Morgunblaðið - 30.04.1998, Page 8

Morgunblaðið - 30.04.1998, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NEI, nei, Jóhanna mín, hann er ekkert í laxi. Það er bara þessi sunddella, hann þolir ekki að sjá sprænu án þess að fá sér sundsprett í henni... Meint svik í bílaviðskiptum til rannsóknar hjá lögreglunni Rúmar 30 milljónir AUÐGUNARBROTADEILD Lög- reglunnar í Reykjavík hefur nú til rannsóknar meint fjársvik og falsan- ir í viðskiptum með notaðar bifreið- ar sem taldar eru nema ríflega 30 milljónum króna. Bílasali um fer- tugt, sem skilaði inn leyfi sínu til bílasölu í seinasta mánuði, er grun- aður um umrædda starfsemi. Hann var í gær úrskurðaður í 7 vikna far- bann í Héraðsdómi Reykjavíkur. Rannsóknin beinist meðal annars að innflutningi, kaupum og sölu not- aðra bifreiða. Einstaklingur lagði fram fyrstu kæru sem lögð var fram á hendur manninum vegna sölu bfla þegar Rannsóknarlögregla ríkisins var enn starfandi samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins, en það mál fór í bið. Um seinustu áramót mun rannsóknin síðan hafa komið til kasta lögreglu í Reykjavík sem farið hefur með málið síðan. Ábyrgðartrygging talin fölsuð Rannsóknin beinist að viðskiptum mannsins frá árinu 1995 til byrjunar þessa árs, eða um þriggja ára skeið. Meðal annars er um að ræða meinta fólsun á starfsábyrgð fyrir viðskipti með notaðar bifreiðir og falsaðar veðsamþykktir. í upplýsingum frá viðskiptaráðu- neytinu kemur fram að í lögum frá 1994 um sölu notaðra ökutækja sé kveðið á um að leyfisveiting og eftir- lit þeirra sé í höndum sýslumanna. Sýslumaðurinn í Reykjavík hafi í júlí 1995 gefið út leyfi til handa um- ræddum bifreiðasala. „Til grundvallar útgáfu leyfisins lágu þau gögn sem lög kváðu um, þ.e. forræðisvottorð, prófskírteini prófnefndar bifreiðasala og yfirlýs- ing frá Sparisjóði Mýrasýslu, undir- rituð af sparisjóðsstjóra, um að um- ræddur bifreiðasali hefði starfsá- byrgðartryggingu hjá sparisjóðnum. Tryggingin var ótímabundin," segir í upplýsingum ráðuneytisins. I aprfl í fyrra hafi lögum um sölu notaðra bifreiða síðan verið breytt með þeim hætti að ráðuneytið tók við útgáfu leyfa en embætti lög- reglustjóra á hverjum stað við eftir- liti með starfsemi bifreiðasala. Ráðuneytið hafi í framhaldinu óskað eftir staðfestingu á að starfsábyrgð- artrygging bifreiðasala væri í gildi. Aðrir bflasalai- höfðu keypt sér tryggingu hjá tryggingafélögum og var beðið um staðfestinguna til að öruggt væri að þeir hefðu greitt ið- gjöld sín. Ráðuneytið fékk í kjölfarið staðfestingu vegna umrædds bfla- sala, undirritaða af fyrmefndum sparisjóðsstjóra. „Umræddur bifreiðasali skilaði leyfi sínu til viðskiptaráðuneytisins 10. mars síðastliðinn. Rúmlega viku síðar, eða 18. mars, fékk ráðuneytið vitneskju um meinta fólsun um- ræddrar starfsábyrgðartryggingar, með bréfi frá lögmanni Sparisjóðs Mýrasýslu," segir Arni Magnússon, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra. Ábyrgðin mun því ekki hafa verið til staðar frá upphafi. Nokkrir verið yfirheyrðir Ómar Smári Armannsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn hjá þeirri deild lögreglu í Reykjavík sem fer með auðgunar- og fíkniefnabrot, vildi í samtali við Morgunblaðið ekki tjá sig um rr.álið en staðfesti að rann- sókn þess stæði nú yfir og nokkrir aðilar hefðu verið yfirheyrðir í tengslum við hana. Hunt's tómatsósa 680 gr. Andrex wc 4 rúllur Allfr dagar eru tilboðsdagar hjá okkiir NI HEIM • UM LAND ALLT Hunt's. Foreldrafélag misþroska barna 10 ára Upplýsinga- og fræðsluþjónusta Matthías Kristiansen Foreldrafélag misþroska barna á tíu ára afmæli um þessar mundir. Nýlega var á vegum félagsins opnuð Upplýsinga- og fræðslu- þjónusta fyrir foreldra og fagfólk sem vinnur með misþroska bömum. Um 440 félagsmenn eru í for- eldrafélaginu og Matthías Kristiansen hefur verið formaður þess frá upphafi. „Við höfum fundið áþreifanlega fyrir því að bæði foreldra og fagfólk hefur vantað fræðsluefni um misþroska. Slíku efni höfum við viðað að okkur. Þennan fyrsta ársfjórðung sem Upplýsinga- og fræðsluþjónustan hefur verið starfrækt hafa 250 manns haft samband eða komið til okkar.