Morgunblaðið - 09.07.1998, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ
40 FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998
...
AÐSENDAR GREINAR
Húsnæði er
■* grundvallarmál
„LÍKLEGA á það við
um flesta að þeir hugsa
alla jafna frekar lítið
um húsnæðismál í víðu
samhengi," segir Grét-
ar J. Guðmundsson hjá
Húsnæðisstofnun í
Mbl. 23. júní sl. Grétar
skrifar stundum um
þessi mál, sem er virð-
ingarvert, þótt hann
skrifi oftast frá sjónar-
miði yfirstéttarinnar.
Það er rétt hjá Grétari
að „gífurlegir fjármun-
ir fara úr ríkissjóði til
þessa málaflokks.
Hann hefur því mikil
áhrif á þjóðfélagið í
heild“. Og það er einnig rétt að
„lánafyrirgreiðslan í hinu opinbera
húsnæðislánakerfi er í raun bróður-
parturinn af því sem málaflokkur-
inn húsnæðismál snýst um“. Niður-
staða Grétars er þessi: „Húsnæðis-
málin eru almennt séð í góðum far-
vegi. Ávöxtunarkrafa húsbréfa er
með lægsta móti, sem kemur sér
~r vel, bæði fyrir byggjendur og selj-
endur.“
Skipta 20% þjóðarinnar
engn máli?
Okey - fyrir byggjendur og selj-
endur. En hvað um hina? Hvað um
þá sem hvorki eiga hús né peninga
og geta ekki byggt? Þurfa þeir ekk-
ert húsnæði eða hvað? Undanfarin
ár hefur leigumarkaðurinn að miklu
leyti byggst á söluíbúðum sem ekki
seldust. Þær voru leigðar út, gjarn-
T------------------------------------
an með sérákvæði um
uppsagnarfrest. Nú
eru þessar íbúðir að
seljast og leigjendur
reknir út og stundum
með látum, en engar
íbúðir að hafa í staðinn.
Það ríkir því neyðará-
stand á þessum mark-
aði. Getur það kallast
góður farvegur eða
skipta þessi 20% þjóð-
arinnar engu máli?
Víst er til fólk sem
getur keypt og selt hús
og íbúðir og vill verja fé
sínu til þess. Það er
gott og blessað, enda
nóg framboð á slíku
húsnæði. Það er líka nóg framboð á
lánsfé. Húsbréfakerfið gagnast
/
Eg tel það frumskyldu
samfélagsins, segir Jón
Kjartansson, að móta
húsnæðisstefnu sem
hefur það markmið að
leysa húsnæðismál
fólks.
þessu fólki vel, en hvers vegna geta
bankar og aðrir lánasjóðir ekki sinnt
þessum viðskiptum eins og öðrum?
Húseigendur hafa fengið óverð-
tryggð opinber lán, niðurgreidd lán
og skattfríar vaxtabætur upp á fleiri
milljarða kr. árlega. Hvers vegna
hafa engin skilyrði fylgt slíkri fyrir-
greiðslu, t.d. reglur um útreikning
leigu og bann við því að láta hús-
næðið standa autt þegar aðra vantar
húsnæði? Hvað ætli húseigendur
væru margir hér á landi ef ekld
hefðu verið opinberir lánasjóðir, rík-
isábyrgð og vaxtabætur? Eða til
hvers er opinber fyrirgreiðsla í hús-
næðismálum? Er hún til að hjálpa
efnuðu fólki að safna húseignum,
eða halda ráðamenn að öll þjóðin búi
við sömu lífskjör og þeir? Skuldir
heimilanna nálgast 400 milljarða kr.
og aukast enn, ekki síst með nýsam-
þykktum húsnæðislögum. Ekki
dregur það úr þenslunni sem stjórn-
in ætlar að hemja.
Niðurgreiddar leiguíbúðir
Það er alltof mikið opinbert fé
bundið í alltof stórum húsum, fé sem
full þörf er fyrir annars staðar, með-
an fjöldi fólks er á stöðugum hrakn-
ingi og biðlistar yfirfullir alls staðar
eftir félagslegum leiguíbúðum.
Húsaleigubætur eru ekki aðeins
skattlagðar, þær skerða aðrar bæt-
ur svo sem sérstaka heimilisuppbót
og barnabótaauka. Margir geta ekki
sótt um þær vegna kjaraskerðingar.
Eigendur fá hins vegar svartar
húsaleigutekjur til viðbótar öðru.
