Morgunblaðið - 05.03.1998, Side 12

Morgunblaðið - 05.03.1998, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ fl FRÉTTIR Morgunblaðið/Golli INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigðisráðherra vísar fulltrúum heilsugæslulækna tii sætis, þeim Katrínu Fjeldsted, formanni Félags heimilislækna, og Valþóri Stefánssyni varaformanni. Heilbrigðisráðherra segir að læknar hafí hafnað valfrjálsu stýrikerfi Höfum staðið við stefnu um uppbyggingu heilsugæslu INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigðisráðherra segir að hún hafí staðið við alla þætti stefnu- yfirlýsingar um uppbyggingu í heilsugæslunni sem birt var um mitt ár 1996. Pað eina sem ekki hafi gengið eftir sé um að koma á val- frjálsu stýrikerfi og það sé vegna andstöðu lækna, en víðtæk sátt um þetta kerfi hafí ver- ið forsenda fyrir því að koma því á. • Heilbrigðisráðherra setti fram stefnu um uppbyggingu heilsugæslukerfisins í 21 lið um mitt ár 1996. Fyrsti liðurinn var um val- frjálst stýrikerfí. Hugmynd um kerfið er sótt til Danmerkur þar sem það hefur verið not- að. Kerfið var hugsað þannig að einstakling- ar krossi við ákveðinn reit á skattframtalinu, sem feli í sér samþykki að greiða upphæð, sem rætt var um að yrði 1.200-1.500 kr. Þetta feli í sér tryggingu um ókeypis þjón- ustu hjá heilsugæslulæknum og afslátt hjá sérfræðingum, þurfi þeir á aðstoð að halda. Fólk getur einnig ákveðið að standa utan við þessa valmöguleika og greitt fyrir hverja heimsókn til læknis, en fær þá ekki afslátt sem er í boði. Hugmyndin var að beina fólki til heilsugæslunnar, en þó án þess að þvinga það til þess. Læknar höfnuðu kerfínu á aðalfundi 1996 Heilbrigðisyfirvöld áformuðu að koma val- frjálsu stýrikerfi á í upphafi árs 1997. Ingi- björg sagði að í stefnuyfiriýsingunni væri tek- ið fram að forsenda fyrir því að koma þessu kerfi á væri að um það tækist víðtæk sátt meðal lækna. Samþykkt hefði verið á ályktun á aðalfundi Læknafélagsins haustið 1996 þar sem lýst var yfir andstöðu við valfrjálst stýri- kerfi. Þess má geta að margir heilsugæslu- læknar studdu ályktunina. Ingibjörg sagði að heilbrigðisráðuneytið teldi það grundvallaratriði að um þetta náist víðtæk sátt. Ráðuneytið hefði tekið þetta mál upp við Læknafélagið með reglulegu millibili og myndi áfram ræða þessa tillögu við lækna. Hún benti á að frekari uppbygging heilsu- gæslunnar væri hins vegar forsenda fyrir því að hægt væri að koma þessu kerfi á því það myndi beina fleiri sjúklingum til þess. „Þessi stefnuyfirlýsing er tveggja ára göm- ul og í mörgum atriðum erum við komin miklu lengra varðandi framkvæmd stefnunnar en við þorðum að vona þegar við lögðum hana fram. Ég hef staðið við öil atriði samkomu- lagsins. Það eina atriði sem stendur út af var bundið því að um það næðist samkomulag," sagði Ingibjörg. Uppbygging og fjölgun lækna Ingibjörg benti á að uppbygging heilsu- gæslunnar væri í fullum gangi og þegar væri búið að taka ákvarðanir um framkvæmdir í heilsugæslunni um 600-700 milljónir. Einnig hefði verið staðið við yfirlýsingar um fjölgun lækna og þeim hefði fjölgað hraðar en upphaf- lega var ráðgert. Ingibjörg sagði það fagnaðarefni að kjara- neftid hefði lokið við það verkefni að úrskurða um laun heilsugæslulækna. Ráðuneytið ætti eftir að