Morgunblaðið - 05.02.1998, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐÍÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
ÍÞRÓTTASKÓLI Umf. Snæfells byijaði í haust og sækja hann krakkar á aldrinum 5-10 ára. Þetta er kraftmik-
ill hópur sem stillti sér upp til myndatöku ásamt kennara sínum, Tómasi Magnússyni, og Örnu Andrésdóttur
og Kristínu Óladóttur, sem aðstoða í skólanum.
íþróttaskóli Umf. Snæfells í Stykkishólmi
Stykkishólmi - Ungmennafélagið
Snæfell bauð í haust í fyrsta sinn
upp á íþrótta- og leikjaskóla fyrir
börn á aldrinum 5-10 ára. Krakk-
ar á aldrinum 5-7 ára mæta einu
sinni í viku, en þau eldri tvisvar.
Þetta er tilraun í starfsemi
ungmennafélagsins og hefur tek-
ist mjög vel. Mikill áhugi er á
meðal foreldra og barnanna.
Skólinn er byggður upp á leikj-
um, en í gegnum þá kynnast börn
undirstöðu íþrótta. Seinni hluti
námskeiðsins er hafinn og er
þátttaka góð.
Sljómandi íþróttaskólans er
Tómas Birgir Magnússon,
íþróttakennari.
Halldóra Jónasdóttir
íþróttamaður UMSB
Borgarnesi - Greint var frá
kjöri“íþróttamanns Borgarfjarðar
1997“ í lok íþróttahátíðar UMSB
sem fór fram í Borgamesi sl. laug-
ardag. Er þetta í fyrsta sinn sem
þessi athöfn er í tengslum við
íþróttahátíðina.
Það kom fáum á óvart, sem fylgj-
ast með íþróttastarfinu innan
UMSB, að fyrir valinu skyldi verða
Halldóra Jónasdóttir spjótkastari.
Halldóra hefur sýnt miklar framfar-
ir undanfarin ár. Hún er í hópnum
„Sydney 2000“ og stefnir ótrauð á
Olympíuleikana í Ástralíu.
Henni hefur verið boðinn fullur
skólastyrkur í Alabama og haldi
fram sem horfir hefur hún nám þar
á komandi hausti. Það eykur enn
líkurnar á því að hún nái settu
marki.
Röð annarra í kjörinu var þessi:
2. Hanna Lind Ólafsdóttir, frjálsar
íþróttir, 3. Einar Trausti Sveinsson,
íþróttir fatlaðra, 4. Ragnar Freyr
Þorsteinsson, sund, 5. Elín Anna
Steinarsdóttir, sund, 6. Sigmai' H.
Gunnarsson, frjálsar íþróttir, 7.
Tómas Holton körfuknattleikur, 8.
Morgunblaðið/Ingimundur
HALLDÓRA Jónasdóttir
„íþróttamaður UMSB 1997.“
Þórdís Sigurðardóttir hestaíþróttir,
9. Gunnar M. Jónsson knattspyrna
og 10. Guðlaugur A. Axelsson,
knattsp. og badminton.
Blönduós
Verslunin
Sport tekur til
starfa
Blönduósi - Ný verslun með útivist-
arvörur hóf rekstur á Blönduósi fyrir
skömmu. Verslunin sem ber nafnið
Sport er til húsa á Húnabraut 13 og
eru eigendur hennar hjónin Bjöm
Vignir Bjömsson og Hólmíríður Sig-
rún Óskarsdóttir.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Björn, betur þekktur undir nafninu
Vignir, að fyrst og fremst yrðu þau
hjónin með vörur í umboðssölu, vömr
sem tengdust útivist hverskonar.
Hestamenn, sportveiðimenn og útivi-
starfólk almennt ætti að finna í versl-
uninni eitthvað við sitt hæfi. Veslunin
er opin eftir hádegi alla virka daga til
kl 18 en til kl 17 á laugardögum.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
HJÓNIN Vignir Björnsson og
Sigrún Óskarsdóttir ásamt
dótturinni Huldu í hinni nýju
verslun sinni.
fþróttamaður ársins í Siglufírði
Jón Garðar útnefndur
Siglufirði - Kiwanisklúbburinn
Skjöldur hefur útnefnt Jón Garðar
Steingrímsson íþróttamann ársins í
Siglufirði. Jón Garðar, sem er 18
ára skíðagöngumaður, er vel að titl-
inum kominn.
Hann hefur unnið til fjölda verð-
launa á undanfórnum árum og á sið-
asta landsmóti varð hann til dæmis
þrefaldur íslandsmeistari í sínum
aldursflokki. Jón Garðar, sem æft
hefur skíðagöngu frá 8 ára aldri,
æfir nú með Akureyringum enda
stundar hann nú nám við Mennta-
skólann á Akureyri. Hann segist
ánægður með þessa viðurkenningu
og þakkar bæjarbúum traustið.
Frá því að Kiwanisklúbburinn
Skjöldur var stofnaður hefur hann
stutt við íþróttastarf í Siglufirði eft-
ir bestu getu og síðastliðinn 19 ár
heiðrað það íþróttafólk, sem skarað
hefur fram úr og sýnt gott fordæmi.
Auk íþróttamanns ársins voru
kjörnir þeir sem skarað höfðu fram
úr í hverri íþróttagrein: I golfi Alm-
ar Möller og Þór Jóhannsson, í
knattspyrnu Grétar Sveinsson og
Benedikt Þorsteinsson, í skíðum
Ingólfur Magnússon og Jón Garðar
Steingrímsson, í badminton Logi
Þórðarson og Ásbjöm Smári
Björnsson, í frjálsum íþróttum
Ragnheiður Guðnadóttir, í körfu-
bolta Mikael Bjömsson og frá
íþróttafélaginu Snerpu Viðar Aðal-
steinsson og Gunnar J. Þorsteins-
son.
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
JÓN Garðar
Steingrímsson.
Fylgstu með nýjustu fréttum
á Fréttavef Morgunblaðsins