Hvers vegna má ekkert af hinum
„gífurlegu fjánnunum" renna til
þeirra sem ekkert hafa nema
skammtaðar bætur og lág laun? Ég
tel það frumskyldu samfélagsins að
móta húsnæðisstefnu sem hefur það
markmið að leysa húsnæðismál
fólks, í stað þess að þjóna eingöngu
viðskiptabraski „drakúlakynslóðar-
innar“. Hér vantar ekkert húsnæði
nema niðurgreiddar leiguíbúðir.
Þessi mál þarf að hugsa og kveða
niður þann séríslenska „rasisma"
sem heitir félagslegur stimpill.
Höfundur er formaður
Leigjendasamtakanna.
Byltingin blívur
VIÐ SEM köllum okkur húman-
ista tölum stundum um byltingu.
Við fáum þá gjarnan augngotur og
fliss, það vita jú allir að byltingin
varð gjaldþrota í Sovét og skipta-
stjóri þar var rússneska mafían
sem bauð kapítalismanum upp í
dans. Meira að segja fólk á besta
aldri sem hefur horft á Islendinga
skríða út úr moldarkofum og setj-
ast fyrir framan PC tölvur og jafn-
vel skjótast út í geiminn á rétt rúm-
lega 50 árum brosir góðlátlega að
þessum vitleysingum sem eru enn
að tala um byltingu.
Gullbjarminn í vestri
Vinstrimenn um allan heim hafa
snúið af villu síns vegar, þeir hafa
séð gullbjarmann í vestri, lögmál
guðdómsins er framboð og eftir-
spurn og gagnrýnin snýst ekki
lengur um kerfi okkar sem slíkt
heldur um einstaka þætti innan
þess, laxveiðar banka-
stjóra o.þ.h. Talsmenn
og varðhundar kerfis-
ins, kerfis borgaralegs
fulltrúalýðræðis, kap-
ítalísks þjóðfélags með
velferðarívafi, takast á
um hvort við eigum að
vera áfram bananalýð-
veldi eða hvort við eig-
um að slást í hóp með
„siðaðri" þjóðum. Um
þá baráttu hafa nánast
allir sameinast í lotn-
ingu, hvort sem menn
kalla sig vinstri- eða
hægrimenn, spurning-
in er bara hversu
miklu eigi að spandera
í velferðarkerfið og hve mikið eigi
að einkavæða. Um hvað snýst þá
bylting okkar? Mig langar hér að
minnast á tvær hliðar hennar.
Lýðræði
Hin fyrri snertir lýðræði. Ef
menn vildu stíga út úr fOabeinstumi
fræðanna, hefðanna og fortíðarinn-
ar, þá gætu menn komist að því að
lýðræði á rætur sínar í brjósti allra
manna, í löngun þeirra til að vera
frjálsir, að fá að hafa áhrif á um-
hverfí sitt og umbreyta heiminum.
Ef menn samþykkja það er næsta
skref að skoða hvernig hægt sé að
útfæra lýðræði í samræmi við mögu-
leika og aðstæður hverju sinni. Ef
menn gera það, þá geta þeir séð
frækom hinnar nýju lýðræðisbylt-
ingar í tækninni, í internetinu, í hin-
um nýju samskiptum. Ef ráðamenn
halda að fulltrúalýðræðið, sem var
besti valkosturinn á tímum hest-
vagna og seglskúta, muni svara
kröfum fólks á næstu öld, þá þjást
þeir annaðhvort af sögulegri nær-
sýni eða hreinlega heimsku.
Félagslegar lausnir
Hin seinni snýr að félagslegum
lausnum og félagslegum rekstri.
Flestir telja að slík fyrirbæri séu
fyrir bí og baráttan fyrir þeim fari
núna eingöngu fram í einhverjum
smáhópum kverúlanta,
síðustu leifum komm-
únismans. Þeir ættu að
kynna sér hvað er að
gerast í Baskahéruð-
um Spánar, samvinnu-
félögin sem þar hefur
verið að fjölga, vaxa og
dafna síðustu áratug-
ina. Fyrirtæki sem eru
fullkomlega sam-
keppnisfær við kapítal-
isk fyrirtæki. Fyrir-
tæki sem framleiða
m.a. hin kunnu Fagor
heimilistæki sem seld
eru hér á landi. Þar
hafa verið sniðnir af
margir af þeim
vanköntum sem hafa komið í veg
fyrir velgengni fyrri tilrauna og
myndað módel sem virkar. Módel
sem er samboðið mannlegri reisn.
Um hvað snýst bylting
húmanista? Kjartan
Jónsson minnist hér á
tvær hliðar hennar.
