Morgunblaðið - 09.07.1998, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Ný álma við Sjúkrahúsið í Keflavík
Tekin í
árið
Keflavík - Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra tók nýlega
fyrstu skóflustunguna að svokall-
aðri D-álmu við Sjúkrahúsið í Kefla-
vík. Hún sagði við það tækifæri að
þar með væri langþráður draumur
loksins orðinn að veruleika. Undir-
búningur að verkinu hefði hafist ár-
ið 1987 og því væri það komið á
fermingaraldur. Hún sagði enn-
fremur að í október árið 2000 væri
síðan ráðgert að vígja bygginguna.
Þegar er búið að bjóða út fyrsta
áfanga sem er uppsteypu- og fulln-
aðarfrágangur að utan og var það
dótturíyrirtæki Islenskra aðalverk-
taka, Lava hf., sem átti lægsta til-
boðið að upphæð 116 milljónir
króna. Kostnaðaráætlun var 132
milljónir. D-álman verður á þrem
hæðum og sagði Jóhann Einvarðs-
notkun
2000
son, forstjóri Sjúkrahúss Suður-
nesja, að fyrsta áfanga verksins
ætti að ljúka í september á næsta
ári.
Nafn D-álmunnar er þannig til-
komið að elsta bygging sjúkrahúss-
ins er kölluð A-álma, viðbygging við
hana er kölluð B-álma og þriðja við-
byggingin sem hýsir heilsugæslu-
stöðina er kölluð B-álma. Bygging
D-álmunnar hefur lengi verið bar-
áttumál Suðumesjamanna og sagði
Anna Margi-ét Guðmundsdóttir,
stjómarformaður Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja, við þetta tækifæri
að nágrannana greindi á um mörg
mál sem sameiginlega snertu sveit-
arfélögin. En um þetta mál hefði
alltaf verið einurð og samstaða og
því fógnuðu Suðurnesjamenn lang-
þráðu marki í dag.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigðisráðherra tekur fyrstu skóflustunguna. Við hlið hennar stendur Anna
Margrét Guðmundsdóttir, sljórnarformaður Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson
Nýr prestur
og nýr
hökull
Skagaströnd - Séra Guðmundur Karl Brynjarsson,
nýkjörinn prestur í Skagastrandarprestakalli, var
settur inn í embætti af séra Guðna Þór Ólafssyni,
prófasti á Melstað, í messu í Hólaneskirkju á sjó-
mannadaginn. Guðmundur Karl hefur undanfarin
tvö ár starfað sem skólaprestur í Reykjavík en
tekur nú við starfi sóknarprests á Skagaströnd.
Guðmundur Karl er kvæntur Kamillu Hildi Gísla-
dóttur kennara og eiga þau tvö börn.
I messunni afhentu Dómhildur Jónsdóttir og
synir hennar, Jón Hallur og Pétur Ingjaldur
Péturssynir, Hólaneskirkju hökul að gjöf.
Hökullinn er til minningar um séra Pétur Þ.
Ingjaldsson, eiginmann Dómhildar, en hann
þjónaði á Skagaströnd í 41 ár en lést árið 1996.
Hökulinn er saumaður af nunnunum í Karmel-
ítuklaustrinu í Hafnarfirði og á honum eru
myndir sem tengjast altarissakramentinu.
Nýkjörinn prestur á Skagaströnd, Guðmundur
Karl Brynjarsson er í nýjum hökli sem Dómhildur
Jónsdóttir og synir hennar gáfu Hólaneskirkju til
minningar um séra Pétur Þ. Ingjaldsson sem var
prestur á Skagaströnd í 41 ár.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
UNNIÐ við malbikun við höfnina í Neskaupstað.
Mikið malbikað
í Neskaupstað
Neskaupstað - Miklar malbikunar-
framkvæmdir hafa staðið yfír hér
undanfarna daga. Búið er að leggja
út rúm 2000 tonn af malbiki sem
þekja um 17.500 fm.
Meðal þess sem malbikað hefur
verið er 7.500 fm gámaplan við
höfnina. Þá hefur verið lagt töluvert
á lóðir Verkmenntaskólans og
íþróttahússins auk gatna og gang-
stétta. Malbikið sem notað er kem-
ur úr Malbikunarstöð sveitarfélags-
ins en Malarvinnslan á Egilsstöðum
sér um lagningu þess.
7 0 ára afmæli UMF
Æskunnar í Dölum
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
MARÍA Karen Ólafsdóttir og Auður Eva Auðunsdóttir,
starfsmenn Græns íss.
Minjagripir og
sumarhús
Búðardal - 20. júní síðastliðinn var
minnst 70 ára afmælis UMF Æsk-
unnar í Dölum. Dagskrá hófst með
víðavangshlaupi íyrir hádegi, en eft-
ir hádegi fór fram knattspyrnukapp-
leikur milli eldri félaga. Kaffiveit-
ingar voru um miðjan dag, komu
margir þar saman og fengu sér
hressingu og áttu saman ánægju-
lega stund. Meðal gesta var einn af
stofnendum félagsins, Herdís Guð-
mundsdóttir frá Hóli í Norðurárdal,
nú búsett á dvalarheimilinu í Borg-
arnesi.
