Morgunblaðið - 05.03.1998, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 9
FRÉTTIR
Hvalfj ar ðargöngin
8-9 mánuðum á
undan áætlun
Sundabraut
/
Möguleik-
ar á fjár-
mögnun
kannaðir
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að fela borgarverkfræð-
ingi að vinna greinargerð um
helstu möguleika hvað varðar
fjármögnun, áfangaskiptingu
og rekstur Sundabrautar.
í tillögunni er gert ráð fyrir
að óskað verði eftir samvinnu
við Vegagerðina um greinar-
gerðina og er stefnt að því að
leggja hana fram um leið og
tillögur um legu Sundabrautar
á miðju þessu ári.
I bókun borgarráðsfulltrúa
Sjálfstæðisflokks segir að
þeir geti mjög vel fallist á
þessa útvíkkun á tillögu sjálf-
stæðismanna um könnun á
einkaframkvæmd við Sunda-
braut. Sjálfsagt sé að leita
allra leiða til að flýta þessu
brýna hagsmunamáli allra
borgarbúa.
(ilæsileiiur höliiðlíiliiaður
lyrir íslenskl veðmfar
LTIVISTAHIÍÍWIIX
við Umferðarmiðstöðina,
símar 551 9800 og 551 3072.
FRAMKVÆMDIR við Hvalfjarð-
argöng eru átta til níu mánuðum á
undan áætlun og ráðgert er að
fyrstu bílar fari löglega um göngin
í júlí næstkomandi. Jóhann
Kröyer, yfírverkfræðingur og ör-
yggisfulltrúi Fossvirkis, segir að
nú sé verið að steypa upp ganga-
skálann að norðanverðu og leggja
raf- og drenlagnir í sunnanverðum
göngunum.
Búið er að steypa fjórar einingar
áf sex í steypuskálanum og ráðgert
að verldnu verði að fullu lokið í lok
mars. í næstu viku verður líklega
lokið við að koma lögnunum fyrir í
sunnanverðum göngunum.
Einnig er verið að aka inn efni í
veginn og búið er að steypa fjórar
spennistöðvar í göngunum. Göng-
unum er skipt í fjögur öryggis-
svæði og er einn spennir á hverju
svæði. Verið er að koma fyrir
vatnsvörn í göngunum, annars veg-
ar dúkvörn og hins vegar frauð-
plasti sem sprautað er á veggi með
sprautusteypu.
I lok mars er áætlað að hefja
malbikun á neðra lagi í göngunum
sunnanverðum.
Jóhann segir að það sé mjög
hart tekið á óleyfílegi’i umferð um
göngin. „Við kærum menn til lög-
reglu ef þeir brjótast hér í gegn.
Þessi umferð er stórhættuleg
mönnum sem eru að vinna í skurð-
um og í loftum í göngunum þar
sem lýsing er takmörkuð. Við ætl-
um að stöðva þetta því við verðum
að fá vinnufrið," sagði Jóhann.
Árshátíbir, starfsmannahópar, fundir, rábstefnur, afmæli, brúbkaup,
jóiahlabborb, fermingar... - Veislusalir fyrir allt ab 350 manns.
Veisluhöld allt árið
Skíðaskálinn Hveradölum
Veitingahús og veisluþ/ónusta frá 1935. Boröapantanir í síma 567-2020, íax 587-2337.
Helgartilboð
á leðurtöskum, leðurhönskum,
ferðatöskum og seðlaveskjum úr leðri.
Allt að 30% afsláttur
Skólavöröustíg 7, 101 Rvík. sími 551-5814. Oplö laugardaglnn 7. mars frá 10-17.
Hisjakkar
Flísjakkar úr gæða Arctic-flísefni sem hnökrar ekki
Stærðir S-XXL. Litir: Grænt, gult, rautt og blátt.
Frábært verð, aðeins 3.968- allar stærðir.
SENDUM UM ALLT LAND
Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855 og 800-6288. Opið virka daga 8-18 og laugard. 10-14.
Ljósaknnmir
Ikonar
Hffft
-3iofnnð munít
Urval fallegra muna
Antík nnurdr, Klapparstíg 40, síni 552 7977.
Skildu
%5*
CLINIQUL
100% ofnæmisprófað
Handhægur á allan máta, nýi snjalli
varaliturinn frá Clinique sem þekkir sinn
stað... og situr þar.
Fastheldinn, alltaf sem nýr og ferskur.
Rennur létt á. Mjúkur, fallegur og
óhagganlegur. Nógu vel uppalinn til að
skilja ekki eftir far á bollanum. Eða
kraganum. Fáanlegur í 10 eftirsóttum
litum, allt frá Ijósum litum til djúpra
berjabrúnna tóna.
' Superlast Cream Lipstick kr. 1350.
Fáðu einnig að heyra um
Quickliner for Lips, kr. 1185.
Nýjasta aðferðin til að draga fram línur
varanna.
Fastheldinn, sjálfvirkur varablýantur.
Ráðgjafi frá Clinique verður í
Snyrtivöruverslun Söru, Bankastræti 8,
í dag og á morgun.
<5ara
sími 551 3140
SKÓR frá
Cinde^ella