð fyrir að starfsmenn verði þrír. Stofnunin er kennd við Vil- hjálm Stefánsson landkönnuð og heimskautafara. Tilgangur hennar er að auka og efla sam- starf þeirra innlendu stofnana, sem stunda rannsóknir á norð- urslóðum, samhæfa yfirlit yfir innlendar rannsóknir og stuðla að aukinni þátttöku Islendinga í alþjóðlegu samstarfi. FRÉTTIR Dómsmálaráðherra um hlutverk tölvunefndar Umsvifin verða aukin á næstu árum ÞORSTEINN Pálsson dómsmála- ráðherra sagði á Alþingi í gær að aukin umsvif tölvunefndar væru fyrirsjáanleg á næstu árum annars vegar vegna tilskipunar Evrópu- sambandsins um meðferð persónu- upplýsinga sem væntanlega eigi að fella undir Evrópska efnahags- svæðið og hins vegar vegna auk- ins eftirlits per- sónuupplýsinga innan Schengen- samstarfsins þeg- ar það kæmi til framkvæmda. Sagði hann að dómsmálaráðu- neytið myndi vinna að því að tryggja nauðsyn- lega starfsaðstöðu nefndarinnar i samræmi við fyrrnefnda þróun. Of IítiII mannafli Kom þetta m.a. fram í svari ráð- herra við fyrirspurn Sivjar Frið- leifsdóttur, þingmanns Framsókn- arflokks. Sagði Siv í fyrirspurn sinni að tölvunefnd, sem samkvæmt lögum ætti að tryggja vernd per- sónuupplýsinga, hefði allt of lítinn mannafla og aðstöðu til að sinna hlutverki sínu. Tölvunefnd væri skipuð fimm mönnum sem allir væru í fullri vinnu annars staðar og að einungis væri gert ráð fyrir hálfu starfi fyrir starfsmann nefnd- arinnar. Mörg erindi bærust nefnd- inni á ári hverju og hún væri bók- staflega að drukkna í álagi. Starf nefndarinnar aukist verulega á fímm árum miðað við núverandi álag væri ljóst að þörf væri fyrir aukið starfslið. Ráðherra sagði hins vegar að fyrirsjáanlegt væri að aðstæður myndu breytast að ýmsu leyti á næstu árum, ekki bara vegna auk- inna verkefna. „Þar kemur í fyrsta lagi til, að tilskipun Evrópusam- bandsins um með- ferð persónuupp- lýsinga verður væntanlega felld undir samninga Evrópska efna- hagssvæðisis. Það krefst endurskoð- unar laga um skráningu og með- ferð persónuupp- lýsinga til að að- laga þær reglum Evrópusambandsins." Sagði ráð- herra að frumvarp þess eðlis yi-ði líklega tilbúið á þessu ári, en i því yrði staða tölvunefndar með nokk- uð öðrum hætti en nú er, vegna þess að tilskipunin gerði ráð fyrir að eftirlitsnefndir eins og tölvu- nefnd væru fyllilega sjálfstæðar í störfum sínum. „Af því leiðir að eðlilegt er að nefndin starfí utan skrifstofu ráðuneytisins og að hún lúti ekki beinni daglegri yfírstjórn þess.“ Þá sagði ráðherra að fyrirsjáan- legt væri að tölvunefnd þyrfti að sinna auknu eftirliti með persónu- vernd vegna Schengen-samstarfs- ins þegar þar að kæmi. Sagði hann að í samræmi við fyrrnefndar breytingar myndi ráðuneytið sjá svo um að nefndin fengi nægjanlegt starfslið og eðlilega starfsaðstöðu til að sinna sínu hlutverki. ALÞINGI Dómsmálaráðherra tók undir orð Sivjar og sagði að starf tölvu- nefndar hefði aukist mjög verulega á undanförnum fimm árum. Nefnd- in hefði afgreitt 157 erindi árið 1992, en 439 á síðastliðnu ári. „Auk þess er ljóst að þau erindi sem nefndin hefur haft til meðferðar hafa sífellt orðið flóknari og um- fangsmeiri, m.a. vegna stóraukinn- ar tækni við að safna og vinna per- sónuupplýsingar á öllum sviðum þjóðlífsins. Þessi aukning verkefna hefur komið fram í miklu álagi á starfslið nefndarinnar, það er rétt,“ sagði ráðherra og bætti því við að Alþingi Dagskrá ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 árdegis. Eftirfarandi mál eru á dagskrá: 1. Tíðni og eðli banaslysa 1990 til 1996. Beiðni um skýrslu. 2. Þjóðlendur. 1. umræða. 3. Stjórnarskipunarlög. 1. uinræða. 4. Eignarhald og nýting á auðllindum í jörðu. 1. umr. 5. Þjóðgarðar á miðhálendinu. Fyrri umr. Morgunblaðið/Ásdís Ráðherrar í önnum RÁÐHERRAR hafa yfirleitt í mörg horn að líta og ekki síst þarf að vera með á nótunum á Alþingi þar sein hin ýmsu mál eru til umfjöllunar. Þegar stund gefst milli stríða má þó líta í bréf eða blöð eins og þeir Friðrik Sophusson og Halldór Blöndal gera eða hugsa næsta leik eins og Páll Pétursson gæti verið að gera. Og bindin eru jafn ólík og ráðherrarnir eru margir. Heilbrigðisráð- herra segir yfir- vofandi skort á ungum læknum ALLT bendir til þess að yfirvof- andi skortur sé á ungum læknum, sagði Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra á Alþingi í gær og kvaðst ætla að beita sér fyrir því að flýtt verði gerð næstu spár um