Morgunblaðið - 05.03.1998, Page 8

Morgunblaðið - 05.03.1998, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR í GUÐSBÆNUM reyndu að koma þessu nýja gæludýri þínu í skilning um að ég er ekki einn úr fjölskyldunni. .. Hæst leikskólagjöld á Húsavík Eng*ir biðlistar og heit- ur matur í hádeginu KYNNTAR hafa verið niðurstöður könnunar sem gerð var á vegum samstarfsverkefnis NS, ASÍ og BSRB um leikskólagjöld í stærri sveitarfélögum landsins. Leikskólagjöld á Húsavík reynd- ust hæst hvort sem um var að ræða vistun fyrir böm forgangshópa eins og einstæðra foreldra eða böm hjóna og sambúðarfólks. Næsthæst reyndist verð á leik- skólagjöldum á Akiu-eyri. Berglind Svavarsdóttir er for- maður leikskólanefndar Húsavík- urkaupstaðar. Hún bendir á að í könnuninni hafi ekki verið gefnar upp réttar upplýsingar að því leyti að ekki er boðið upp á 8 tíma vistun á Húsavík. „Það gjald sem gefið er upp fyrir átta tíma vistun í könnun- inni er fyrir níu tíma vistun og sé tekið mið af því verður Húsavík með næsthæsta verðið fyrir níu tíma vistun í stað þess að vera með hæsta verðið.“ Hún bendir á að ef fólk er með bömin sín í 6 tíma vistun í Bjama- húsi, þar sem ekki er heitur heimil- ismatur eins og í hinum leikskólan- um Bestabæ, lækki gjaldið og upp- hæðin nemi 14.100 krónum í stað 14.700 króna. Berglind segir nauðsynlegt að taka tillit til þjónustu þegar könn- un sem þessi er framkvæmd. „Hér á Húsavík eru engir biðlistar eftir leikskólaplássi og við eram að taka við bömum frá sex mánaða aldri. Þá er afar mismunandi hvemig fæði er boðið upp á á leikskólum. Um síðustu áramót gerðum við stórfelldar breytingar hér á Húsa- vík hvað þetta snertir, felldum nið- ur nesti og sjáum alfarið um alla hressingu fyrir börnin. Við bjóðum m.a. upp á heitan heimilismat í há- deginu fyrir þau böm sem era í heilsdagsvistun. Þá má geta þess að það er stefna Húsavíkurkaupstaðar að foreldrar taki þátt í að greiða að minnsta kosti 40% kostnaðar við leikskólavistun barna sinna. Um þessar mundir greiða foreldrar því sem samsvarar 41,6% kostnað- arins.“ Sigríður Síta Pétursdóttir, deild- arstjóri leikskóladeildar Akureyr- arbæjar, segir að verðskránni hafi verið breytt 1. febrúar síðastliðinn. Þá hækkuðu leikskólagjöld um 10% og fæði um 5%. Hún segir að sá systkinaafslátt- ur sem tekið hafi gildi 1. febrúar síðastliðinn gildi um leikskólabörn og einnig um börn í grannskóla- vistun. „I kjölfar þessara breytinga 1. febrúar var ákveðið að leggja fram tillögur til breytinga á gjaldskrá í leikskólum Akureyrar sem fela í sér aukinn afslátt fyrir einstæða foreldra, foreldra í námi svo og aukinn systkinaafslátt," segir Sig- ríður. Laxasalat, 140 ml Newmans Say Cheese Ysu naggar, 370 gr pastasósa, 397 gr Allir dagar eru tilboðsdacjar hjá okkur NI HEIM • UM LAND ALLT Framadagar 1998 Efla tengsl milli atvinnulífs o g háskólans Helgi Eysteinsson AIESEC, alþjóðleg samtök viðskipta- og hagfræðinema standa þessa dagana fyrir svokölluðum Framadög- um í Háskóla íslands. Þeir hófust með hádegis- fyrirlestri síðastliðinn þriðjudag en á morgun, föstudag, er hápunktur Framadaga. Helgi Ey- steinsson er formaður framkvæmdanefndar Framadaga. - Hvað eru Framadag- ar? „Framadagar eru at- vinnulífsdagar Háskóla íslands og þeim er ætlað að efla tengslin milli há- skólans og atvinnulífsins í formi fyrirlestra og í formi samskipta sem eru á heimavelli nemenda, að þessu sinni í Þjóðarbókhlöðunni. Það hefur lengi verið eitt helsta vandamál Háskólans hversu lítil tengsl era milli nem- enda og atvinnulífsins. Nemend- ur fá litlar upplýsingar um þær væntingar og kröfur sem fyrir- tæki gera til þeirra, t.d. hvers konar menntun fyrirtækin eru að sækjast eftir, hvar liggja starfs- möguleikar stúdenta og hvemig nýtast hæfileikar þeirra best. Þetta eru dæmi um spurningar sem upp koma í huga ungra námsmanna." - Hafa Framadagar verið ár- viss viðburður? „Þetta er í fjórða skipti sem Framadagar eru haldnir hér á landi. Fyrirmyndin er erlend, komin frá alþjóðasamtökunum AIESEC en meðlimir þeirra hafa fram að þessu staðið fyrir slíkum dögum í fjölmörgum aðildarlönd- um.