Morgunblaðið - 30.04.1998, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 30.04.1998, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VERIÐ var að vinna í gólfi brúarinnar þegar ljósmyndari gekk þar um í gær. Morgunblaðið/Golli ár í Reykjavík ÁRNI Sigfússon, oddviti Sjálfstæð- isflokksins í komandi borgarstjóm- arkosningum, kynnti hugmynd D- listans um tíu mánaða skólaár í grunnskólum borgarinnar á fundi Samfok um framtíð grunnskólanna á þriðjudagskvöldið. Hugmynd Áma felst í því að gmnnskólar Reykjavíkurborgar bjóði tíunda mánuð skólaársins sem val. „Það gengur ekki lengur að við séum að miða okkur við sveitaskól- ana og sauðburð. Við þurfum þess ekki og það er engin ástæða til þess að allir skólar séu eins. Það er kom- inn tími til að opna þennan mögu- leika og við leggjum til að tíundi mánuðurinn verði nýttur sem val og tengdur samstarfi við íþróttafélögin, raungreina- og listastarfsemi," sagði Ámi á fundinum. Fundurinn var haldinn með það fyrir sjónum að foreldrar gmnn- skólabama gætu áttað sig á þeim áherslum sem framboðslistamir myndu leggja á gmnnskólamál verði þeirra listi við völd næsta kjörtíma- bil. ■ „Kjósum metnað/12 Árni Sigfússon oddviti sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum Tíu mánaða skóla- Kringlumýrar- brautin brúuð Hrossaræktendur fá skuldbreytingar NÝ GÖNGUBRÚ yfir Kringlumýr- arbraut við Sigtún er risin og verður tekin í notkun upp úr miðjum næsta mánuði, að sögn Sigurðar I. Skarphéðinssonar gatnamálastjóra. Undirbúningur brúarsmiðinnar hófst á síðasta ári, en þá var gengið frá undirstöðum og stigum að miklu leyti og byggðar upp hljóðmanir. Stáismíðin fór svo fram í vetur, en það var gert til þess að ná niður verði, því yfir- leitt er minna að gera í málm- smiðjum yfir veturinn og verðlag því hagstæðara. „Þar sparaðist því umtaisvert fé,“ segir Sigurð- ur. Götunni var lokað á laugardag- inn meðan brúin var sett saman og er hún nú sem óðast að taka á sig mynd, að sögn gatnamála- stjóra. Hann segir þó allmörg handtök eftir enn, en gerir ráð fyrir að hægt verði að opna hana upp úr miðjum maí. Brúin við Sigtún er fjórða göngubrúin sem tekin er í notkun á skömmum tíma i borginni en hinar eru önnur brú yfir Kringlu- mýrarbraut, og brýrnar yfir Miklubraut og Kringlu. Næst á dagskrá, að sögn Sigurðar, er svo brú yfir Miklubraut við Breiða- gerði en ekki hefur þó verið tekin endanleg ákvörðun um hana. STJÓRN Byggðastofnunar sam- þykkti í gær að veita hrossarækt- endum tveggja ára greiðslufrest á lánum sínum við stofnunina vegna þeirra erfiðleika sem hrossarækt- endur eiga við að etja í kjölfar stöðv- unar á hrossaútflutningi. Egill Jóns- son, stjómarformaður Byggðastofn- unar, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að stjórn stofnunarinnar hefði samþykkt þessa afgreiðslu málsins. Aðalfundur Hrossaræktarsam- taka Suðurlands hafði í fyrri viku samþykkt að fela stjórn samtakanna að leita „aðstoðar og skilnings" á þeim mikla vanda sem að félags- mönnum steðjar vegna stöðvunar á hrossaútflutningi. Vandræði vegna áburðarkaupa í bréfi sem samtökin sendu land- búnaðarráðherra, fjármálaráðherra, landbúnaðamefnd Alþingis, þing- mönnum Suðurlands, stjóm Lána- sjóðs landbúnaðarins og Framleiðni- sjóðs landbúnaðarins segir að engin leið virðist að segja til um hvenær útflutningur hefst á ný en ekki sé skynsamlegt að gera ráð fyrir hon- um næstu mánuði og jafnvel ekki á þessu ári. „Fari svo er ljóst að mjög mikill vandi blasir við hrossabænd- um og öðmm þeim sem eiga afkomu sína að miklu eða öllu leyti undir hrossaútflutningi," segir í bréfinu. „Nefna má til dæmis að vandræði verða þegar vegna áburðarkaupa í vor, eflaust munu margir verða í erf- iðleikum með að standa skil á af- borgunum af lánum, að ekki sé minnst á að þeir sem allt eiga undir þessari atvinnugrein hafa nú að öllu leyti misst tekjur til framfærslu. Vandinn er því mikill