Morgunblaðið - 09.07.1998, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 35
‘rt kemur í stað
"aborgarinnar
Á morgun siglir Akraborgin sína síðustu
ferð til Akraness. Sigríður B. Tómasdóttir
og Kjartan Þorbjörnsson fóru í eina af
síðustu ferðum Akraborgarinnar, fylgdust
með lífinu um borð og tóku starfsfólk og
fastagesti „Boggunnar“ tali.
Eins og fastagesta er siður eiga
þeir sín föstu sæti. Við eitt borðið
sitja t.d. menn frá bifreiðastöð ÞÞÞ
sem fara daglega með Akraborginni.
A næsta borði situr Sigurður Sverr-
isson blaðamaður sem býr á Akra-
nesi en vinnur í Reykjavík. „Það er
sorglegt að verið sé að leggja ferðir
Akraborgarinnar niður. Akraborgin
er svo stór hluti af bæjarmenningu
Akraness. Hún siglir nær alla daga
ársins og hefur örvandi áhrif á bæj-
arlífið svo ekki sé minnst á þjónustu-
þáttinn, ég er ekki farinn að sjá það
leysast.“ Að sögn Sigurðar hafa
fastagestir rætt það sín á milli að
leysa málin með því að sammælast
um bílfar á milli Akraness og
Reykjavíkur og þarf tvo í bíl til að
kostnaður verði svipaður og með
Akraborginni.
A111 öinmu að kenna
Það er kominn tími til að fara upp
í brú og heilsa upp á skipstjórann. A
vaktinni er Oskar Olafsson, annar
tyeggja skipsjóra Akraborgarinnar.
Óskar hefur verið skipstjóri frá ár-
inu 1975. „Þetta er allt ömmu að
kenna, við vorum að koma úr ferða-
lagi og vegna þess hve hún var orðin
þreytt á að sitja í bíl ákváðum við að
taka Akraborgina. Á bi-yggjunni
hitti ég fyrir Valdimar Agústsson
stýrimann sem sagði mér að þá vant-
aði mann í afleysingar í tvo til þrjá
daga, ég sló til enda nýbúinn með
stýrimannaskólann og ekki kominn
mep vinnu, hér hef ég verið síðan.“
Óskar segir það standa upp úr eft-
ir öll þessi ár á Akraborginni hversu
mörgu fólki hann hafi kynnst. „Það
kemur þversnið af íslensku þjóðinni
um borð og margir koma hingað upp
í brú. Krökkum finnst t.d. mjög gam-
an að fara upp og fá að skoða allt hjá
okkur. Þeim fmnst líka mjög spenn-
andi að fá að setja á sig skipstjóra-
húfuna," segir Öskar sem sjálfur
klæðist búningnum sjaldan. í brúnni
eru auk Óskars háseti og stýrimaður
en það eru alltaf a.m.k. tveir menn í
brúnni.
Flestir starfsmenn
komnir með vinnu
Klukkan er að nálgast fjögur og
kaffitími í nánd. Við sláumst í för
með Óskari niður í messann þar sem
Gylfi Jónsson kokkur ræður ríkjum.
Yfir kaffibolia og meðlæti eru þjóð-
félagsmálin rædd og segir Gylfi um-
ræðurnar oft snúast um ráðamenn
þjóðarinnar. „Okkur finnst nú oft að
það mætti eyða peningum þjóðarinn-
ar í annað en gert er.“ Gylfi á það
sameiginlegt með æði mörgum
starfsfélögum sínum að eiga langan
starfsaldur að baki. í 25 ár hefur
hann reitt fram morgunmat, hádeg-
ismat, miðdegiskaffi, kvöldmat og
kvöldkaffi ef svo stendur á, fyrir
starfsfólkið.
Flestir 22 starfsmanna Akraborg-
arinnar hafa fengið vinnu aftur.
Nokkrir fara í álverið, fimm verða
starfsmenn Hvalfjarðarganga, af-
gangurinn dreifist. Einn þeirra sem
ekki hefur fengið vinnu er Óskar.
„Veist þú um einhverja vinnu á sjó
handa mér?“ spyr hann. „Ég get
ekki hugsað mér að fara í göngin
enda kalla ég það varla að fá vinnu
þegar menn fara í það sem þeir eru
ekki lærðir til. Kjaraskerðingin
verður líka rosaleg,“ segir Óskar og
samstarfsmenn hans samsinna því
þó þeir séu fegnir að hafa fengið
vinnu.
„Vissulega eru Hvalfjarðargöngin
mikil samgöngubót," bætir Óskar
við, „en það verður missir að skipinu.
