Morgunblaðið - 30.04.1998, Síða 30

Morgunblaðið - 30.04.1998, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 30. APR'ÍL 1998____________________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FRÁ sýningunni á Horninu Morgunblaðið/Árni Sæberg Stálætingar Passíuteikningar Morgunblaðið/Árni Sæberg í LOFTSAL. Kvöldmáltíð. Blýteikning á pappír 210x110 cm, 1994-97. MYIVDLIST Hornið Hafnarstræti GRAFÍK - ANNA SNÆDÍS SIGMARSDÓTTIR - SIGRIJN ÖGMUNDSDÓTTIR Opið alla daga frá 14-18, einnig inn- angengt frá veitingabúð ld. 11-23. Til 6. maí. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ er óvenju þekkilegur svipur yfir Hominu um þessar mundir og eru þar á ferð stöllur í grafíklistinni með gjörólíkar myndir og virðast eiga fátt sameiginlegt annað en að vinna báðar í sömu tækninni, stál- ætingu. Stálið virðist hafa sérstaka áferð og er vafalítið harðara en zinkið og koparinn sem menn nota að jafnaði, en þetta er grunnflötur sem ég hef ekki unnið í og átta mig ekki gjörla á muninum. Hins vegar trúi ég ekki öðru en að ná megi þessum áhrifum úr sígildu miðlunum, en það er hátt- ur ungra að vera í stöðugum til- raunum í þrykktækni og enginn maður með mönnum sem ekki er með í leiknum. Hins vegar vill sjálf grafíkin og innri lífæðar hennar oft- ar en ekki mæta afgangi í útfærslu hugmyndanna og skoðandinn jafn- framt á gati í aðferðunum, nema að hann sér einna helst muninn á djúp- og háþrykki og vinnslu í tré og málmi. Það hefur þó lengstum talist til ávinnings að geta greint tækni- brögðin og því greinilegar sem þau skína í gegn, þeim færari þótti ger- andinn í sinni grein og afraksturinn verðmætari. Alveg eins og gerist með olíumálverkið, að hve þunnt sem viðkomandi málar á efnisáferð- in að skína í gegn og á það sama við um akrýl og vatnsliti. Ekki fæ ég séð neitt nýstárlegt við það að valta yfir þessi fomu gildi og varla þætti kvenfólkinu það til fyrirmyndar að vera í forláta silkiflík, sem hefði svip af allt öðru efni t.d. pokastriga! Það ánægjulega við þessa sýn- ingu er að hjá báðum stöllunum skín sjálf grafíktæknin í gegn og einnig að um málmætingar er að ræða, þótt svo þær velji ólíkar leið- ir. Anna Snædís útskrifaðist úr grafíkdeild MHÍ 1994 og hefur haldið eina einkasýningu í listhús- inu Úmbru 1996, þar sem hún sýndi silkiþrykk á striga með blandaðri tækni með áherslu á áferðina. En að þessu sinni vinnur hún fyrst í lita- hryni mjúkra strangflataforma, en þrykkir svo dökkt aðalform þar yfir, sem tekur á sig ýmsar myndir en virkar sem grind myndflatarins. Nær afar ljóðrænum og þekkilegum árangri í myndum nr. 23 og 24 svo og nr. 25-28, og er jafn mettuð graf- ík næsta fátíð á sýningum hér í borg. Minnir á margt sem gert var í París í málverki og grafík fyrir margt löngu og er raunar í fullu gildi þar enn. Það sem helst gefur myndunum gildi er hve hreint er gengið til verks og væntanlega skynjar listakonan þá möguleika sem þetta vinnuferli býr yfir og óra- fjarri er að hún hafi tæmt. Sigrún Ögmundsdóttir útskrifað- ist úr grafíkdeild MHÍ 1985, eða fyrir réttum þrettán