“ - Geta nemendur líka leitað að vinnu á Framadögum? „Já Framadagar era líka nokkurskonar ráðningardagar. Nemendur koma með upplýsing- ar um sig og era svona öðrum þræði í atvinnuleit. Það má líka koma fram að fyrirtækin hafa með hverju árinu nýtt sér þann möguleika í auknum mæli að ráða fólk í vinnu á Framadög- um.“ Helgi segir að auk þess sem nemendur geti leitað sér að vinnu þennan dag þá sé ver- ið að stuðla að al- mennri kynningu á at- vinnulífinu og einnig námi við háskólann þannig að nemendur geti skipulagt námið sitt mark- vissar og leitað eftir því hvaða kröfur eru gerðar til þeirra." - Hverskonar fyrirtæki hafa undanfarin ár leitað eftir starfs- fólki á Framadögum? „Um 40 fyrirtæki kynna starf- semi sína að þessu sinni og um helmingur þeirra hefur verið áð- ur á Framadögum en hinn helm- ingurinn er nú í fyrsta skipti að kynna starfsemi sína. Þau fyrir- tæki sem að þessu sinni ber mest á eru bankar og fjármálastofnan- ir, íslensk erfðagreining verður líka með kynningu á sinni starf- semi og síðan era ýmis hugbún- aðar- og tölvufyrirtæki áber- andi.“ Helgi segir að margir nemend- ur séu þennan dag að leita eftir því við iyiirtæki hvort áhugi sé á því að láta vinna fyrir sig verk- efni sem nemendur gætu unnið sem lokaverkefni við skólann. ► Helgi Eysteinsson er fædd- ur í Reykjavík árið 1976. Hann er á öðru ári í viðskiptafræði við Háskóla íslands. Helgi er í sljóm íslandsdeildar AIESEC sem em alþjóðleg samtök við- skipta- og hagfræðinema og hann er formaður fram- kvæmdanefndar Framadaga. Helgi er ókvæntur og barn- laus. - Deildir innan háskólans kynna líka starfsemi sína á Framadögum? „Já bæði kynna ýmsar deildir innan Háskólans það sem þær hafa fram að færa, td. möguleika til frekara náms eins og meist- aranáms. Einnig er til dæmis al- þjóðaskrifstofa háskólastigsins með kynningu á sinni starfsemi, svo og Sammennt sem stuðlar að erlendum nemendaskiptum. Þá verða möguleikar á framhalds- námi erlendis líka kynntir þenn- an dag í Þjóðarbókhlöðunni.“ - Hafa margir sótt Fi-amadaga til þessa? „í fyrra heimsóttu um 2.000 nemendur Framadaga og með hverju árinu eykst sá fjöldi sem kemur. í ár höfum við kynnt þessa daga rækilega og vonumst til að það skili árangri og mæt- inging verði betri en nokkru sinni.“ Helgi bendir á að þrátt fyrir að Framadagar séu skipulagðir af viðskipta- og hagfræðinemum era þessir Framadag- ar ætlaðir öllum nem- endum Háskólans. „Fólk sem hugsar sér til hreyfings á at- vinnumarkaði og er með háskólamenntun getur líka notið góðs af þessum dögum því þarna er hægt að kynna sér starfsemi fjölda fyrirtækja sem eru undir sama þaki með kynn- ingu.“ Þið gáfuð út hand- bók af þessu tilefni. „I tengslum við Framadaga gefum við út handbók þar sem hvert fyrirtæki hefur eina opnu til að kynna starfsemi sína. Við komum á framfæri við forsvars- menn fyrirtækjanna stöðluðum spurningum þar sem spurt var um fyrirtældð, starfsfólk þess og nýráðningar undanfarin ár. Einnig var beðið um að áherslur fyrirtækja í ráðningarmálum væra tíundaðar. Svör við þessum spurningum er að finna í bókinni. Handbókin liggur frammi í Þjóðarbókhlöðunni á morgun og er ókeypis fyrir gesti Frama- daga.“ Nemendur leita að vinnu á Framadögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.