Morgunblaðið - 09.07.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALOG
FIMMTUDAGUR !í. JÚLÍ 1998 28
FRIÐSÆLD í fallegu umhverfi.
Austur-Húnavatnssýsla
Fjölbreytt nátt-
úra og afþreying
fyrir ferðafólk
í A-Húnavatnssýslu er margt að
finna sem gæti vakið áhuga ferða-
mannsins og vert er að vekja at-
hygli á hvort sem viðkomandi er
náttúrunnandi, áhugamaður um
sögu landsins eða er að leita sér
að afþreyingu. Landslagið er
mjög fjölbreytt og má þar finna
fjöll, dali, gil, strendur og mikla
víðáttu. Omar Banine, ferðamála-
fulltrúi á svæðinu, nefnir nátt-
úruperluna Hrútey sem er í
Blöndu. „Hrútey er friðlýstur
fólkvangur. Það er göngubrú út í
eyjuna og því eiga ferðalangar
auðvelt með að skoða sig þar um.“
Ómar nefnir líka Blöndugil sem er
ofar í þessari miklu veiðiá. Gilið
er all hrikalegt með gróðursælum
hvömmum og kjarri, um 18 km
langt og 50-60 metra djúpt. „Það
mætti nefna fleiri gil, svo sem
Álkugil og Kolugljúfur í Víði-
dalsá.“
„Fyrir þá sem kjósa að skoða A-
Húnavatnssýsluna úr bíl er vert að
nefna Vatnsdalinn sem er um 48
km langur og mjög grösugur enda
eru þar margir sveitabæir," segir
Ómar. Að sögn hans er einna
Á BRYGGJUHÁTÍÐINNI á Drangsnesi í fyrra stóðu heimamenn við
grillin og báru fram hrauka af mat.
Bryggjuhátíð
á Drangsnesi
BRYGGJUHÁTÍÐ verður haldin í
þriðja sinn á Drangsnesi á Strönd-
um laugardaginn 18. júlí. Bryggju-
hátíðin er stærsta útiskemmtun
sumarsins í Strandasýslu, sann-
kölluð fjölskylduhátíð fyrir alla
aldurshópa. I ár verður bryddað
upp á ýmsu nýju en nokkrir fastir
liðir eru áfram á dagskránni.
Ævintýraferðir út í Grímsey á
Steingrímsfirði verða farnar allan
daginn og er fyrsta ferð um kl. 11.
Grímsey er falleg, þar er injög
fjölskrúðugt fuglalíf, sem heillar
ferðalanga.
Einn ómissandi liður í bryggju-
hátíð er veiðikeppni barnanna í
Kokkálsvíkurhöfn og fer þátttak-
endum fjölgandi ár frá ári. Veiði-
keppnin hefst klukkan 10 um
morguninn og geta allir krakkar
verið með, þótt þeir minnstu þurfi
kannski að fá aðstoð frá pabba eða
mömmu.
Sjávarréttasmakkið á frystihús-
planinu ætti fólk ekki að láta fram
hjá sér fara. Þar er boðið upp á
flest það sem úr flóanum kemur.
Griilaðar krabbalappir eða siginn
fisk og selspik ásamt ýmsu öðru
góðgæti. Götuleikhús verður í
gangi og börnin fá andlitsmáln-
ingu. Myndlistarsýning verður í
skólanum og þar er einnig rekið
lítið og notalegt kaffihúsi.
Söngvarinn Ari Jónsson
skemmtir gestum Bryggjuhátíðar.
Hann mun einnig vera með
söngvakeppni fyrir börnin í sam-
komuhúsinu Baldri. Margt fleira
verður í boði svo sem sjóstanga-
veiði, grillveisla, hestaferðir,
kvöldskemmtun, varðeldur með
brekkusöng og hátíðinni lýkur svo
með bryggjuballi í Baldri þar sem
hljómsveit Ara Jónssonar leikur
fyrir dansi.
Verðlaun verða veitt fyrir bestu
bryggjuhátíðarmyndina svo ekki
má gleyma að hafa myndavélina
með og vera dugleg að taka mynd-
ir.
Morgunblaðið/Jón Sig.
GÓÐ veiðisvæði eru í A-Húnavatnssýslu.
