Morgunblaðið - 05.03.1998, Page 1
96 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
53. TBL. 86. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Staða Kohls óhögguð
Bonn. Reuters.
WOLFGANG Scháuble, formaðui-
þingflokks Kristilegi-a demókrata
(CDU) á þýzka þinginu, reyndi í
gær að kveða niður orðróm þess
efnis að frammámenn í flokknum
væru að íhuga þann möguleika að
Helmut Kohl kanzlari viki fyrir öðr-
um frambjóðanda til að keppa við
Gerhard Schröder, kanzlaraefni
Jafnaðarmannaflokksins SPD, í
þingkosningum í haust.
Schauble, sem er einn helzti ráð-
gjafi Kohls og sá maður sem kanzl-
arinn hefur lýst yfir að hann vilji sjá
sem arftaka sinn, sagði í sjónvarps-
viðtali að það væri engin spurning
að flokkurinn héldi sig við Kohl.
„Við afgreiddum frambjóð-
endamál okkar fyrir löngu
og tókum afdráttarlausa
ákvörðun. Og hún var sú
rétta,“ sagði Seháuble.
Vangaveltur um leið-
togahlutverk Kohls í kosn-
ingabaráttunni hafa kom-
izt í hámæli eftir mikinn
ósigur CDU í kosningum
til þings Neðra-Saxlands
sl. sunntiidag, þar sem Ger-
hard Schröder, forsætisráðherra
hins norður-þýzka sambandslands,
fór með sannfærandi sigur af hólmi.
Forystumenn hins íhaldssama
systurflokks CDU í Bæjaralandi,
Wolfgang
Scháuble
CSU, ýttu í gær undir efa-
semdir um að Kohl héldi
rétt á spilunum í kosninga-
baráttunni með því að
hvetja hann til þess að
draga úr ferðum sínum til
útlanda og einbeita sér að
mest knýjandi innanlands-
málunum á borð við at-
vinnuleysisvandann.
f dag birtir vinnumála-
stofnun þýzka ríkisins tölur
yfir atvinnuleysi febrúarmánaðar,
en eftir fregnum í gær að dæma
hjaðnaði það ekkert frá því í janúar,
þegar það náði sögulegu hámarki,
12,6% af vinnufærum mannafla.
Dúman samþykkir
fjárlagafrumvarp
Sigur
fyrir
Jeltsín
Moskvu. Keuters.
NEÐRI deild rússneska þingsins,
Dúman, samþykkti í gær tillögu að
fjárlögum fyrir þetta ár eftir fjórðu
og síðustu umræðu. Tillagan,
ásamt meðfylgjandi viðaukum, var
samþykkt með 252 atkvæðum gegn
129, tveir sátu hjá. Stjómarand-
stæðingar em í meirihluta í neðri
deildinni og fréttaskýrendur segja
þetta mikilvægan stjórnmálasigur
fyrir Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seta og stjórn hans. Deilur hans og
þingsins um fjárlagafrumvarpið
hafa staðið í háíft ár og vom um
tíma taldar stefna stjórn hans í
hættu.
Segja stjómmálaskýrendur sam-
þykktina til marks um að Jeltsín
viti hvaða tökum eigi að taka þing-
ið og að kommúnistar, sem em fjöl-
mennasti flokkurinn á þinginu, hafi
ekki náð neinum mikilvægum bar-
áttumálum sínum fram.
Fjárlagaframvarpið fer nú fyrir
efri deild, þar sem sitja hópar
áhrifamikilla héraðsleiðtoga, áður
en það kemur fyrir forsetann til
undirritunar. Viktor Tsjemómýr-
din forsætisráðherra gaf í skyn að
hann teldi ólíklegt að tillagan
myndi mæta hindmnum héðan af.
-----------------
Norðmenn
draga úr
olíuvinnslu
Ós!ó. Morgunblaðið.
NORSKA ríkisstjórnin hefur
ákveðið að draga mjög úr fram-
kvæmdum við olíu- og gasbomnar-
palla í Norðursjó til að komast hjá
ofþenslu. Verður fjárfestingum í
tólf verkefnum, sem hefja átti á
þessu ári, frestað til ársins 1999.
Er Marit Arnstad, olíu- og orku-
málaráðherra, kynnti málið á Stór-
þinginu í gær sagði hún að frestað
yrði fjárfestingum fyrir sem svarar
til 52 milljarða ísl. kr. árið 1998 og
115 milljarða árið 1999.
Reuters
Fórnarlömb Kosovo-átaka syrgð
TVEIR Kosovo-Albanir standa við grafir ættingja og vina sem um
helgina létu lífíð í áhlaupi serbneskra lögreglusveita nærri þorpinu
Likosane, um 40 km sunnan héraðshöfuðborgarinnar Pristina.
Herskáir aðskilnaðarsinnar í „Frelsisher Kosovo“ sóru þess eið í yfir-
lýsingu í gær að hefna „saklausra fórnarlamba“ átakanna og í gær-
kvöld var skotið tvisvar á serbneska lögreglumenn í Pristina.
Neyðarfundur „samskiptahópsins“ vegna ólgu í Kosovo
Hernaðarflilutun
sögð fliugimarverð
London, Washington. Reuters.