og nauðsynlegt að grípa þegar til ráðstafana," segir í bréfi samtakanna. Þær upplýsingar fengust úr Byggðastofnun í gær að skuldir hrossaræktenda vð Byggðastofnun væm óveralegar og því væra það ekki háar fjárhæðir sem skuldbreytt var með ákvörðun stjómar stofnun- arinnar frá í gær. Sigríður Anna formaður ÞINGFLOKKUR Sjálfstæðisflokks- ins kaus Sigríði Önnu Þórðardóttur formann þingflokksins og Sólveigu Pétursdóttur varaformann í gær. Að sögn Ólafs G. Einarssonar, for- seta þingsins, var ákveðið að bíða með kosningu þriðja manns í stjórn þingflokksins þar til síðar, þar sem þingmenn vora ekki allir viðstaddir. Á sama fundi var samþykkt að styðja Tómas Inga Olrich til for- mennsku í utanríkismálanefnd. Fjármálaupplýs- ingar á Fréttavef NÚ ER hægt að tengjast Fjármála- torgi Verðbréfaþings Islands frá Fréttavef Morgunblaðsins með því að smella á hnapp, merktan Fjár- málatorgi. Með sama hætti er hægt að tengj- ast Fréttavef Morgunblaðsins af heimasíðu Fjármálatorgs. Netslóð Fjármálatorgs er www.fjarmal.is en slóð Fréttavefjarins er www.mbl.is. Héraðsdómur um biðsal Strætisvagna Reykjavfkur í Hafnarstræti Breytingar lögmætar HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær borgarstjórann í Reykjavík, Tríton ehf., Gerpi sf. og Renötu Erlendsson af kröfum aðalstefnanda, Valdimars Jóhannessonar, sem gerði kröfu um breytingar á 1. hæð Hafnarstrætis 20 og skaða- bætur að upphæð rúmlega 4,5 milljónir kr. Aðal- stefnandi hélt því fram að verðmæti eignar sinn- ar í húsnæðinu hefði rýrnað veralega með breyt- ingum sem gerðar vora á húsnæðinu. Valdimar keypti rúmlega 58 fermetra húsnæði á 1. hæð Hafnarstrætis 20 í júní 1978 en í ágúst 1978 gerði borgarstjórinn í Reykjavík maka- skiptasamning við húsbyggjandann í Hafnar- stræti 20 og eignaðist borgarsjóður þar 102,8 fer- metra rými fyrir biðskýli ásamt hlutdeild í sam- eign. Þá seldu Gerpir sf., Tríton ehf. og Renata Erlendsson borgarsjóði 55% eignarhluta sinn í austurenda 1. hæðar Hafnarstrætis 20 í ágúst 1996. Segir í samningnum að kaupandi muni koma fyrir í hinu keypta rými áningarstað fyrir SVR. Kaupandi annist breytingar á innréttingum húsnæðis sem nauðsynlegar séu vegna þeirrar starfsemi. Seljandi breyti innréttingum húsnæðis í því skyni að seljandi annist eða leigi út rekstur sölubúðar. Áður en samningurinn var gerður var haldinn fundur í Húsfélaginu Hafnarstræti 20. Fyrir fundinum lá teikning þar sem fram kemur að biðskýli farþega SVR yrði fært úr miðrými í austurenda 1. hæðar hússins og að skilið yrði þar á milli. Umsókn húsfélagsins var samþykkt á fundi byggingarnefndar Reykjavíkur í nóvem- ber 1996. Aðalstefnandi krafðist þess að lög- bann yrði lagt á fyrirhugaðar framkvæmdir en þeirri kröfu var synjað með bréfi sýslumanns í Reykjavík. Skaut aðalstefnandi samþykki bygg- ingarnefndar þá til umhverfisráðherra og felldi settur umhverfisráðherra byggingarleyfið frá 14. nóvember 1996 úr gildi að hluta en þó ekki hvað varðar uppsetningu veggja sem skilja austurenda 1. hæðar fasteignarinnar frá mið- rými. Aðalstefnandi byggði á því að framkvæmdir á 1. hæð hússins vikju frá upphaflegri teikningu sem samþykkt var í byggingarnefnd Reykjavíkur í desember 1977 og brjóti gegn lögvörðum rétti hans þess efnis að ekki verði hnikað frá sam-i þykktri teikningu og þinglýstum kvöðum hvað varðar inngöngudyr og gönguleiðir um húsið nema að fengnu samþykki allra þeirra eigenda hússins sem hagsmuna hafa að gæta. I dómi Héraðsdóms er ógiltur úrskurður setts umhverfisráðherra frá desember 1997 þar sem' ákvörðun byggingarnefndar frá nóvember 1996 um að heimila nýjar dyr á norður- og suðurhlið biðsalar var felld úr gildi. Það var mat dómsins að þær breytingar sem gerðar vora á húsnæðinu með uppsetningu veggja teljist ekki verulegar og umferð um miðrými hússins hafi ekki verið heft á nokkurn hátt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.