Morgunblaðið - 09.07.1998, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 11
Borgarlögmaður um sveitarstjórnarlög
Lögin ekki í
gildi fyrr en
1. október
HJÖRLEIFUR Kvaran borgar-
lögmaður telur að vegna fordæmis-
gildis ákveðins dóms Hæstaréttar
megi draga þá almennu ályktun að
ný sveitarstjórnarlög, sem birt
voru í Stjómartíðindum 5. júní,
taki ekki gildi fyrr en að liðnum al-
mennum gildistökufresti frá birt-
ingu laga. Lögin öðlist því ekki
gildi fyrr en liðnir séu þrír heilir
mánuðir frá birtingu þeirra eða 1.
október næstkomandi.
Borgarlögmaður tók saman
minnisblað um gildistöku nýju
sveitastjómarlaganna að beiðni
Ingibjargar Sóh*únar Gísladóttur
borgarstjóra. Rekur hann að lögin
vom samþykkt á Alþingi 28. maí og
áttu samkvæmt vilja Alþingis að
taka gildi 1. júní. Forseti íslands
undirritaði lögin 3. júní og birtust
þau í Stjómartíðindum 5. júní.
„Þar sem framkvæmdavaldinu
tókst ekki að uppfylla þau form-
skilyrði sem gerð era til gildistöku
laga má halda því fram að lögin
hafi tekið gildi þegar öll formskil-
yrði vora uppfyllt og þar með hafi
þau tekið gildi við birtingu eða 5.
júní s.l.,“ segir m.a. í minnisblaði
borgarlögmanns.
Hann vitnar síðan til Hæstarétt-
ardóms frá árinu 1997 þar sem
reynt hafi á gildistöku laga. Þau
hafi átt að öðlast gildi 1. janúar
1995 en hafi fyrst verið bh-t í
Stjómartíðinum 9. mars. Því hafi
Hæstiréttur í tUvitnuðum dómi
ákveðið að ekki yrði dæmt eftir ný-
samþykktu lögunum. Borgarlög-
maður lýsir sig sammála þessari
niðurstöðu Hæstaréttar og telur
dóminn hafa fordæmisgildi ef reyni
á gildistökuákvæði annarra laga.
Ráðinn prófessor
í geðlæknisfræði
HANNES Pétursson
tók við stöðu prófess-
ors í geðlæknisfræði
við læknadeUd Há-
skóla Islands og stöðu
forstöðulæknis við
geðdeildir Ríkisspítala
hinn 1. júlí síðasthðinn.
Hannes tók við starfi
af Tómasi Helgasyni
prófessor sem lét af
störfum fyrir aldurs
sakir 1. mars 1997.
Hannes lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reylqavík
1968 og embættisprófi
frá læknadeild Há-
skóla íslands 1975.
Hann stundaði framhaldsnám í
geðlækningum og rannsóknarstörf
við Lundúnaháskóla
1976-1982 og lauk
doktorsprófi þaðan
1983. Hannes var yfir-
læknir geðdeildar
Borgarspítalans frá
1982 og síðar forstöðu-
læknir Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Jafnhliða
læknisstörfum hefur
hann stundað kennslu
og rannsóknir bæði í
Bretlandi og hérlendis.
Hannes var skipaður
dósent í geðlæknis-
fræðum við læknadeild
Háskóla íslands 1988.
Hannes er kvæntm*
Júlíönu Sigurðardótt-
ur, fulltrúa hjá Nýherja hf., og eiga
þau þrjár dætur.
Hannes
Pétursson
Samstarfssamningur við Grænland
Grundvöllur skipta
á veiðiheimildum
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra undirritar í dag á
Grænlandi rammasamning um
aukna samvinnnu Grænlands og
íslands varðandi rannsóknir og
menr.tun á sviði sjávarútvegs og
um nýtingu sameiginlegra fiski-
stofna.
„Samningurinn kveður á um að
þjóðimar skuli leitast við að ná
samkomulagi um sameiginlega
stofna og hann getur verið grand-
völlur fyrir skiptum á veiðiheimild-
um,“ segir Þorsteinn. „Það verður
sett á fót sérstök fiskveiðinefnd á
grandvelli samkomulagsins sem
verður falið að fjalla um fram-
kvæmdina."
Þorsteinn segir að þau verkefni
sem blasi við í samskiptum land-
anna varðandi sjávarútvegsmál séu
stjóm á grálúðuveiðum og sameig-
inlegum karfastofni, en að þeim
viðræðum muni Færeyingar einnig
koma.
Þorsteinn segist vonast til þess
að í framtíðinni verði hægt að gera
grænlenskum námsmönnum kleift
að stunda nám við Sjávarútvegshá-
skóla Sameinuðu þjóðanna á Is-
landi. Hann segir að Grænlending-
ar hafi einnig sýnt áhuga á sam-
starfi við Islendinga varðandi
auknar rannsóknir á loðnustofnin-
um.
SlDAH 1972
EÐALPÚSSNING
MARGIR LITIB
!l steinprýöi
STANGARHYL 7, SIMI 567 2777
FRETTIR
Heimsókn forseta norska Stórþingsins
Morgunblaðið/Arnaldur
KIRSTI Kolle Grondahl, forseti norska Stórþingsins, og Sigurgeir Steingrímsson, aðstoðarforstöðumaður
Ámastofnunar.
Niðurstaða úrskurð-
arnefndar staðfestur
Handritin
skoðuð
HEIMSÓKN forseta norska Stór-
þingsins, Kirsti Kolle Grondahl,
til Islands lýkur í dag. Grondahl
kom síðastliðinn sunnudag, sótti
Akureyringa heim og skoðaði
sig víðar um, m.a. við Mývatn. I
gær átti hún fund með Halldóri
Asgrímssyni utanrfldsráðherra
ojg heimsótti því næst Stofnun
Arna Magnússonar þar sem Sig-
urgeir Steingrímsson aðstoðar-
forstöðumaður stofnunarinnar
tók á móti Grondahl og sýndi
henni handritasafnið.
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur staðfest úrskurð úrskurðar-
nefndar um að niðurstaða kjör-
stjórnar Kelduneshrepps um kosn-
ingu í 2.-5. sæti varamanna í
hreppsnefnd sé ógild.
Með vísan til laga telur ráðuneyt-
ið að við ákvörðun um hver teljist
kjörinn varamaður í sveitarstjórn
beri að leggja saman þau atkvæði
sem viðkomandi fær í sæti aðal-
manns og í sæti varamanns auk
þeirra atkvæða sem hann fær í sæti
varamanna á undan því sæti sem um
er að ræða ef við á. Samtala þeirra
atkvæða ráði burtséð frá því hvort
hann fái atkvæði í það sæti vara-
manns sem á að úthluta eða ekki.
Þannig nýtist þau atkvæði að fullu
sem viðkomandi fær sem aðalmaður
við úthlutun á sætum varamanna.
Kjömefnd skal því samkvæmt úr-
skurði úrskurðarnefndar gefa út
kjörbréf til Bjöms Guðmundssonar,
Lóni, sem 2. varamanns í hrepps-
nefnd og ákvarða á ný um kosningu
í 3.-5. sæti varamanna að undan-
genginni endurtalningu í þau sæti.
Rýmingarsalan er hafin
30-60% afsláttur
Mikið úrval
af nýjum
herrafatnaði
Verðdæmi:
Jakkafötfrá.......9.900
Skyrturfrá........1.900
Buxur frá.........2.900
Skórfrá ..........2.900
Stakir jakkar frá....4.900
Vesti ..................1.900
KRINGLUNNI
LAUGAVEGI 91