Morgunblaðið - 30.04.1998, Síða 1
88 SIÐUR B/C/D
96. TBL. 86. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
50 ár frá
stofnun
S
Israelsríkis
Jerúsalem. Reuters.
ÍSRAELAR hófu í gær hátíðar-
dagskrá í tilefni þess að fimmtíu
ár eru liðin frá stofnun sjálf-
stæðs ríkis gyðinga með því að
blása í 50 horn sem ómuðu um
allt Israel, enda var dagskráin
sýnd beint í ísraelska sjónvarp-
inu. Benjamin Netanyahu, for-
sætisráðherra ísraels, las upp
úr ræðu Davids Ben-Gurions,
fyrsta forsætisráðherra lands-
ins, sem Ben-Gurion flutti 1948
og lauk Netanyahu ávarpi sínu
með hvatningarorðum til landa
sinna.
Fyrr um daginn viðhöfðu íbú-
ar Israels tveggja mínútna þögn
í minningu þeirra 19.000 manna
sem fallið hafa fyrir land sitt
síðan 1948. Umferð bfla stöðv-
aðist, gangandi vegfarendur
staðnæmdustpg lutu höfði og
um gjörvallt ísrael heimsótti al-
menningur grafir fallinna ætt-
menna. Er liða tók á kvöld tók
hins vegar við taumlaus gleði og
miðborg Jerúsalem fylltist af
ungu fólki í hátiðarskapi.
■ Gleði/37
Reuters.
Færeyska þjóðin gengur að kjörborðinu í dag
Margir styðja aðskilnað
Þórshöfn. Morgunblaöiö.
MEIRA en helmingur færeysku
þjóðarinnar vill breytingar á sam-
bandinu við Danmörku og aukna
sjálfstjóm eftir því sem fram kem-
ur í skoðanakönnun sem birt er í
Sósíalurin í dag, sama dag og fram
fara þingkosningar í Færeyjum.
Sambandið við Dani hefur verið
eitt af helstu kosningamálunum og
alls hafa fjórir flokkanna sem
bjóða fram í kosningunum, Fólka-
flokkurinn, Þjóðveldisflokkurinn,
Jafnaðarmannaflokkurinn og
Sjálfstýriflokkurinn lýst sig fylgj-
andi breytingum á sambandinu.
Er þar rætt bæði um aukna sjálf-
stjórn annars vegar og stofnun
færeysks lýðveldis hins vegar.
Sambandsflokkurinn hefur hins
vegar stutt áframhaldandi sam-
band við Dani.
Flokkarnir fjórir, sem fylgjandi
eru auknu sjálfræði, hafa kynnt
kjósendum óUka kosti að markinu
en í skoðanakönnuninni kemur
fram að 43% íbúa vilja að Færeyjar
hljóti sjálfstjórn innan ríkissam-
bandsins við Dani og 27% vilja full-
an aðskilnað landanna tveggja.
Samtals vilja því 60% íbúa aukið
sjálfræði í sínum málum en á hinn
bóginn vilja 22% íbúa óbreytt eða
nánara samband við Danmörku.
Spáð er góðu veðri í dag og er
því gert ráð fyrir mikilli kjörsókn í
kosningunum í dag, allt að 80%.
Lítill munur virðist á fylgi flokk-
anna en skoðanakönnun Sósíalurin
gefur hins vegar til kynna að ein-
ungis 7% vilji að Edmund Joensen,
núverandi lögmaður og leiðtogi
Sambandsflokksins, sinni áfram
starfinu á meðan 35% vilja Jóannes
Eidesgaard, formann Jafnaðar-
mannaflokksins, sem lögmann.
Hófleg bjart-
sýni í Danmörku
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
FULLTRUAR atvinnurekenda og launþega hófu í gær viðræður að
nýju en bjartsýnin var hófleg. „Við erum að hugsa,“ og „Við erum að
hugleiða hvernig byrja eigi á byrjuninni," voru ummælin í gær. En
jafnvel þótt samningar náist í vikunni lýkur verkfallinu vart fyrr en í
lok næstu viku eða svo, þar sem ólíklegt þykir að verkfallinu verði af-
lýst fyrr en niðurstöðurnar hafa verið samþykktar í atkvæðagreiðslu.
Rússland
Nemtsov
fer með
orkumál
Moskvu. Reuters.
RÚSSNESKI umbótasinninn Bor-
ís Nemtsov, sem hefur verið skip-
aður aðstoðarforsætisráðherra,
sagði í gær að hann ætti að fara
með orku- og eldsneytismál í nýju
stjóminni í Rússlandi.
Þessi málaflokkur er mjög mikil-
vægur í rússnesku efnahagslífi.
Áhrifamiklir kaupsýslumenn hafa
tekist á um yfirráð yfir rússnesk-
um olíu- og gasfyrirtækjum og
hermt er að nokkrir þeirra hafi
beitt sér fyrir því að Nemtsov fari
ekki með þennan málaflokk í
stjórninni.
Norska blaðið Fiskaren hefur
skýrt frá því að Alexander Rodín,
aðstoðarráðherra í landbúnaðar-
ráðuneytinu, sem hefur farið með
sjávarútvegsmál, hafi verið vikið úr
embætti og eftirmaður hans verði
ekki skipaður fyrr en eftir að
minnsta kosti viku.
