Morgunblaðið - 05.02.1998, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.02.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1998 19 ÚR VERINU ERLENT Borgarstióri segist styðja FishTech ‘99 „Hægt væri að bæta sýningaraðstöðuna“ INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segist að sjálfsögðu styðja FishTech ‘99, sem borgin hafi ákveðið að úthluta Laugar- dalshöll fyrstu dagana í september á næsta ári að undangengnu út- boði, sem tvö sýningafyrirtæki tóku þátt í. „Eg vil að sjálfsögðu stuðla að því að íslenska sýningin verði haldin þegar til framtíðar er litið," sagði Ingibjörg Sólrún í samtali við Verið í gær og bætti við að vel kæmi til greina að ráðist yrði í framkvæmdir til að bæta sýningaraðstöðuna í Laugardal áð- ur en að sýningunni kæmi. Hún sagðist vera sammála mörgum um að það hlyti að vera mjög erfitt að vera með tvær sýn- ingar á sama tíma en vandamálið væri hins vegar það að tveir aðilar væru að keppa um eina sýningu. Auðvitað hefði verið æskilegast ef sýnendur sjálfir hefðu getað komið sér saman um eina sýningu í at- kvæðagreiðslu miklu fyrr en nú stendur til. „Ég tel að það hefði verið til hagsbóta fyrir alla aðila,“ segir borgarstjóri. „Við viljum á hinn bóginn styðja við bakið á FishTech ef vilji er til þess að halda þá sýningu, og höf- um við m.a. ákveðið að nýta þá fjármuni, sem koma vegna leigu Hallarinnar, til að bæta sýningar- aðstöðuna í Laugardalnum. Þessir peningar voru aldrei hugsaðir sem nein tekjulind fyrir borgarsjóð.“ Bindandi samningur Að sögn borgarstjóra hefur ann- ars vegar verið rætt um byggingu fjölnota húss, sem tengt yrði Laugardalshöllinni og gerbreyta myndi nýtingarmöguleikum henn- ar og hins vegar hafi verið talað um að lagfæra Höllina og næsta umhverfi hennar vegna sýningar- halds. Að sögn Ingibjargar Sólrúnar er litið á 24 milljóna króna leigu- samning við Sýxúngar ehf. um af- not af Höllinni sem bindandi samning. Ekki væri hægt að hætta við stuttu fyrir sýningu. Ef til þess kæmi hins vegar að keppinautur- inn yrði ofan á í atkvæðagreiðslu sýnenda og hætt yrði við Fish- Tech, hlyti sú staða að verða rædd á milli borgarinnar og forsvars- manna Sýninga ehf. „í dag göngum við út frá því að sýningin verði haldin og að það sé verið að vinna að undirbúningi henni. Við erum tilbúin til þess að styðja við bakið á henni, en erum ekkert farin að hugsa um hvað verður ef hún verður ekki haldin," segir borgarstjóri. Atkvæðagreiðsla um hylli sjávarútvegssýnmga Niðurstöðu er að vænta í næstu viku GERT er ráð fyrir því að talning atkvæða úr atkvæðagreiðslu, sem nú fer fram meðal þeirra íslensku fyrirtækja, sem þátt tóku í síðustu sjávarútvegssýningu, árið 1996, og birting niðurstaðna fari fram strax upp úr komandi helgi eða eigi síð- ar en 13. febrúar. Atkvæðaseðlar voru póstsendir til 158 fyrirtækja sl. þriðjudag. Þeim er ætlað að greiða atkvæði um stuðning við aðra hvora sjávar- útvegssýninguna, sem nú er unnið að undirbúningi við, en báðar eru fyrirhugaðar á sama tíma, 1.