Morgunblaðið - 05.02.1998, Síða 14

Morgunblaðið - 05.02.1998, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Sameiningarmálin verði í brennidepli fyrir kosningar Akureyrarbær taki frumkvæði GÍSLI Bragi Hjartarson bæjarfull- trúi Alþýðuflokks segir að tími sé til kominn að Akureyri hafí frum- kvæði að því að sveitarfélög í Eyja- fírði sameinist. Stór sameining sveitarfélaga í Eyjafirði sé eini raunhæfi möguleikinn til að láta að sér kveða, framtíð svæðisins liggi við. „Ég vil gjarnan sjá þessi mál í brennidepli við næstu sveitar- stjórnarkosningar," sagði Gísli Bragi á fundi bæjarstjórnar, en þar var m.a. til umfjöllunar bréf frá oddvita Hríseyjarhrepps þar sem borin er fram sú ósk að Hríseying- ar fái að vita af og taka þátt í hvers konar viðræðum um sameiningu sveitarfélaga við innanverðan Eyjafjörð, þegar og ef áhugi reyn- ist á slíkum viðræðum. Bókun bæj- arráðs um stuðning við bæjar- stjórn Siglufjarðar vegna vegteng- ingar með jarðgöngum milli Siglu- fjarðar og Olafsfjarðar var einnig til umræðu. Jakob Björnsson bæjarstjóri sagði að hugmyndin væri sú innan héraðsráðs Eyjafjarðar að efna til skoðanakönnunar samhliða sveit- arstjórnarkosningum í vor þar sem vilji íbúa í héraðinu til sameining- armála yrði kannaður. Hann sagði ekki spurningu um hvort heldur hvenær sveitarfélög í Eyjafírði sameinuðust. Akureyrarbær hefði kosið að fara rólegu leiðina og að sínu mati væri það viðfangsefni sem glímt yrði við á næsta kjör- tímabili. Niðurstaða könnunarinn- ar yrði veganesti fyrir bæjarfull- trúa. I þó nokkrum sveitarfélögum sem akkur væri í að hafa með hefði ekki verið nægur áhugi á samein- ingu við Akureyri, en Jakob átti von á að breyting gæti orðið þar á. Þröstur Ásmundsson, Alþýðu- bandalagi, taldi eðlilegt að samein- ingarmálin yrðu í umræðunni fyrir kosningar og vildi að skoðað yrði með hvaða hætti Akureyri gæti tek- ið frumkvæði í málinu. Guðmundur Jóhannsson, Sjálf- stæðisflokki, sagði mikilvægt að Siglfirðingar væru með í umræð- unni, en eins og samgöngum væri háttað nú væru sáralítil samskipti milli Akureyrar og Siglufjarðar stóran hluta ársins. Mikið væri um að vera á Siglufirði en þjónusta væri í ríkum mæli sótt suður. Ef jarðgöng væru fyrir hendi myndi það breytast og Eyjafjarðarsvæðið stækka verulega. Morgunblaðið/Kristján Slippstöðin og Van Voorden Repair BV í Hollandi Samstarf um skrúfuviðgerðir Spiluðu á hljóðfæri í 36 stundir ÞAÐ var líf og fjör á sal Gagn- fræðaskólans á Akureyri um liðna helgi, en þá hreiðruðu þar um sig nokkrir nemendur úr 8.-10. bekk sem einnig eru úr Tónlistarskólanum á Akur- eyri og efndu til tónlistarm- araþons. Alls léku krakkarnir í 36 stundir á hin ýmsu hljóð- færi, en inni á milli var spilað og spjallað og svo þurfti auð- vitað aðeins að halla sér. Með þessu tiltæki söfnuðu ungling- arnir áheitum sem þau létu renna á tvo staði, til Krist- nesspítala og Tónlistarskólans á Akureyri. W- \ : \ / i mó-Aö** ” JBt í - - - ' Morgunblaðið/Kristján ERLA, Lára, Sunna, Eyrún, Friðný, Júlía, Laufey og Sigga í efri röð, en í þeirri neðri eru Anna Kristín, Sæunn og Þórný. SLIPPSTÖÐIN á Akureyri og hollenska fyrirtækið Van Voorden Repair BV hafa gengið til sam- starfs um skrúfuviðgerðir en í dag, fímmtudag, verður tekið í notkun verkstæði á Akureyri til viðgerða á skipsskrúfum. Með þessu samstarfi styrkir Slippstöð- in stöðu sína sem alhliða þjón- ustufyrirtæki í viðgerðum og við- haldi skipa og vill einnig með því tryggja