“ - Hversu stór hópur bama og unglinga ermisþroska? „Þær tölur eru á reiki hérlend- is því mikið hefur skort á að böm- in séu greind hér tímanlega. Er- lendis þar sem greiningin er komin lengra á veg er talið að 5- 7% séu misþroska eða um það bil einn í hverjum bekk.“ - Hver eru einkenni mis- þroska? „Misþroski er regnhlífarheiti yfir ýmis vandamál eins og at- hyglisbrest, ofvirkni og námsörð- ugleika af ýmsu tagi. Þráhyggju- árátta er oft eitt af einkennum misþroska og af þeim leiðir önnur margháttuð vandamál. Misþroska börn skera sig oft úr, þau era gjarnan útskúfuð og eiga til að afla sér vinsælda með trúðslátum. Þeim er miklu hættara en öðrum að lenda á ógæfubraut og ánetj- ast fíkniefnum eða smáglæpum á unglingsáram þar sem þau glíma oft við innri óróleika á þeim ár- um.“ - Hversu fijótt er hægt að greina misþroska? „Það er algengt að um 3-4 ára aldur séu einkennin orðin greini- leg. Sú jákvæða þróun hefur átt sér stað að markvisst er farið að leita að þessum bömum í fjög- urra ára skoðun. Misþroska barn er gjarnan fyrirferðarmikið og hleypur hugsunarlaust út á götu ef því er að skipta. Oft gengur vel með barnið á meðan það er á leik- skólaaldri þar sem ekki era gerð- ar til þess kröfur. Vandamálin byrja fyrir alvöra þegar skóla- gangan tekur við. Þá þarf bamið að fylgja reglum skólans, sitja og hlusta og einbeita sér. Börnin hafa kannski ekki fengið grein- ingu og skólinn er alls óviðbúinn að taka á þessum vandamáli." Matthías segir að kennarar hafa ekki hlotið sérstaka þjálfun í að greina þessi böm sem skyldi og sú niðurskurðarstarfsemi sem hefur verið á sér- kennslu segir hann að hafi komið illilega nið- ur á misþroska ein- staklingum. - Hvernig er búið að misþroska bömum og unglingum á hinum Norðurlöndunum? „Þar eru börn mun fyrr greind með misþroska en hér á landi. Svíar era með litla hliðarbekki þar sem misþroska bömum er kennt hluta af skólatímanum. Þar tíðkast að fleiri starfsmenn sinni bekkjum þar sem misþroska börn era á meðan ekki er óalgengt að einn kennari sé með 25 börn hér á landi. Misþroska börn hafa eðli- lega greind en ná sjaldnast að vinna með hana sem skyldi þar ►Matthías Kristiansen er fædd- ur í Reykjavík árið 1950. Hann lauk BÁ prófi f tungumálum frá Háskóla Islands árið 1975 og hlaut kennararéttindi frá Kennaraháskólanum í Þránd- heimi árið 1975. Matthías hefur kennt í tuttugu ár og starfar nú sem þýðandi. Hann er einn af stofnendum Foreldrafélags misþroska barna og hefur verið formaður þess frá upphafi. Eiginkona hans er Heidi Kristiansen og þau eiga þijú börn. sem meðferðarúrræði era ekki fyrir hendi.“ - Hvemig meðferð fá mis- þroska börn og unglingar? „Það er mismunandi eftir böm- um og löndum. f Bandaríkjunum hefur lyfjameðferð notið vinsælda en á Norðurlöndunum hefur fjöl- skyldu- og atferlismeðferð meira verið beitt. Hérlendis hefur ákveðin meðferðartækni verið við lýði á barna- og unglingageðdeild Landspítalans og sömuleiðis á Greinngarstöð ríkisins. Þar er á hinn bóginn svo mikið að gera að sýnilegar fatlanir hafa tekið mestan tíma starfsfólks.“ Matthí- as segir að eftir greiningu mis- þroska þurfi í raun teymi af fag- fólki sem takist á við vandann en hann segir slíkan kost fátíðan. „Slík teymisvinna hefur líka verið reynd á Akureyri og tekist vel eftir því sem ég best veit.“ - Getur misþroski elst af fólki? „Nei, en á unglingsáram kann hreyfiórói að minnka og stundum vex þá innri óróleiki. Það er ekki hægt að lækna misþroska en má með með réttri meðferð draga úr einkennum. Aukin fræðsla til for- eldra skiptir líka höfuðmáli í þessu sambandi." - Hvemig kemur misþroski fram á fullorðinsár- um? „Stundum virðist hann leiða til ákveð- inna félagslegra erfið- leika og þunglyndi og geðklofi er algengari meðal full- orðinna misþroska einstaklinga en annarra. Þeir verða verst úti sem enga aðstoð hafa hlotið í upp- vextinum." - Ef foreldra gmnar að bam sé misþroska hvert eiga þeir þá að snúa sér? „Þeir geta haft samband við foreldrafélagið til að verða sér úti um efni um misþroska en fyrst og fremst ættu þeir að snúa sér til heimilislæknisins eða bamalækn- is til að fá greiningu.“ 5-7% bama eru misþroska

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.