Morgunblaðið - 30.04.1998, Qupperneq 64
■*64 FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Frá A til Ö: Hvað er að gerast? Hverjir voru hvar? Hvað er í boði - á skemmtistöðum?
1. Heiða Jónsdóttir
sáum að svala
þorsta þeirra sem
leið áttu á Bíó-
barinn.
2. Sólveig, Arnar,
Þyrí, Anna og
ónefndur vinur.
3. Þóra M. Birgis-
dóttir, Sigurður
Einarsson, Þor-
steinn Einarsson
og Marcus Gr-
indeback.
4. Karen Bern,
Cecilia
Gahnström og Sif
Svavarsdóttir.
5. Bíóbarinn var
þéttsetinn þegar
líða tók á nótt-
ina.
Barinn með
kvikmynda-
þemað
Bíóbarinn hefur verið hluti næturlífs
Reykjavíkur í rúm sjö ár. Guðmundur As-
geirsson kom þar við eina helgina.
KLAPPARSTÍGURINN er orðin
ein helsta skemmtanagata borgar-
innar. Við hann standa fjögur öldur-
hús, veitingastaður, vídeóleiga og
sjoppa. Bíóbarinn stendur á mótum
Klapparstígs og Hverfisgötu, eins og
hann hefur gert síðan 1991. Eins og
nafnið gefur til kynna er staðurinn
tileinkaður kvikmyndum, sem eru
einskonar þema í skreytingum á efri
hæðinni. Upphaflega stóð þar röð af
básum með raunverulegum gömlum
bíósætum og borðum þöktum kvik-
myndaleikskrám eins og tíðkuðust í
^fyrndinni. Bíósætin hafa nú vikið
' 'fyrir hefðbundnari húsgögnum, sem
sjálfsagt gefa fleirum kost á að hvíla
lúin bein. Aldnar kvikmyndaauglýs-
ingar prýða veggi, auk ýmissa muna
sem minna á kvikmyndaheiminn.
Bakgarðurinn var lokaður, eins og
hann hefur verið í vetur, en fréttir
hermdu að hann yrði opnaður helg-
ina eftir, strax í upphafi sumars.
Það var rólegt á Bíóbamum fram
eftir fóstudagskvöldi. Heiða á bai-n-
um ljóstraði því upp að tónleikar
annars staðar í miðbænum löðuðu
marga af fastagestum staðarins í
burtu og bjóst við rólegri vakt. Kjall-
arinn var lokaður þetta kvöld þar
sem Kristinn Gunnar Blöndal, aðal
plötusnúður staðarins, var einmitt
staddur á þessum sömu tónleikum
að gegna skyldum sínum sem hljóm-
borðsleikari sveitai-innar Botnleðju.
Mislitur hópur vermdi þó flest sæti á
efri hæð. Greinilegt er að fólk úr
ólíkum áttum sækir Bíóbai’inn, fólk á
öllum aldi-i og af ýmsum gerðum.
Um tvöleytið íylltist staðurinn. Það
er reyndai- algengt að borgarbúar
geri fjöldaáhlaup á barina rétt fyrir
lokun, hvers vegna veit ég ekki. Eina
stundina sveif ró yfír bjórum, tíu mín-
útum seinna vai- Bíóbarinn troðfullur.
Hluti hópsins reyndi að komast að
bamum á meðan hinir sóttu fast að
komast niður í kjallarann til að
skvetta þar ærlega úr klaufunum.
Það var mikið fjör í kjallara Bíó-
barsins á laugardagskvöldið, þegar
skífuþeytirinn var kominn til
starfa á ný. Leiðin niður á
dansgólfið var opnuð og þang-
að streymdi fríður flokkur tón-
elskra ungmenna, enda staður-
inn þekktur fyrir að leika það
nýjasta í tónlistinni hverju
sinni. Þangað koma reglulega
þekktir útlenskir plötusnúðar til
að hrista upp í stemmningunni.
Ekki að hún þyrfti hristingar við
þetta kvöldið, því villtur dans
dunaði í kjallara Bíóbarsins,
langt, iangt fram eftir nóttu.