viðskiptavinum sínum að- gang að skrúfuviðgerðum eins og þær gerast bestar á hverjum tíma þar sem nýjustu aðferðum er beitt. Fjárfest hefur verið í tækj- um til mælinga og viðgerða á skrúfum og hafa starfsmenn feng- ið sérstaka þjálfun á verkstæði og rannsóknarstofu hollenska fyrir- tækisins. A myndinni má sjá Rafn Bene- diktsson, verkstjóri stálsmíða- deildar Slippstöðvarinnar, í skrúfuviðgerðaraðstöðu fyrirtæk- isins. Morgunblaðið/Kristján Nýtt hafnarhús risið UPPSTEYPU á nýju hafnarhúsi Hafnasamlags Norðurlands við Fiskitanga á Akureyri er lokið. Nýja húsið er um 430 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. Þar verð- ur í framtíðinni öll starfsemi hafn- arinnar og að auki aðsetur Fiski- stofu. Þeir átta starfsmenn sem vinna hjá Hafnasamlaginu eru nú með aðsetur á þremur stöðum. Samkvæmt útboði er ráðgert að húsið verði tilbúið að innan um miðjan apríl nk. og hinn 1. júlí í sumar verði húsið tilbúið að utan og lóð frágengin. Samið var við P. Alfreðsson ehf. um smíði hússins en félagið átti lægsta tilboðið í verkið, 48 milljónir króna. Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri Fjórir kennarar með í Leonardoverkefni FJÓRIR kennarar við heilbrigðis- deild Háskólans á Akureyri vinna að verkefni sem kennt er við Leonardo sem Evrópuráðið styrkir og er það unnið í samvinnu við fulltrúa fjög- urra annarra þjóða, Norðmanna, Svía, Englendinga og Spánverja. Verkefnið, sem felst í að vinna að námsgagnagerð í hjúkrunarfræði á geisladiskaformi, fékk styrk að upp- hæð 130 þúsund EKU, eða 10,4 milljónir króna. „Það er afskaplega spennandi að fá tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni,“ sagði Sigríður Halldórs- dóttir, forstöðumaður heilbrigðis- deildar Háskólans á Akureyri, sem ásamt Elsu B. Friðfinnsdóttur, Síu Jónsdóttur og Ingibjörgu Þórhalls- dóttur vinnur að þessu verkefni. Norðmennirnir Tone Oddvang og Oeyvind Christiansen í Bodö höfðu frumkvæði að þessu verkefni. Full- trúar landanna fimm hafa ræðst við á sjónvarpsfundum en munu hittast í Bodö í apríl næstkomandi. „Margmiðlun er að ryðja sér til rúms á svo mörgum sviðum og það er afar mikilvægt að námsgagnagerð fylgi með, verði í takt við tímann. Sú kynslóð sem nú er að alast upp og sest í háskóla eftir nokkur ár er al- inn upp við tölvur og er vön þessari tækni. Kröfumar verða þær að námsefnið verður á geisladiskum,“ sagði Sigríður. Hún sagði að í Bandaríkjunum og Kanada væru menn lengst komnir með að þróa námsefni á geisladisk- um en hvað hjúkrunarfræðina varð- ar væri námsefnið menningarbundið, heilbrigðiskerfið í þessum löndum væri að mörgu leyti ekki byggt upp á sama hátt og í Evrópu. „Það sem fyrir okkur vakir er að hin evrópska menning njóti sín betur.“ Oruggari hjúki-unarfræðingar Sigríður sagði að m.a. yrðu ýmsar aðgerðir og ákveðin verkefni sem hjúkrunarfræðingar vinna við sýnd- ar og nemarnir gætu þá horft á og tileinkað sér betur hvernig bera ætti sig að. „Þetta er stórkostleg tækni og mun eflaust í framtíðinni spara mikla peninga," sagði Sigríð- ur. Opið hús í Háskólanum á Akureyri laugardaginn 7. febrúar 1998 Deildir háskólans, bókasafn og samstarfsstofnanir kynna starfsemi sína í húsakynnum Háskólans á Sólborg. 200.000 naglbítar leika í sundlauginni á Sólborg kl. 12, 14 og 16. Ræðukeppni milli framhaldsskóla á Akureyri og í Reykjavík í gagnvirku sjónvarpi kl. 11. Opið hús stendur frá kl. 11 til 17. Allir eru velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.