Já, byltingin blívur
Það er hægt að tala um fleiri
svið. Um byltingu í gildismati, sám-
skiptum, fjölskylduformi, þörfina á
byltingu í siðferðismati sem fylgir
framförum í erfðatækni, varðandi
klónun, nýja möguleika í glasa-
frjóvgun o.þ.h., allt svið þar sem
húmanismi okkar hefur skýra út-
gangspunkta, hvort sem menn eru
sammála þeim eða ekki. Hvert
þessara þema er tilefni til meiri
umfjöllunar en þessar línur leifa.
Það er þó víst að byltingin blívur og
mun halda áfram að blíva því hún
hefur alltaf fylgt manninum. Hann
mun nefnilega aldrei verða alveg til
friðs. Sem betur fer.
Höfundur er félagi í
Húmanistahreyfíngunni.
Kjartan
Jónsson
Áhrifamáttur
ginsengs
RÆTUR ginseng
jurtarinnar (Panax
ginseng C.A. Meyer)
hafa öldum saman verið
notaðar í lækningaskyni
í Kína og víðar í Austur-
Asíu. I ginsengrótinni
eru líffræðilega virk
efni, svokölluð ginsenó-
síðsambönd (25-30 mis-
munandi sambönd) og
almennt er viðurkennt
að neysla þeirra geti
haft væg örvandi áhrif.
Ginseng er því talið hafa
góða verkun gegn til
dæmis þreytu, magn-
leysi og streitu. Þrátt
fyrir viðamiklar rann-
sóknir undanfama ára-
tugi eru verkanir ginsengrótar í
mönnum enn ekki að fullu ljósar.
Osamræmis hefur gætt við fram-
kvæmd rannsókna og því er erfitt að
bera saman niðurstöður hinna ýmsu
rannsókna. Ástæða þessa er meðal
annars að ekki hafa verið notuð
stöðluð extrökt úr ginsengrót, en
ginsenósíðinnihald rótanna getur að
sjálfsögðu verið mjög misjafnt, bæði
heildarmagn og innbyrðis hlutföll
mismunandi ginsenósíðsambanda.
I þeim takmörkuðu rannsóknum
sem gerðar hafa verið á einstökum
ginsenósíðum hefur komið í ljós að
verkanir þeirra geta verið mjög
ólíkar. Það er því sennilegt að virkni
ginsengs sé ekki einungis háð heild-
arstyrk ginsenósíða, heldur einnig
innbyrðis hlutfalli þeirra. Hins veg-
ar hefur aldrei verið skilgreint
hvaða hlutfóll ginsenósíða hafa
bestu áhrif. Til þess þyrfti mun ítar-
legri rannsóknir þar sem notaðar
yrðu staðlaðar samsetningar.
Styrkur ginsenósíða
Áhrif ginsengrótarinnar eru háð
styrk virkra efna, þ.e. ginsenósíða.
Seljendur ginsengafurða hérlendis
hafa hingað til einungis gefið upp
magn af ginsengrót í hverju hylki á
umbúðum. Þetta gefur hins vegar
mjög takmarkaðar upplýsingar því
styrkur ginsenósíða í rótunum er
mjög breytilegur.
Fyrir skömmu hóf Lyfja hf. inn-
flutning og sölu á rauðu eðalgins-
engi frá Gintec í Þýskalandi. Vara
þessi er seld í mörgum löndum Evr-
ópu og hefur notið vaxandi vin-
sælda. Hún hefur verið auglýst sem
þrefalt sterkari en rautt eðalg-
inseng frá Kóreu og er tilgreint á
umbúðum að hvert hylki innhaldi
a.m.k. 24 mg af ginsenósíðum. Þetta
hefur verið staðfest af erlendum
rannsóknafyrirtækjum, svo sem
Addipharma sem hefur sérhæft sig
í mælingum á náttúrulyfjum. í sam-
anburðarrannsókn þess fyrirtækis
kom í ljós að styrkur ginsenósíða í
rauðu eðalginsengi frá Gintec var
þrefalt meiri en í rauðu eðalgins-
engi frá Kóreu. Til að fá enn frekari
staðfestingu voru umræddar afurðir
sendar Háskóla íslands til magn-
mælingar. I rannsókn Háskólans
voru 7 mismunandi ginsenósíðar
magngreindir. Ekki voru til saman-
burðarstaðlar fyrir fleiri ginsenó-
síða. Þeir sem voru mældir hafa þó
verið mest rannsakaðir í gegnum
árin og almennt verið taldir virkast-
ir. I rannsókn þessari kom í Ijós að
að rautt eðalginseng frá Kóreu inni-
hélt 14,7 mg af þessum 7 ginsenó-
síðum í 1 g af muldri rót. Til saman-
burðar mældist rautt eðalginseng
frá Gintec með 33,2 mg, eða 123%
meira magn.
