Morgunblaðið - 05.02.1998, Blaðsíða 56
AS/400
Fyrstir meö
s k o <3 a ð u
þessa slóð:
fHtitrgpssiMfiMi
HP Vectra. PC
HEWLETT
PACKARD
Sjáöu meira á www.hp.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMIB691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓ&THÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Hlutafélag um landflutninga Samskipa lagt niður um síðustu áramót
Starfsmönnum gert að
skípta um lífeyrissjóð
STARFSMÖNNUM landflutninga Samskipa, sem
eru í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur og hafa
greitt í Lífeyrissjóð verslunarmanna, var sagt upp
störfum um síðustu áramót þar sem hlutafélag um
þennan rekstur Samskipa var þá lagt niður og hefur
þeim verið boðið að skrifa undir nýjan ráðningar-
samning þar sem þeir skuldbinda sig til að færa sig
úr lífeyrissjóði VR yfir í Samvinnulífeyrissjóðinn.
Hefur þeim verið tjáð að geri þeir þetta ekki jafn-
gildi það uppsögn hjá fyrirtækinu.
Formaður VR segir þetta vera gerræði sem ætti
-»- -að heyra til fortíðinni en forstjóri Samskipa segir
þetta í samræmi við úrskurð sem Samskip hafi feng-
ið frá fjármálaráðuneytinu.
Samskip hf. keyptu Landflutninga hf. í ársbyrjun
1996 og var starfsemi félaganna sameinuð undir
nafninu Landflutningar-Samskip. Að sögn Ólafs
Ólafssonar, forstjóra Samskipa, var starfsemi hluta-
félagsins Landflutninga hætt um síðustu áramót og
öllum starfsmönnum þess þá boðin vinna hjá Sam-
skipum á sömu kjörum og ráðningaskilmálum sem
almennt væru hiá Samskinum.
„Starfsmenn Samskipa greiða til Samvinnulífeyr-
issjóðsins, en það er hluti af ráðningarkjörum
þeirra. Það var haldinn fundur með starfsmönnum
mánudaginn 2. febrúar þar sem farið var yfir málið
og þeim gerð grein fyrir öllum þessum lífeyrismál-
um. Þar mættu 13 starfsmenn og okkur er ekki ljóst
að um nokkum ágreining sé að ræða við starfsmenn
út af máhnu. Það liggur fyrh' úrskurður fjármála-
ráðuneytisins um sambærilegt málefni tengt Dags-
brún, en þai' segir að þeim starfsmönnum Samskipa
sem eru í Dagsbrún sé skylt að greiða í Samvinnulíf-
eyrissjóðinn. Það sama á við um þessa menn og við
höfum einfaldlega hugsað okkur að hlíta úrskurði
fjármálaráðuneytisins," sagði Ólafur.
Ótvíræður réttur að vera í Lífeyrissjóði
verslunarmanna
Samkvæmt heimiidum Morgunblaðsins hafa hátt
í 30 starfsmenn Samskipa sem störfuðu hjá hlutafé-
laginu, sem lagt var niður um áramótin, leitað til
Verslunarmannafélags Reykjavíkur vegna óánægju
með að þeim skuli gert að ganga í Samvinnulífeyris-
sjóðinn eða missa starfið ella.
Magnús L. Sveinsson, formaður VR, sagði ef ver-
ið væri að þvinga starfsmennina yfir í Samvinnulíf-
eyrissjóðinn væri það gerræði sem ætti að tilheyra
fortíðinni. Það væri ekki í anda þess sem hann teldi
að menn vildu starfa eftir í dag og á skjön við þann
anda sem byggi að baki laga um lífeyrissjóði. Sagði
hann að lögmaður VR hefði kynnt þeim starfsmönn-
um sem um ræðir þann rétt sem þeir hafa.
„Starfsmenn þama hafa verið í Lífeyrissjóði
verslunarmanna og ef þeir vilja vera þar áfram hafa
þeir fullan rétt til þess. Það er ekki hægt að þvinga
þá til þess að fara yfir í annan lífeyrissjóð gegn
þeirra vilja. Það er gert ráð fyrir því í nýju lögunum
að menn hafi þennan rétt og sá réttur er alveg ótví-
ræður að okkar mati. Þetta eru verslunarstörf sem
þeir vinna við þama og þeir em í Verslunarmanna-
félagi Reykjavíkur og við teljum að það sé ótvíræð-
ur réttur þeirra að vera áfram í Lífeyrissjóði versl-
unarmanna óski þeir þess,“ sagði Magnús.
Nýherji
Afkoman
bætt um
180 milljón-
ir milli ára
HAGNAÐUR Nýherja hf. á ár-
inu 1997 nam alls um 74 millj-
ónum króna, samanborið við
um 105 milljóna tap árið 1996.
Forráðamenn Nýherja
þakka þessa bættu afkomu
breyttri stefnu fyrirtækisins og
skipulagsbreytingum sem
stóðu fram á fyrri hluta árs
1997. Að sögn Frosta Sigur-
jónssonar, forstjóra Nýherja,
jukust umsvifin á flestum svið-
um rekstrarins, en einkum þó á
hugbúnaðarsviðinu. Þannig
voru stórir samningar gerðir
við Landssíma íslands og ís-
landspóst um endurnýjun hug-
búnaðarkerfa. Sala í einka-
tölvudeild jókst um 36% á milli
ára og sala IBM Unix-tölva
tvöfaldaðist.
