Morgunblaðið - 06.03.1998, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998 19
LANDIÐ
Stórhuga athafnafólk í Laugarási í Biskupstungum
Sláturhús verður að hóteli
Selfossi - Hjónin Snæbjörn Magn-
ússon og Hlíf Pálsdóttir hafa fest
kaup á húsnæði Sláturfélags Suð-
urlands í Laugarási í Biskups-
tungum. Félagið rak þar á árum
áður sláturhús en starfsemin var
lögð niður fýrir nokkrum árum.
Fagurblátt hótel
Þau hjónin hafa f hyggju að
breyta sláturhúsinu í veitingastað
og hótel, einnig eru uppi ýmsar
hugmyndir um starfsemi í húsinu
en þær eiga eftir að gerjast betur
í huga þeirra. Snæbjörn segist
þess fullviss að hugmyndin eigi
eftir að virka. „Það má vera að
sumir haldi mig geggjaðan en það
skiptir engu máli, ég er búinn að
bfta þetta f mig og nú er bara að
bretta upp ermarnar og hella sér í
framkvæmdina," segir Snæbjörn.
Snæbjöm hefur nú þegar byij-
að á verkinu og í vor mun starf-
semin hefjast að einhveiju marki,
hann vonast til að veitingastaður-
inn verði opnaður sem fyrst og að
f sumar muni þau hjónin geta tek-
ið á móti fyrstu gestunum. „Húsið
er ljótt að sjá en til stendur að
mála það strax í vor fagurblátt
þannig að það heilli aðkomumenn.
Vonandi kemur liturinn ekki illa
við stjórnmálaskoðanir fólks hér í
sveitinni, hugsunin er fyrst og
fremst að láta húsið falla inn f
SNÆBJÖRN Magnússon og Hlíf Pálsdóttir ætia að láta drauminn rætast.
umhverfið og forða heimafólki frá
sjónmengunarslysi," segir Snæ-
björn.
Fiskverkun í Tungunum?
Snæbjöra hefiir starfrækt fisk-
verkun í Reykjavík, Eðalbúrið
ehf., sem er alhliða fiskverkun
sem einnig framleiðir fiskibollur
fyrir stærri eldhús og mötuneyti.
Hann hefúr nú flutt starfsemi fyr-
irtækisins að Laugarási og rekur
verkunina samhliða ferðaþjónust-
unni. Gárungarnir segja að þetta
sé sú fiskverkun á íslandi sem er
hvað lengst frá sjó en Snæbjöra
kærir sig kollóttan. „Hér vil ég
vera og einhvem veginn verður
að draga björg í bú, hver segir að
ekki sé hægt að verka fisk f Bisk-
upstungum? Ég veit ekki betur en
Tungnamenn skemmti sér vel við
það þessa dagana,“ segir Snæ-
björa. Hann er þaraa að vitna f
leikritið Sfldin kemur og sfldin
fer, sem leikfélag Biskupstungna
sýnir um þessar mundir við góðar
undirtektir.
Morgunblaðið/Sig. Fannar
IÐUBRUIN tengir Laugarás við umheiminn, óvenju glæsileg aðkoma.
SLÁTURHUS SS, verðandi hótel og veitingastaður.
Aðalfundur Ungmennafélagsins Snæfells
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
ÍÞRÓTTAMENN Snæfells árið 1997 voru kjörin Lýður Vignisson og
Hildur Sigurðardóttir fyrir góðan árangur í körfubolta. Á myndinni er
Hildur ásamt Heiðrúnu Leifsdóttur, móður Lýðs, en hann gat ekki ver-
ið viðstaddur þvf hann stundar nú nám í Bandaríkjunum. Gfsli Pálsson
fékk viðurkenningu fyrir meistaratitil í ftjálsum fþróttum.
Ungir tónlistarmenn
spila og syngja
Fjölbreytt
starf-
semi í sjö
deildum
Stykkishólmi - UMF Snæfells í
Stykkishólmi hélt aðalfund sinn 24.
febrúar sl. Starf félagsins er fjöl-
breytt og margar íþróttagreinar
æfðar. Innan félagsins starfa 7
deildir og þar er umfangsmest
starfsemi körfuboltadeildarinnar.
Körfúboltalið Snæfells er nú efst í 1.
deild karla og stefnir að því að ná
sæti í úrvaldsdeildinni á næsta
keppnistímabili. Þá er i gangi öflug
starfsemi yngri flokka í frjálsum
íþróttum og sundi. Öll aðstaða til
knattspymu batnaði í fyrra þegar
teldnn var í notkun nýr grasvöllur
og mun hann valda auknum áhuga
unglinga á að stunda knattspymu.
Þá er verið að byggja nýja 25 m
útisundlaug. Þá verður öll íþrótta-
aðstaða í Stykkishólmi orðin til fyr-
irmyndar.
Á síðasta ári stofnaði félagið
íþróttaskóla fyrir böm á aldrinum
5-10 ára. Þar fá þau alhliða grunn-
kennslu í ýmsum greinum. Stefnt er
að því að íþróttaskólinn starfi allt
árið.
Á aðalfundinum var lýst kjöri á
íþróttafólki Snæfells árið 1997. Að
þessu sinni hlutu þennan titil Lýður
Vignisson og Hildur Sigurðardóttir.
Þau leggja helst stund á körfubolta
og léku í unglingalandsliðinu á síð-
asta ári. Lýður stundar nám í
Bandaríkjunum og æfir þar körfu-
bolta. Þá fékk Gísli Pálsson viður-
kenningu, en hann varð íslands-
meistari í langstökki á Meistara-
móti Islands utanhúss.
Stjóm félagsins var endurkjörin
og er Dagný Þórisdóttir formaður
félagsins.
Egilsstöðum - Dagur tónlistar-
skólanna var sl. laugardag og
komu ungir tónlistarmenn af Hér-
aði saman í hátíðarsal Menntaskól-
ans á Egilsstöðum og fluttu fjöl-
breytta tónlist fyrir gesti. Það
vora bæði einstaklingar sem fluttu
svo og minni og stærri hljómsveit-
ir. Tónlistarfélag Fljótsdalshéraðs
sá um kaffiveitingar.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
FJÖLMARGIR ungir og efnilegir tónlistaraemendur fluttu tónlist (til-
efni af degp tónlistarskólanna.
Fvrirburafatnaður í úrvali
Fyrirburar
— Allt til sængurgjafa —
Ytri og innri meðgöngufatnaður —
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13 v/Skólabrú, s. 551 2136.