Morgunblaðið - 06.03.1998, Page 21
MORGUNB LAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998 21
VIÐSKIPTI
Ávöxtunarkrafa húsbréfa fór niður fyrir 5%-markið í gærdag
Spáir frekari vaxtalækkunum
HAG
l.OKSINS
\ ÍSI.ANDI
Skxifstofustólar
Til framtíðar litið
MARKAÐSAVOXTUN húsbréfa
lækkaði almennt um 2 til 7 punkta í
gær og ávöxtun í viðskiptum með
húsbréf til 25 ára náði sögulegu lág-
marki, 4,965%. Lengri húsbréf eru
seld á yfirverði í stað affalla þar
sem ávöxtunarkrafa er nú lægri en
vextir bréfanna. í kjölfar vaxta-
lækkunar urðu lífleg viðskipti á
hlutabréfamarkaði.
Stefán Sigurðsson, hjá mark-
aðsviðskiptum fjárstýringar Lands-
banka íslands, segir að lækkandi
ávöxtunarkrafa húsbréfa endur-
spegli trú manna á að vextir séu al-
mennt að lækka hérlendis. „Efna-
hagsumhverfið er stöðugt, staða
ríkisins er sterk og menn sjá að lítið
er að gerast í útgáfu á skuldabréf-
um til langs tíma. Vextir hérlendis
eru og hafa lengi verið hærri en
vextir í Evrópu en eftir því sem við
tengjumst betur alþjóðlegum mörk-
uðum má búast við að vextir lækki
frekar. Víða í kringum okkur er
vaxtastigið 2-4% á meðan það hefur
verið 5-6% hér og þetta hlýtur að
breytast. Búast má við því að spurn
eftir öruggum verðtryggðum bréf-
um til langs tíma muni vaxa hraðar
en framboðið á næstu árum og ára-
tugum og það endurspeglast í þess-
um mikiu vaxtalækkunum."
Avöxtunarkrafa húsbréfa er nú í
sögulegu lágmarki. Flokkurinn 96/2
er komin niður í 4,99% og flokkur-
inn 98/1 niður í 4,965%. Stefán býst
við frekari vaxtalækkunum á næstu
vikum og mánuðum. „Við erum að
tala um 10-30 punkta lækkun til við-
bótar á næstu vikum eða mánuðum
og frekari langtímaviðleitni niður á
við á næstu árum. Þetta mun án efa
taka nokkurn tíma en það er þó
ótrúlegt hvað lækkunin hefur geng-
ið hratt fyrir sig miðað við þann sál-
fræðilega múr sem menn töldu að
5% markið væri,“ segir Stefán.
Viðskipti á Verðbréfaþingi ís-
lands námu alls rúmum 3,7 milljörð-
um króna í gær og eru það næst
mestu viðskipti á einum degi í sögu
þingsins. Viðskiptin á metdeginum,
í fyrradag, námu 4,2 milljörðum kr.
Auk lækkunar markaðsávöxtunar
húsbréfa lækkaði ávöxtun spariskír-
teina um 2 til 12 punkta.
Hlutabréfamarkaðurinn var líf-
legur í gær og tengir Árni Oddur
Þórðarson, forstöðumaður hjá Bún-
aðarbankanum verðbréfum, það við
vaxtalækkunina undanfarið. Við-
skipti námu 63 milljónum kr. Mestu
viðskiptin voru með hlutabréf í
Eimskip en einnig var töluverð
hreyfing á bréfum Samherja,
Granda, Flugleiða, Haraldar
Böðvarssonar og Þormóðs Ramma-
Sæbergs. 1,4% hækkun varð á
hlutabréfum í Eimskip og 2,7% í
Granda. Einnig varð hækkun á
hlutabréfum Þormóðs Ramma-Sæ-
Heimild til hlutafjáraukningar hjá Nýherja
„Smáfyrirtæki verð-
leggja sig hátt“
SAMÞYKKT var heimild til hluta-
fjáraukningar á aðalfundi Nýherja
hf. í fyrradag, 37 milljónir kr. að
nafnverði. Tilgangur hlutafjáraukn-
ingarinnar er að skapa möguleika
til að fýrirtækið geti keypt annað
fyrirtæki með því að greiða kaup-
verðið með hlutabréfum í Nýherja.
Stjórnarformaður Nýherja,
Benedikt Jóhannesson, fjallaði með-
al annars um markaðsaðstæður á
tölvu- og hugbúnaðarmarkaðnum í
ræðu sinni á aðalfundinum. Rifjaði
upp að keppinautar fyrirtækisins
hefðu að undanfórnu verið iðnir við
að kaupa hluti í öðrum fyrirtækjum
eða gleypa þau í heilu lagi, á meðan
Nýherji hafí á sama tíma selt hluta-
bréf og dregið úr ,jaðarstarfsemi“.