Alþýðusambandið danska hefur
lagt til að samningaviðræðurnar
verði milli sambandsins og félags
atvinnurekenda, en ekki milli ein-
stakra verkalýðsfélaga og vinnu-
veitenda þeirra og það hafa at-
vinnurekendur samþykkt. Það auð-
veldar þeim vísast að koma aftur að
samningaborðinu, því þeir hafa lagt
áherslu á samflot til að tryggja að
einstök félög stingi ekki af með
bindandi samninga, sem hafi áhrif á
niðurstöður annarra.
Niðurstaða liggur
ekki strax fyrir
I samtali við sjónvarpið sagði Hans
Jensen, forseti Alþýðusambands-
ins, að niðurstaða fengist í fyrsta
lagi á fóstudag. Hana þyrfti að
leggja fyrir í atkvæðagreiðslu, sem
myndi þá ljúka á fostudaginn í
næstu viku. Fengist nýja niðurstað-
an samþykkt lyki verkfallinu þá,
því enn sem komið er er ekki reikn-
að með að verkfallinu verði aflýst
meðan atkvæðagreiðslan stendur
yfir. Á mótmælafundum launþega
er aðaláherslan á kröfu um 6. frí-
vikuna og því vart hægt að ímynda
sér nýja samninga, sem ekki tækju
mið af þeirri kröfu.
Verkfallsvakt er við ýmsa vinnu-
staði og sums staðar hefur slegið í
brýnu, en allt er þó að mestu með
kyrrum kjöium enn sem komið er.
■ Hjól/24
■ Berezovskí falið/26
Albanir vilja að NATO efli gæslu á landamærunum við Kosovo
Samþykktar nýjar refsi-
aðgerðir gegn Serbum
nýju um frekari aðgerðir, t.d. hvað varðar fjár-
festingar.
Jacques Blot, fulltrúi Frakka á fundinum, sagði
þjóðirnar hafa verið sammála um að ástandið í
Kosovo hefði versnað, viðræður Serba og Albana
í Kosovo væru enn ekki hafnar og að Serbar
hefðu gripið til aðgerða sem þættu ekki líklegar
til að hvetja til viðræðna. Átti hann þar einkum
við þjóðaratkvæðagreiðslu Serba í síðustu viku
þar sem mikill meirihluti hafnaði erlendum af-
skiptum af Kosovo-deilunni.
Blot sagði að Rússar hefðu fallist á að þrýsting-
ur yrði aukinn á Serba en að Rússar hefðu lýst yf-
ir efasemdum með hertar aðgerðir. Þá sagði hann
að Tengslahópurinn vildi freista Serba með til-
boðum um efnahagsaðstoð og aðild að alþjóða-
stofnunum, svo sem Oryggis- og samvinnustofn-
un Evrópu, verði gengið til viðræðna.
Átökin halda áfram í Kosovo, í gær skutu
serbneskir hermenn Albana við útfór þriggja Al-
bana, sem féllu í átökum við herinn. Sögðu tals-
menn hans að fjórmenningamir hefðu verið félag-
ar í Frelsishreyfingu Kosovo og að maðurinn
hefði skotið á lögreglu. Því vísaði fólkið sem var
við útförina á bug.
Washington. Róm. Belgrad. Tirana. Reuter.
TENGSLAHÓPURINN svokallaði samþykkti í
gær að grípa til nýrra refsiaðgerða gegn Serbum
vegna ástandsins í Kosovo-héraði. A fundi hóps-
ins í Róm í gær var niðurstaðan sú að frysta eign-
ir Serba erlendis, að sögn franska fulltrúans í
hópnum. Fulltrúi Bandaríkjastjórnar lýsti í
gærkvöld ánægju sinni með niðurstöðuna og er
nú talið ólíklegt að Bandaríkin láti verða af hót-
unum sínum um að beita sér ein og sér í málinu.
Forsætisráðherra Albaníu, Fatos Nano, hvatti í
gær til þess að Atlantshafsbandalagið sendi lið-
styrk til landamæra Albaníu og Kosovo-héraðs í
Serbíu, vegna hættunnar á að átökin í héraðinu
breiðist út. Ósk Albana hefur enn ekki verið svar-
að en talið er fullvíst að Rússar séu hugmyndinni
mótfallnir. Grikkir og Italir buðust hins vegar í
gær til að styrkja albanska herinn til að hann
gæti betur sinnt gæslu á landamærunum.
Sex ríki skipa Tengslahópinn; Bandaríkin,
Rússland, Frakkland, Bretland, Þýskaland og
Italía. Hefur hópnum gengið illa að ná samkomu-
lagi um til hvaða aðgerða skuli gripið gagnvart
serbneskum stjórnvöldum en í gær náðist sátt
um refsiaðgerðir. Þær taka þegar gildi í löndum
Evrópusambandsins og 8. maí verður fundað að
Reuters
HÓPUR Albana mótmælti fyrir utan fundar-
stað Tengslahópsins í Róm í gær.