-4. september 1999, önnur í Laugar- dalshöll í Reykjavík og hin í Smár- anum í Kópavogi. Með þátttöku í atkvæðagreiðslunni lýsa sýnendur yfir eindregnum vilja um að ein- ungis verði um eina sýningu að ræða og að styðja þá sýningu, sem Fjórir svipt- ir veiðileyfi FISKISTOFA svipti fjóra báta veiðileyfi á fyrrihluta janúarmán- aðar. Tveir þeirra voru sviptir leyfi vegna afla umfram heimildir, en tveir íyrir að skjóta afla undan vigt. Bátamir Guðbjörg Sigríður GK og Stakkavík GK, báðir í eigu Stakkavíkur ehf. í Grindavík, voru sviptir veiðileyfí vegna afla um- fram heimildir hinn 6. janúar síð- astliðinn. Báðir bátarnir fengu leyfi að nýju sama dag eftir að aflamarksstaða þeirra hafði verið lagfærð. Hafsúla BA, sem gerð er út af Vesturljósi ehf. á Patreksfirði, var svipt veiðileyfi hinn 15. janúar þar sem hluti af þorskafla bátsins var ekki vigtaður í samræmi við gild- andi lagareglur. Sviptingin gildir til og með 11. febrúar. Loks var Siggi Bjarna GK, sem gerður er út af Dóra efh. í Garði, sviptur leyfi frá 20. janúar til og með 16. febrú- ar þar sem hluti af þorskafla báts- ins var vigtaður sem ufsi og þannig skotið undan vigt. ofan á verður í atkvæðagreiðsl- unni. Þrettán fyrirtæki í forsvari Þrettán fyrirtæki, sem öll hafa verið meðal sýnenda á undan- gengnum sjávarútvegssýningum og hafa í samkeppninni á síðustu vikum ýmist verið stuðningsaðilar Nexus Media Ltd. eða Sýninga ehf., tóku sig saman um að undir- búa atkvæðagreiðsluna, en þau eru: Borgarplast, Friðrik A. Jóns- son, Hampiðjan, Héðinn smiðja, ísfell, ísmar, J. Hinriksson, Landssmiðjan, Olíuverslun Is- lands, Plastprent, Sindrastál, Sjó- klæðagerðin og Skeljungur. Til að þátttaka teljist marktæk þurfa a.m.k. 70% atkvæða þeirra, sem sýndu 1996 og ætla jafnframt að sýna á næstu sýningu, að skila sér. Atkvæðaseðlarnir skulu sendir Coopers & Lybrand-Hagvangi, sem annast mun talningu, í þessari viku. Vægi atkvæða tekur mið af stærð bása á sýningunni 1996. Hver sýnandi fer með eitt atkvæði fyrir hverja byrjaða 10 fermetra sem þýðir að tvö atkvæði eru fyrir 11-20 fermetra sýningarsvæði. Gæta á hlutleysis í bréfi, sem sýnendum barst í hendur frá skipuleggjendum at- kvæðagreiðslunnar, segir m.a.: „Barátta tveggja aðila í alllangan tíma um að halda sjávarútvegssýn- ingu 1999 hefur ekki farið fram hjá neinum sýnanda. Því miður virðist nú allt stefna í að haldnar verði tvær sýningar á sama tíma. Það þýðir að haldnar verða tvær veikar sýningar í stað einnar sterkrar og málið allt hlýtur í besta falli að rugla erlenda aðila, gesti sem sýnendur, ærlega í ríminu. Þetta er auðvitað óþolandi staða fyrir sýnendur, sem eru eins og leiksoppar í þessu sjónarspili. Því hafa nokkrir aðilar úr hópi sýnenda ákveðið að gera lokatil- raun til að hafa áhrif á gang mála þannig að aðeins verði um eina sýningu að ræða. Aðilarnir eru þannig valdir að hlutleysis er gætt. Þeir hafa komið sér saman um að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu meðal íslenskra sýnenda, en ís- lenskir sýnendur höfðu mikinn meirihluta gólfflatar síðustu sýn- ingar.