Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 13
FRÉTTIR
JÓN Þór Júlíusson, t.v., og Björn Þór Gunnarsson, sautján og fjór-
tán ára frændur, með 15 laxa dagsveiði úr Korpu á sunnudag.
Margir sækja um
laus prestaköll
Þistilfjarð-
arárnar
lofa g'óðu
NÚ eftir helgina voru komnir 22
laxar á land úr Hafralónsá í Þistil-
firði og eru menn nokkuð sáttir við
þá útkomu. Árferði í Þistilfírði hef-
ur ekki verið líkt neinu hérlendis,
þar hefur lengst af sumri verið
mjög kalt og sumarið talsvert á
eftir áætlun. Því er það að 22 laxar
á land eru taldir góðs viti, að það
verði beinlínis líflegt þegar sumar-
ið heldur loks innreið sína. Ekki
liggja fyrir nákvæmar tölur úr
Sandá og Svalbarðsá, en þar eru
menn einnig þokkalega ánægðir
með gang mála. Ekki er mikil
veiði, en menn eru að reyta upp
físka og sjá laxa.
Mok í Haukadalsá
Júlíana Magnúsdóttir, bústýra í
veiðihúsinu við Haukadalsá sagði í
gærdag að um það bil 200 laxar
væru komnir á land úr ánni og
miklar smálaxagöngur færu nú
upp ána. Eftir hádegi þriðjudags-
ins veiddust t.d. 22 laxar. Sagði
Júlíana að horfur væru vægast
sagt góðar, fyrsti hálfi mánuður-
inn hefði gefið 82 laxa og væri það
mesta veiðin síðan metveiðisumar-
ið 1988.
Góður gangur
í Laxá á Ásum
Á þriðjudaginn var kominn 201
lax aland úr Laxá á Ásum að sögn
Jóhönnu Rristjánsdóttur, veiði-
varðar við ána. Jóhanna sagði síð-
asta holl hafa verið með 15 laxa á
tvær stangir eftir daginn og væri
fluguveiði vaxandi. Frá lO.júlí til
lO.ágúst verður einungis fluga
leyfð og er það nýlunda í Laxá. Jó-
hanna sagði Laxá komna langt
fram úr sér miðað við svipað leyti
tvö síðustu ár þrátt fyrir hversu
rólega veiðin hefði farið af stað.
„ll.júlí í fyrra voru komnir 123
laxar og sama dag 1996 voru
komnir 122 laxar. Þetta er því
miklu betra og nú er mikill lax að
ganga,“ sagði veiðivörðurinn.
Fréttir úr Djúpinu
Veiði hefur byrjað bærilega í
Laugardalsá við Djúp. Um mán-
aðamótin voru komnir a.m.k. tutt-
ugu laxar úr ánni og þar af hafði
eitt hollið veitt fjórtán. Lax sást í
ánni rúmri viku áður en hún var
opnuð, en er veiði hófst var allur
lax á bak og burt, trúlega genginn
upp í Laugarbólsvatn. En svo
komu fleiri laxar og fóru sér hæg-
ar. Veiði hefur einnig verið í
Langadalsá, einhverjir tugir fiska
eru komnir á land.
UMSÓKNARFRESTUR um laus
prestaköll rann út þann 1. júlí síð-
astliðinn. Alls voru 20 umsækjendur
um þær 9 stöður sem voru lausar en
flestir sóttu um embætti sjúkra-
prests þjóðkirkjunnar eða fimm.
Jafnmargar konur og karlar sóttu
um embættin.
Um Breiðabólsstaðarprestakall í
Rangárvallaprófastsdæmi voru fjór-
ir umsækjendur, þau sr. Hannes
Bjömsson, Kristín Þórann Tómas-
dóttir, guðfræðingur, Sigurður
Grétar Sigurðsson, guðfræðingur,
og sr. Önundur Björnsson.
Um Kirkjubæjarklausturspresta-
kall í Skaftafellsprófastsdæmi sóttu
sr. Bryndís Malla Elídóttir, sr.
Gunnar Bjömsson og sr. Þórey
Guðmundsdóttir.
Um Sauðárkróksprestakall í
Skagafjarðarprófastsdæmi sóttu
Guðbjörg Jóhannesdóttir, guðfræð-
ingur, sr. Hörður Þ. Ásbjömsson og
sr. Þorgrímur Daníelsson.
Um Skútustaðaprestakall í Þing-
eyjarprófastsdæmi sótti sr. Ömólf-
ur J. Ólafsson, en hann hefur verið
settur þar síðan í s.l. haust.
Um Valþjófsstaðarprestakall í
Múlaprófastsdæmi sótti Lára G.
Oddsdóttir, guðfræðingur.
Um embætti sóknarprests í Vest-
mannaeyjaprestakalli í Kjalarnes-
prófastsdæmi sóttu Bára Friðriks-
dóttir, guðfræðingur og sr. Kristján
Bjömsson og um embætti prests í
sama prestakalli sótti einnig Bára
Friðriksdóttir, guðfræðingur.
Um stöðu sendiráðs- og sjúkra-
húsprests í Kaupmannahöfn sótti
sr. Birgir Ásgeirsson.
Um stöðu sjúkraprests þjóðkirkj-
unnar á Ríkisspítölum sóttu sr.
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, sr.
Hulda Hrönn M. Helgadóttir, sr.
Magnús B. Björnsson, Ragnheiður
Jónsdóttir, guðfræðingur og sr.
Þórey Guðmundsdóttir.
Kirkjumálaráðherra skipar í
embætti sóknarprests til fimm ára
og biskup Islands skipar í embætti
prests, sömuleiðis til fimm ára.
---------------
Hitaveita
Skagafjarðar
stækkar
BOÐNAR hafa verið út fram-
kvæmdir við stækkun Hitaveitu
Skagafjarðar. I sumar verður lögð
leiðsla frá Varmahlíð niður í Hólm-
inn og frá Sauðárkróki fram Borg-
arsveit að Gili.
Að sögn Gísla Gunnarssonar, for-
seta bæjarstjórnar, er áætlað að
þessar framkvæmdir muni kosta
um 20 milljónir kr. í ár. Á næsta ári
er síðan áætlað að ljúka lagningu
leiðslu á milli Varmahlíðar og Sauð-
árkróks og tengja bæina sem eftir
em á þeirri leið.
verð aðeins: I.^IO.UUU Kr.
Öflug 1400 vél og sjálfskipting
^™aSo,
romt //,
PEUGEOT
LJÓN Á VEGINUM!
Peugeot 106 5 dyra - kattliðugur
Þaö koma engin meöalljón fró Peugeot. Snerpa og lipurö gera Peugeot 106 að
veröugum fulltrúa Peugeot. Þessi smóbíll fœst nú meö öflugri 1400cc vél og sjáltskiptingu
sem skilar sér í trábœrum aksturseiginleikum, miklu afli og einstakri lipurð. Það er enginn
meöaljón á Peugeot.
NYBYLAVEGI 2
SIM1: 554 2600
0PIÐ LAUGARDAG KL. 13-17
Bilver flkranesi • Bílalangi, Isafirði • Bilasala Akureyrar • Skipaaforeiðsla Búsavíkur • Fell, Fgilsstoðum • Vélsmiðja Hurnaijarðar • Muggur, Vestmannaeyjum