Morgunblaðið - 05.02.1998, Síða 43

Morgunblaðið - 05.02.1998, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1998 43 Viðurværi þjóðarinnar Frá Valdimar Kristinssyni: í TÆP 1000 ár lifðu íslendingar á landbúnaði. Það mun hafa gengið vel fyrstu aldirnar, en eftir því sem landkostir rýrnuðu og veðurfar kólnaði leiddi þetta til fátæktar og | síðan örbirgðar meginhluta lands- | lýðsins. Nokkuð var veitt við I strendur landsins, en ekki var hægt ’ að sækja langt á opnum bátum. Af samskiptum við erlenda fiskimenn var þó vitað að sá guli var utar, en varla var gerlegt að komast yfir þil- skip í trjálausu landi. Auk þess segir sagan að skipu- lega hafi verið unnið gegn varan- legri búsetu við sjávarsíðuna. Þetta tók að breytast á síðari helmingi 19. aldar og eftir aldamótin I síðustu varð sjávai-útvegur og skyld- ( ar greinar mikilvægasti atvinnuveg- ur þjóðarinnar, enda tók ægivald hans við íyrra hlutverid landbúnað- arins. Gengisfellingar voru stjóm- tækið sem ekki tók tillit til annarra atvinnuvega, en þó óx upp nokkur iðnaðui’, einkum í skjóli innflutnings- hafta. Ef imprað var á annarri upp- byggingu var hlegið og sagt að hagn- | aðurinn yrði rýr á móti gróðanum af síldinni, og þegai- bent var á í út- | varpserindi á 6. áratugnum að reisa ( mætti hótel fyrir andvirði eins tog- ara, þá var útvarpsráð skammað fyr- ir að hleypa flóni að hljóðnemanum. Þrátt fyrir þetta tókst ferðaþjón- ustu að hasla sér völl og hún eign- aðist sína eldheitu áhangendur, sem telja að hagsmunir annarra at- vinnugi-eina eigi að víkja ef í odda skerst. Hálendið er sagt í stór- ( hættu af því að fólk á fjallabílum ^ þoli ekki að sjá önnur mannanna < verk þar en eigin farartæki. Hinu er sleppt, að þeim kröfuhörðustu finnst nú þegar of margir vera á ferð um hálendið og að ferðatíma- bilið þar sé víða aðeins um tveir mánuðir á ári. Að þessum forsend- um gefnum verður ekki feitan gölt að flá á fjöllum. Hins vegar eru þeir miklu fleiri, sem þola að sjá annað fólk til fjalla og hefðu áhuga á dags- ferðum til ýmissa staða hálendisins og gætu skapað drjúgt sóknarfæri í ferðaþjónustu. En til þess þarf bærilega vegi og sæmilega akfæra slóða, sem um leið mundi lengja ferðatímann nokkuð. Jafnframt gætu landsmenn sjálfir ekið víða á eigin fólksbílum. Þessir bílar munu hvorki skilja eftir hjólför né sund- urskornar brekkur sem getur tekið náttúruna aldir að bæta. I þessu sambandi má benda á að fjöldi fólks ekur árlega inn í Þjórsárdal og um virkjanasvæðin við Tungnaá vegna þess hve þau eru orðin aðgengileg. Er vitað til þess að nokkur mað- ur hafi hætt við Þjórsárdalsferð vegna Búrfellsvirkjunar? Fróðlegt væri að fá vitnisburð þar um. Hvað atvinnuvegina varðar er margt breytingum undirorpið. Lík- lega hafa öfgar stórskaðað naut- griparækt á Bretlandseyjum. Sjáv- arútvegur er í hættu vegna ímynd- aðrar og raunverulegrar mengunar og áróðurs sjálfskipaðra náttúra- verndara. Alkunnar eru sveiflur í afurðaverði áls og járnblendis og ekki eru ferðamálin á traustum grunni heldur. Þótt vel gangi í dag getur alltaf brugðið til beggja vona, eða hver hefði trúað því að Pan American legði upp laupana? Nýjasta bjargráðið er hugbúnað- argerð. Vonandi á hún eftir að vaxa og dafna, en áreiðanlega hentar hún ekki nema hluta þjóðarinnar hversu vel sem búið verður að skólakerfinu, og á hugbúnaðarsvið- inu erum við í samkeppni við alla veröldina. Um álver er það að segja, að nú þegar Grundartangi hefur skákað Keilisnesi út af borðinu, þá stendur Reyðarfjörður einn eftir, enda hef- ur aldrei verið ástæða til að hafa fleiri en þijú slík í landinu. En álver við Reyðarfjörð, miðlungi stórt eða stórt, ásamt olíuhreinsun á sama stað, ef hún býðst, eru grundvallar- atriði til að snúa mannfjöldaþróun- inni eystra við, enda vill enginn sjá Austurland koðna niður. A hinn bóginn gefur magnesíumvinnsla á Reykjanesi vonir um vinnslu úr léttmálmum í landinu, en þar hefur álið brugðist til þessa. Engin þeirra atvinnugreina sem hér hafa verið nefndar á að koma í stað annarrar. Við þurfum á þeim öllum að halda til að nýta hæfileika þjóðarinnar. Og margt fleira þarf að koma til. Líftæknin gefur góðar vonir, erfða- greining getur dregið úr kröm mannfólksins, barra- og lúðueldi er komið af tilraunastiginu, farið er að þurrka harðvið við jarðhita og nýtt byggingarefni unnið úr innlendum efnum er í alvarlegri athugun. Þetta eru aðeins dæmi um greinar sem geta stuðlað að öflugra at- vinnulífi nú þegar 21. öldin er að ganga í garð. VALDIMAR KRISTINSSON Reynimel 65, Reykjavík. i : ( i i ( ( ■3 ( I ( Cuðrún fflsmundsdúttir leikkona Fiolnir Þorgeirsson fær Zancaster KYNNING í dag og á morgun, föstudag. kynningarafsláttur og kaupauki Ástúðleg umhyggja og lifandi litir í litalínunni frá MARBERT. Þú getur valið um 6 tegundir af andlitsfarða frá MARBERT allt eftir því hvemig húð þín er. Andlitsfarðinn inniheldur vítamín og UV filter sem virkar gegn skaðlegum áhrifum í umhverfinu. Við bjóðum upp á skemmtileg tilboð í litalínunni í næstu MARBERT verslun. Kynning í dag, fimmtudag. Brá Laugavegi 66, sími 551 2170 Kynning á morgun, föstudag Kringlunni, sími 588 1001 Skattaþjónustan ehf. Bergur Guðnason hdlv Suðurlandsbraut 52, Reykjavík Undirritaður hefur verið í skattamálunum frá því á sjöunda áratugnum og telst vera oðinn nokkuð sjóaður í þeim efnum. Allan þann tíma hefur verið tekist á um frádrætti og tekjur. Leiðin til einföldunar hefur verið hnökrótt hjá skatt- yfirvöldum. Núna er fjármagnstekjuskatturinn orðinn að veruleika. Halda menn að nú sé endanlega búið að ná fullkomnun í skattheimtunni? Nýtið ykkur reynslu mína til að tryggja bestu útkomu fyrir ykkur sjálf þegar talið er fram. Innifalið er að leiða ykkur í gegnum sífelldar breytingar á skattalögunum, endurgjaldslaust, allt árið 1998. Tímapantanir kl. 09-17 í síma 568 2828 Skattaþjónustan ehf. Bergur Guðnason hdl. ( ( (

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.