Morgunblaðið - 30.04.1998, Blaðsíða 66
ð>B6 FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Panelplötur
Ómálaðar • Málaðar
Viðarlitir • Speglar
Úrval fylgihluta
Faxafeni 10 • 108 Reykjavík
Simi 581 1091 • Fax 553 0170
ECONCEZaö
Mmkm
innréttingar
Fagleg ráðgjbf
Hagstætt verð
Leitið tilboða
'Jmboðs- & hoíldvorslun
FÓLK í FRÉTTUM
EDDA Björgvinsdóttir, Gísli Rún-
ar Jónsson og Arnar Jónsson voru
að ræða eitthvað skemmtilegt.
ANDREA Gylfadóttir og Lára
Stefánsdóttir ætluðu að skemmta
sér þetta kvöld.
GÚSTAF Valgarð og Sigríður Jó-
hannesdóttir voru sammála um
ágæti skemmtunarinnar.
RÚSSÍBANARNIR njóta vaxandi
vinsælda og léku á als oddi þetta
kvöld sem önnur.
Troðfullur
Rússíbani í
Kaffíleikhúsinu
í Kaffíleikhúsinu í Reykjavík eru reglulega
____haldin svokölluð Rússíbanaböll._
Guðmundur Asgeirsson kannaði málið
og komst að því að uppákomurnar eru
vinsælar og óhemju fjörugar.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞAÐ var Iétt sveifla á dansgólfinu og fólk var farið að svitna vel.
RÚSSÍBANAR eru hljómsveit sem
nýtur sívaxandi vinsælda, aðallega
meðal íbúa höfuðborgarinnar.
Orðstír sveitarinnar hefur um nokk-
urt skeið laumast hljóðlega manna á
milli og nú er svo komið að þegar
haldin eru Rússíbanaböll þurfa alltaf
æðimargir frá að hverfa. Til marks
um vinsældir sveitarinnar má geta
þess að plata sem hún gaf út með
tónlist sinni fyrir síðustu jól seldist
upp á augabragði, án nokkurrar
markaðssetningar sem heitið gat.
Ástæða þess hve látlaus upphefð
þessarar vinsælu danssveitar hefur
verið er að hún hefur hvorki haldið
opinbera tónleika né böll nema í
Kaffileikhúsinu í Kvosinni í Reykja-
vík. Sá staður er betur þekktur sem
veitinga- og leikhús en dansstaður.
Húsnæðið er heldur lítið og rúmar
aðeins rétt á annað hundrað manns.
Hins vegar virðist hvergi annars
staðar nást eins innileg og hrífandi
stemmning. Því hafa ánægðir dans-
arar smám saman breitt út boðskap-
inn og nú eru fáir sem ekki hafa að
minnsta kosti heyrt talað um Rússí-
bana.
Þetta er að sögn Jóns skugga,
bassaleikara Rússíbana, ástæða þess
að þeir spila helst hvergi annars
staðar. „Við höfum spilað hér á
nokkrum böllum og fyrir utan einka-
samkvæmi og stúdíó er Kaffileikhús-
ið eini staðurinn þar sem við komum
fram,“ sagði Jón í stuttu hléi á dag-
skránni. Þrátt fyrir að sveitin hafí
verið nýbyrjuð að spila þegar blaða-
menn bar að dunaði dansinn dátt og
mikill hiti var í gestum. Jón var
spurður hvort öll Rússíbanaböll
væru svona fjörug. „Já. Það er alltaf
brjálað fjör þegar við spilum í þessu
húsi,“ sagði Jón og Guðni Franzson
klarinettuleikari tók í sama streng.
„Hér erum við í mikilli nálægð við
áheyrendur og upplifum stemmning-
una með þeim, sem er mjög mikil-
vægt fyrir andann í hljómsveitinni.“
Tónlist Rússíbananna er sérkenni-
legur kokteill hristur saman af frá-
bærum hljóðfæraleikurum. Hráefnin
eru dansar eins og tangó og salsa,
slavnesk þjóðlög og slagarar auk til-
brigða við tónverk gamalla meistara
á borð við Brahms og Mozart. Auk
Jóns skugga og Guðna Franzsonar
skipa sveitina Einar Kristján Ein-
arsson á gítar, Tatu Kantomaa á
harmóniku og Kjartan Guðnason á
trommur. Næsta ball Rússíbananna
verður í Kaffíleikhúsinu laugardag-
inn 9. maí.
Fullunnum sérauglýsingum,
sem eiga að birtast sunnudaginn 3. maí,
þarf að skila fyrir klukkan 16 fimmtudaginn 30. apríl
Atvinnu-, rað- og smáauglýsingum,
sem eiga að birtast sunnudaginn 3. maí,
þarf að skila fyrir klukkan 12 fimmtudaginn 30. apríl.
Sími: 569 1111 • Bréfasfmi: 569 1110» Netfang: augl@mbl.is
Auglýsendur
Spjarir gegn eiturlyfjum
SPJARIR 2000
heitir sýning sem
opnuð var í Gallerí
„Nema hvað“ við
Þingholtsstræti 6
síðastliðinn þriðju-
dag. Þar sýna sjö
nemendur úr
textfldeild Mynd-
lista- og handíða-
skóla Islands föt
sem þeir hafa
hannað og saum-
að sjálfir. Sýn-
ingin er liður í
forvarnarátak-
inu „20,02 hug-
myndir um eitur-
lyf ‘ og verður opin til sunnu-
dagsins 3. maí næstkomandi.
Atakið „20,02 hugmyndir um
eiturlyfsem er rekið af ungu
fólki í samstarfi við Hitt húsið
og „ísland án eiturlyfja“, er nú
hálfnað og að sögn Höskuldar
Kára, framkvæmdastjóra átaks-
ins, eru framundan Qölmargar
sýningar og uppákomur og má
þar nefna „framtíðarsýningu" í
Gallerí Geysi, Graffití gjörning
og „Dragshow“ svo nokkuð sé
nefnt. Höskuldur Kári sagði að
nýjar hugmyndir væru vel
þegnar, en „20,02“ er opið öllu
ungu fólki sem hefur áhuga á að
koma með sína sýn á eiturlyf og
vill Ieggja hönd á plóg í barátt-
unni gegn eiturlyfjum. Með-
fylgjandi myndir voru teknar
við opnun sýningarinnar „Spjar-
ir 2000“.