Ákvörðun ekki tekin
„Það er þó ekki þar með sagt að
ekki sé rik ástæða til þess að fylgj-
ast með hræringum á markaðnum.
Það er ekki nokkur vafí á því að
hann er síbreytilegur og mun þró-
ast hratt á næstunni sem hingað til.
Því þurfa stjórnendur Nýherja jafn-
an að hafa vakandi auga með þeim
kostum sem í boði kunna að vera
hverju sinni og ýta þeim ekki frá
sér umhugsunarlaust. Það er meðal
annars með það í huga að stjóm
óskar nú eftir heimild aðalfundar til
þess að auka hlutafé."
Sagði Bendedikt að ef tækifæri
byðust, þar sem hægt væri að
kaupa annað fyrirtæki með því að
greiða með hlutafé í Nýherja, gæti
það verið álitlegur kostur. „Þess ber
þó að geta að mjög algengt virðist
að smáfyrirtæki verðleggi sig hátt
þegar þau eru boðin til kaups. Því
ber að ganga varlega til slíkra
kaupa og aldrei nema að undan-
gengnum vandlegum undirbúningi.
LANDSNEFND Alþjóða verslun-
arráðsins heldur hádegisverðar-
fund í dag um efnahagsástandið í
Austur-Asíu og Japansmarkað,
m.a. með íslenska hagsmuni í huga.
Ræðumenn á fundinum verða Ki-
yohiko G. Nishimura, hagfræðipró-
fessor og efnahagsráðgjafi, og
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar.
Nishimura er prófessor í hag-
fræði við Háskólann í Tókýó og er
einn af efnahagsráðgjöfum jap-
anska forsætisráðherrans. Eftir
Nishimura liggur fjöldi rita um
bergs. Hins vegar lækkuðu hluta-
bréf Flugleiða og Samherja lítillega.
Úrvalsvísitala aðallista hækkaði um
0,64%.
Millibankaviðskipti námu 4,5
milljörðum kr. í gær og er það einn
af stærstu dögunum í þeim viðskipt-
um. Gengisvísitala krónunnar er nú
113,92 en var í upphafi dags 113,83
og veiktist krónan því um hálft pró-
sent. Arni Oddur segir að væntan-
lega séu spákaupmenn að selja
skuldabréf og greiða erlend lán.
Það hafí leitt til lækkunar krónunn-
ar.
EG Skrifstofubúnaður chf
Armúli 20 Sími 533 5900
Stærðin ein er ekki markmið heldur
arðbær rekstur," sagði Benedikt.
Á aðalfundinum var samþykkt að
heimila stjórn að auka hlutafé um
37 milljónir að nafnverði. Miðað við
núverandi markaðsgengi fengjust
135 milljónir kr. fyrir bréfín. Stjóm-
in hefur ekkert ákveðið um það
hvort eða þá hvenær heimild þessi
verður nýtt en hún gildir í þrjú ár.
Hádegisverðarfundur í dag
Efnahagur Austur-Asíu
og íslenskir hagsmunir
hagfræðileg efni og í rannsóknum
sínum hefur hann m.a. fjallað um
þjóðhagfræði, japanska hagkerfíð,
þróun og verðmyndun í fasteigna-
viðskiptum, drifkrafta hagkerfisins
og dreifíleiðir í bílaiðnaði. Á fund-
inum mun hann fjalla um efnahags-
ástandið í Austur-Asíu og japansk-
an neytendamarkað. Þá mun Þórð-
ur fjalla um hagsmuni íslendinga í
Austur-Asíu og áhrif efnahags-
legra hræringa þar á íslenska þjóð-
arbúið.
Fundurinn verður haldinn í
Skála á Hóteli Sögu og hefst kl. 12.
AÐALFUNDUR
JARÐBORANA HF.
Aðalfundur Jarðborana hf. verður haldinn
fimmtudaginn 19. mars 1998
í Þingsal A á Hótel Sögu og hefst kl. 16.00
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvœmt grein 4.5 í samþykktum
félagsins
2. Tillaga um heimild handa stjórn félagsins til að kaupa
hluti ífélaginu skv. 55. grein hlutafjdrlaga nr. 2/1995
3. Tillaga til hœkkunar hlutafjár með útgáfu
jöfnunarhlutabréfa
4. Onnur mál sem eru löglega borin upp
Vinsamlega athugið að tillögur frá hluthöfum, sem bera á
fram á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega í hendur
stjómar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu
liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, 7
dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent
á skrifstofu félagsins að Skipholti 50 d, 4. hæð, frá og með
12. mars 1998, og á fundarstað við upphaf aðalfundar.
Stjóm Jarðborana hf.
llll
JARÐBORANIR HF
SKIPHOLTI 50 d, SÍMI 511 3800, BRÉFSÍMI 511 3801