Morgunblaðið - 05.02.1998, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.02.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1998 33- ! 4 4 ! i 4 0 4 4 \ 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 i 4 4 4 4 4 4 4 4 4 + Ragnheiður Sig- urðardóttir fæddist í Reykjavík 8. desember 1909. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 26. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ólafía R. Sigur- þórsdóttir og Sig- urður Kr. Gíslason frá Ytrahólmi. Hún var elst af tíu systk- inum og eru fimm á lífi. Ragnheiður gift- ist 28. sept. 1929 Auðunni Sigurðssyni, f. 23. sept. 1904, d. 4. apríl 1970, lögreglu- þjóni, síðar trésmið hjá Flug- málastjórn. Börn: Sigurður, f. 11. des. 1929, d. 5. apríl 1986. M. Ingunn Vígmundsdóttir, f. 20. Hugurinn leitar nokkur ár aftur í tímann, til stofunnar í Sigtúninu. I rökkrinu er kveikt á sjónvarpinu, fréttirnar suða og hljóðlátur takt- ur prjónanna tifar. A þeim eru vettlingar eða sokkar til að drengnum verði nú ekki kalt á brölti sínu um fjöll og fimindi, eða lopapeysa fyrir vin annars í út- löndum. Þannig minnumst við ömmu, sívinnandi með höndunum við prjónaskap eða aðra handa- vinnu og aldrei féll henni verk úr hendi. Hún var iðin við að gera öðrum greiða og í fæstum tilvikum voru verkin ætluð henni sjálfri. Ekki kunni hún þvi að eiga neitt hjá öðrum, og ætíð fylgdi ómælan- legt þakklæti hverju smáviðviki sem úrir hana var gert. Við urðum þeirra forréttinda að- njótandi að fá að alast upp í sama húsi og hún og vorum fljótir að kynnast því að amma var alltaf til staðar. Það skipti ekki máli hvenær það var, alltaf var jafn notalegt að setjast niður með henni og spjalla eða leita ráða hjá henni, horfa á sjónvarpið, eða bara þegja. Hún virtist alltaf hafa næg- an tíma og það var eins og húsið í Sigtúninu og hún væru akkeri fjöl- skyldunnar. Til hennar komu vinir og vandamenn í kaffi, og þar hitt- um við ættingja, sem við annars myndum varla þekkja í dag. Gestrisni var henni mikils virði og í hvert sinn sem gesti bar að garði, allt fram á síðasta dag, var þeim veittur besti mögulegi viður- gemingur. Hellt var upp á könn- una og kökusneið dregin fram úr skápnum. Ekki var um annað að ræða en að þiggja góðgerðirnar, í það minnsta súkkulaðibita eða konfektmola, og fátt veitti henni meira yndi en að gauka smáræði að langömmubörnunum í lok heim- sóknar, „svona í nesti!“ Að sjálf- sögðu urðu foreldrarnir að sætta sig við það og bæta „langömmu- dögum“ við „nammidagana". Eftir að hún flutti í Furugerðið var eins og hún fengi endumýjun lífsorkunnar. Þar leið henni vel og í tómstundastarfinu fengu hæfi- leikar hennar að njóta sín, en lengi vel höfðu þeir ekki haft tækifæri til að blómstra, vegna aðstöðuleys- is. Þar hellti hún sér út í leirkera- smíði, silkimálun og aðra handa- vinnu. Sem fyrr voru þeir munir ekki ætlaðir henni til brúks, heldur prýða þeir hýbýli ættingjanna og vekja aðdáun fyiár fallegt hand- bragð og listfengi þrátt fyrir skerta sjón og háan aldur. Þegar sjón og heyrn döpruðust var minna um afþreyingu að ræða. En minnið hélst óskert, sem og eftirtektin. Hún fylgdist vel með málefnum samtímans og ekki þurfti að leita lengra til að fá frétt- ir af fjölskyldunni. Ekki bara af því sem var nýtt, heldur var hún hafsjór af fróðleik um menn og málefni gærdagsins. Þegar við feb. 1928. Þeirra böm: Auður, f. 21. mars 1955, Ragn- heiður Inga, f. 3. ág. 1963, og Auðunn Páll, f. 21. mars 1970, Lilja Elísabet, f. 24. júlí 1933. M. Páll Torp, f. 23. ág. 1927, Þeirra börn: Eh'sabet Auður, f. 29. mars 1971, og Kristján Ed- vald, f. 9. maí 1972. Ólafía, f. 17. nóv. 1937. M. Birgir Bald- ursson, f. 31. okt. 1940. Þau skildu 1981. Þeirra börn: Ragnar Auð- unn, f. 23. jan. 1960, og Kristján Hólmar, f. 26. sept. 1967. Útför Ragnheiðar fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. komum og sögðum henni frá hin- um ýmsu verkefnum, sem við þótt- umst nú nokkrir menn af, var oftar en ekki hægt að tengja þau sögum af því sem hann „afi þinn“ eða „Siggi frændi" gerðu á sínum tíma. Þannig tengdi hún saman nútíð og fortíð og það kenndi okkur að sjá lífið í samhengi tímans. Amma var ekki kona sem hreykti sér hátt eða hafði þörf fyr- ir að trana sér fram, heldur gekk hún sinn æviveg á hljóðlátan og látlausan hátt með virðingu og um- burðarlyndi gagnvart samferða- mönnum sínum. Hún sýndi sínum nánustu einstaka hlýju og velvild og það hljóða og hlýlega fas, sem einkenndi líf hennar, teljum við að hafi mótað lífssýn okkar meira en flest annað. Að eiga góða ömmu, og geta not- ið samvista við