Morgunblaðið - 05.03.1998, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Lá við
köfnun
vegna
sælgætis
STÓRT hlaupkennt sælgæti
varð átta ára gömlum dreng á
Akureyri næstum að aldurtila
þegar það festist í koki hans
um síðustu helgi. Sælgætið
fæst meðal annars í Nóatúns-
verslunum og sagði Júlíus Þór
Jónsson í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að hann
myndi þegar taka það úr hill-
um verslananna.
Atburðurinn átti sér stað á
heimili piltsins og tókst for-
eldrum hans með snarræði að
bjarga lífi drengsins. Skipti
sköpum að þau kunnu rétt við-
brögð til að fjarlægja hlutinn
úr koki hans. Var drengurinn
orðinn blár í andliti og hættur
að geta andað þegar foreldrun-
um tókst að losa aðskotahlut-
inn.
Eitt til þijú tilfelli á ári
Að sögn Herdísar L.
Storgaard, barnaslysavarna-
fullrúa hjá Slysavarnafélagi ís-
lands, var sælgætið í laginu
eins og hamborgari, fimm sinn-
um fimm og hálfur sentimetri
að stærð. Hún sagði þetta ekki
í fyrsta skipti sem slíkt sæl-
gæti stæði í ungu barni, u.þ.b.
eitt til þrjú tilfelli kæmu upp á
ári hverju. Herdís benti á að
svokölluð víngúmmi væru oft
og tíðum alltof stór íyrir ung
böm sem gætu átt í vandræð-
um með að tyggja þau og
þannig myndist talsverð hætta
á köfnun ef sælgætið leggst yf-
ir öndunarop barns.
A markaðnum nú eru t.a. m.
um 17 sentimetra langir sæl-
gætiskrókódílar og eins eru
svonefnd „spælegg" afar stór.
Matvælasvið Hollustuvemdar
ríkisins hefur engar reglugerð-
ir til að styðjast við hvað stærð
sælgætis varðar að sögn Her-
dísar og kvað hún það áhyggju-
efni enda væri „bland í poka“
til í hverjum stórmarkaði og
oft í miklu úrvali. Mikilvægt
væri þess vegna fyrir foreldra
að átta sig á hættunni sem fyr-
ir hendi væri.
Stefnt að sameiningu bankaeftirlits og vátryggingaeftirlits
Ný stofnun annist opin-
bert fj ármálaeftirlit
FINNUR Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, hyggst nú í vik-
unni leggja fram í ríkisstjóm frum-
varp til laga um opinbert eftirlit
með fjármálastarfsemi. Er í því
gert ráð fyrir að eftirlit sem nú fell-
ur undir bankaeftirlit Seðlabankans
og Vátryggingaeftirlitið verði í
höndum nýrrar stofnunar, Fjár-
málaeftirlitsins. Þetta kom fram í
ræðu sem Finnur hélt á aðalfundi
Sambands íslenskra tryggingarfé-
laga í gær. Finnur sagði að Fjár-
málaeftirlitið yrði sjálfstæð ríkis-
stofnun með sérstaka stjóm en það
myndi heyra stjómskipulega undir
viðskiptaráðherra. Gert sé ráð fyrir
að náin samskipti verði milli Fjár-
málaeftirlitsins og Seðlabankans
þannig að stofnanimar hafi stuðn-
ing hvor af annarri og að komið
verði í veg fyrir tvíverknað. Hann
sagði að í frumvarpinu væri gert
ráð fyrir sérstakri kæmnefnd sem
skjóta megi ákvörðunum fjármála-
eftirlitsins til. Öllum eftirlitsskyld-
um aðilum verði gert að greiða
kostnað af eftirlitinu með svipuðum
hætti og vátryggingafélögin geri
nú.
Finnur sagði að markmiðið væri
að frumvarpið yrði lagt fyrir Al-
þingi nú á vorþingi og nái það fram
að ganga ætti hin nýja eftirlitsstofn-
un að geta tekið til starfa í byrjun
næsta árs.
Féll 15
metra í
Esjunni
26 ÁRA maður féll 16 metra
eftir að festingar gáfu sig, þar
sem hann var við ísklifur í
Kistufelli í Esju síðdegis í gær.
Tilkynnt var um slysið til
lögreglu og slökkviliðsins í
Reylqavík og fóru lögregla og
björgunarsveit slökkviliðsins á
vettvang. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar var í viðbragðs-
stöðu, þar sem talið var að
maðurinn væri lær- og
mjaðmagrindarbrotinn.
Rétt eftir kl. 18 komu björg-
unarmenn á staðinn og var
þyrlan þá afpöntuð.
Morgunblaðið/Aðalheiður
MIKIÐ brak er enn í fjörunni þar sem Víkartindur strandaði, en hins vegar er ekki mikið eftir í flæðarmálinu af hinum 130 metra langa skips-
skrokki sem Iá þar fyrir ári. Það er mikið verkefni að búta allt járnið í smátt með kraftmikilli klippu.
Hrossasóttin breiðist hratt út
Eitt ár frá strandi
Víkartinds
HALLDÓR Runólfsson yfirdýra-
læknir hélt í gær fund með dýra-
læknum um sjúkdóminn, sem herj-
að hefur á hesta á suðvesturhominu
að undanfómu. Á fundinum kom
fram að veikin væri bráðsmitandi
og ekki hefði enn tekist að greina
orsakir hennar þrátt fyrir ítarlegar
rannsóknir.