Veitingar:
Kranabjór kostar kr. 300-500 kr.
stór, 200-300 kr. iítill. Tvöfaldur al-
gengur í gosi kostar 750 kr. Boðið er
upp á staðbetri veitingar í samvinnu
við pizzustaðinn Eldsmiðjuna. í bak-
garðinum er grill sem gestir geta
notað þegar veðrið leikur við okkur á
sumrin.
■ ÁLAFOSS FÖT BEZT Á fimmtu-
dagskvöld verða tónleikar með
Bubba Morthens og hefjast þeir kl.
22. Á fóstudags- og laugardagskvöld
leikur Vestmannaeyjahljómsveitin
Dans á rósum. Námskeið í Kjalnes-
ingasögu hefst mánudag.
■ 8-VILLT leikur á Gauki á Stöng
fimmtudagskvöld og í Hlöðufelli,
Húsavík, föstudagskvöld.
■ BROADWAY A fimmtudagskvöld
verður sýningin Rokkstjörnur ís-
lands þar sem allir helstu rokkarar
sögunnar eru heiðraðir. Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar leikur á
dansleik að lokinni sýningu. Á laug-
ardagskvöld heldur sýning á nýrri
söngdagskrá ABBA áfram. Þeir sem
koma fram eru Sigurður H. Ingi-
marsson, Kristján Gislason, Erna
Þórarinsdóttir, Rúna G. Stefáns-
dóttir, Birgitta Haukdal og Hulda
Gestsdóttir. Hljómsveitarstjóri er
Gunnar Þórðarson, um sviðsetningu
sér Egill Eðvarðsson og dansstjóri
er Jóhann Örn. Á eftir leika þeir
Bjarni Ólafur (Daddi) og ívar Guð-
mundsson og Stuðbandalagið.
■ BÚÐARKLETTUR, BORGAR-
NESI Á fimmtudagskvöld leikur
hljómsveitin Úlrik og á fóstudags-
kvöld leikur Hörður G. Ólafsson.
■ CAFÉ MENNING, DALVÍK Á
föstudagskvöld verður herra- og
konukvöld þar sem heiðursgestir
verða systkinin Jóhannes Kristjáns-
son eftirherma og Elísabet Krist-
jánsdóttir gleðipinni. Dansleikur
verður á miðnætti þar sem hljóm-
sveitin Tvöfóld áhrif leikur. Að-
gangur er 2.000 kr. Hjón/par 3.500
kr. Miðasala hjá leikmönnum meist-
araflokks UMFS. Innifalið í miða-
verði er borðhald, skemmtiatriði og
dansleikur.
■ CAFÉ ROMANCE Ástralski pí-
anóleikarinn Robin Rose er staddur
hér á landi í 3. sinn og leikur frá
þriðjudagskvöldi til sunnudags-
kvölds frá kl. 22 fyrir gesti veitinga-
hússins.
■ CATALÍNA KÓPAVOGI
Fimmtudags-, fostudags- og laugar-
dagskvöld leikur dúettinn Juke Box.
■ CROISZTANS heldur sína síð-
ustu tónleika hér á landi föstudaginn
1. maí. Tónleikarnir verða jafnframt
útgáfutónleikar því út er komin
frumraun hljómsveitarinnar Karta.
Croisztans er á förum í tónleikaferð
um Evrópu og er ekki væntanleg
aftur fyrr en á næsta ári. Tónleik-
arnir verða haldnir í Rósenberg og
hefjast kl. 23. Aðgangseyrir er 200
kr. Boðið verður upp á léttar veiting-
ar og skemmtiatriði.
■ DANSHÚSIÐ GLÆSIBÆ Á laug-
ardagskvöld_ leikur Hljómsveit Ara
Jóns og Úlfars Sigmars. Lokað
fóstudagskvöld.
■ FEITI DVERGURINN Á föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
Einar Jónsson.
■ FJARAN Jón MöIIer leikur róm-
antíska píanótónlist fyrir matar-
gesti.
■ FJÖRUGARÐURINN Veislur að
hætti víkinga. Víkingasveitin leikur
og syngur fyrir matargesti. Hljóm-
sveitin KOS og Magnús Kjartansson
leika fyrir dansi fram eftir nóttu
fóstudags- og laugardagskvöld.
