Morgunblaðið - 06.03.1998, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ráðherra mælir fyrir frumvarpi til áfengislaga
Nokkrir þingmenn vilja
lækka áfengiskaupaaldur
MARGIR þingmenn telja rétt að lækka áfengiskaupaaldur niður í 18 ár.
SVEITARSTJÓRNIR ákvarða af-
greiðslutíma veitingastaða og veita
leyfi til áfengisveitinga á veitinga-
stað, samkvæmt frumvarpi til
áfengislaga sem Þorsteinn Pálsson
dómsmálai'áðherra mælti fyrir á
Alþingi í gær. Frumvarpið er
samið í dómsmálaráðuneytinu í
framhaldi af stai'fi nefndar sem
skipuð var aðstoðarmönnum fjög-
urra ráðherra.
Að sögn dómsmálaráðheiTa er
hér um að ræða tímabært frum-
varp til heildstæðra laga sem mun
leysa eldri lög af hólmi verði það
samþykkt, en það er einnig liður í
umfangsmeiri breytingum á lög-
gjöf er varðar áfengismál. „Sam-
hliða þessu frumvarpi er lagt fram
frumvarp til breytinga á lögreglu-
lögum frá árinu 1996, en í því er
lagt til að stofnuð verði sérstök
deild innan embættis ríkislögreglu-
stjóra sem myndi hafa yfirstjórn á
eftirliti með meðferð áfengis. Lög-
reglustjórum hverjum í sínu um-
dæmi er síðan ætlað að fara með
daglegt eftirlit samkvæmt fyrir-
mælum ríkislögreglustjóra. Með
þessu er forvamarstarf eflt með
auknu eftirliti og aðgerðir lögreglu
samræmdar um land allt,“ sagði
ráðherra meðal annars.
Frumvarpið til bóta
Flestir þeima þingmanna sem til
máls tóku sögðu að frumvarpið
væri að mörgu leyti til bóta miðað
við núgildandi lög, en gerðu einnig
fjölmargar athugasemdir. Stein-
grímur J. Sigfússon, þingmaður
Alþýðubandalags og óháðra, gerði
bann við áfengisauglýsingum til
dæmis að umtalsefni og benti á að í
frumvarpinu væri ekki að finna
leiðir til að láta framkvæmd þess
ákvæðis ganga betur en raun bæri
vitni. Sagði hann að nú væru ýmsar
tilraunir gerðar til að fara í kring-
um þetta bann. Til dæmis væru
birtar auglýsingar þar sem greini-
lega væri verið að skjóta sér á bak
við það að um vörumerki væri að
ræða sem jafnframt tæki til óá-
fengra drykkja. Auglýsingamar
væru hins vegar þannig úr garði
gerðar að augljóslega væri verið að
kynna áfenga drykki.
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
flokki jafnaðarmanna, gerði m.a.
athugasemd við 18. gr. frumvarps-
ins þar sem kveðið er á um að
óheimilt sé að selja, veita eða af-
henda áfengi þeim sem eru yngri
en 20 ára. Kvaðst hún vilja beita
sér fyrir því að samstaða næðist
um það í allsherjamefnd Alþingis
að aldursmörk til kaupa og neyslu
áfengis yrðu færð niður í 18 ára
aldur. Sagði hún ennfremur að
næðist ekki samstaða um þá breyt-
ingu í nefndinni myndi hún flytja
breytingartillögu þessa efnis ásamt
öðmm þingmönnum við aðra um-
ræðu um frumvarpið. Sagði hún að
það ætti að færa áfengiskaupaald-
urinn til samræmis við lögræðis-
aldur og hjúskaparaldur.
Kristján Pálsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, tók undir orð Jó-
hönnu og sagði að 18. gr. fram-
varpsins þyrfti að breyta í meðför-
um þingsins þannig að það væri til
samræmis við sjálfræðisaldurinn
og lögræðisaldurinn. Dómsmála-
ráðherra sagði að rétt væri að
þetta tiltekna atriði yrði skoðað í
nefnd.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra á fundi SVS og Varðbergs
Endurskoðun
varnarstefnunn-
ar nauðsynleg
HALLDÓR Ásgrímsson utanrík-
isráðherra ítrekaði í gær þá skoðun
sína að endurskoða bæri öryggis-
og varnarstefnu íslands. Á sameig-
inlegum fundi Samtaka um vest-
ræna samvinnu og Varðbergs á
Hótel Sögu hélt Halldór erindi um
horfur og þróun utanríkismála Is-
lands og stöðu landsins á alþjóða-
vettvangi. Lét hann í erindinu
meðal annars þau orð falla að þörf
væri á fjórþættrí endurskilgrein-
ingu öryggis- og varnarstefnu
landsins.
Sagði Halldór að í fyrsta lagi
yrði að tryggja vamir íslands um
ókomna tíð á granni aðildarinnar
að Atlantshafsbandalaginu
(NATG) og varnarsamningnum við
Bandaríkin. í örðu lagi verði að
skilgreina hvað ísland hyggst
leggja af mörkum til sameiginlegs
öryggis aðildaiTÍkja NATO og
samstarfsríkja þess. Þriðja atriðið
sem Halldór nefndi í þessu sam-
hengi var skilgreining þátttöku
okkar innan víðtækara alþjóðlegs
samtarfs, svo sem innan Öryggis-
og samvinnustofnunar Evrópu
(ÖSE) og Sameinuðu þjóðanna.
