Morgunblaðið - 05.03.1998, Page 33

Morgunblaðið - 05.03.1998, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 33 Stund sann- leikans s Sinfóníuhljómsveit Islands frumflytur í kvöld hljómsveitarverkið Hljómsveitar- myndir op. 19 eftir tónskáld vetrarins, Hafliða Hallgrímsson. Orri Páll Ormars- son spjallaði við Hafliða sem segir tónverk sín ávallt koma sér ókunnuglega fyrir eyru þegar hann heyrir þau fyrst á æfingum. ÞAÐ sætir jafnan tíðindum þegar Sinfóníuhljómsveit íslands frum- flytur hljómsveitarverk eftir ís- lenskt tónskáld enda ekki á hverj- um degi að nýr sinfóníukafli er skráður í tónbókmenntasögu þjóð- arinnar. En þótt eftirvæntingin sé mikil meðal leikra og lærðra, sem saman eru komnir í salnum, er eng- inn jafn spenntur og tónskáldið sjálft. Það fær Hafliði Hallgrímsson að reyna á tónleikum hljómsveitar- innar í kvöld, þar sem nýtt verk hans, Hljómsveitarmyndir op. 19, verður flutt í fyrsta sinn opinber- lega. „Tónlist, sem maður hefur samið, kemur manni alltaf ókunnuglega fyrir eyru þegar maður heyrir hana í fyrsta sinn, jafnvel þótt maður sé búinn að fara margoft yfir hljóminn í huganum,“ segir Hafliði. Að afhjúpa höggmynd Hann líkir frumflutningi tónverks við afhjúpun höggmyndar. „Tón- verk sem aldrei hefur verið flutt er eins og höggmynd undir klæði - maður getur fundið fyrir höggmynd með því að þreifa á klæðinu, alveg eins og maður getur fundið fyrir tónverki með því að lesa nóturnar. Það er hins vegar ekki fyir en á tónleikunum, þegar klæðinu er svipt af, að sannleikurinn kemur í ljós!“ Grunninn að Hljómsveitarmynd- um op. 19 lagði Hafliði árið 1992 þegar hann fékk styrk úr Menning- arsjóði Eimskipafélags Islands til að semja hljómsveitai-verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Islands. Akvað hann að skrifa verk sem væri í eðli sínu „sinfónískt" samkvæmt há- fleygustu skilgi-einingu þess orðs. „Ég leit á þetta sem lærdómsverk í skrifum fyrir hljómsveit og fljótlega söfnuðust saman fjölmargar skissur með ólíkustu hugmyndum." Svo fór þó að verkið, partítúr upp á um 120 blaðsíður, hafnaði ofan í skúffu enda enginn ákveðinn flutn- ingur á döfinni. Það var síðan í haust sem leið, þegar Sinfóníu- hljómsveit Islands bauð Hafliða að vera tónskáld vetrarins þar á bæ, að hann kom að verkinu að nýju. „Þetta var eins og að koma að handriti á sanskrít," segir Hafliði og hlær, „enda getur verið erfitt að lifa sig inn í gamlar hugmyndir. Eftir mikla yfirlegu tókst mér þó að velja úr efni sem var nokkuð samstætt hvað hljóm og blæ snertir og hófst A Endurmenntunarstofnun HI Islensk leikritun ENDURMENNTUNARSTOFNUN Háskóla íslands efnir til námskeiðs 10. - 31. marz um íslenska samtíma- leikritun þar sem fjallað verður um höfundai-verk þriggja leikskálda, þeirra Ólafs Hauks Símonarsonar, Birgis Sigurðssonar og Kjartans Ragnarssonar. Ofangreindir höfundar eiga allir verk á Stóra sviði Þjóðleikhússins í vetur. Meiri gauragangur, ieikrit með söngvum, eftir Ölaf Hauk Sím- onarson, var frumsýnt í byrjun febrúar, Óskastjarnan, eftir Birgi Sigurðsson, verður fi-umsýnt í lok mars og Grandavegur 7, leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margi'étar Guðmundsdóttur, eftir skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur, Guðfinna Kristín Guð- mundsdðttir sýnir í Gerðubergi GUÐFINNA K. Guðmundsdóttir opnar sýningu á vatnslita- og olíu- myndum í Félagsstarfi Gerðubergs föstudaginn 6. mars kl. 15. I tilefni af opnuninni mun Gerðubergskór- inn syngja undir stjórn Kára Frið- rikssonar, við harmonikkuundirleik Benedikts Egilssonar og píanóund- irleik Unnar Eyfells. Einnig munu félagar úr Tónhorninu, Big-band Gerðubergs, leika létt lög. var frumsýnd í lok október sl. Þrír fyrirlesarar, Gunnlaugur Ástgeirsson, Melkorka Tekla Ólafs- dóttir og Árni Ibsen, munu leitast við að gera grein fyrir heildarverki hvers leikskálds um sig og veita innsýn í heim verkanna með tilvís- unum í uppsetningar á þeim. Farið verður í heimsókn í Þjóðleikhúsið á æfingu á Óskastjömunni, auk þess sem þátttakendur sjá eina af loka- æfingum á verkinu. Námskeiðinu lýkur á umræðum þar sem höfund- arnir og þrír leikstjórar verka þeirra, þeir Þórhallur Sigurðsson, Stefán Baldursson og Hallmar Sig- urðsson, munu ræða við þátttakend- ur. Námskeiðið stendur frá 10.