áhugaverðasta náttúrafyrirbærið í
Vatnsdalnum, Vatnsdalshólar sem
eru sérkennileg hólaþyrping við
mynni Vatnsdals. Hólarnir era
sagðir óteljandi en talið er að þeir
hafi myndast við hran úr Vatns-
dalsfjalli.
Þegar keyrt er út á Skaga má
finna hrikalega hamra þar sem
margir tugi metra era niður að
sjávarmáli. Einn þessara staða er
Ki-óksbjarg sem er norðan við
Skagaströnd og segir Ómar að þar
sé fjölskrúðugt fuglalíf. „Þarna má
meðal annars sjá lunda á kletta-
syllum eða svífa þöndum vængjum
rétt úti við klettasnösina. Það er
ekki varlegt að hætta sér of nálægt
bjargbrúninni.“
Króksbjarg nær út undir Kálfs-
hamarsvík þar sem sjávarströndin
er afar sérkennileg. „Þar fellur
stuðlaberg út í sjóinn nánast lóð-
rétt víðast hvar meðfram strönd-
inni, að því er manni finnst. Þarna
var áður fyrr verstöð þar sem bjó
fjöldi manns.“
Hægt er að komast í
skipulagðar ferðir með
leiðsögn um Skaga.
Tröllið og kirkjan
„Einn fræga.sti þjóð-
sagnasafnari Islands,
Jón Arnason, var
fæddur á Hofi á Skaga:
strönd,“ segir Ómar. „í
þjóðsagnasafni hans er
mikið magn af sögum
úr Húnavatnssýslu.
Margar þeirra eru í
Húnavöku og Sögnum
úr Húnaþingi. Þessar
sagnir tengjast að
miklu leyti áhugaverð-
um stöðum í sýslunni.
Sem dæmi má nefna
sögu eina um Nátt-
tröllið sem var skessa
og bjó í Vatnsdalsfjalli.
Það taldi að sér vegið
þegar Þingeyrakirkja
var byggð en þess má
geta að kirkjan er ein
sérstæðasta og falleg-
asta kirkja landsins,
gerð úr hlöðnu grjóti
og byggð á áranum
1864-77. Skessan
ákvað að brjóta kirkj-
una og notaði til þess
staf sinn. Hún gleymdi
sér við þá iðju og þegar
dagur rann brá henni
svo að hún hrapaði við
norðurenda Vatnsdal-
fjalls. Tröllið nam stað-
ar nokkru fyrir neðan
vegghamarinn þar sem er nú stein-
stöpull og er hann nefndur Kerl-
ing. Bærinn sem stendur fyrir neð-
an fjallsöxlina þar sem skessan
kastaði stafnum dregur nafn sitt af
henni og nefnist Öxl.“
Ómar nefnir líka sögulega at-
burði eins og síðustu aftökuna sem
fór fram hér á landi árið 1830 nyrst
í Vatnsdalshólum við Þrístapa og
Flóabardaga sem háður var á
Húnaflóa árið 1244.
Ein helsta afþreyingin í Húna-
vatnssýslu tengist að sögn Ómars
silungs- og laxveiði. „Auk Blöndu
era fjölmörg vötn úti á Skaga sem
hægt er að veiða í. Yfirleitt er
bændagisting í boði í nágrenninu.
Það er heldur ekki úr vegi að
nefna hestaferðir sem boðið er
upp á í ákjósanlegu umhverfi þar
sem hægt er að fara yfir ósnortið
landsvæði tímunum saman án
þess að sjá nokkurn mann eða
byggingar. Einnig má nefna
jeppaferðir upp á hálendið sem er
stutt frá.“
Sími: 551 9800
http://www.mmedia.is/~sporti
Ótrúlegur styrkur...
>Ö til útivistar
Vj í vei&iferbina
4 til daglegra nota.
S?0'?T
ÚTIVISTARBÚÐIIU
við Umferðarmiðstöðina
Vandaðir gönguskór
fyrir meiri- og minni-
háttar gönguferðir.
Verð frá kr. 5.900
Persónuleg og fagleg þjónusta
http://www.mmedia.is/sportleigan
alpina®
gönguskóp
S?ort
ÚTIVISTARBÚÐIN