skoða úrskurðinn betur, en hún sagð- ist vera ánægð með að í honum væri staða lækna í einmenningsumdæmum bætt því þar hefðu verið mestir erfiðleikar við að fá lækna til starfa. Finn velvild í garð heilsu- gæslunnar hjá ráðherra Katrín Fjeldsted neitar því að læknar hafí hafnað val- frjálsu stýrikerfí KATRÍN Fjeldsted, formaður Félags heimilislækna, hafnar því að læknar hafí með samþykkt sinni í september 1996 sett sig upp á móti valfrjálsu stýri- kerfí í heilsugæslunni. Nokkur atriði hafí að vísu valdið óánægju sumra lækna og því hafí kerfínu verið hafnað „í óbreyttri mynd“. Hins vegar telur Katrín að ekki þurfí að gera miklar breytingar á kerfínu til að læknar geti sætt sig við það: „Þannig að ég lít alls ekki svo á, eftir að hafa setið umrædd- an fund, að valfrjálsu stýrikerfí hafí verið hafnað fyrir fullt og allt. Því fer Qarri.“ Farið yfír faglegu hliðina Um fundinn með heilbrigðisráðherra í gærmorgun sagði Katrín að hann hefði verið langur og afar ítarlegur. Þar hefði verið farið ofan í saumana á þeim málum sem snertu faglega hlið heilsugæslunnar og sagði Katrín að ýmislegt hefði komið sér skemmtilega á óvart: „Það sem ég get sagt á þessu stigi er fyrst og fremst mín skoðun, en eftir þennan fund í morg- un er ég þess fullviss að það er mikil vel- vild í ráðuneytinu í garð heilsugæslunn- ar.“ Katrín sagðist fínna raunverulegan áhuga á að standa við stefnuyfirlýsingu um uppbyggingu í heilsugæslunni og hún taldi að í raun væri ráðuneytið kom- ið lengra með að framfylgja stefnunni en hún hafði talið, enda hefðu á fundinum komið fram ýmis atriði sem henni var ekki kunnugt um að væru í undirbúningi í ráðuneytinu. „Það er í sjálfu sér fagn- aðarefni að skynja þessa afstöðu ráðu- neytisins til heimilislækna og heilsugæsl- unnar. Að sjálfsögðu eru ennþá óleyst mál en eftir því sem mér heyrist munu þau leysast." tírskurður kjaranefndar mál málanna Sljórn Félags heimilislækna kom saman í gærkvöldi til að íjalla um úrskurð kjara- nefndar og á föstudag verður haldinn fé- lagsfundur með læknum hvaðanæva af landinu. Katrín segir að ef í ljós komi að þorri lækna telji sig lækka í launum í kjölfar þessa úrskurðar sé það vandamál sem taka verði á strax með einum eða öðrum hætti. Mikil óánægja meðal skurðlækna með stöðu viðræðna við Tryggingastofnun ríkisins ‘ STEFÁN E. Matthíasson, skurð- læknir sem tekið hefur þátt í við- ræðum við samninganefnd Trygg- | ingastofnunar ríkisins, segir að skurðlæknar ætli á samningafundi í dag að leggja fram nýtt uppkast að samningi milli TR og skurðlækna. I Hann segir að ef það verði ekki til í þess að koma viðræðum af stað að nýju sé ekki um annað að ræða en i hætta þeim. Það sé ekki hægt að draga sjúklinga öllu lengur á svari. Læknar sem starfa innan hand- læknisgreina komu saman til fund- ar sl. þriðjudag og sagði Stefán að á fundinum hefði komið fram mjög mikil óánægja með gang samninga- viðræðnanna við Tiyggingastofnun. „Það hefur í gegnum tíðina alltaf ; verið gerður heildarsamningur um þessa starfsemi. Það gerðist núna að ákveðið var að fara út í sér við- ræður við hvern hóp fyrir sig, en það var alltaf ætlunin að gera rammasamning um almenn atriði samningsins þó gerður yrði sér- samningur um gjaldskrá í hverri sérgrein. Þetta er stefna sem stjórn