læknaþörf til að fá úr þessu skorið. Reynist grunur þessi réttur sagðist hún myndi leggja til að mennta- málaráðuneytið og heilbrigðisráðu- neytið vinni að því sameiginlega að fjölga útskrifuðum íslenskum læknum á ári hverju. Jafnframt myndi hún leggja það til að ráðu- neytið beitti sér fyrir því í sam- vinnu við sjúkrastofnanir og læknadeild Háskóla Islands að endurskipulagt verði framhalds- nám á Islandi þannig að hlutfalls- leg fjölgun verði á læknahópnum á aldrinum 30 til 34 ára. Spá um læknaþörf höfð til hliðsjónar Þetta kom fram í svari heil- brigðisráðherra við fyrispurn Öss- urar Skarphéðinssonar, þingflokki jafnaðarmanna, um fjöldatak- markanir við Háskóla Islands. Heilbrigðisráðherra sagði enn- fremur að forsvarsmenn Háskóla íslands byggðu ákvarðanir um fjöldatakmarkanir á klínískri kennslugetu læknadeildar en einnig væri höfð til hliðsjónar spá um læknaþörf sem gerð væri á vegum samnorrænnar nefndar. Hún sagði að miðað við spá sem birst hefði í Læknablaðinu árið 1996 og gilti til ársins 2010 yrði nokkuð offramboð á læknum á Is- landi næstu árin. En þar sem sú spá gerði ekki ráð fyrir háværri umræðu um vinnutímatilskipun Evrópusambandsins og skorti á læknum í Noregi, en þangað fari nú íslenskir læknar í auknum mæli í framhaldsnám, væri ástæða til að gera nýja spá. Margir unglæknar f framhaldsnámi Ráðherra sagði ennfremur að starfandi læknar í aldurshópnum 30 ára til 34 ára væru hlutfallslega fæm hér á landi en á hinum Norð- urlöndum, en þetta væri sá aldurs- hópur sem væri í framhaldsnámi. Astæðan fyrir fámenninu hér væri sú að íslenskir læknar verði að sækja sér framhaldsmenntun er- lendis. í i í « ( lí ll \i ■ (< H i \i l< Umræður um minnismerki breskra sjómanna á Vestfjörðum Heimamenn hvattir til að láta < af deilum um staðsetning*u HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að utanríkisráðuneyt- ið teldi sig ekki eiga að koma að ákvörðun um staðsetningu minnis- merkis um breska sjómenn á Vest- fjörðum og að það harmaði þær deilur sem risið hefðu um staðsetn- ingu þess. Hann sagði hins vegar að ráðuneytið hefði haft ákveðna milli- göngu í þessu máli og eftir að hafa rætt við málsaðila teldi hann alla möguleika á því að sættir gætu náðst svo sómi væri að. Aðrir þing- menn sem til máls tóku hörmuðu einnig þær deilur sem risið hafa og hvöttu til þess að látið yrði af þeim. Ágúst Einarsson, þingflokki jafn- aðarmanna, hóf umræðuna í gær og spurði utanríkisráðherra m.a. að því hver afskipti ráðuneytisins eða ann- arra stjórnvalda hefðu verið að þeirri hugmynd að reisa minnis- merki um drukknaða breska sjó- menn á Hnjóti. Ágúst rakti auk þess forsþgu málsins, og sagði að Egill Ólafsson forstöðumaður byggðasafnsins á Hnjóti hefði stungið upp á því fyrir um tveimur árum að reisa minnismerki um drukknaða breska sjómenn í landi Hnjóts, í grennd við þá staði sem miklir skipskaðar urðu forðum. Síð- ar hefðu bæjaryfirvöld í Vestur- byggð hins vegar tengst málinu og farið fram á að minnismerkið risi á Patreksfirði, þar sem það yrði mikil lyftistöng fyrir bæinn. Um afskipti utanríkisráðuneytins að málinu sagði ráðheiTa að Egill Ólafs- son hefði ritað ráðuneytinu bréf í febrúar 1995, þar sem hann hefði skýrt frá hugmynd sinni um minnis- varða á Hnjóti. Egill hefði jafnframt óskað eftir milligöngu við félag breskra togaraeigenda til að kanna viðbrögð þeirra við hugmyndinni og áhuga á þátttöku í framkvæmdinni. Sendiráð íslar.ds í London og Jón Olgeirsson ræðismaður í Grimsby önnuðust þá milligöngu. Beint sam- band hefði síðan tekist á milli Egils Ólafssonar og hinna bresku aðila sem hefðu komið að málinu. Guðmundur Hallvarðsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, bað menn um að láta af deilum í þessu máli og sameinast í sátt og með virðingu um hina látnu bresku sjómenn. Reisum minnis- ( varðann að Hnjóti . „Reisum minnisvarðann að i | Hnjóti þar er hin sögulega staðsetn- ing,“ sagði hann. Einar K. Guðfinns- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hamaði einnig þær deilur sem sprottið hafa meðal heimamanna. „Það er öllum ljóst að Egill Ólafsson á Hnjóti hefur unnið einstakt verk vai'ðandi uppbyggingu safnsins þar og mikilvægt að við stöndum á bak , við þá uppbyggingu," sagði hann meðal annars. Ágúst Einarsson ! í sagðist einnig vona að mál þetta | fengi farsælai- lykth'.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.