■ GAUKUR Á STÖNG Á fimmtu-
dagskvöld Jeikur hljómsveitin 8-vilIt
til kl. 3. Á fóstudags- og laugardags-
kvöld leikur hljómsveitin Papar og á
sunnudags- og mánudagskvöld verða
tónleikar með Blúsmönnum Andreu.
Hljómsveitina skipa: Andrea Gylfa-
dóttir, Guðmundur Pétursson, Ein-
ar Rúnarsson, Haraldur Þorsteins-
son og Jóhann Hjörleifsson.
■ GISTIHEIMILIÐ ÓLAFSVÍK Á
fimmtudagskvöld skemmtir Hörður
G. Ólafsson.
■ GRAND HÓTEL v/Sigtún Gunn-
ar Páll leikur og syngur perlur dæg-
urlagatónlistarinnar fyrir gesti hót-
elsins fóstudags- og laugardagskvöld
kl. 19-23.
■ GULLÖLDIN Á fimmtudagskvöld
leika Gleðigjafarnir André Bach-
Frá A til Ö
mann og Kjartan Baldursson til kl.
3. Á föstudags- og laugardagskvöld
leika félagarnir Svensen & Hall-
funkel til kl. 3. Á fimmtudagskvöld
verður djass með Kvartett Þorsteins
Eiríkssonar. Kvartettinn skipa auk
Þorsteins þeir Sveinbjörn Jakobs-
son, Siguijón Árni Eyjólfsson og
Jón Þorsteinsson. Aðgangur er
ókeypis.
■ H.M. KAFFI SELFOSSI Dúettinn
Brilljantín leikur föstudagskvöld.
Dúettinn sem skipaður er þeim
Ingvari Valgeirssyni, gítarleikara og
söngvara og Sigurði Anton bassa-
leikara mun hefja leik um kl. 23.30 og
er aðgangur ókeypis.
■ HOTEL SAGA Fimmtudags- og
sunnudagskvöld er Mímisbar opinn
frá kl. 19-1. Föstudags- og laugar-
dagskvöld opið kl. 19-3. Stefán Jök-
ulsson og Ragnar Bjarnason leika
um helgina. í Súlnasal verður
skemmtidagskráin Ferða-Saga þar
sem landsfrægir skemmtikraftar
spyrja gesti og gangandi „How do
you like Iceland?" Dansleikur með
hljómsveitinni Saga Klass til kl. 3.
■ HÓTEL ÖRK A föstudagskvöld er
dansleikur með hljómsveitinni Pass
og á laugardagskvöld eru spánskir
tónar með Kristni H. Árnasyni, gít-
arleikara og dansleikur á eftir.
■ KAFFI AKUREYRI Á fimmtu-
dagskvöld verður konukvöld með
tískusýningu. Kynnir er Sunna
Borg. Sigga Beinteins og Grétar Ör-
vars leika frá kl. 24-3 en þau leika
einnig fóstudagksvöld. Á laugardags-
kvöld sér Elli Erlends um danstón-
list.
■ KNUDSEN STYKKISHÓLMI
Hljómsveitin Stykk leikur fóstudags-
og laugardagskvöld.
■ KRINGLUKRÁIN Á fimmtudags-,
fóstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld leikur hljómsveitin Léttir
sprettir. í Leikstofunni fimmtudags-
kvöld leikur Ómar Diðriksson og á
föstudags- og laugardagskvöld tek-
ur Viðar Jónsson við.
■ LANGISANDUR, AKRANESI Á
laugardagskvöld verður dansleikur
með Bjarna Ara og Milljónamæring-
unum.
■ LEIKHÚSKJALLARINN Á
fimmtudagskvöld þeytir Matthilding-
urinn Siggi Hlö skífur og á fóstu-
dagskvöld er það ívar Guðmundsson
sem sér um tónlistina. Á laugardags-
kvöld verður dansleikur með Sljórn-
inni.