Nýherji með/Cl
Samningaviðræður sjómanna og íitgerðarmanna komnar í hnut
MELAVÍK undirbýr löndun á Höfn í Hornafirði, en þangað hafa bátar streymt síðustu daga.
Morgunblaðið/Rax
Smáey kölluð í land
Islensk
— erfðagreining
Starfsmenn
fá kauprétt á
hlutabréfum
HLUTAFJÁRÚTBOÐ íslenskrar
erfðagreiningar mun að öllum líkind-
um hefjast á næstu dögum. Markmið
þessa útboðs er að sögn Kára Stef-
ánssonar, framkvæmdastjóra Is-
lenskrar erfðagreiningai-, gagngert
til að gefa íslenskum fjárfestum
tækifæri á að fjárfesta í fyrirtækinu.
Að sögn Kára verður starfsmönn-
um boðinn svokallaður kaupréttur á
~ 'hlutafé í fyrirtækinu og mun það
lána þeim fyrir andvirði bréfanna.
Það lán muni ekki þurfa að greiða til
baka fyrr en starfsmenn selji hluta-
bréfin á ný. Segir Kári að kaupverð
bréfanna verði starfsfólki hagstætt.
Kári segir að öllum fastráðnum
starfsmönnum muni standa þetta til
boða, en hámarksmagn keyptra
bréfa muni þó velta á stöðu hvers og
eins innan fyrirtækisins og því
hversu mikið framlag hans sé til
rekstrarins.
Stefnt að skráningu hlutabréfa
á erlendum markaði
Kári segir að það liggi ljóst fyrir
að sótt verði um skráningu á ís-
W^enskri erfðagreiningu á erlendum
hlutabréfamarkaði í framtíðinni.
Hann útilokar þó ekki að fyrirtækið
verði einnig skráð á innlendan mark-
að.
Hlutafjárútboð/C2
---------------
Vala setti
Evrópumet
VALA Flosadóttir úr ÍR fór yfir 4,35
metra í stangarstökki á frjálsíþrótta-
*móti í Þýskalandi í gærkvöldi. Hún
var fyrst kvenna á mótinu til að ná
þeim árangri og bætti því Evrópu-
metið, sem var 4,33 metrar. Hærra
fór hún hins vegar ekki en Daniela
Bartova frá Tékklandi jafnaði Evr-
ópumet Völu í næstu tilraun og bætti
síðan heimsmetið; stökk yfir 4,41 m.
Vala/Bl
TOGBÁTURINN Smáey frá Vest-
mannaeyjum var kallaður í land seint
í gærkvöld og sagðist Magnús Krist-
insson útgerðarmaður gera það í
trausti þess að sjómenn sameinuðust
nú við samningaborðið. Smáey hélt á
veiðar í fyrrakvöld og í gær fóru full-
trúar sjómanna af sáttafundi og kváð-
ust ekki vilja ræða við útgerðarmenn
meðan útgerðarmenn stunduðu verk-
fallsbrot og áttu þar við Smáey.
„Hvorki áhöfn skipsins né útgerð
hafa gerst brotleg við vinnulöggjöf-
ina. Þrátt fyrir það hefur Bergur-
Huginn ehf., útgerð Smáeyjar VE, í
samráði við áhöfn ákveðið að kalla
skipið til hafnar og er það væntan-
legt til hafnar í fyrramálið,“ sagði
Magnús í gærkvöld í viðtali við
Morgunblaðið.
,Astæða þess að ákveðið er að
hverfa frá upprunalegri áætlun skips-
ins er meðal annars það upphlaup og
darraðardans sem varð í samninga-
viðræðum aðila í kjaradeilu útvegs-
manna og sjómanna í dag,“ sagði
Magnús í gærkvöld og sagði þessa
ákvörðun útgerðarinnar vera tekna í
þeirri von að aðilar komi aftur að
samningaborðinu og sem einn hópur.
„Það var fyrst í dag sem forystu-
menn sjómanna urðu sammála um
eitthvað í deilunni. Þeh- komu saman
þrír til að deila á mig, þeir hafa
aldrei fengist allir inn í sama her-
bergið en nú koma þeir fram sem ein
heild. Ef ég hef getað þjappað þess-
um forystumönnum sjómanna saman
þá fagna ég því. Þessi ákvörðun er
tekin í trausti þess að menn slíðri
sverðin og setjist að samningaborð-
inu og vona ég að sáttasemjari bretti
upp ermarnar ásamt okkur,“ sagði
Magnús. Þess skal getið að viðtal við
Magnús á bls. 11 í Morgunblaðinu í
dag, var tekið um miðjan dag i gær.
Ríkissáttasemjari sagði samn-
ingaviðræður í algerri biðstöðu í
gær. Hann verður í sambandi við
deiluaðila og metur hvenær tilefni
gefst til næsta fundar.
■ Fiskvinnslufyrirtæki/10
■ Sjómenn/11
■ Smáey/11
■ „Kvótabrask“/28