Læknafélags Reykjavíkur hefur ekki breytt. Síðan hefur orðið ákveðin sundurþykkja í samninga- Leggja fram nýtt upp- kast að samningi í dag nefnd lækna og vissir aðilar í þess- ari nefnd hafa tekið ákvörðun um að breyta þessu ferh. Það er mikil óá- nægja með það. Ég legg ekki dóm á hvort þetta er löglegt, en mönnum finnst þetta bera vott um skort á fé- lagssiðferði að taka þetta ekki fyrir í Læknafélaginu." Var búið að handsala samning við skurðlækna Stefán sagði að fyrir tveimur vik- um hefði verið handsalaður samn- ingur milli samninganefndar TR og skurðlækna. TR hefði síðan gengið á bak orða sinna og dregið til baka Hluti sem var búið að ganga frá. Þetta samkomulag hefði falið í sér gjaldskrá fyrir almenna skurðlækna og æðaskurðlækna. í burðarliðnum hefði verið samkomulag fyrir þvag- færaskurðlækna og eymalækna, en um aðra þætti hefðu menn verið skemmra á veg komnir. Stefán sagði að skurðlæknar væru mjög óánægðir með að TR skyldu ekki hafa staðið við þetta samkomulag. Einnig væri óánægja með að for- maður samninganefndar sérfræð- inga skuli hafa hafa haldið því fram að himinn og haf væri á milli deilu- aðila þegar litlu munaði að samn- ingar tækjust. „Þetta samningaferli hefur verið með ólíkindum frá upphafí til enda. Það er búið að standa í 14 mánuði. Við skurðlæknar höfum þurft að sækja allt okkar með alveg ótrúleg- um tilkostnaði og vinnu. Það er búið að ganga að kröfum Trygginga- stofnunar í einu og öllu hvað varðar uppstokkun á gjaldskránni. Það bú- ið að gera nýja gjaldskrá. Það er búið að einfalda hana. Það er búið að gera reikningsmódel fyrir kostn- aði við rekstur skurðstofa og mót- töku sjúklinga. TR samþykkti þetta módel í upphafi, en þeir hafa verið að draga að sér höndina eftir því sem líður á viðræðumar. Það er bú- ið að reikna fram og aftur hvað þetta kemur til með að kosta stofn- unina og þá útreikninga höfum við þurft að gera. Gæti þýtt endalok almanna- tryggingakcrfísins Síðast í gærkvöldi sátum við og gerðum nýtt uppkast sem við leggj- um fyrir samninganefnd TR á morg- un [í dag]. Ég held að það verði okk- ar síðasta orð í þessu máli. Ef það verður ekki samningshljóð hjá okkar viðsemjendum á fundinum þá sé ég enga framtíð í að halda þessu áfram. Það er óréttlátt gagnvart þeim sjúk- lingum sem bíða í von um að það verði farið að endurgreiða reikninga. Fólk er búið að bíða í 6 mánuði og það verða að koma hrein skilaboð. Þetta er einnig farið að koma illa nið- ur á þessari starfsgrein. Menn hafa ekki getað planað eitt né neitt. Menn eru alltaf að búast við að það sé verið að semja, en síðan gerist ekkert. Þetta eru algerlega óeðlileg starfs- skilyrði. Eg tel persónulega að ef það verð- ur samið við sumar starfsgreinar en ekki aðrar sé það brot á stjómarskrá að mismuna sjúklingum eftir því hvaða sjúkdóm þeir hafa. Ég held að það þýði endalok þessa almanna- tryggingakerfis," sagði Stefán. Stefán sagði að þetta væri einnig alvarlegt fyrii- Læknafélagið. Það væri verið að etja saman sérgreinum og það gæti dregið dilk á eftir sér. Stjóm Læknafélags Reykjavíkur kom saman til fundar í fyrradag og var ákveðið að boða til félagsfundar, sem haldinn verður í kvöld. Fundar- efnið er staðan í viðræðum við Tryggingastofnun. -H

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.