Um kvöldið var dagskrá og var
Kristinn Jónsson verslunarmaður í
Búðardal stjómandi. Fyrst flutti
Guðmundur Geirsson formaður
ávarp og síðan sagði Hjörtur Ein-
arsson frá stofnun félagsins og starfí
þess íyrstu árin. Þar á eftir var
fluttur leikþáttur - í fundaformi -
eftirlíking fyrri funda. Um hann sáu
nokkur börn undir stjórn Þorgríms
Guðbjartssonar. Síðan fluttu fulltrú-
ar frá ungmennafélögum í Dölum
ávörp og afhentu gjafir og blóm. Um
kvöldið var varðeldur ásamt söng
við undirleik á gítar og harmonikku.
En unga fólkið steig dans í félags-
heimilinu Arbliki síðar um kvöldið.
Hinn 19. apríl 1928 - á sumardag-
inn fyrsta - var UMF Æskan stofn-
að í þinghúsi Miðdalahrepps á
Nesodda í Dalasýslu. Félagið varð
því 70 ára á sumardaginn fyrsta síð-
astliðinn. Eins og mörgum er kunn-
ugt var ungmennafélagshreyfingin
þá vöknuð fyrir rúmum 20 árum, og
barst ört um landið. Frelsishugsjón
vakandi þjóðar bar með sér bjartar
vonir um bættan hag - framfarir -
menntun - menning. Þjóðin eygði
nýja dagsbrún eins og þegar bjartur
sumardagur er að rísa, og menn
biðu þess fullir tilhlökkunar að
takast á við verk dagsins í vermandi
sól og sumarblíðu, og eygðu í fram-
sýn marga sigra komandi daga og
ára. Unga fólkið fylltist nýjum eld-
móði, það stofnaði fagnandi sín félög
- af hugsjón og þrá að takast á við
vandamál líðandi tíma. Það fann hjá
sér löngun til að nýta kraftana sem
það fann að með því bjó, og með
samstarfi margra góðra félaga sá
það enn meiri möguleika til enn
meiri sigra, því margt var ógert eftir
margar aldir erlendrar yfirstjórnar.
Stofnfélagar Æskunnar voru 29
talsins, og var elsti félaginn 49 ára,
en ungur í anda þá og alla tíð meðan
hann lifði. íþróttir voru iðkaðar,
glíma og sund (í köldu vatni Miðár).
Málfundir og umræður um ýmis
málefni líðandi stundar var góður
þáttur í félagsstarfínu. Ferðalög til
gamans og fróðleiks voru nær fastur
viðburðir á hverju ári. Leiksýningar
voru lengi drjúgur þáttur í félags-
starfinu og voru afar þroskandi.
Þegar leiksýningar voru á dagskrá
voru nær allir félagar að störfum
sem mögulega gátu, því margt
þurfti að gera við undirbúning (æf-
ingar og leiksýning). Þá voru hjálp-
arstörf góður þáttur sem ekki má
gleymast, þ.e. hjálp veitt þeim sem
höllum fæti stóðu af ýmsum ástæð-
um, s.s. við heyskap á sumrin o.fl.
Ungmennafélagið byggði sitt hús
við þinghús hreppsins árið 1932 og
stækkaði það og bætti við leiksviði
1955. Þá byggði það sundlaug á ár-
unum 1954-60 sem síðan hefur verið
mikið notuð.
í fyrstu stjórn UMF Æskunnar
voru: Sumarliði Jónsson, Neðri
Hundadal, formaður, Flosi Jónsson,
Hörðubóli, gjaldkeri, Klements
Samúelsson, Gröf, ritari. Núverandi
stjóm Æskunnar skipa:, Guðmund-
ur Geirsson, Geirshh'ð, formaður,
Vésteinn Arngrímsson, Fellsenda,
gjaldkeri og Aslaug Finnsdóttir,
Hömrum, ritari.
Selfossi - Ferðaskrifstofan
Grænn fs á Selfossi hefur opnað
minjagripasölu samhliða þeim
rekstri sem félagið hefur stundað
síðastliðið ár. Minjagripasölunni
er ætlað að auka á þá þjónustu
sem erlendir ferðamenn geta sótt
til skrifstofunnar.
Grænn ís er ekki bara ferða-
skrifstofa því að þar er einnig
stærsta sumarhúsamiðlun
landsins, en hún varð til við
samruna Græns íss og X-ferða
sem hafði sumarhúsamiðlunina
á sinni könnu í fyrra. Sumar-
húsaleigan hefur gengið mjög
vel og nú er svo komið að það
vantar fleiri sumarhús á leigu-
skrá. Flest húsin sem eru til
leigu eru á Suðurlandi en einnig
eru leigð út hús annars staðar
af landinu.