Nú verður það að kennsluskipi sem
er alger vitleysa að mínu mati. Frek-
ar ætti að nýta það í siglingar á
Faxaflóa fyrir ferðamenn.“
Eftirsjá að
Akraborginni
Að þessum orðum sögðum er aftur
haldið upp til farþeganna enda stutt í
að lagt verði að bi-yggju á Akranesi.
Guðjón Guðmundsson og Guðrún
Ellertsdóttir eru á leið upp á Akra-
nes eftir hálfs dags dvöl í bænum.
Þau hafa ferðast mikið með Akra-
borginni frá því að þau fluttu upp á
Skaga árið 1971. „Mér finnst þetta
alveg hundfúlt,“ segir Guðrún. „Það
á ekkert eftir að koma í staðinn fyrir
Akraborgina. Hér er svo góð þjón-
usta og þægilegt að lenda beint í
bænum. Mér fínnst verið að reka mig
til að búa í Reykjavík."
Það eru ekki eingöngu fastir við-
skiptavinir sem eiga eftir að sjá eftir
Akraborginni. Hjördís Backman er á
leið með fjölskylduna til Hólmavík-
ur. „Það er þægilegt að taka Akra-
borgina og viss söknuður sem fylgir
hvarfi hennar.“ En það eru ekki allir
sammála þessu, Björn Markús Þórs-
son, kerfísstjóri hjá Hönnun, ferðast
stundum á milli Reykjavíkur og
Akraness starfs sín vegna. „Ég þoli
ekki að fara með þessum dalli og
verð feginn þegar göngin verða
komin í gagnið," segir Björn. „Það
er hrikalegt að hanga hér og gera
ekki neitt.“ Þannig sýnist sitt hverj-
um þó að flestir um borð séu sam-
mála því að missir verði að Akra-
borginni.
Siglingar í rúma öld
ÞEGAR Akraborg hættir ferðum
lýkur lengstu samfelldu sögu í
samgöngumálum Islendinga því
allt frá síðasta áratug síðustu
aldar hafa verið reglulegar sigl-
ingar með fólk og varning á
Faxaflóa.
Ms. Laxfoss kemur til
landsins og siglir á milli Reykja-
víkur, Akraness og Borgarness.
■fcFkJ Laxfoss eyðileggst við
strand og er ms. Eldborg leigð til
siglinganna.
Kfl'IH Lítið gufuskip, Faxi,
keypt til landsins af Sigfúsi Ey-
mundssyni til siglinga milli þétt-
býlisstaða við Faxaflóa.
KlTlBI Siglingar milli Reykjavík-
ur, Borganess og Akraness verða
nokkuð reglulegar.
miwm Hlutafélagið Skallagrímur
stofnað til að annast fólks- og
vöruflutninga milli Reylq'avíkur
og Borganess. Siglt á es. Suður-
landi.
Nýtt skip, sem Skalla-
grímur Iét smíða, kemur til lands-
ins. Skipið fær nafnið Akraborg.
Ferðum í Borgarnes hætt.
IKtHlH Akraborgin leyst af hólmi
með nýju skipi sem einnig hlýtur
nafnið Akraborg. Það er fyrsta
bílferjan í eigu Islendinga.
BKÞriðja Akraborgin tekin í
notkun en það er hún sem hættir
siglingum núna.
...Frá árinu 1974 hafa bflar verið fluttir með Akraborginni. Fyrsta
árið voru 4.862 bflar fluttir, þá var ekki komin bflabrú í skipið og
bflum lyft um borð. Árið 1976 þegar brúin var komin var fjöldi bfla
37.797, þá höfðu alls verið fluttir 62.178 bflar. Árið 1986 var metár
og 80.529 bflar voru feijaðir það árið, alls höfðu 680.222 þá verið
fluttir. í lok síðasta árs var fjöldi bfla kominn í 1.423.482...
...Versta veður sein Akraborgin hefur siglt í var 3. febrúar 1991, Þá
var suðvestanátt og 12 vindstig. Siglingin sem vanalega tekur 1
klst. tók 3% klukkustund. Mikill veltingur var á skipinu eins og
hallamælirinn sýndi en hann var í botni allan tímann, 40 gráðum...
...Starfsmenn Akraborgarinnar eru 22, og eru tólf við vinnu í einu.
Flestir í áhöfninni hafa um tuttugu ára starfsaldur og segja
starfsmenn nánast engan hafa hætt fyrr en ástæða var til vegna
aldurs...
AÐ sögn Óskars Ólafssonar skipstjóra hefur það oft komið fyrir að far-
þegar vakni á sama stað og ferðin hófst.
Á LEIÐARENDA á Akranesi eftir þægilega ferð.
ÓSKAR þakkar Þórarni Helgasyni, háseta og hamskera, fyrir samstarfið.
„Það þyrfti að stoppa einhvern úr áhöfninni upp, þetta eru svo miklir
furðufuglar," varð Þórarni að orði við tækifærið.