árum, og þó er þetta frumraun hennar á höfuð- borgarsvæðinu! Hún hefur þannig haft hægt um sig og kannski er það eðli hennar að velta hlutunum fyrir sér í stað þess að framkvæma þá án tafar. Framlag hennar er minningar úr fortíð, eins konar dagbókarslitur eða huglæg brotabrot sem ekki komast til skila í orðum eða á ljós- mynd. Um er að ræða röð stærri mynda er tengjast minningu um efnisáferð, t.d. á veggjum, stein- steypu, mosa, sandi, smásteinum, vatni, mýkt og jámi, - tímalegu ferli og eyðingu. Svo eru það minninga- brot í formi smámynda, sem flæða um hugann í formi lita, ófullburða hugsana en inn á milli skýrist opin- berunin, myndin - áður en hún fyrn- ist og hverfur. Hér er sennilega full- mikil og persónuleg hugmynda- fræði á ferð og útkoman fullþoku- kennd á köflum. Hins vegar má af vinnubrögðunum ráða að listakonan mun hafa af mun meiri grómögnum að taka úr listmal sínum en þetta af- markaða sýnishom. Bragi Ásgeirsson MYNDLIST Hallgrfmskirkja TEIKNINGAR VALGERÐUR BERGSDÓTTIR Opið á tímum kirkjunnar. Til 14 maí. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ er árviss venja hjá List- vinafélagi Hallgrímskirlgu í tilefni páskanna, að fá myndlistarmenn til að sýna verk trúarlegs eðlis í rými aðalinngangs, helst vinna þær með trúarhátíðina í huga. Jafnframt em þar á öðram árs- tímum sýningar á myndlistarverk- um sem á einhvem hátt tengjast kraftbirtingi guðdómsins. Hlutvakin kirkjulist á sér langa hefð eins og flestir vita, en list trú- arlegra tákna er enn eldri og óhlutbundnir kirkjugluggar hafa veitt dularfullu lita- og ljósflæði inn í guðshús um aldir, er á stund- um mesta sjónræna opinberanin er mætir kirkjugestinum. Magnar upp í honum trúarlega hugljómun, sem er einmitt mikilvægastur þáttur í byggingu guðshúsa stórra sem smárra. Það mun líka öðra fremur vera tilgangurinn hjá list- vinafélaginu, að lyfta upp stemmningunni í fordyrinu, gera aðkomuna hátíðlegri fyrir kirkju- gesti áður en gengið skal inn í sjálft voldugt kirkjuskipið. Einhver mestur misskilningur meðal núlistamanna á fyrstu ára- tugum aldarinnar má telja að hafi verið að snúast alfarið gegn kirkjulist og var mikið til pólitísks eðlis. Einnig að upp risu víða sál- arlaus guðshús meinlætis í skreyt- ingum, og jafnvel málað yfir skreyti sem fyrir var í þeim eldri sbr. kalkmálverkin í dönskum kirkjum eftir siðaskiptin. Man ég glögglega hve andúðin var sterk um miðbik aldarinnar og hve mikil umskipti það vora er Henri Matis- se (1869-1954) skreytti klaustur- kapellu Notre-Dame du Rosarie í Vence í nágrenni Nizza, og full- gerði 1950. Vakti eiginlega heims- • ÞRJÁR nýjar bækur eru komnar út, sem Uglan, íslenski kiljuklúbburinn hefur gefið út. Brotahöfuð eftir Þórarin Eldjám. í kynningu segir: „Brotahöfuð er áhrifamikil söguleg skáldsaga, glettin og sorgleg í senn, borin uppi af næmum mannskilningi og aðdáunarverðri stílgáfu Þórarins Eldjárns." Bókin kom fyrst út 1996.