-23. mars. Guðflnna Kristín Guðmundsdótt- ir er 87 ára gömul. Hún er fædd í Innri-Lambadal í Dýrafírði. Hún lærði fatasaum og hefur sótt garð- yrkjunámskeið. Guðfinna sótti myndiistarnámskeið hjá Hafsteini Austmann árið 1954. Hún hefur ávallt fylgst vel með straumum og stefnum í myndlist með því að sækja sýningar. Sýningin stendur til 10. maí. ---------------- Sýningum lýkur Gryfjan, Listasafn ASI SÝNINGU Margrétar Jónsdóttur, Konur í menningarheimi karla, lýk- ur nú á sunnudag. Sýningin er opin alla daga, nema mánudaga, kl. 14-19 Morgunblaðið/Golli HAFLIÐI Hallgrímsson hlýðir á Sinfóníuhljómsveit fslands æfa verk sitt, Hljómsveitarmyndir op. 19, í Háskólabíói í gær. handa við að vinna frekar úr þeim hugmyndum.“ Ut frá þeim samdi tónskáldið fjölda af fjölbreyttum og mislöngum þáttum og verða níu þeirra frum- fluttir í kvöld undir titlinum Hljóm- sveitarmyndir op. 19. „Til að skapa heildarsvip fyrir „myndirnar" allar, líkt og gerist í lagaflokkum, raðaði ég saman þátt- um sem höfðu visst hljómrænt yfir- bragð og stefræna samsvörun,“ seg- ir Hafiiði beðinn um að lýsa verk- inu. „Hvorki náttúrustemmningar, málverk eða annað utanaðkomandi býr að baki þessum hljómsveitar- myndum en ekki er sú samlíking út í hött að ég nálgist hljómsveitina á ólíkan hátt í hverri „mynd“, líkt og ljósmyndari fjölbreytt landslag yfu' langt tímabil.“ Hafliði segir að yfir höfuð sé hér um hægferðuga tónlist að ræða þar sem áhersla sé lögð á hljómrænan skírleika, nægilegt svigrúm fyrir nýjar hugmyndir og tilbrigði þeirra, svo og stíganda að hápunkti verks- ins í sjötta þætti sem er hraðastur, lengstur og hljómmestur. Frá því segir tónskáldið að tónlistin hægi smátt og smátt á sér, verði friðsæl og ljóðræn, jafnvel angurvær, og hvei'fi síðan hægt og líðandi út í tómið. Viss fjarlægð Segir Hafliði þetta öðrum þræði helgast af því að þegar hann var að skrifa síðasta kaflann hafði hann fengið vitneskju um að móðir hans væri dauðvona. Hún lést í janúar síðastliðnum. „Þvf er ekki að neita að það er keimur af þessari reynslu í síðasta kafla verksins, yfir honum hvílir ekki beinlínis dapurleiki, enda var móðir mín hvíldinni fegin, en viss fjarlægð - eins og landslag séð úr fjarska!" Tónleikarnir í kvöld eru þriðju og síðustu tónleikarnir á þessu starfs- ári, þar sem SÍ flytur verk eftir Hafiiða Hallgrímsson. Segir hann reynsluna sem hann hafi öðlast sem tónskáld vetrarins ómetanlega. „Tækifæri flestra tónskálda til að hlýða á verk sín á tónleikum, heyra þau „verða til“, eru af skornum skammti. Að fá tækifæri til að gera tilraunir, eins og mér hefur boðist á þessu starfsári, er því dýrmætt og mér finnst ég hafa komist nær vissu takmarki í skiáfum fyrir hljómsveit í vetur. Þetta fyrirkomulag, að velja tónskáld vetrarins hjá SI, er því mikils virði - á því leikur enginn vafi!“ Auk Hljómsveitarmynda op. 19 verður Fimmta sinfónía Garls Niel- sens flutt á tónleikunum í kvöld. Stjórnandi verður Hollendingurinn Jurjen Hempel, aðstoðarhljómsveit- arstjóri við Fílharmóníusveitina í Rotterdam. Tónleikarnir verða í Háskólabíói og hefjast klukkan 20z. Aðrar vélarstaerðir einnig á lager, viðbótarbúnaður tilgreindur: Honda Civic 1.6 VTi VTEC 1.890.000,- 160 hestöfl 15" álfelgur Rafdrifin sóllúga 6 hátalarar Sportinnrétting Leðurstýri og leðurgírhnúður Honda Civic 1.5 LSi VTEC 1.490.000,- 115 hestöft Fjarstýðar samlæsingar Höfuðpúðar aftan 4 hátalarar Hæðarstillanlegt ökumannssæti Honda Civic 1.4 Si 1.375.000,- 90 hestöft Sjálfskipting 100.000,- HONDA Sfmi: 520 1100 HONDA Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri M400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautun ILoftpúðar fyrir ökumann og farþega iRafdrifnar rúður og speglar ► Vindskeið með bremsuljósi MJtvarp og kassettutæki ►Honda teppasett M4" dekk ► Samlæsingar ► ABS bremsukerfi ►RyðvK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.