Greindi utanríkisráðherra frá
þeirri von sinni að unnt yrði að
opna fljótlega á ný fastanefnd hjá
ÖSE í Vín þar sem nauðsynlegt
væri að fylgjast vel með starfsemi
þeirrar stofnunar.
Samspil hefbundins varnarsam-
starfs og almannavarna
En mesta áherzlu lagði Halldór
á að hann teldi að það yrði að „skil-
greina betur hvemig ísland vill
haga stjómskipulegri framkvæmd
varnarstefnunnar og samspili hefð-
bundins varnarsamstarfs almanna-
varaa“.
Meðal annars verði að athuga
með hvaða hætti foi-mfest verði
samstarf utanríkis- og dómsmála-
ráðuneytis, einkum með tilliti til
samstarfs við Almannavamir og
Landhelgisgæzlu. Báðar þessar
stofnanir geti gegnt hlutverki í
aukinni þátttöku íslands í öryggis-
samstarfi innan Evrópu, til dæmis
í viðbrögðum við náttúruhamföram
og þátttöku í æfingum sem liggja
utan hefðbundins vamarsamstarfs.
Þetta kalli á skýra stefnumótun
sem „á síðari stigum verður að
hljóta vandlega umfóllun á vett-
vangi íslenzkra stjórnmála“.
Morgunblaðið/Golli
ENDURSKOÐUN varnarstefnu íslands var meðal málefna sem Hall-
dór Ásgrímsson utanríkisráðherra tæpti á í erindi sínu um stöðu ís-
lands á alþjóðavettvangi í gær.
Krafa um
að þing-
maður
biðjist af-
sökunar
EINAR Oddur Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks,
kvaddi sér hljóðs í upphafi
þingfundar á Alþingi í gær.
Óskaði hann þess að Lúðvík
Bergvinsson, þingflokki jafn-
aðarmanna, bæði þingheim af-
sökunar á þeim ummælum
sem hann hefði viðhaft í út-
varpsviðtali deginum áður, um
að Vilhjálmur Egilsson, for-
maður efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis, hefði á óeðli-
legan hátt kallað fulltrúa Sam-
keppnisstofnunar fyi'ir nefnd-
ina vegna kaupa Myllunnar-
Brauðs hf. á Samsölubakaríi.
Kvaðst Einar Oddur ekki
hafa heyrt lágkúrulegri mál-
flutning frá nokkrum þing-
manni, en í viðtalinu hefði
Lúðvík m.a. haldið því fram að
Vilhjálmur, sem jafnframt
væri framkvæmdastjóri Versl-
unarráðs íslands, væri að mis-
nota aðstöðu sína með því að
taka upp mál sem varðaði Kol-
bein Kristinsson, formann
Verslunamáðs og fram-
kvæmdastjóra Myllunnar.
Sagði Einar Oddur að það
væri með endemum þegar
þingmaður réðst að formanni
þingnefndar með slíkum að-
dróttunum og dylgjum.
Lúðvík Bergvinsson sagði
enga ástæðu til að biðjast af-
sökunar á þessum ummælum
og sagði það ennfremur fi'á-
leitt að efnahags- og viðskipta-
nefnd fjalli um fyrrgreint mál
á meðan það væri til meðferð-
ar hjá áfrýjunarnefnd sam-
keppnismála. „Ég álít sem svo
að þarna hafi menn bara verið
að þyrla upp einhverju póli-
tísku moldviðri í þessu máli í
stað þess að fjalla um það mál-
efnalega þegar því er endan-
lega lokið á öllum áfrýjunar-
stigum og hjá þeim dómstólum
sem hugsanlega koma til með
að fjalla um málið,“ sagði
hann.
Hefði átt að segja sig frá
málinu
Bryndís Hlöðversdóttir,
þingmaður Alþýðubandalags
og óháðra, tók undir gagnrýni
Lúðvíks og Svavar Gestsson,
þingmaður Alþýðubandalags
og óháðra, sagði að Vilhjálmur
hefði átt að segja sig frá mál-
inu meðan það væri til sér-
stakrar meðferðar í nefndinni.
Einar K. Guðfinnsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, og
Valgerður Sverrisdóttir, þing-
maður Framsóknarflokks,
tóku hins vegar upp hanskann
fyrir Vilhjálm og Einar Oddur
benti á að það hefði verið til-
laga Ágústs Einarssonar,
varaformanns nefndarinnar,
um að fá fulltrúa Samkeppnis-
stofnunar á fundinn.
Alþingi
Dagskrá
Dagskrá Alþingis
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl.
11 í dag.
Hann hefst með utandag-
skrárumræðu um kúgaðar konur í
Afganistan. Málshefjandi er Bryn-
dís Hlöðversdóttir og Halldór As-
grímsson verður til svara.
Síðan verða eftirfarandi mál á
dagskrá:
1. Húsnæðismál. 1. umr.
2. Byggingar- og húsnæðissam-
vinnufélög. 1. umr.