Morgunblaðið - 07.07.1998, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. JIJLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður
Sjúkraliðafélags Islands
Heyrum af sífellt
meiri óánægju
FORRAÐAMENN Sjúkraliðafé-
lags íslands og BSRB hafa að und-
anfómu verið að gera forráðamönn-
um ríkisstjórnarinnar grein fyrir
áhyggjum sínum vegna vaxandi
óánægju með kjör félagsmanna
sinna. Segir Kristín A. Guðmunds-
dóttir, formaður félagsins, að marg-
ar stéttir innan heilbrigðisþjónust-
unnar séu ósáttar með kjör sín.
„Þama er verið að gjörbreyta
samningsumhverfinu sem var þegar
kjarasamningamir voru gerðir, með
þessu sem ég kalla viðbótarsamning
hjúkrunarfræðinga," segir Kristín.
„Okkar fólk spyr því eðlilega hver
staða þeirra sé. Við heyrum af sí-
fellt meiri óánægju heilbrigðisstétt-
anna, ljósmæðra, meinatækna og
fleiri og við teljum ekki jákvætt fyr-
ir verkalýðshreyfinguna að það
skuli þurfa að beita þessum leik-
reglum til að ná eyrum yfirvalda."
Kristín benti jafnframt á að ekki
hefðu nærri allir hjúkrunarfræðing-
ar skilað sér til vinnu á ný þrátt fyr-
ir viðbótarsamninginn og taldi að
þeir myndu bíða þess að teknir yrðu
upp einstaklingssamningar. „Þetta
þýðir einfaldlega að álagið, sem ver-
ið hefur gífurlegt á sjúkraliða, eykst
enn og bætist ofan á þann pirring
sem fyrir er.“
Kristín sagði sjúki-aliða ekki hafa
kosið að fara inn í nýja launakerfið
þar sem þeim hefði verið tjáð að ný
röðun eftir meðferð í aðlögunar-
nefnd myndi ekki gefa sjúkraliðum
neinar kjarabætur, þeir hefðu ekki
óunna yfirvinnu eða önnur atriði til
að fella inn í slíkan samning. „Við
emm bara á strípuðum kjarasamn-
ingum, rétt eins og hjúkrunarfræð-
ingar.“
Kristín kvaðst skynja að fulltrúar
ríkisvaldsins væra jafn áhyggjufull-
ir og sjúkraliðar og sagði áríðandi
að menn ræddu saman. Hún kvaðst
ekki sjá annað en að skógareldar
hefðu kviknað út frá þeim eldi í
ranna sem varð þegar hjúkranar-
fræðingar sögðu upp og fengu sinn
viðbótarsamning. „Það er ekki ljóst
hvemig gengur að slökkva þá elda,“
sagði Kristín að lokum. Hún sagði
nauðsynlegt að halda félagsfund
sjúkraliða bráðlega til að meta stöð-
una. Um 1.100 félagsmenn Sjúkra-
liðafélags íslands era starfandi á
stóra sjúkrahúsunum í Reykjavík,
en alls era félagsmenn um tvö þús-
und.
Morgunblaðið/Jim Smart
Krotið burt
Keflavík
Bflvelta og
árekstrar
ANNASAMT var hjá lögreglunni í
Keflavík um helgina og mikið um
umferðaróhöpp. Á fóstudagskvöld
lentu jeppi og fólksbíll í árekstri á
gatnamótum Aðalgötu og Iðavalla í
Keflavík. Ökumaður fólksbílsins fót-
brotnaði og var fluttur á slysadeild
en farþegi sama bíls viðbeinsbrotn-
aði.
Bíll sem ekið var frá Garði í átt til
Sandgerðis valt laust eftir miðnætti
aðfaranótt laugardags. Ökumaður og
farþegi voru ekki taldir alvarlega
slasaðir en voru lagðir inn á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja til frekari
rannsókna.
Laust eftir miðnætti aðfaranótt
mánudagsins varð harður árekstur á
Hafnargötu í Keflavík vegna framúr-
aksturs. Bifreið sem hugðist taka
fram úr annarri rakst utan í þá síð-
arnefndu þannig að hún snerist og
lenti á veitingahúsinu Strikinu við
Hafnargötuna. Engan sakaði en ann-
ar bíllinn var mikið skemmdur og
var fluttur burt með kranabíl.
Bifreið var stöðvuð á sunnudags-
morgun vegna grans um fíkniefna-
misferli. Við líkamsleit á einum far-
þeganna fannst hassblandað tóbak
og leifar af amfetamíni. Hann var
færður í fangageymslu til frekari
málsrannsókna en sleppt síðar um
daginn þegar málið var talið upplýst.
Fimm ökumenn vora teknir grun-
aðir um ölvunarakstur. Einn var tek-
inn fyrir akstur án ökuréttinda og
var annar sviptur ökuréttindum
vegna hraðaksturs.
Harður
árekstur
við Höfða
ÞRIR bflar lentu saman á móts
við Höfða milli Borgartúns og
Sæbrautar um tvöleytið í gær.
Farþegi úr einum bflnum var
fluttur á slysadeild. Bflarnir
voru allir óökufærir og voru
fjarlægðir með krana af slys-
stað.
VINNUSKÓLI Reykjavfkur
stendur fyrir sérstöku átaki í að
hreinsa burt veggjakrot þessa
vikuna. Atakið hófst formlega
við Hallveigarstaði í gærmorgun
þegar Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarsljóri vatt fyrstu
tuskuna og ræddi við unglinga
sem taka þátt í hreinsunarstarf-
inu.
