Morgunblaðið - 07.07.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1998 25
Steinunn Birna Martynas Svégzda
Ragnarsdóttir. von Bekker.
Þriðjudags-
tónleikar
í Iðnd
STEINUNN Birna Ragnarsdóttir
píanóleikari og Martynas Svégzda
von Bekker fiðluleikari koma fram
á tónleikaröð Iðnó í kvöld kl. 20.30.
A efnisskrá þeirra eru m.a. um-
skriftir Kreislers á verkum Bra-
hms, Dvoráks, og Manuel de Falla.
„Efnisskráin samanstendur af
fjölda smáverka og þekktum lag-
línum frá upphafi aldarinnar," seg-
ir Steinunn Birna. „Rómantíkin
verður áberandi og skírskotar til
tónlistararfleifðar Martynas, sem
lærði hjá ömmu sinni, en hún var
þekktur fiðluleikari af þeirri kyn-
slóð sem iðkaði tónlist á fyrstu ára-
tugum aldarinnar."
Martynas er fæddur í Litháen
og kom fram á fyrstu tónleikum
sínum fimm ára gamall og hefur
m.a. unnið til verðlauna í alþjóðleg-
um tónlistarkeppnum og komið
víða fram í Evrópu og Eystrasalts-
löndunum. Þá er hann opinber list-
rænn sendiherra lands síns og hef-
ur hljóðritað einleiksverk fyrir
fiðlu eftir litháísk tónskáld. Hann
kom fram á tónlistarhátíðinni í
Reykholti í fyrra og mun einnig
leika á henni í sumar. Þau Stein-
unn Birna hafa starfað saman í
nokkur ár og komið fram í París og
á ýmsum tónlistarhátíðum. Þau
vinna nú að gerð geislaplötu og
verða m.a. gestir á Pavillon Balt-
ard listahátíðinni í Frakklandi á
næsta ári.
♦♦♦
Þriðjudagstón-
leikar í Sigur-
jónssafni
GÍTARLEIKARINN Kristján
Eldjárn leikur á þriðjudagstónleik-
um í Listasafni Sigurjóns Ólafsson-
ar í kvöld, 7. júlí kl. 20.30. Á efnis-
skrá Kristjáns eru Marlborough-
tilbrigðin eftir
Fernanando Sor,
Fiðlusónata nr. 2
eftir Bach, E1
Decamerón negro
eftir Leo
Brouwer og Fjór-
ar stemmningar
eftir Jón Ásgeirs-
son frá árinu
1992. „Verk Jóns
Ásgeirssonar
finnst mér vera
heillandi vegna þess hversu til-
gerðarlaust það er,“ segir Kristján
í spjalli um efnisskrána. „I mörg-
um nýrri gítai’verkum bregður fyr-
ir ýmiss konar áhrifum eins og að
rífa í strengina eða banka í gítar-
búkinn, en Fjórar stemmningar
tjáir mikla krafta án alls slíks og
tónskáldið sýnir góðan skilning á
eðli hljóðfærisins.“
Kristján lauk í vor einleikara- og
kennaraprófi frá gítardeild Tónlist-
arháskólans í Turku í Finnlandi
hjá Timo Korhonen, en vorið 1995
lauk hann burtfararprófi í djassgít-
arleik frá Tónlistarskóla F.LH.
undir handleiðslu Hilmars Jens-
sonar og Sigurðar Flosasonar.
Vorið 1996 lauk Kristján burtfarar-
prófi í klassískum gítarleik frá
Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar þar sem aðalkennari hans
var Einar Kristján Einarsson.
Kristján
Eldjárn, gít-
arleikari.
