Morgunblaðið - 05.02.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FTMMTTTOAGTTR 5 FF.RRÚAR 1998 21
ERLENT
Reuters
MONICA Lewinsky er nú í heimsókn hjá föður sínum í Los Angeles
og heilsar honum hér við komuna á heimili hans í fyrradag.
le«upevsur
^ adtóos
Mer6d®i
Fu««>r8,nS’
Körtub0,ta
S\mPateX 9°n!
lkerob*s
HlauP3'
EURO - VISA
Póstsendum
samdægurs
Clinton í vanda vegna lögmannakostnaðar
Hyggst hefja
nýja fjársöfnun
Washington. Reuters, The Daily Telegraph.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hyggst stofna nýjan söfnun-
arsjóð sem á að standa straum af
lögmannakostnaði hans, að sögn
The Washington Post í gær. Blaðið
segir að forsetinn stefni að því
safna að minnsta kosti 3-4 milljón-
um dala, 220-290 milljónum króna.
The Washington Post hafði eftir
ónafngreindum heimildarmönnum
að forsetanum og eiginkonu hans,
Hillary Rodham Clinton, væri um-
hugað um að fá aðstoð við að greiða
reikninga lögmanna sinna. Kostn-
aðurinn hafi stóraukist vegna
rannsóknar Whitewater-málsins,
málshöfðunar Paulu Jones, sem
sakar Clinton um kynferðislega
áreitni, og ásakana um að Clinton
hafi átt í kynferðislegu sambandi
við Monicu Lewinsky, fyrrverandi
starfsstúlku Hvíta hússins, og
hvatt hana til að bera Ijúgvitni um
það.
Clinton ákváð í lok liðins árs að
leysa upp sjóð sem stofnaður var
til að greiða lögmannakostnaðinn
og var í vörslu fjárhaldsmanna.
Skuldin við lögmennina nam þá að
minnsta kosti þremur milljónum
dala.
Fjárhaldsmennirnir höfðu lagt
til að sjóðurinn yrði leystur upp
þar sem ljóst þótti að hann myndi
ekki duga til að greiða kostnaðinn.
Sá sjóður gat ekki tekið við fram-
lögum frá fyrirtækjum, samtökum
eða hagsmunahópum en nýi sjóð-
urinn verður án slíkra takmarkana,
að sögn The Washington Post.
Heimildarmenn blaðsins sögðu
að embættismenn Hvíta hússins
hefðu ætlað að tilkynna stofnun
sjóðsins í lok síðasta mánaðar en
frestað því eftir að mál L,ewinsky
komst í hámæli.
Var tíður gestur í Hvíta húsinu
Háttsettur embættismaður í
Washington skýrði frá því í fyrra-
kvöld að Lewinsky hefði farið „um
37 sinnum“ í Hvíta húsið eftir að
hún lét af störfum þar í apríl 1996
og fékk starf í vamarmálaráðu-
neytinu. Síðast hefði hún farið
þangað í desember á liðnu ári.
Embættismenn vamarmála-
ráðuneytisins sögðu að ferðir
Lewinsky í Hvíta húsið tengdust á
engan hátt störfum hennar fyrir
ráðuneytið. Fregnir herma að
Clinton hafi sagt í eiðsvarinni yfir-
lýsingu vegna máls Paulu Jones að
hann hefði aldrei verið einn með
Lewinsky frá því hún lét af störf-
um í Hvíta húsinu.
Hófst alnæmisfar-
aldurinn um 1950?
London. The Daily Telegraph.
ALNÆMISVEIRAN, algeng-
asta afbrigði hennar, hefur fund-
ist í blóðvökva, sem tekinn var úr
afrískum manni árið 1959. Er
þetta elsta dæmið um alnæmis-
smit í mönnum. Vísindamenn
telja nú hugsanlegt, að mikið
bólusetningarátak í Afríku eftir
stríð kunni að hafa greitt fyrir
auknu smiti.
Blóðvökvinn var tekinn úr
afrískum manni af bantúkyn-
þætti en hann bjó í Leopoldville
í Belgísku Kongó, nú Kinshasa í
Kongó. Lést hann árið 1959 en
vísindamenn telja líklegt, að al-
næmissmit í mönnum sé eldra,
frá því á fimmta áratugnum eða
skömmu eftir 1950. Flest bendir
til, að það sé upprunnið í Afríku
og raunar getur verið, að það
hafi verið viðloðandi um aldir á
einangruðum stöðum. Vísbend-
ingar eru um, að algengast
veiruafbrigðið, HIV-1, hafi
borist í menn úr sjimpönsum en
hitt afbrigðið, HIV-2, úr annarri
apategund.
Auknar samgöngur
og lauslæti
Skýringar á útbreiðslu
veirunnar, sem nú hefur smitað
um 40 milljónir manna, eru lík-
lega margar. Meðal annars aukn-
ar samgöngur, aukið þéttbýli og
kynferðislegt lauslæti en senni-
legt þykir, að mikil bólusetning,
oft með óhreinsuðum sprautum,
eigi sinn þátt í henni.
Erfðaefni alnæmisveirunnar
breytist ört, um 1% þess árlega,
og nú eru komnar fram 10 undir-
tegundir. Vitneskjan um þetta
hjálpar mönnum við að átta sig á
hvenær faraldurinn hófst og get-
ur einnig aukið skilning á þróun
veirunnar í framtíðinni.
STORUTSALA
10-70 % staðgr. afsláttur
Afsláttur er veittur af öllum vörum í versluninni
Skíði
Skíðaskór
Skíðahanskar
Keppnisskíði og skór
Stórsvigsgallar og
púðabuxur
íþróttafatnaður
íþróttaskór
Bómullarfatnaður
Adidas-Nike-Rebock-Puma
Sundfatnaður
Speedo-Adidas-Arena
Einnig á útsölu: ísskautar
Golffatnaður Línuskautar
Golfsett Þrekæfingatæki
Úlpur
Skíðaúlpur
Dúnúlpur
Skíðagallar
Fleece peysur
Reiðhjól 21 gíra
með góðum búnaði
verð frá kr. 19.900
Snjóbretti með bindingum,
verð frá kr. 25.800
Símar: 553 5320
568 8860
Ármúla 40
l/erslunin
Ein stærsta sportvöruverslun landsins
/VMRKIÐ