Morgunblaðið - 09.07.1998, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 21
ERLENT
Breska læknafélagið ræðir réttmæti þess að læknar aðstoði sjúklinga við sjálfsvíg
The Daily Telegraph.
Á FUNDI breska læknafélagsins á
þriðjudag var ákveðið að haldin
yrði ráðstefna innan árs þar sem
reynt jrrði að komast að sameigin-
legu áliti um hvort réttlætanlegt
væri að læknar aðstoðuðu dauð-
vona sjúklinga við að binda enda á
líf sitt.
Unglæknar lögðu fram tillögu
þessa efnis á fundinum, meðal ann-
ars í ljósi þess að nýleg könnun gaf
til kynna að læknar ættu auðveld-
ara með að fallast á réttmæti þess
að aðstoða sjúklinga við sjálfsvíg
en að framkvæma líknardráp.
Michael Wilks, formaður siða-
nefndar breska læknafélagsins,
sagði að ákvörðunin þýddi ekki að
læknar væru almennt þeirrar skoð-
unar að aðstoð við sjálfsvíg væri
réttlætanleg. „Það er nauðsynlegt
Stefna að sameig-
inlegu áliti
að læknar reyni að komast að sam-
eiginlegri niðurstöðu, á hvorn veg-
inn sem hún verður, því annars
munum við liggja undir ámæli frá
þrýstihópum fyrir að koma okkur
hjá því að ræða þetta viðkvæma
mál,“ sagði Wilks.
Hann lagði áherslu á að bæði að-
stoð læknis við sjálfsvíg, þar sem
sjúklingurinn ræður sjálfur ferð-
inni, og líknardráp, þar sem læknir
eða annar aðili er við stjórn, brytu í
bága við lög.
Unglæknar í fararbroddi
Breska læknafélagið er enn mót-
fallið því að lögunum verði breytt,
en á ráðstefnunni er meðal annars
ætlunin að varpa ljósi á ýmis álita-
mál, svo sem tilvik þar sem læknar
auka lyfjagjöf dauðvona sjúklings,
vitandi að það geti stytt líf hans.
Meðal þeirra sem látið hafa í ljós
álit sitt á málinu er John Marks,
fyrrum formaður félagsins. Hann
sagði að á fjörutíu ára læknisferli
sínum hefði hann aldrei vísvitandi
bundið enda á líf sjúklings. „Ég hef
í nokkrum tilvikum gefið sjúkling-
um stóra lyfjaskammta til að draga
úr þjáningum, þótt ég hafi vitað
fullvel að það gæti stytt líf þeirra.
Ég veit fyrir víst að þegar röðin
kemur að mér mun ég æskja þess
að læknir veiti mér slíka aðstoð.“
Hann rifjaði upp að læknafélagið
hefði árið 1968 tekið þá afstöðu að
fóstureyðingar væru siðferðilega
rangar, en skipt um skoðun fjórum
áram síðar. „Það er hugsanlegt að
unglæknar séu á undan okkur
gömlu jálkunum í afstöðu til þessa
máls, eins og raunin var þá.“
Ungir læknar eru þó ekki ein-
huga um málið. Jonathan Fielden
var einn þeirra sem andmælti til-
lögunni um fyrirhugaða ráðstefnu
og fullyrti að það mál sem virkilega
þyrfti að ræða væri líknarmeðferð
við lífslok. „Það er til skammar að
á árinu 1998 sé ekki hægt að veita
deyjandi fólki viðunandi líknar-
meðferð vegna fjárskorts,“ sagði
hann.
q;
'búðir ‘ hJ'arfo AkUr
I húsinu eru 10 tveggja herbergja íbúöir (ca 50 m2)
og tvœr 4-5 herbergja íbúðir (ca 130 m2).
Húsiö er allt hiö vandaðasta. Sem dœmi md nefna aö inn-
veggir eru hljóðeinangraðir eftir ströngustu kröfum, ALNO eld-
húsinnréttingar, ALNO fatasköpar, ALNO heimilistœki, (ofn,
helluborð og íssköpur), þýskar innihurðir, Nordan norskir
gluggar, sem eru mjög vandaðir og er hcegt að opna ö
ýmsa vegu, m.a. snúa þeim við svo hœgt sé að þvo þö inn-
an frö, Lamella parket frö Finnlandi ö gólfum o.s.frv., o.s.frv.
Byggingaraöili: Samnor ehf. Söluaðili:
Opið hus laugardaginn 11. júlf kl. 13-18
fasteigíVasalan
líYGCil)
KRGKKUGOTII4
Akureyri, símar 462 1744
og 462 1820.