“ Forsvarsmenn þeirra níu fyrir- tækja, sem standa að Samtökum seljenda skipatækja, ákváðu á fundi sínum í gær að taka þátt í at- kvæðagreiðslunni og munu þau standa við fyrri ákvörðun sína um að velja FishTech-sýninguna, skv. því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá samtökunum. Funahöfði 6 - til leigu 760 fm. atvinnuhúsnæði sem skiptist í 325' fm. vinnusal, 132 fm. skrifstofur og 300 fm. yfirbyggt útiskýli. Teikningar og nánari uppl. á skrifstofu okkar. Winfrey verst ásökunum bænda Amarillo. Reuters. BANDARÍSKA sjónvarpskonan Oprah Winfrey kom fyrir rétt í Texas í fyrradag og neitaði því að ummæli um kúariðu, sem hún við- hafði í þætti sínum, gætu haft áhrif á verð nautgripakjöts. Kúabændur í Texas hafa höfðað mál gegn henni, sakað hana um rógburð sem hafi kostað þá 10 milljónir dala, andvirði 730 milljóna króna. Winfrey sló á létta strengi og notfærði sér óspart hæfileika sína sem leikari og stjómandi vin- sælasta sjónvarpsspjallþáttar Bandaríkjanna. „Fólk hlustar á það sem ég segi og myndar sér eigin skoðanir," sagði hún við lögmann stefnend- anna, Joe Coyne. „Ég tel að fólkið sem ég tala við sé nógu greint til að mynda sér eigin skoðanir," bætti hún við þegar Coyne þráspurði hana að því hvort ummæli hennar gætu haft áhrif á skoðanir áhorf- endanna. Málið snýst um sjónvarpsþátt frá apríl 1996 þegar Howard Lym- an, fyrrverandi stórbóndi, sagði að kúariða gæti borist í menn og reynst miklu hættulegri en al- næmi. Lyman kom fyrir réttinn í vikunni sem leið og sagðist ekki hafa reynt að fá fólk til að hætta að neyta nautakjöts. Hann hefði að- eins viljað benda á að á þessum tíma hefðu bandarískir kúabændur notað fóður, sem hefði verið próteinbætt með hakki úr kúm, og það ylli hættu á útbreiðslu kúariðu. Bandarísk yfirvöld bönnuðu slíkt fóður í fyrra en segja að kúariða hafi ekki borist til Bandaríkjanna. Winfrey lýsti því yfir í þættinum að hún væri hætt að borða ham- borgara vegna viðvörunar Lymans og kúabændurnir segja að þau um- mæh hafi orðið til þess að verð nautgripakjöts hafi snarlækkað daginn eftir. Hún viðurkenndi fyrir réttinum að hún teldi æskilegt að í þættinum hefðu einnig komið fram sjónarmið sérfræðinga, sem telja að ekki stafi hætta af neyslu nauta- kjöts. GIMLIGIMU FASTEIGNASALA ÞÓRSGÖTU 26, RVÍK, FAX 552 0421 (f OPIÐ LAUGARDAGA KL. 11-14 SÍMI 5525099 jf F.INBÝL1 BLIKASTÍGUR ÁLFTANESI. Fallegt einbýli ,152 fm + 45 fm bílskúr. Húsið er úr timbri, 4 svefnherb, góðar innréttingar. Fallegur garður. Áhv. byggsj. rík. 1.650 þús Verð 11,9 millj. JAKASEL ÚTB. 3,7 MILLJ. Fallegt einbýli, hæð og ris. 185 fm ásamt 35 fm bílskúr, 6 svefnherb. Um er að ræða múrsteinshlaðið Hosby hús staðsett innst í botnlanga. Áhv húsbr. og byggsj. 11,0 millj. Verð 14,9 millj. MIÐBORGIN - LISTA- MANNAPARADÍS. Mjög sérstakt og vel staðsett einbýli sem gefur óteljandi mögul. Húsið hefur verið stands. að miklu leiti. Eign fyrir þá sem vilja vera öðruv. Áhv. 5,4 millj. húsbr. Verð 9,5 millj. LINDARSEL. Vandað einbýli 352 fm á tveimur hæðum með tvöföldum bilskúr. I húsinu eru nú tvær íbúðir ca 160 fm á efri hæð og ca 140 fm á neðri hæð. Allt er fullb. og mjög vandað. Verð 21,5 millj. REYKJAFOLD. Vorum að fá [ einkasölu fallegt 172 fm einbýli á einni hæð með 40 fm bílskúr. Parket og flísar. Failegur garður með góðu útsýni. Áhv. 1,8 millj. byggsj. Verð 13,5 millj. RAÐ- OC PARHÚS KAPLASKJÓLSVEGUR. Gott 154 fm raðhús Parket á gólfum, endum. baðherb. 4 svefnherb. Suðurgarður. Ath. skipti á ódýrari eign I vesturbæ. Áhv. húsbr. 