Morgunblaðið - 07.02.1998, Síða 58
58 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Ferdinand
Smáfólk
'SEE HOU) 6ENTL* THE
5N01ÚFLAKE5 FLOAT TOy
^THE 6ROUNP?
Sjáðu hvað snjókornin svífa
léttilega til jarðar?
Flest þeirra.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Klónaður Geysir
Frá Grétarí Eiríkssyni:
HINN 19. desember sl. voru tvær
fréttir hlið við hlið á baksíðu Morg-
unblaðsins er vöktu sérstaka athygli
mína, hvor með sínum hætti. Annars
vegar frétt um fjárhagsvanda
Sjúkrahúss Reykjavikur þar sem
haft var eftir forstjóra þess að spít-
alinn þurfti að greiða 10 miljónir kr.
á þessu ári í dráttarvexti, sem er
nýr liður í rekstri spítalans.
Hin fréttin fjallar um prufu-
keyrslu á gæluverkefni ungs manns,
sem sæti á í stjórn veitustofnana, á
gerð borholu í Öskjuhlíðinni, sem
einhverra hluta vegna er nefndur
manngerður goshver. I fréttinni
segir að mannvirki þetta sé stæling
á náttúrulegum goshverum, Strokki
og Geysi. Minna mátti það ekki
vera. Benda má á að Strokkur í
Haukadal er reyndar borhola þó
með öðnim hætti sé.
I þetta verkefni, sem að minni
hyggju er ekki annað en fígúrugang-
ur, samþykkti borgarstjórn að eyða
a.m.k. 30 miljónum kr. Ég minnist
þess að á þeim næstum 30 árum sem
ég starfaði hjá Hitaveitu Reykjavík-
ur var stöku sinnum óskað eftir að
sýnt væri erlendum gestum heita
vatnið beint úr borholu. Átti hita-
veitan þá borholu við Kringlumýrar-
braut sem skrúfað var frá við slík
tækifæri og fékkst þar miklu til-
komumeira gos en þessi skvetta í
Öskjuhlíðinni. Auk þess var kostn-
aðurinn enginn. Ekki minnist ég
þess að borgarstjórinn hafi nokkru
sinni verið fenginn til að opna bor-
holuna né hann hafi farið þess á leit
þó svo að kosningar væru í nánd.
Ég geri mér fyllilega ljóst að
þessar 30 milljónir hefðu hrokkið
skammt til að leysa fjárhagsvanda
sjúkrahússins en dugað til að greiða
di'áttarvextina í þrjú ár. Spyrja má
hvort þeim sem standa fyrir eyðslu
peninga í þvílík delluverkefni sem
hér um ræðir sé treystandi til gæslu
fjármuna. Pegar hugsað er til þess
hvað við eigum marga náttúrulega
goshveri hér í næsta nágrenni verð-
ur manni á að spyrja; er ekki þarna
verið að gefa bakarabarninu brauð?
Fyrst borgarstjórn Reykjavíkur
er svona mikið kappsmál að lifa í
þykjustunni er kórrétt að halda
áfram að gera eftirlíkingar af ýms-
um náttútuperlum landsins, þá má
Greinarhöfundur leggur til að
tilbúni goshverinn í Öskjuhlíð
verði látinn heita Glópur.
fela Vatnsveitunni gerð á litlum
Gullfossi eða Dynjandifossi í hlíð-
inni. Það er mjög auðvelt tæknilega.
Þá má fela embætti byggingarfull-
túa að gera hæfilega stóra Herðu-
breið, nú eða Brennisteinsöldu, að
sjálfsögðu úr steinsteypu. Þá er
mögulegt að koma fyrir gervi-
Ódáðahrauni neðarlega í hlíðinni. Til
þess er plast mjög hentugt. Þá vant-
ar aðeins sýnishorn af eldgosi. En
það ættu að vera einhver ráð með
það. Skítt með kostnaðinn. Orðhag-
ur maður er ekki í vandræðum með
að smíða orð á nýjan skatt.
Þá væri fróðlegt að vita hver hafi
narrað piltinn, sem sagður er hinn
vænsti drengur, til að koma hug-
myndinni á framfæri. Að minni
hyggju þarf „tröllgreindan" mann til
að láta sér detta í hug þvílíka vit-
leysu sem þetta er. Að lokum skal
tekið fram að hönnuður verksins
hefur leyst sitt verk prýðilega af
hendi sem hans var von og vísa.
Þá heyri ég í fréttum að fyrirhug-
uð er samkeppni um nafn á herleg-
heitin. Vil ég taka mér leyfi til að
stinga upp á að borholan dýra verði
nefnd GLÓPUR, samanber glópa-
háttur, glópalán, glópagull o.s.frv.
GRÉTAR EIRÍKSSON,
tæknifræðingur,
Háaleitisbraut 59, Reykjavík.
Athugasemd við grein
Reynis Ingibjartssonar
Frá Júlíusi Valdimarssyni:
REYNIR Ingibjartsson ritar grein
undir nafninu „Til varnar Lái-u“ í
Morgunblaðið 4. febrúar s.l. Þetta
er svargrein við grein Jóns Kjart-
anssonar, formanns Leigjendasam-
takanna „Bréf til Láru“ sem birtist í
blaðinu 31. janúar. I grein sinni seg-
ir Reynir orðrétt: „Sömuleiðis er
rétt að upplýsa að bréf sem sent var
öllum leigjendum hjá Reykjavíkur-
borg, nú Félagsbústöðum hf, var
ekki sent með samþykkt stjórnar
Leigjendasamtakanna, heldur ein-
stakra stjórnarmanna". Hér fer
Reynir með hrein ósannindi þar
sem samþykkt var að senda umrætt
bréf á funcfi stjórnar Leigjendasam-
takanna þann 28. nóvember s.l. en
þar var Reynir sjálfur viðstaddur
ásamt 6 öðrum stjórnarmönnum. I
fundargerð þessa fundar var bókað
orðrétt í 2. lið hennar: „Rætt um
nýja stöðu húsaleigumála hjá
Reykjavíkurborg vegna sölu leigu-
íbúðanna til Félagsbústaða hf. Sam-
þykkt var að ræða við fulltrúa Fé-
lagsbústaða h.f. n.k. miðvikudag
eins og þeir hafa boðið. Samþykkt
að senda leigutökum borgarinnar
bréf að þeim fundi loknum.“ Undir
fundargerðina ritar Haraldur Jón-
asson, fundarritari.
JÚLÍUS VALDIMARSSON,
varaformaður Leigjenda-
samtakanna.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.