Vinnuflokkar eru starfandi í
öllum borgarhverfum og munu
þeir hreinsa veggjakrot af þeim
stöðum sem krotað hefur verið á
í óleyfi eða óþökk umsjónaraðila
og eigenda. Vinnuskólinn gerir
þetta átak í samstarfi við bygg-
ingar- og garðyrkjudeild borgar-
verkfræðings og forsvarsmenn
skóla og félagsmiðstöðva.
Stj órnarfundur Nátt-
úruverndar ríkisins
Rekstri frið-
lýstra svæða
breytt?
Á FUNDI stjómar Náttúruvemdar
ríkisins á laugardag var samþykkt
einróma tillaga Magnúsar Oddsson-
ar ferðamálastjóra um að kanna
áhuga sveitarfélaga á því að taka að
sér rekstur friðlýstra svæða. Tillag-
an byggist á nýlegum náttúruvernd-
arlögum þar sem Náttúravernd rík-
isins er heimilað að fela sveitarfélög-
um eða einstaklingum rekstur frið-
lýstra svæða enda fari stofnunin með
eftirlitshlutverk þeirra.
Að sögn Magnúsar Oddssonar,
flutningsmanns tillögunnar, er þetta
tímamótasamþykkt og skref í rétta
átt í náttúruvemd. „Ég fagna þessari
samþykkt stjómarinnar því þetta er
mál sem ég hef lengi talið þarft skref
í náttúruvemd. Þetta er tímamóta-
samþykkt en með henni er búið að
opna á þann möguleika að færa frek-
ara ákvörðunarvald og rekstur til
heimamanna. Þetta ætti að vera til
hagsbóta fyrir viðkomandi svæði þar
sem nábýli og þekking heimamanna
nýtur sín betur á þennan hátt.“
Jafnframt kom fram á fundinum
að fyrsta svæðið, sem skoðað skyldi í
þessu samhengi, væri í kringum
Gullfoss en fleiri friðlýst svæði koma
einnig til greina.
--------------
Sauðárkrókur
Tengivagn
valt og rann
eftir veginum
TENGIVAGN vöraflutningabíls valt
skammt frá Sauðárkróki á sunnudag
og rann nokkra metra eftir veginum.
Loka þurfti þjóðveginum í tvær og
hálfa klukkustund vegna atviksins
og var umferðinni beint aðra leið.
Atvikið átti sér stað síðdegis i og
telur lögregla að ökumaðurinn hafi
verið kominn með bílinn út í kant og
rifið hann síðan snögglega til baka
inn á veginn með fyrrgreindum af-
leiðingum. Ekki urðu slys á fólki en
talsverð röð bíla myndaðist vegna
mikillar umferðar.
--------------
Selfoss
Mótorhjól og
bifreið skullu
saman
ÁREKSTUR mótorhjóls og bifreið-
ar varð á Austurvegi laust eftir
klukkan 13 á mánudag. Ökumaður
mótorhjólsins lærbrotnaði og var
fluttur til Reykjavíkur til aðhlynn-
ingar.
Tildrög slyssins vora þau að bif-
reið sem ekið var þvert yfir Austur-
veginn lenti á mótorhjólinu sem var
á leið austur Austurveginn með
fyrrgreindum afleiðingum.
Morgunblaðið/Ingvar
Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins
♦♦ __
Hjörleifur og Ogmundur starn
áfram í þingflokknum
MARGRÉT Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalagsins, segist
helst vilja að Hjörleifur Guttorms-
son og Ögmundur Jónasson starfi
áfram innan þingflokksins. Hjör-
leifur segist engar ákvarðanir hafa
tekið um málið, en telur þó fremur
ólíklegt að framhald verði á sam-
starfinu. Ögmundur sér að svo
stöddu ekkert því til fyrirstöðu að
hann starfi áfram með þingflokkn-
um.
Hjörleifur segist aðspurður
ekki hafa hugleitt fjárhagsþáttinn
varðandi hugsanlega úrsögn sína
úr þingflokknum. Margrét segir
að ef þingmenn sem segja sig úr
þingflokknum geri kröfu til
styrkja sem honum hefur verið út-
hlutað, hljóti þeir einnig, í anda
þeirrar samábyrgðar sem flokkur-
inn hafi alla tíð staðið fyrir, að
taka á sig hluta af skuldabyrði
hans. Skuldir Alþýðubandalagsins
nema nú um fimmtíu milljónum
króna.
Að sögn Helga Bemódussonar,
aðstoðarskrifstofustjóra AJþingis,
er sérfræðiaðstoðarstyrkjum tií
þingmanna úthlutað ársfjórðungs-
Íega. Styrknum er skipt niður í
hluta sem era jafnmargir og sam-
anlagður fjöldi þingmanna og
flokka, og deilt niður á þingflokk-
ana í samræmi við það. Til að
mynda þingflokk þarf að minnsta
kosti tvo þingmenn, og þingmenn
sem standa utan þingflokka fá því
einn hlut hver.
Kjartan Gunnarsson, formaður
blaðanefndar, sem sér um úthlutun
á útgáfustyrkjum til þingflokk-
anna, segir að úthlutun þeirra fyrir
yfirstandandi ár hafi þegar farið
fram og verði ekki breytt. Hjörleif-
ur og Ögmundur eigi því ekki
kröfu á að fá þá styrki segi þeir sig
úr þingflokki Alþýðubandalagsins.
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Frábær árangur Jóns Arnars
færði íslendingum sigur / B6
Sampras er ótrúlegur - hefur
þegar jafnað met Borg / B16
HIVI ’98
á Netinu
www.mbl.is