■ LUNDINN, VESTMANNA-
EYJUM Dúettinn í hvítum sokkum
leikur fimmtudags-, föstudags- og
laugardagskvöld en dúettinn gaf út
geisladisk á síðasta ári og munu þeir
eflaust leika lög af honum ásamt
nýju efni í bland við annað. Dúettinn
skipa þeir Guðmundur R. Lúðvíks-
son og Hlöðver S. Guðnason.
■ NAUSTIÐ er opið öll kvöld frá kl.
18 fyrir matargesti.
■ NAUSTKJALLARINN Á fimmtu-
dagskvöld leikur Skugga-Baldur til
kl. 2. Á fóstudags- og laugardags-
kvöld verður lifandi tónlist til kl. 3
bæði kvöldin. Dúettinn Þotuliðið
leikur.
■ NÆTURGALINN Á fimmtudags-
kvöld verður kántrýkvöld með Við-
ari Jónssyni og á föstudags- og laug-
ardagskvöld leikur Galabandið
ásamt Önnu Vilhjálms til kl. 3. Á
sunnudagskvöld tekur Hljómsveit
Hjördísar Geirs við og leikur gömlu
og nýju dansana til kl. 1.
■ RAIN, KEFLAVÍK Hljómsveitin
Hafrót leikur fimmtudags-, fóstu-
dags- og laugardagskvöld.
■ REYKJAVÍKURSTOFAN píanó-
bar við Vesturgötu. Hilmar J.
Hauksson leikur á flygil.
■ RÚNAR ÞÓR og hljómsveit leika
fimmtudagskvöld í Hrísey og fóstu-
dags- og laugardagskvöld á Rauða
ljóninu, Reykjavík.
■ RÓSENBERG Á fimmtudags-
kvöld verða rokk/metal tónleikar
með hljómsveitunum Bisund, Spit-
sign, Krumpreður, Kuml og Krisen-
íus. Tónleikarnir hefjast kl. 23. Á
föstudagskvöld leikur hljómsveitin
Croisztans;
■ SIR OLÍVER Á fimmtudagskvöld
leikur trúbadorinn Ingvar Valgeirs-
son, fóstudagskvöld leikur blússveit-
in Barflugnr, á laugardagskvöld
leikur dúettinn Trípóli' og á sunnu-
dagskvöld leikur dúettinn Vilhjálm-
ur Goði og Pétur Örn.
■ SIXTIES leikur fóstudagskvöld í
Félagsheimilinu á Blönduósi og á
laugardagskvöld á Bíókaffi, Siglu-
firði. Hljómsveitin er að fara að gefa
út plötu í lok maí með sínum bestu
lögum auk tveggja nýrra.
■ STELPUPARTÝ MATTHILDAR
verður haldið í Þórshöll, Brautar-
holti, laugardagskvöld. Kynnir
kvöldsins verður Heiðar Jónsson.
Þeir sem koma fram eru Davíð Þór
með uppistand og Páll Óskar og
Casino. Einnig verður undirfatasýn-
ing frá Ég og þú og happdrætti.
Forsala aðgöngumiða er í Cosmo,
Laugavegi, en miðafjöldi er tak-
markaður. Verð 1.200 kr.
■ THE DUBLINER Á fimmtudags-,
föstudags- og laúgardagskvöld leik-
ur hljómsveitin Hálfköflóttir. Á
sunnudagskvöld er Ceól Chun Ól.
■ ÚLRIK leikur á dansleik í Búðar-
kletti Borgarnesi fimmtudagskvöld
og á fóstudagskvöld leikur hljóm-
sveitin á Kristjáni IX., Grundar-
firði.
■ VEGAMÓT Öll fimmtudagskvöld
er ,Absalout“ jasskvöld. Á föstu-
dagskvöld verður salsa og á laugar-
dagkvöld verður funk-kvöld þar sem
fram koma tveir bongótrommuleik-
arar ásamt D.j. Flux & Ýmir.
■ TILKYNNINGAR í skemmtana-
rammann þurfa að berast í síðasta
lagi á þriðjudögum. Skila skal til-
kynningum til Kolbrúnar í bréfsíma
569 1181 eða á netfang
frett@mbl.is.