“ Sálmur að leiðarlokum eftir athygli og hafði ómæld áhrif á þróunina, og enginn minni bógur en Marc Chagall (1887-1985) fylgdi í fótspor hans eftir 1957. Ekki var þó laust við að undran og tortryggni vildi lengi áfram loða við þá sem tóku að sér kirkjuleg verkefni, en ffumkvæði meistar- anna reyndust engin elliglöp held- ur vegvísar til framtíðar. - Blýteikningar Valgerðar Bergsdóttur í yfirstærðum era ekki einungis unnar fyrir Hall- grímskirkju á páskum 1998 heldur einnig lýsingar á atburðum í kyrruviku, og þá helst föstudags- ins langa. Rissin stóra eru mjög í anda þess sem Valgerður hefur verið að vinna að á undanfömum áram, að því viðbættu að hún gengur út frá trúarlegum táknum og atburðum sem gerðust þessa örlagaríku viku.°Yfirleitt hafa riss listakonunnar fram að þessu verið huglæg kraftbirting á óhlutlægum nótum en nú bregður svo við að inn í formagaldra setur hún fólk og andlit og vill þá verða nokkur togstreita á milli þessara þátta. Nýjar bækur Erik Fosnes Hansen. Dansinn dunaði um borð í Titanic, fræg- asta farþegaskipi allra tíma, sem lagði í apríl 1912 í sína fyrstu - og hinstu - för. Og þeir sem léku undir dansinum eru í aðalhlut- verki í þessari „margslungnu skáldsögu sem farið hefur sigur- för um Norðurlönd og víðar“, eins og segir í kynningu. Hannes Sig- fússon skáld þýddi. Fegurð sögunnar eftir eist- Andlitin birtast kannski óforvar- andis líkt og á sér stað í felumynd og þannig séð grípa þau frekar inn í heildarferlið og raska því en styrkja. Eitt verkið er þó undan- tekning sem er númer eitt á skrá og nefnist „í loftsal. Kvöldmáltíð" og er jafnframt stærst eða 210x150 cm. Þetta er einnig nýjasta verkið svo halda má fram að gerandinn hafi loks verið búinn að setja sig fullkomlega inn í hlut- ina. Að mínu mati er hér um lang- samlegast safaríkustu og hrein- ustu teikninguna að ræða, því að hér er ekki um neitt formrænt samkrull að ræða heldur vel og markvisst upp byggða heild, sem felur þó í sér mun meiri átök við sjálfan myndflötinn og efniviðinn, sjálft rissblýið. Þá eru heilagleik- amir ólíkt betur teiknaðir og meira samræmi yfir heildarhryn. Mætti alveg álykta að Valgerður Bergsdóttir væri komin inn á svið sem hún mætti leggja meiri rækt við, því hér skiptir sjálft rissið mestu en ekki formgerðin. Bragi Ásgeirsson nesku skáldkonuna Vivi Luik lýsir andrúmsloftinu í Eystrasaltsríkj- unum þegar þau lönd voru undir jámhæl Sovétríkjanna. „Frásagn- araðferð sögunnar er sérstök, bragðið er upp sterkum svip- myndum af mannlífinu í þessum ríkjum, jafnhliða því sem einni fjölskyldu er fylgt í gegnum svipt- ingar áranna í kringum 1968 og lýst áhrifum þeirrar „byltingar“ á ungt fólk í austantjaldslöndunum." Gleymdir gimsteinar TðNLlST llallgrímsktrkja KIRKJUTÓNLEIKAR Verk eftir Jdn Leifs, Saint-Saens, Pál ísdlfsson, Áskel Jdnsson, Höller, Bach og Brevi. Arndís Halia Ás- geirsddttir sdpran; Inga Rds Ing- dlfsddttir, selld; Hörður Áskelsson, orgel. Hallgrimskirkju, sunnudag- inn 26. aprfl kl. 17. SÓLIN glampaði óskert inn um ósteinda glugga Hallgríms- kirkju á sunnudaginn var, þegar efnt var til tónleika fyrir sópran, selló og orgel til heiðurs Peter- Paul Schautes, þýzkum velgjörð- armanni Listvinafélags