5,1 millj. Verð 11,2 millj. SFRHÆDIR SKAFTAHLÍÐ MEÐ AUKA- IBUÐ. Glæsileg efri sérhæð með aukaibúð í risi ásamt bílskúr. Fallegt nýtt eldhús og ný glæsileg tæki. Gegnheilt parket. Gullfallegt baðherb. Skipti koma til greina á tveggja íbúða húsi. Áhv. 5,3 millj. Verð 13 millj. 5 IÍERR. OC STÆRRI NÝBÝLAVEGUR. Góð efri hæð i tvibýli 124 fm ásamt 33 fm bílskúr. 3-4 svefnherbergi. Stórar suðursvalir. Fallegur garður. Verð 10,5 millj. 4RA HFRliERCJA EIÐISTORG. Falleg 4ra herb. 106 fm íbúð á 1. hæð ásamt 36 fm séribúð í kjallara. Parket og vandaðar innr. Garður i suður og svalir í norður. Eign með ýmsa möguleika. Verð 9,9 millj. HRAUNBÆR. Mjög góð 3ja herb. 86 fm ib. með aukaherb. i kj. í einu best staðsetta húsinu í Hraunbæ. Húsið klætt að utan á allar hliðar. Fallegt útsýni í suður. Parket. Endurn. eldh. og baðherb. Áhv. byggsj. 1,7 millj. Verð 7,0 millj. SKIPHOLT MEÐ BÍLSKÚR. Falleg 4ra herb. ibúð 88 fm ásamt 22 fm bilskúr. Suðursvalir. Parket, flísar og nýl. innrétt. Sameign lítur vel út. Stutt i skóla og þjónustu. Verð 7,9 millj. JJA HFRB. FREYJUGATA. Glæsileg 3ja herbergja 89 fm ibúð á 3. hæð í góðu steinhúsi. Allt meira eða minna endurn. fyrir ca. 5 árum. Fallegt útsýni, góð staðsetning. Áhv. húsbr. 3,9 millj. Verð 8.4 millj. TEIGAR. Góð 83 fm íbúð lítið niðurgrafin í tvíbýli á þessum eftirsótta stað. 4 svefnherbergi. Sérinngangur og hiti. Parket og flísar. Áhv 4,0 millj. Verð 6.4 millj. LAUFRIMI. Falleg 3ja herbergja 89 fm íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýlishúsi. Þvottahús í ibúðinni. Suðurverönd. Stutt í skóla og þjónustu. Áhv. 4,3 millj. Verð 6,7 millj. MIÐBORGIN. LAUGAVEGUR - MEÐ BYGGINGARSJÓÐI Ágæt 3ja herb. 83 fm íbúð á 2. hæð í steinhúsi. 2 stofur og svefnh. Áhv. 3,7 millj. byggsj. rik. Verð 5,9 millj. NJÁLSGATA. Mjög snyrtileg 3ja herbergja 83 fm íbúð á 1. hæð í góðu steinhúsi. Endumýjaðir ofnar og rafmagnslagnir,_ einnig gluggar og gler. Svalir í vestur. Áhv. ca 3,2 millj. Verð 5,4 mlllj. SKEGGJAGATA. Mjög góð 3ja herbergja 84 fm efri hæð í reisulegu húsi í góðu standi ásamt 26 fm bílskúr. Endumýjaðir gluggar, gler, rafmagn og fl. Suðursvalir. Ahv. byggsj. rfk. 3,8 millj. Verð 8,1 millj. 2JA HFRB. FOSSVOGUR LAUS. Falleg 2ja herb. 51 fm íbúð á jarðh. í litlu fjölbýli á þessum eftirsótta stað. Suðurverönd. Parket. Áhv. 2,4 millj. Verð 5,3 millj. LAUS STRAX FELLSMÚLI LAUS. Mjög góð 2ja herb. 48 fm íbúð á jarðhæð á þessum vinsæla stað. Ibúðin er laus strax. Verð 4,2 millj. HÁTÚN. Óvenju rúmgóð og skemmtileg 2ja herb. 72 fm íbúð i kjallara i fallegu þríbýli á rólegum stað. Fallegur suðurgarður. Verð 5,7 millj. KRUMMAHÓLAR. Falleg 2ja herb. 43,7 fm ibúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi með stæði í bílgeymsl. Mikið endurnýjuð. Verð 4,5 millj. SELJAVEGUR. Vorum að fá í sölu góða 2ja herb. 61 fm íbúð á góðum stað. Parket og flísar. Verð 5,5 millj. STELKSHÓLAR. laus strax. Mjög snyrtileg 63 fm 2ja herb. íbúð á 1. hæð með sérsuðurgarði. Parket á gólfum, húsíð nýstandsett. Áhv. 2.650 þús. Verð 4.950 þús. TUNGUHEIÐI. ( suðurhlíðum Kópavogs er til sölu björt og rúmgóð 67 fm 2ja herb. ibúð í nýklæddu fjórbýli. Suðvestursvalir. Sérþvottahús. LAUS STRAX. LYKLAR Á GIMLI. Áhv. 2,2 millj. Verð 5,5 millj.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.