Morgunblaðið - 05.03.1998, Side 30

Morgunblaðið - 05.03.1998, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Mótmæla kjaraskerðingu Reuters HVERGI miðaði í kjaradcilu op- inberra starfsmanna í Þýzka- landi í gær, en undanfama daga hafa þeir lagt áherzlu á kröfur sínar með skyndiverkföllum og kröfugöngum. Samningamenn verkalýðsfélaga opinberra starfs- manna sögðust í gær vera „mjög vonsviknir" yfir því sem samn- ingamenn ríkisins hefðu boðið í viðræðunum. Munu þeir hafa boðið 1,4% launahækkun en kröf- umar hljóða upp á 4,5% hækkun. Hér vekja þýzkir lögreglumenn athygli á óánægju sinni með gang mála með kröfuspjöldum af stærri gerðinni. Á spjaldinu stendur: „Hér vantar enn eitthvað!" Vísar spjaldið, sem er eftirlíking 100- marka seðils, til þess að kaup- máttur launanna hafi rýmað. <► - * Iransforseti Vill Banda- ríkjaher burt Tehran. Reuters. MOHAMMAD Khatami, for- seti Irans, sagði í gær að bandarísku hersveitimar á Persaflóa- svæðinu stefndu ör- yggi þess í hættu og krafðist þess að þær færu þaðan tafar- laust. Hin opin- bera fréttastofa írans, IRNA, hafði eftir forsetanum þegar hann ávarpaði íranska her- menn í borginni Ahvaz, í suð- urhluta írans, að bandarísku hersveitirnar væru móðgun við Persaflóaríkin þar sem þau væru fær um að tryggja ör- yggi svæðisins án afskipta annarra landa. Bar hann lof á íranska hermenn íyrir frammi- stöðu þeirra í stríðinu við írak á síðasta áratug. 36.000 bandarískir hermenn eru nú á svæðinu, helmingur þeirra um borð í um tólf her- skipum, þar af tveimur flug- móðurskipum. Khatami Uffe Ellemann-Jensen um ESB Vill afnema und anþágur Dana Esbjerg. Reuters. Spánn styður E SB aðild Tyrklands UFFE Ellemann-Jensen, leiðtogi stjómarandstöðunnar í Danmörku, sagði í gær að tæki hann við stjóm- artaumunum eftir komandi þing- kosningar myndi hann reyna að af- nema þær undanþágur sem Danir hafa samið um frá vissum þáttum Maastricht-sáttmála Evrópusam- bandsins, ESB. „Eg hyggst nýta fyrsta tækifærið sem gefst til að koma okkur út úr þessum undanþágum," tjáði Elle- mann-Jensen fréttamanni Reuters um borð í rútunni sem hann ferðast nú um í á kosningaferðalagi um landið. Danir kjósa nýtt þjóðþing 11. marz. Aðspurður að því hvort halda ætti þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Danmerkur að Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu, EMU, sagði hann að það væri sjálfsagt, ef skoð- anakannanir sýndu að meirihluti al- mennings væri á sömu skoðun og hann um þetta mál. Hann sagði að Danir ættu að gefa upp á bátinn allar fjórar undanþág- urnar sem þeim voru veittar frá Maastricht-sátt- málanum á leið- togafundi ESB í Edinborg 1992. Þessar undan- þágur snúa að að- ild Danmerkur að EMU, varnarsamstarfi ESB-ríkja og samstarfi á sviði flóttamanna- mála og löggæzlu. I þjóðaratkvæðagreiðslu í júní 1992 hafnaði meirihluti Dana aðild Danmerkur að Maastricht-sáttmál- anum en hún var svo samþykkt í annarri atkvæðagreiðslu árið eftir, þegar samið hafði verið um undan- þágumar. SPÁNN styður aðild Tyrklands að Evrópusambandinu, ESB. Þessu lýsti Jóhann Karl Spánar- konungur yfir við hátíðarkvöld- verð í Madrid á þriðjudagskvöld, þar sem Suleyman Demirel, for- seti Tyrklands, var heiðursgest- ur, en hann lauk í