Hall- grímskirkju. Undirritaður komst því miður ekki í tæka tíð til að heyra fyrstu tvö atriðin, Þrjú kirkjulög Op. 12a og Praeludiae organo Op. 16 eftir Jón Leifs, en Priére íýrir selló og orgel eftir Camille Saint- Saéns hljómaði mjög fallega í víðæmi musterisins, enda verkið nærri því sem skapað fyrir mikla hljómgun með syngjandi angur- væram sellólínum í himnesku „vox coelestis“ faðmlagi orgels- ins, hvort hljóðfæri um sig í ör- uggum höndum Ingu Rósar Ing- ólfsdóttur og Harðar Hallgríms- kantors. Ung sópransöngkona, Arndís Halla Ásgeirsdóttir, er sungið hafði áður Op. 12a eftir Jón Leifs, söng nú Máríuversi Páls ísólfssonar (ljóð Davíðs Stefáns- sonar) og samnefnt lag (ljóð e. Matthías Jochumsson) eftir Áskel Jónsson við orgelundirleik Harðar. Arndís hefur undanfarið verið við framhaldsnám við Listaháskólann í Berlín og mun ráðin næstu tvö ár við eitt af þrem stærstu óperahúsum borg- arinnar. Rödd hennar var ein- staklega tær og falleg en þegar vel skóluð, og virtist einmitt nú vera stödd á þessu dýrindis milli- skeiði milli „álfkonu og val- kyrju,“ þar sem allar leiðir virð- ast opnar, áður en álag óperu- húsanna fer að taka sinn toll; þroskaskeiði sem er jafnheillandi og það - því miður oftast nær - er stutt. Arndís söng í lok tónleikanna aríuna Bist du bei mir, talin eftir G.H. Stölzel (og eina ferðina enn eignuð J.S. Bach, enda að vísu bráðfalleg) og gleymda perlu eft- ir Giovanni Battista Brevi (f. 1650), einsöngskantötuna Delici- ae terrenae fyrir sópran og fylgi- bassa, við samleik Harðar á org- el og Ingu Rósu á selló. Var sá flutningur ljómandi góður, og þó að víðgelmisandsvör kirkjuhvelf- inga drægju nokkra dulu yfir flúrsönginn í kantötu Brevis, einkum hjá þeim er fjær sátu, mátti samt greina furðugóða raddbeitingu og þroskaða túlkun hjá jafiiungri söngkonu. Ætti á þessu stigi að vera óhætt að spá henni góðum frama í síharðnandi samkeppni söngheims - með von um að tærleiki raddarinnar hald- ist sem lengst. Skjóta má hér inn, að klapp áheyrenda milli atriða í kantöt- unni var heldur hvimleitt, enda ekki um óperasýningu að ræða, jafnvel þótt frammistaða söng- konunnar væri vissulega hríf- andi. Hallgrímskantor hefur áður reynzt fundvís á gleymda jarknasteina tónbókmenntanna, eldri sem yngri. Kantata G.B. Brevis var skínandi dæmi um það; bráðfalleg miðbarokktónlist gædd sérkennilega tímalausri heiðríkju og afar vel samin fyrii- söngröddina. Annað dæmi var atriðið næst á undan Stölzel, orgelverk Karls Höllers (f. 1907), Hugleiðing um sálmalagið „Dýrlegi Jesú“ Op. 55; langt og margslungið verk er minnti stundum á blöndu af frönskum impressjónisma og nýklassík og nýtti fjölmarga möguleika hins stóra orgels mjög vel. Verkið var sjaldnast mjög átakamikið, en útheimti hins vegar oft töluverða leikni, og endaði á lágstemmdri paradísiskri sælu. Var þakkar- vert að fá tilbreytingu frá sí- heyrðum brúkunarhestum orgel- verkavalsins með þessu áhuga- verða en lítt þekkta verki í hnit- miðaðri túlkun Harðar Áskels- sonar. Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.