hana, er mikil gæfa og eitt besta veganesti út í lífið, sem hugsast getur. Og þess urðum við aðnjótandi. Hvíl í friði, elsku amma, og hafðu þökk fyrir allt. Ragnar og Kristján. Ragnheiður Sigurðardóttir, eða Ranka eins og hún var ávallt köll- uð, er fallin frá. Okkur langar með örfáum orðum að minnast hennar. Þegar öldruð kona fellur frá er margs að minnast. Hún var æsku- vinkona móður okkar og hélt alla tíð mikla tryggð við hana. Ranka og maður hennar, Auðunn Sig- urðsson, sem lést árið 1970, voru miklir vinir foreldra okkar og var samband þeirra einlægt og náið. Auðunn og faðir okkar stunduðu laxveiði saman og einnig var oft farið í ferðalög um landið á bílum Auðuns, en hann átti yfirleitt góða ferðabíla og fengum við systkinin að njóta þess. Ekki má heldur gleyma öllum heimsóknum okkar í Sigtúnið, en þar var vel teldð á móti okkur sem öðrum. Móðir okkar, Vigdís Jóhanns- dóttir, og Ranka munu hafa kynnst er þær voru 6 og 7 ára að aldri. Sú vinátta var órofin allt þar til móðir okkar lést árið 1990. Þær heimsóttu hvor aðra reglulega og fór ekki á milli mála, að þær voru vinkonur í besta skilningi þess orðs. Þær áttu sameiginleg áhuga- mál, sem meðal annars voru út- saumur og málverk, sem þær unnu, og ber sú handavinna vott um glöggt auga þeirra fyrir sam- setningu lita. Auðunn, maður Rönku, var lögreglumaður í Reykjavík, en gerðist síðar smiður hjá Flugmálastjórn, og annaðist á hennar vegum viðhald og nýbygg- ingar. Þau hjónin eignuðust þrjú börn, soninn Sigurð, sem lést í flugslysi í Ljósufjöllum árið 1986, og dæturn- ar Lilju Elísabetu og Ólafíu. Barnabömin eru sjö og bama- barnabörnin sex. Síðustu árin átti Ranka við vanheilsu að stríða, en fylgdist alltaf vel með fjölskyldu sinni, ekki síst ömmu- og langömmubömunum. Hún hafði allt til síðustu stundar góða and- lega heilsu og var til þess tekið hvað minni hennar var gott. Það hefði verið þess virði fyrir þá, sem huga að sögu lands og þjóðar, að heimsækja Rönku og fá lýsingar hennar á atburðum, vinnubrögðum og framþróun á fyrri hluta þessarar aldar. Þar hefði ekki verið komið að tómum kofunum. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. (S. Jónsson frá Presthólum.) Við systkinin kveðjum Rönku og þökkum henni fyrir samfylgdina og einlæga vináttu við foreldra okkar. Við flytjum dætmm hennar og öðmm ættingjum einlægar samúðarkveðjur. Hallvarður, Jóhann og Sigríður Einvarðsbörn. t Bróðir okkar, GÍSLI ÞORSTEINSSON, Hringbraut 57, Keflavík, andaðist á Sjúkrahúsi Suðurnesja miðvikudaginn 4. febrúar Sigríður Þorsteinsdóttir, Dýrunn Þorsteinsdóttir. Lokað Mæðradeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur verður lokuð e.h. í dag, fimmtudaginn 5. febrúar, vegna útfarar GUÐJÓNS GUÐNASONAR, fyrrverandi yfirlæknis. Heilsugæslan í Reykjavík. RAGNHEIÐUR SIG URÐARDÓTTIR t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúp- faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR HARALDSSON Kirkjubæ, er lést miðvikudaginn 28. janúar sl., verður jarðsunginn frá Stóra-Dalskirkju, Vestur-Eyja- fjallahreppi, laugardaginn 7. febrúar kl. 14.00. Eveline Haraldsson, Kristján Sigurðsson, Ingunn Guðbjartsdóttir, Haraldur Sigurðsson, Valgarður Sigurðsson, Hermóður Sigurðsson, Þórhallur Sigurðsson, Guðjón Sigurðsson, Sigrfður J. Sigurðardóttir, Guðbjörg Sigurðardóttir, Ágúst Sigurðsson, Ragnhildur Ólafsdóttir, Elfsabet Kristjánsdóttir, Sigríður Rut Thorarensen, Guðbjörg Óskarsdóttir, Ingvar Elfasson, Ellert Eiríksson, Unnur Óskarsdóttir, Ulf Denner, Nils Denner, Ann- Linda Denner barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, INGUNN LÁRA JÓNSDÓTTIR, Dalbraut 21, verður jarðsungin frá Áskirkju í dag, fimmtu- daginn 5. febrúar, kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Helgi Helgason, Anna S. Helgadóttir, Halldór Hjaltested, Jóna H. Helgadóttir, Þálmi Þ. Vilbergs, Árni H. Helgason, Gylfi Þ. Helgason, Jóna P. Brynjólfsdóttir, ömmubörn og langömmuböm. t Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU ÓSKARSDÓTTUR, Ögmundarstöðum fer fram frá Reynistaðakirkju laugardaginn 7. febrúar kl. 14.00. Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, láti Reynistaðakirkju njóta þess. Hróðmar Margeirsson, Ásdís Björnsdóttir Margrét Margeirsdóttir, Sigurjón Björnsson, Jón Kristvin Margeirsson, Sigríður Margeirsdóttir, Þorsteinn Sigurðsson. barnabörn og barnabarnabörn. i A TILBOÐI rrrrTf nL ALu A* M Graml 10-30% afsláttur ef pantað er í febrúar. 15% afsláttur af skrauti. HELLUHRAUN 14 220 HAFNARFJÖRÐUR SÍMI: 565 2707 \ f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.