BANDARÍKJAME NN era reiðu-
búnir að íhuga hemaðaríhlutun í
Kosovo-héraði í Serbíu, ef pólitískur
þrýstingur á serbnesk stjómvöld til
að draga úr spennu í héraðinu skyldi
ekki skila árangri. Petta sagði Ro-
bert Gelþard, sérlegur erindreki
Bandaríkjastjómar í Bosníu, í gær.
Utanríkisráðherrar stórveldanna
sex, sem mynda saman samskipta-
hópinn svokallaða sem hefur haft
mest afskipti af málefnum lýðvelda
gömlu Júgóslavíu, vora í gær boðað-
ir til neyðarfundar vegna Kosovo-
ástandsins næsta mánudag.
Gelbard sagði að samskiptahóp-
urinn - sem Bandaríkin, Rússland,
Bretland, Frakkland, Pýzkaland og
Italía eiga aðild að - kynni að hóta
Júgóslavíu, sambandsríki Serbíu og
Svartfjallalands, nýjum refsiað-
gerðum ef Slobodan Milosevic for-
seti gripi ekki til viðeigandi ráðstaf-
ana til að draga með friðsamlegum
hætti úr spennu í héraðinu, þar sem
Serbíustjórn
hótað nýjum
refsiaðgerðum
yfirgnæfandi memhluti íbúanna er
af albönsku bergi brotinn.
Að sögn brezkra stjórnarerind-
reka verður þetta í fyrsta sinn sem
ráðherrar hópsins koma saman til
neyðarviðræðna frá því borgara-
stríðinu í Bosníu lauk 1995. Þetta er
til merkis um hversu mikil alvara er
talin vera á ferðum í Kosovo, í ljósi
atburða síðustu daga.
Vestræn ríki hafa fordæmt of-
beldi sem serbneska lögreglan
beitti mótmælendur í Kosovo um
síðustu helgi og kostaði 24 Kosovo-
Albani lífið.
Fjórir lögreglumenn létu lífið í
átökum, sem stjórnvöld í Serbíu
kenna herskáum aðskilnaðarsinnum
í „Frelsisher Kosovo“ um að hafa
átt upptökin að. Aðskilnaðarsinnar
sóra þess eið í yfirlýsingu í gær að
hefna „saklausra fómarlamba"
átakanna.
Bandaríkin og Evrópusambandið
(ESB) hafa varað Milosevic við því
að hann hætti á að kalla yfir sig
harðari refsiaðgerðir ef hann velur
að reyna að beita hörðu til að bæla
niður óánægju albanskra íbúa
Kosovo.
Mælt með sjálfsforræði
en ekki sjálfstæði
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði í gær að hann
hygðist hvetja Milosevic til að veita
íbúum héraðsins meira sjálfsfor-
ræði. Cook tjáði fréttamönnum í
Sarajevo, þar sem hann var á ferð í
hlutverki forseta ráðherraráðs Evr-
ópusambandsins, að ESB styddi
aukið sjálfsforræði Kosovo-héraðs
innan Serbíu, en væri mótfallið því
að það hlyti fullt sjálfstæði.
Reuters
Sprg á
N-írlandi
NORÐUR-írskur lögreglumaður
leiðir syrgjandi vin Damiens Tra-
inors og Philips Allens að staðn-
um þar sem tvímenningarnir
vorú myrtir í fyrrakvöld, á krá í
bænum Poyntzpass. Lögreglan
telur að sambandssinnar séu
ábyrgir fyrir ódæðisverkinu, sem
er það nýjasta í röð morða sem
öfgamenn úr röðum andstæðra
fylkinga á Norður-frlandi hafa
framið frá áramótum.
■ Óhug slær á/26
Arfberi reykinga-
nautnar fundinn?
Houston. Reuters.
REYKINGAFÓLK sem ekki
getur hætt að reykja kann að
hafa í sér gen, eða arfbera, sem
veldur því að reykingarnar eru
því svo mikil nautn að það getur
ekki yfirunnið löngunina, að því
er bandarískir læknar greindu
frá í vikunni.
Þessi uppgötvun kann að vera
skýring á því hvers vegna sumu
fólki veitist auðveldara en öðru
að hætta að reykja, segir Marg-
aret Spitz, yfinnaður faraldurs-
fræðideildar M.D. Anderson-
krabbameinsmiðstöðvarinnar í
Houston í Texas.
Hún sagði að þeir sem hefðu
umrætt gen fyndu til meiri
nautnar er þeir reyktu. „Þeir
njóta þess meir og það reynist
þeim erfiðara að hætta.“ Um-
rætt gen er að finna í um tíu af
hundraði allra einstaklinga og í
um 30% af þeim sem reykja,
samkvæmt niðurstöðum þriggja
ára rannsókna er unnar voru við
M.D. Anderson-miðstöðina.
Spitz sagði að genið stýrði því
hvernig nikótín yki losun boð-
efnisins dópamíns, sem flytur
boð milli taugafrumna í heilan-
um. Nikótín, áfengi, kaffi og
ýmis lyf, auk fleiri þátta, auka
nautn með því að ýta undir
dópamínframleiðslu.
Þetta sama gen, sem virðist
eiga stóran þátt í nikótínfíkn,
býður heim öðram fíknum, að
sögn Spitz. Það er talið tengjast
eiturlyfjafíkn, áfengissýki og
offítu.
Spitz sagði ennfremur að frek-
ari rannsókna væri þörf til þess
að staðfesta niðurstöðurnar.