Vafasöm viðbrögð
Sala Lyfju á umræddu ginsengi
hefur valdð talsverð viðbrögð hjá
Sigurði Þórðarsyni, forsvarsmanni
Eðalvara ehf., sem um árabil hefur
selt rautt ginseng frá Kóreu og hefur
nánast verið einn um þennan markað
hérlendis. Til að kljást við þá sam-
keppni sem nú blasir við hefur hann
gripið til þess ráðs að
ófrægja þá vöru sem
Lyfja selur og reyna að
þyrla ryki í augu neyt-
enda. Hann hefur til
dæmis fullyrt að rótar-
endar séu aldrei notaðir
í rautt ginseng og skrif-
ar hann í Morgunblaðið
hinn 10. júní að bannað
sé að blanda rautt eð-
alginseng frá Kóreu
með rótarendum. Það
skýtur því skökku við
að lesa bækling um
rautt eðalginseng frá
Kóreu sem Eðalvörur
ehf. hafa gefið út og
dreift hér á landi. Þar
stendur að til að
tryggja hámarksgæði hafi Ginseng-
rannsóknarstofnun Kóreu sett fjórar
meginreglur hvað varðar ræktun og
vinnslu á rauðu ginsengi. Ein reglan
er að gæta skuli sérstakar aðgátar
við tínslu rótarinnar til að skemma
ekki hárfína rótarendana! í Morgun-
blaðinu hinn 27. maí sl. er haft eftir
Sigurði að fullyrðing um að rautt
ginseng frá Gintec sé sterkara en
kóreska ginsengið sé ekki á rökum
reist. I framhaldi af því ákvað undir-
ritaður að fela Rannsóknarstofu Há-
skóla Islands í lyfjafræði að greina
styrk umræddra efnasambanda í
þeim ginsengafurðum sem hér eru til
umræðu. Það kvað því skyndilega við
annan tón í skrifum Sigurðar í Morg-
unblaðinu hinn 10. júní sl. Þar stað-
hæfir hann að langt sé síðan menn
vissu að rótarendar innihéldu tvöfalt
meira magn af ginsenósíðum en aðrir
hlutar rótarinnar!
Sigurður boðar auk þess í grein
sinni sjónarspil þar sem Lyfja muni
að sjálfsögðu fá Háskóla Islands til
að staðfesta að rótarendar innhaldi
Æskilegt hlutfall gin-
senósíða hefur aldrei
verið, segir Ingi Guð-
jónsson, rannsakað eða
staðfest vísindalega.
þrefalt meira magn af ginsenósíðum
en meginhluti rótarinnar. Auk þess
heldur Sigurður á lofti ýmsum full-
yrðingum um hlutfall ginsenósíða
og ágæti sinnar vöru hvað það
snertir. Staðreyndin er hins vegar
sú að æskilegt hlutfall ginsenósíða
hefur aldrei verið rannsakað eða
staðfest vísindalega. Það er auðsjá-
anlegt að Sigurði er mikið í mun að
veita neytendum ekki faglegar upp-
lýsingar. Hann velur þann kostinn
að rægja samkeppnisvöruna og selj-
anda hennar.
Strangar kröfur
Rautt ginseng frá Gintec er fram-
leitt í Þýskalandi og skráð þar sem
náttúrulyf, en hráefnið er keypt í
Kína. f Kóeru og víðar í Austur-As-
íu er rautt ginseng talið fæðubótar-
efni, en er ekki skráð sem náttúru-
lyf. Þýsk yfirvöld gera því meiri
kröfur en hin kóresku hvað varðar
framleiðslu á afurðum af þessu tagi.
Við vinnslu ginsengróta er mikil-
vægt að gæta þess að fjarlægja ým-
is aukaefni og utanaðkomandi
mengunarvalda, svo sem þung-
málma, mýkótoxín og skordýraeit-
ur. Það er því brýn þörf á virku eft-
irliti með framleiðslu og innihalds-
efnum þessara afurða, ekki síður en
með framleiðslu lyíja og matvæla.
Rógsherferð Sigurðar gefur einnig
tilefni til þess að benda honum á 7
kafla samkeppnislaga nr. 8/1993
varðandi eftirlit með óréttmætum
viðskiptaháttum, því að rógsherferð
af því tagi sem hann hefur staðið
fyi’ir samræmist engan veginn þeim
ákvæðum sem þar er að fínna.
Höfundur er lyfjafræðingur
og framkvæm dastjórí Lyfju.
Ingi
Guðjónsson