Vefmyndir
í Perlunni
VEFLISTAKONAN Maria Uhlig
opnaði vefmyndasýninguna „Nor-
ræn áhrif“ í Perlunni á laugardag-
inn. Á sýningunni eru 50 myndir af
íslensku og noirænu landslagi eins
og það birtist listakonunni. Aðferð
hennar nefnist „áhrifamikill öldu-
vefur“, en sú aðferð felst í fyrirhafn-
armikilli stögun með mörgum nál-
um samtímis og hefur Maria þróað
hana á grundvelli traustrar vef-
tækni. Maria kom fyrst til Islands
fyrir áratug og segist hafa heillast
af landslaginu, en ferðalög víða um
Norður-Evrópu hafa veitt henni
innblástur til tjáningar á dæmigerð-
um landslagsmyndum úr norðrinu.
Sýning Mariu stendur til 2. ágústs.
Morgunblaðið/Þorkell
MARIA Uhlig veflistakona í Perlunni.
Norskur kór
í Norræna
húsinu
BLANDAÐUR kór frá Hareid,
Sunnmæri í Noregi er staddur á
landinu um þessar mundir. Kórinn
efnir til söngskemmtunar í Nor-
ræna húsinu í kvöld, þriðjudags-
kvöld, kl. 20.
Söngstjóri er Johan H. Grimstad,
kórstjóri og sönglagahöfundur.
Dagskráin er fjölbreytt og mest
áhersla lögð á að kynna landið og
norsk alþýðulög. Sýndar verða lit-
skyggnur jafnhliða tónlistarflutn-
ingnum. Nokkur laganna eru eftir
söngstjórann, sem syngur líka ein-
söng.
Aðgangur er ókeypis.
PEUCEOT
LJÓN Á VEGINUM!
Sendlbílarnlr frá Peugeot eru rúmgóðlr og hafa mlkla burðargetu. Mikið er
lagt upp úr góðum aðbúnaðl ökumanns og vönduðum sœtum því góð
vlnnuaðstaða tryggir betrl líöan og aukln afköst. Vlnnubílarnlr frá Peugeot
hafa fenglð mjög góöa elnkunn fyrlr gott aðgengl, stórar hurðirog elnstaklega
góða vlnnuaöstööu. Peugeot er framtföarvlnnustaður.
Veldu rétta vlnnufélagann, láttu IJóniö vlnna meö þér. Veldu Peugeot.
■■■■
Ljónviljugir
vinnufélagar!
Góður vinnufélagi þarf að vera traustur og
áreiðanlegur. Hann þarf að vera Ijónsterkur
og snöggur op vinna eins og Ijón.
Góður vinnufelagi er gulls ígildi.
artner
- vinnur með þér!
• 3m3 flutningsrými og 600 kg burðargeta
• 1100 cc bensínvél eða 1800 cc dísilvél
• loftpúði, blaðahaldari í mœlaborði og niðurfellanlegt
farþegasceti sem eykur flutningsgetu og getur nýst
sem skrifborð o.fl.
Verð frá aðeins kr. 947.791 án vsk.
Verð kr. 1.180.000 með vsk.
- fagmannlegur!
• sendibill eða 9 manna smárúta
• 4m3 flutningsrými og 815 kg burðargeta
• 1900 cc dísilvél, loftpúði, fjarstýrðar samlcesingar,
rafmagn í rúðum o.fl.
Verð frá aðeins kr. 1.522.891 án vsk.
Verð kr. 1.896.000 með vsk.
oxer
- til í slaginn!
• sendibíll
• 3 lengdir og hár eða lágur toppur
• 2.0 lítra bensínvél eða 2.5 lítra dísilvél með túrbínu
• framdrif og loftpúði sem staðalbúnaður
• fjórhjóladrif, ABS-bremsur, vinstri hliðarhurð, gluggar
o.fl. sem aukabúnaður
Verð frá aðeins kr. 1.574.297 án vsk.
Verð kr. 1.960.000 með vsk.
íoxer
á góóum grunni!
• grindarbíll með einföldu eða tvöföldu húsi
• 3 lengdir
• 2.0 lítra bensínvél eða 2.5 lítra dísllvél með túrbínu
• framdrif og loftpúði sem staðalbúnaður
• fjórhjóladrif, ABS-bremsur o.fl. sem aukabúnaður
Verð frá aöeins kr. 1.358.233 án vsk.
Verðkr. 1.691.000 meðvsk.