gær þriggja daga opinberri heimsókn sinni til Spánar. „Spánn styð- ur undan- bragðalaust ósk Tyrklands um að verða hluti af Evrópu. Tyrkland hefur lagt ómetanleg- an skerf til varna, lýðræðis og hagsældar í álfunni," sagði kon- ungurinn. Framkvæmdasljórn ESB lagði í gær fram áætlun um aukin og bætt samskipti sambandsins við Tyrkland, en þau hafa verið slæm undanfarna mánuði vegna þess að Tyrkjum þykir gróflega fram hjá þeim gengið með því að vera ekki boðið til aðildai-við- ræðna samtímis þeim ríkjum sem áður tilheyrðu Austurblokkinni. Á leiðtogafundi ESB í Lúxem- borg í desember sl. var ákveðið að bjóða tíu ríkjum Mið- og Aust- ur-Evrópu auk Kýpur til ráð- stefnu um stækkun sambandsins í Lundúnum 12. þessa mánaðar, þar sem aðildarviðræður yrðu jafnframt hafnar við fimm Aust- ur-Evrópuríkjanna auk Kýpur. Tyrklandi var einnig boðin þátttaka í þessari ráðstefnu, en án fyrirheits um aðildarviðræð- ur. Á sameiginlegum frétta- mannafundi með Demirel forseta í Madríd í gær hvatti Jose Maria Aznar, forsætisráðherra Spánar, tyrknesk sljórnvöld til að senda fulltrúa á þessa stækkunarráð- stefnu ESB. Demirel lét hins veg- ar ekkert uppi um að Tyrklands- sljórn hygðist endurskoða þá ákvörðun sína að sniðganga ráð- stefnuna. Frakkar ráðast á fátæktina FRANSKA stjómin birti í gær þriggja ára áætlun sem miðar að því að lina fátækt í landinu og snúa þróuninni við. Mörg ráðuneyti koma við sögu verk- efnisins en í það verður veittur 51 milljarður franka, jafnvirði 612 milljarða króna. Er fénu ætlað að lina þrautir þeirra sem lifa af opinberri ölmusu og stunda jafnvel betl á götum úti eins og í kreppunni. Megintil- gangurinn er að hjálpa fólki til sjálfbjargar, losa það úr viðj- um atvinnuleysis og útskúfun- ar og gera það óháð sveitar- styrkjum. Rúmlega þrjár milljónir Frakka eru án at- vinnu og um sex milljónir þiggja að jafnaði velferðar- styrld af einum eða öðrum toga. Tvær milljónir búa í hús- um sem dæmd hafa verið óí- búðarhæf og 200 þúsund manns eru heimilislaus og eiga hvergi höfði að halla. Gestapo-for- ing’i ákærður FYRRVERANDI foringi í leynilögreglu nasista, Gestapo, var handtekinn í íbúð sinni í Stuttgart í gær og sakaður um að bera ábyrgð á dauða rúm- lega 70 þúsund manns, aðal- lega gyðinga, í útrýmingarbúð- um nasista í Póllandi og Úkra- ínu í seinna stríðinu. Maður- inn, sem er 78 ára, var um tíma yfirmaður leynilögregl- unnar í borginni Lublin í Pól- landi. Er hann sagður hafa skotið 500 manns með eigin hendi 3. og 4. nóvember 1943 í Majdanek-þrælkunarbúðunum í Póllandi. 200 taldir af í Pakistan ÓTTAST er að a.m.k. tvö hundruð manns hafi drukknað eftir fádæma mikil vorflóð, sem hófust á mánudag í Tur- bat, afskekktu héraði í suð- vesturhluta Pakistans. Lík 40 manns höfðu fundist í gær en 250 manns var enn saknað. Meðal þeirra eru 40 börn sem stunduðu nám í klausturskóla. Flóðin sópuðu ekki aðeins 3.000 íbúðarhúsum meðfram ánni Dasht í burtu, heldur einnig brúm og vegum og því var héraðið enn sambands- laust í gær. á netinu eða í næsta Lottö kassa þú velur einhverja 3,4, 5 eða 6 leiki af 60 og getur þér til um úrslit þeirra, hafir þú rétt fyrir þér margfaldast upphæðin sem þú spilaðir fyrir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.