Veikin er nú komin í öll hesthúsa-
hverfi á höfuðborgarsvæðinu auk
þess sem hún hefur greinst í hest-
húsunum á Selfossi og Akranesi. Þá
hafa komið upp tilfelli á fjómm bæj-
um í Ölfushreppi síðustu daga auk
þess sem útigangshross þar hafa
veikst. „Yfirleitt veikjast eitt, tvö
eða þrjú hross fyrsta daginn og svo
helmingi fleíri næsta dag,“ segir
Sigurður Ingi Jóhannsson, dýra-
læknir á Suðurlandi. „Ekki er vitað
um smitleiðir í öllum tilfellum en
oftast virðist smit hafa borist með
fólki.“
Breiðist hratt út
á Akranesi
Á Akranesi breiðist veikin hratt
út. „Það varð mikil sprenging um
síðustu helgi, viku eftir að veikin
kom fyrst upp,“ segir Gunnar Guð-
mundsson, dýralæknir á Hvanneyri.
„Hún virðist þó vera einangruð í að-
alhesthúsahverfinu og ekki er vitað
til þess að hún hafi komið upp ann-
ars staðar í umdæminu."
í yfirlýsingu yfirdýralæknis, frá
því í gær, kemur fram að á næstu
dögum muni höfuðáhersla verða
lögð á að hindra það að veikin berist
út fyrir þau svæði sem hún herji nú
á og að lögreglan hafi verið beðin
um að fylgjast með því að bann við
flutningi hrossa milli hesthúsa, lög-
býla og landshluta verði virt.
Hellu. Morgunblaðiö.
EITT ár er í dag liðið frá því að
flutningaskipið Víkartindur
strandaði í aftakaveðri á Háfs-
fjöru. Enn eru starfsmenn Hring-
rásar við vinnu við niðurrif og
brottflutning á flaki skipsins.
Að sögn Heimis Hafsteinssonar
oddvita í Djúpárhreppi hefur þetta
ár sem liðið er frá strandinu verið
lærdómsríkt fyrir sljórnsýsluna,
„alveg frá neðsta þrepi og uppúr“,
segir Heimir.
„Þetta hefur þó verið heldur
dýrmæt reynsla bæði í mannslífum
og peningum. Eftir því sem ég best
veit var í kjölfar strandsins skipuð
nefnd til að endurskoða 70 ára
gömul lög um skipsströnd og vog-
rek og hlýtur það að hafa verið
meira en tímabært. Mér er efst í
huga feginleiki yfir að þetta ár er
nú liðið og við sjáum senn fyrir
endann á þessu erfíða máli. Menn
óttuðust mest um tíma að olía
myndi menga strandlengjuna en
sem betur fer varð það ekki og
tekist hefur að koma í veg fyrir
sjónmengun á ströndinni. Það sem
ekki tókst að fjarlægja hefur aldan
grafið í sandinn," segir Heimir
Hafsteinsson.
Á vegum endurvinnslufyrirtæk-
isins Hringrásar hafa 2-6 starfs-
menn verið við niðurrif á Háfs-
fjöru frá síðasta sumri. Sveinn Ás-
geirsson framkvæmdastjóri telur
að þegar hafi um tvö þúsund tonn
verið brytjuð niður og flutt á
brott. „Við erum með öfluga gröfu
á staðnum sem klippir stórar ein-
ingar með þúsund tonna afli.
Stykkjunum er hlaðið á vagna í
ijörunni sem jarðýta dregur síðan
upp að vegi þar sem bílar taka við
°g flytja þau til Reykjavíkur. Sumt
er unnið áfram í höfuðstöðvum
Hringrásar, en stálið þarf að
hreinsa af aðskotaefnum og brytja
niður í svokallaðar ofnastærðir,
þ.e. að það sé tilbúið f bræðsluofna
þegar það kemur til kaupenda er-
lendis," segir Sveinn.
„Þó að tvö þúsund tonn séu þeg-
ar farin eru enn um eitt þúsund
tonn eftir sem við reiknum með að
ljúka vinnslu á eftir tvo mánuði.
Vinnan gengur mjög hægt núna
vegna kuldans og erfitt er að láta
tækin ganga í þessum brunagaddi.
Þá varð einnig um tveggja mánaða
töf hjá okkur í haust þegar kvikn-
aði í gröfu á sandinum og hún
gjöreyðilagðist. Hún stendur
þarna enn og ég býst við að örlög
hennar verði þau sömu og Víkar-
tinds,“ segir Sveinn Ásgeirsson.
Átök í Framsóknar-
flokknum á Akureyri
Á FUNDI fulltrúaráðs Framsóknar-
flokksins á Akureyri í gærkvöldi var
deilt um tillögu uppstillingamefndar
og varð niðurstaðan sú að Sigfríður
Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi, sem
ekki var á listanum, verður í þriðja
sæti listans.
Sigfríður bauð sig fram gegn Val-
tý Sigurbjömssyni, forstöðumanni
Byggðastofnunar á Akureyri, sem
átti að vera í sætinu samkvæmt til-
lögunni, og vann naumlega í at-
kvæðagreiðslu.
Oddur Halldórsson bæjarfulltrúi
bauð sig fram í annað sæti gegn
Ástu Sigurðardóttur bæjarfulltrúa,
sem uppstillingarnefnd hafði sett í
það sæti. Beið Oddur lægri hlut og
munaði nokkru að hann næði að fella
Ástu.
Jakob Björnsson bæjarstjóri var í
fyrsta sæti samkvæmt tillögu nefnd-
arinnar og var enginn ágreiningur
um það. í fjórða sæti listans verður
Elsa Friðfínnsdóttir lektor og Guð-
mundur Ómar Guðmundsson, for-
maður Félags byggingarmanna í
Eyjafirði, í því fimmta.